Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
146. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ríkisstjórn Rússlands leggur umbótatillögur fyrir þingið
Dúman samþykkir
hærri skatt á matvæli
Moskvu. Reuters.
Söguleg
stund á
S
N-Irlandi
DAVID Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokks Ulster (UUP), var í
gær kjörinn fyrsti ráðherra, eða
forsætisráðherra, N-Irlands á
opnunarfundi nýs heimastjórnar-
þings. Var Séamus Mallon, vara-
formaður flokks hófsamra kaþ-
ólikka, kosinn annar ráðherra.
Tókust þeir Trimble og Mallon í
hendur að kosningu lokinni og
var það sögulegt handtak því
mótmælendur og kaþólikkar
munu nú í fyrsta sinn deila völd-
um á N-írlandi, fyrir utan mis-
heppnaða samstjórn þeirra 1974.
Trimble hefur á síðustu dögum
verið harðlega gagnrýndur fyrir
að ganga of langt í samkomulags-
átt við Sinn Féin og jafnframt
kenna sambandssinnar honum um
þá ákvörðun breskra stjórnvalda
að banna Óranfumönnum að
ganga niður Garvaghy-veginn
Reuters.
TRIMBLE þungt hugsi í gær.
næstkomandi sunnudag.
Sagðist Trimble í gær ekki viss
um hvort hann myndi sjálfur taka
þátt í göngunni, þótt hann sé með-
limur í Portadown-deild Óraníu-
reglunnar, enda hefðu sér borist
hótanir frá harðlínumönnum inn-
an raða sambandssinna.
Sjónvarp Ulster greindi frá því
í gærkvöldi að Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, íiiugaði að
heimsækja N-írland. Ákvörðun
um það yrði tekin í dag.
■ Fornir fjendur/25
NEÐRI deild rússneska þingsins,
Dúman, samþykkti 9 liði af 20 í til-
lögum ríkisstjórnarinnar um rót-
tækar aðgerðir í efnahagsmálum við
fyrstu umræðu í gær. Tillögumar
miða fyrst og fremst að því að ná
jafnvægi í ríkisfjármálum, koma á
breyttri skattalöggjöf og leggja
grundvöll að aukinni iðnframleiðslu
á næstu tveimur árum.
Dúman samþykkti meðal annars
að leggja 20% virðisaukaskatt á alla
vöruflokka, og hækka þar með álög-
ur á mat og aðrar nauðsynjavörur.
Sergej Kíríjenko, forsætisráðherra
Rússlands, sagði að takmarkið væri
að jafna hlutfallið milli útgjalda og
tekna ríkisins fyrir 1. nóvember
næstkomandi, og að til þess væri
nauðsynlegt að hækka skatttekjur
úr 21 milljarði rúblna á mánuði í 25
milljarða, sem nemur nær 300 millj-
örðum íslenskra króna.
Pólitísk framtíð að veði
Kíríjenko hvatti Dúmuna til að
samþykkja tillögurnar í heild sinni,
en leiðtogar stjómarandstöðuflokka
tóku þeim tilmælum fálega. Komm-
únistafiokkurinn á flesta þingmenn
í neðri deild, og formaður hans,
Gennadí Zjúganov, sagðist myndu
styðja ákvæði um skattalög og efi-
ingu iðnaðarins.
Umræðum um tillögumar verður
fram haldið í Dúmunni í dag, en.
lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðar í
mánuðinum.
Embættismenn telja umbæturn-
ar vera forsendu þess að Rússland
hljóti nýtt lán frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum og öðlist tiltrú erlendra
fjárfesta. „Fjármálakreppan í heim-
inum, greiðsluhalli og erfiðar efna-
hagslegar og félagslegar aðstæður
innanlands gera það að verkum að
ekki má fresta því að taka ákvarð-
anir,“ sagði Kíríjenko, sem viður-
kenndi að pólitísk framtíð sín væri í
veði.
Jafnvel þótt svo fari að tillögur
ríkisstjómarinnar um aðgerðir í
efnahagsmálum hljóti stuðning á
þingi er viðbúið að erfitt reynist að
afla þeim fylgis meðal almennings
og koma þeim í framkvæmd í hér-
uðum landsins.
Annan og
Abiola funda
Abuja. Reuters.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, átti í gær fund
með Moshood Abiola, leiðtoga
stjórnai-andstöðunnar í Nígeríu, en
hann situr í fangelsi. Stjórnarerind-
rekar reyna nú hvað þeir geta til að
fá Abiola leystan úr haldi.
