Morgunblaðið - 07.06.1998, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Caribbeai
r 1 1
tteMi *TO»ii<fr «Í4 1
Sumaropnnn siniarskap
ogSiiðræn sveif!
Höfum Opið allan daginn í all
stórfenglegur salatbar; rófur,
lcartöflur, eggaldin, papríka, tómatar,
rauðrófur, hvítlailkur, laukur, kál, Ólívur,
balsam vinedik ÓlíVUOlíai.. ^ 000
m m m
PACIFIC
sfnu
Uppljómun
Poppi í Reykjavík vatt fram með rokkvöldi
í Loftkastalanum. Arni Matthíasson fór
að sjá Möggu Stínu meðal annars.
ANNAR þáttur í
skemmtileiknum Popp í
Reykjavík fór fram á
föstudagskvöld í Héðins-
húsinu og Loftkastalanum. Tón-
listin var venju fremur fjölbreytt
4 og hljómsveitir hver úr sinni átt-
inni hvað varðaði inntak, áherslur
og listfengi, ekki síður en útlit og
sviðsframkomu. Flestir biðu vís-
ast með eftirvæntingu eftir
debuttónleikum Margrétar Krist-
ínar Blöndal og hljómsveitar
hennar, en þeir voru líka margir
sem komnir voru til að sjá og
heyra Quarashi, vinsælustu
hljómsveit okkar tíma.
POPP í Reykjavík er yfir-
skrift hátíðarinnar góðu
og vissulega vel til fund-
ið, því safnað er saman á
einn stað mörgum af helstu
> hljómsveitum síðustu ára og ým-
islegu nýmeti, sumu upphituðu en
öðru glænýju. Fágætt færi á að
sjá allt það helsta sem er að ger-
ast í íslensku tónlistarlífi á einum
stað.
Með yfirskrift hátíðarinnar
vilja menn eflaust vísa til tíma-
mótamyndar Friðriks Þórs um
rokklíf í Reykjavík, en það ólíkt
að Friðrik var skrásetjari en
Popp í Reykjavík sviðsetning með
öllu því sem fylgir. Rokk í
Reykjavik var heimildarmynd um
neðanjarðarhreyfingu, sem
þreifst innan borgarsamfélagsins,
menningarkima ungs fólks sem
hafnaði viðteknum gildum og
hefðum, að minnsta kosti í orði,
og hagaði sér samkvæmt því. I
Poppi í Reykjavík, sem lauk á
laugardagskvöld, gafst kostur á
að berja augum skilgetin afkvæmi
menningarkimans og óskilgetin;
innan um listamennina voru
nokkrir sem tóku þátt i rokkbylt-
ingunni sem endurnærði íslenskt
tónlistarlíf í lok áttunda áratugar-
ins og upphafi þess níunda. Ekki
sáust margir frumherjanna á sviði
, Loftkastala eða Héðinshúss í
þessari lotu, mátti telja á fingrum
annarrar handar í þeim sæg sem
þátt tók í uppákomunni, en þeir
voru þeim mun fleiri í áhorfenda-
skaranum þó obbinn hafi verið
heima að passa eða horfa á Fjör á
fjölbraut.
Meðal merkisviðburða þetta
kvöld á Poppi í Reykjavik, sem
hafði fengið af einhverjum orsök-
um yfirskriftina rokk/dans, var
Margrét Kristín Blöndal, Magga
Stína, eins og áður er getið. Flest-
ir af eldri kynslóðinni voru líklega
komnir til að sjá hana, en þau
yngri komu til að sjá Sölva Blön-
dal og félaga hans í Quarashi. I
systkinabyltunni hafði Magga
Stína betur; dyggilega studd af
magnaðri hljómsveit kom hún
áheyrendendum gjörsamlega í
opna skjöldu. Þeir Quarashi-fé-
lagar voru góðir, reyndar framúr-
skarandi og jafnvel frábærir, en
Magga Stína var uppljómun.
FYRSTA smáskífulag
hennar Möggu Stínu
hefur glumið í útvarpi
undanfarið og hljómar
vel, en visast átti enginn von á þvi
að hún myndi mæta svo sterk til
leiks í Héðinshúsinu og raun bar
vitni, studd af magnaðri hljóm-
sveit, sem breytti sífellt um ham;
nú sem blómálfaflokkurinn þá
leikhúshljómsveit þjóðarleikhúss
Moldovíu og loks tryllt keyrsla
sem hljómsveitin Ham. Þessu
stýrði Maggga eins og herforingi;
keyrði félaga sína áfram af mis-
kunnarlausri hörku, járnhnefi í
silkihanska. Vissulega voru
hnökrar og lykkjuföll, sumstaðar
ómstríðir kaflar eða offlúrað slag-
verk, en alls staðar innblástur og
hugmyndagnótt.
Rokk/dans var yfirskrifin en
Magga Stína lék sannkallað þung-
arokk og Bellatrix, sem eitt sinn
hét Kolrassa krókríðandi, lék
einnig rokk, dansskotið. Vel til
fundið að skipta um nafn, svona
rétt til að undirstrika breyttar
áherslur, en þær Bellatrixur eru í
millibilsástandi; ólíkir straumar
falla ekki alltaf saman hjá þeim,
en sum laganna náðu að lifna og
sýna nýjan sannleik.
BELLATRIX galt þess að
nokkru leyti að koma á
svið eftir hamaganginn í
henni Möggu Stínu og
áður en hamagangurinn hófst hjá
Quarashi. Þeir Quarashi-menn
komu hamrammir til leiks og
sýndu og sönnuðu hvers vegna þar
fer vinsælasta hljómsveit landsins,
yfirburðasveit og frábærlega
skemmtileg á tónleikum. Þeir fé-
lagar tóku uppákomunni ekki
nema mátulega alvarlega, létu
nægja að hafa skipulag í æðinu.
SKIPULAG í æðinu hjá Hössa í
Quarashi.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
MARGRÉT Kristín Blöndal, eða bara Magga Stína; járnhnefi í silkihanska.
BELLATRIXUR á nýjum slóðum.