Háttsettur nígerískur embættis-
maður greindi frá fundi Annans með
Abiola í gær. Embættismaðurinn
sagði að enn stæðu yfír viðræður um
þá kröfu Abiolas að taka við embætti
forseta á grundvelli kosninganna
1993. Þær voru ógiltar er sýnt var að
Abiola myndi ná kjöri, og eru ástæða
stjórnmálakreppunnar í landinu.
„Það vilja allir að Abiola verði lát-
inn laus, en hann verður að gera sér
grein fyrir því, að umboð sem hann
kann að hafa haft er nú útrunnið,"
sagði embættismaðurinn. Talsmenn
SÞ vildu hvorki staðfesta né neita
því að Annan hefði hitt Abiola. Til-
kynning um fund hans og Annans
yi'ði gefín út í dag.
Reuters
Liðsauki í kauphöllinni
London, Bagdad. Reuters.
STJÓRNVÖLD í frak vísuðu í gær
á bug sem „lygi“ þeirri skýringu
bandarískra embættismanna að
flugskeytaárás á ratsjárstöð í suð-
urhluta landsins á þriðjudag hefði
verið gerð til verndar breskum og
bandarískum eftirlitsflugvélum, og
neituðu því að loftvamabyssum
hefði verið miðað á þær.
„Bandarísku embættismennirnir
vita að þeir eru að ljúga að þjóð
sinni og heiminum öllum, því þeir
vita að flugskeytið lenti á svæði ná-
lægt borginni Umm Qasir, þar sem
hvorki eru staðsettar ratsjárstöðv-
ar né herdeildir," sagði talsmaður
menningar- og upplýsingamála-
ráðuneytis íraks. „Hvernig gat þá
verið um að ræða ógnun við banda-
ríska og breska flugmenn?"
Opinbera dagblaðið a 1-Jumho-
uriya hvatti í gær öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna til að fordæma
árásina og afnema flugbann yfir
tveimur svæðum í írak, sem sett
var á eftir Persaflóastríðið árið
1991 til að koma í veg fyrir að
stjórnin í Bagdad gerði árásir á
sjítamúslima í suðri og Kúrda í
norðri.
Svo virðist sem bæði Banda-
ríkjamenn og írakar vilji komast
hjá aukinni spennu á svæðinu.
Stjórnmálaskýrendur telja þó
ástæðu til að vænta frekari
árekstra á næstunni, enda styttist í
að Sameinuðu þjóðimar ákveði í
október næstkomandi hvort áfram
skuli beita íraka efnahagsþvingun-
um.
Vaxandi alþjóðlegur vilji er fyrir
því að þeim verði aflétt, en Banda-
ríkjamenn og Bretar eru því mót-
fallnir.
Yfirmenn herafla Bandaríkjanna
við Persaflóa sögðu í gær að þeir
litu á það sem „lítilvægt atriði“ að
írakar hefðu miðað út flugvélarnar
á þriðjudag. Kváðust þeir ekki
telja að þetta myndi leiða til frek-
ari átaka.
BILL Clinton Bandarikjaforseti
heimsótti í gær kauphöllina í
Shanghai í Kína, í fylgd borgar-
stjórans, Xu Kuangdi (t.v.). For-
setinn settist við skjá eins verð-
bréfasalans en fór ekki út í brask
enda varla til þess ætlast. Clinton
heimsækir Hong Kong í dag.
■ Kína auki viðskiptafrelsi/26
frakar væna bandaríska embættismenn um lygi
Hvetja öryggisráðið
til að afnema flugbann
Viðskipti á netinu ýta
undir hagsveiflur
London. Reuters.
EFNAHAGSSVEIFLUR kunna
að verða tíðari eftir því sem
verslun á netinu fer vaxandi, að
því er segir í niðurstöðum rann-
sóknar sem birtar voru í gær.
Jeffrey Kephart og samstarfs-
fólk hans við Thomas J. Watson-
rannsóknarmiðstöð IBM í New
York segir það verða sífellt al-
gengara að neytendur sem versla
á netinu noti forrit, sem kölluð
eru hugbúnaðarfulltrúar, til að
leita að hagstæðasta verði.
„Þessir fulltrúar hafa tilhneig-
ingu til að ýkja markaðssveiflur
og skapa heiftarlegt verðstríð,"
segir í tímaritinu New Scientist í
umfjöllun um rannsóknina.
Kephart sagði að hugbúnaðar-
fulltrúar lytu ekki þeim takmörk-
unum sem venjulega settu höml-
ur á viðskipti. „Viðskipti þeirra í
millum eru tafarlaus, kosta lítið
og fjarlægðir skipta engu máli.“
Rannsókn sem gerð var við
MIT-háskóla í Bandaríkjunum
leiddi í ljós svipaðar niðurstöður,
sagði í New Scientist.