Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 10

Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BIRGIR ísleifur Gunnarsson, fráfarandi umdæraisstjóri, Hildur Sverrisdóttir, starfsmaður Jafningjafræðsl- unnar, og Georg H. Tryggvason, formaður Starfsgreinasjóðs, við afhendingu viðurkenningarinnar. Ríkissjóður sýknaður í málum þrigg;ía starfsmarma SR-mjöls hf. Málshöfðunin var þarflaus og dómkröfur haldlausar Jafningja- fræðslan hlýtur viður- kenningu JAFNINGJAFRÆÐSLUNNI var afhent viðurkenning Starfs- greinasjóðs Rotary á Islandi, 250 þúsund krónur, á lokahófi um- dæmisþings rotarymanna. Starfs- greinasjóðurinn var stofnaður ár- ið 1984 af því tilefni að 50 ár voru liðin frá upphafi rotarystarfs á Is- landi. I stofnskrá sjóðsins segir að veita skuli árlega viðurkenn- ingu fyrir einhver framúrskar- andi afrek eða merkar nýjungar. Georg H. Tryggvason, formað- ur starfsgreinasjóðsins, sagði í ávarpi við afhendingu viðurkenn- ingarinnar að sijórn starfsgreina- sjóðsins væri mjög stolt af því að rotarymenn bættust í hóp styrkt- araðila Jafningjafræðslunnar, en starf hennar hefði skilað miklum árangri nú þegar, að mati allra sem sljórnin ræddi við. Jafningjafræðslan, sem hefur nú starfað í rúmlega tvö ár, sinn- ir fræðslu meðal unglinga og framhaldsskólanema um skað- semi fíkniefna og afleiðingar af neyslu þeirra. I ávarpi Georgs sagði að stjórn starfsgreinasjóðs- ins hefði horft til þeirrar hugsun- ar Jafningjafræðslunnar að öll bærum við ábyrgð hvert á öðru sem manneskjur, en þeir sem sinna fræðslunni eru oft ung- menni sem hafa sjálf lent í vímu- efnaneyslu en náð sér upp úr henni aftur. -----♦♦♦------ Ein umsókn um Vest- mannaeyjar UMSÓKNARFRESTUR um Ofan- leitissókn í Vestmannaeyjapresta- kalli rann út í gær. Kristján Bjöms- son, sóknarprestur á Hvamms- tanga, sótti um stöðu sóknarprests. Beðið verður fram yfir helgi hjá Biskupsstofu með að upplýsa hvort fleiri sóttu um stöðuna og ákveða kjördag ef með þarf, enda tekið við umsóknum sem settar eru í póst á síðasta degi umsóknarfrests. Þetta er í annað sinn sem stöð- umar era auglýstar en í fyrra skipt- ið sótti enginn um stöðu prests og einn um stöðu sóknarprests, Skúli Ólafsson. Hann dró síðan umsókn síðan til baka þannig að auglýsa þurfti stöðuna aftur. RÍKIÐ var sýknað á þriðjudag í Héraðsdómi Reykjavíkur af öllum dómkröfum í málum þriggja starfs- manna Síldarverksmiðja ríkisins, síðar SR-mjöls hf. Stefnendur gerðu kröfur um greiðslu biðlauna vegna þeirrar breytingar sem gerð var 1993 er síldarverksmiðjunum var breytt í hlutafélagið SR-mjöl. Til vara gerðu stefnendur kröfu um skaðabætur að sömu fjárhæð. I báðum tilvikum var gerð krafa um greiðslu málskostnaðar og að ríkið yrði dæmt til að greiða virðisauka- skatt af aðkeyptri lögmannsþjón- ustu. Könnuðust ekki við að ríkið skuldaði þeini biðlaun Óumdeilt vai’ í málinu að ríkið hefði 20. desember 1996 greitt steftiendum biðlaun í kjölfar Hæstaréttardóms sem kveðinn var upp í máli fyrrum starfsmanns síldarverksmiðjanna. Könnuðust stefnendur, Jón Reynir Magnús- son, Ólöf Markúsdóttir og Kristján Öm Ingibergsson, ekki við það fyr- ir dómi að ríkið skuldaði þeim bið- laun og var fjárhæð biðlaunanna sem ríkið greiddi í desember 1996 óumdeild í málinu. Upphæð bið- launanna sem stefnendum vora greiddar í desember 1996 voru misháar eða 1.744 þús. kr., 2.274 þús. og rúmar 4 milljónir króna. I niðurstöðu héraðsdóms í mál- unum þremur segir: „Stefnandi kom íyrir dóm og kvað stefnda, ríkið, hvorki skulda sér biðlaun né dráttarvexti af þeim. Þegar litið er á dómkröfur stefnanda sést að í raun er ekki verið að krefja um greiðslu biðlauna. Enda er óum- deilt að þau hafi verið greidd þann 20. desember 1996 þó að stefnandi krefjist greiðslu þeirra allt að þeirri upphæð sen greidd hefur verið. Dómkrafan er með öðram orðum ekki til staðar. I kröfurétti gildir sú almenna regla að endalok kröfu era við greiðslu hennar. Stefnandi hefur því ekki með mála- tilbúnaði sínum sýnt fram á að hann hafi lögvarða hagsmuni af að fá niðurstöðu í málinu.“ Skín í gegn sú fyrirætlan að fá greiddan málskostnað í niðurstöðu dómsins segir einnig að Ijóst sé að biðlaun auk dráttarvaxta hafi verið greidd eins fljótt og auðið var eftir að dómur Hæstaréttar var kveðinn upp 1996. Innheimtubréf lögmannsstofu hafi því verið óþarft og Ijóst sé að í öll- um frágangi biðlaunagreiðslna naut starfsmannaskrifstofan í engu aðstoðar lögmannsstofunnar. „Tæpu ári eftir greiðslu biðlauna auk dráttavaxta inn á bankareikn- ing stefnanda höfðar hann málið ásamt átta öðrum umbjóðendum lögmannsstofunnar, sem einnig höfðu verið starfsmenn Síldarverk- smiðja ríkisins en vora nú starfs- menn SR-mjöls hf. Stefna sú sem birt var í þessum níu málum virðist vera að mestu leyti sama stefna og í Hæstaréttarmálinu nr. 90/1996, Guðný Árnadóttir gegn íslenska ríkinu, í lítið breyttri mynd, þrátt fyrir að aðstæður væra nú allt aðr- ar. Með vísan til þess sem hér að Færri sækja um MR UMSÓKNIR nýnema um skólavist í Menntaskólanum í Reykjavík eru færri en undanfarin ár, þannig að ekki hefur þurft að vísa eins mörgum frá og oft áður. Alls sóttu um að þessu sinni 240 nemendur og þurfti skólinn að vísa 15 nemendum frá. A síðasta ári sóttu um skólavist 275 og hafði þeim fækk- að úr' 330 frá árinu 1995. Að sögn Árna Indriðasonar, kennara við skól- ann, er erfitt að segja til um ástæður þessarar fækkunar. „Það er eríitt að geta sér til um ástæður þessarar þróunar og þær eru sjálfsagt margai’. Margir ný- nemar setja fyrir sig að þurfa að vera í skólanum eftir hádegi en það hafa þeir þurft að gera undanfarin ár. Þá virtust margir standa í þeirri meiningu að ekki þýddi að sækja um skólavist í MR nema einkunnir í samræmdu prófunum væru yfir 8,5. Við merkjum enga fækkun umsókna úr okkar hverfi en umsóknum utan hverfis og úr nágrannabæjum hefur fækkað," sagði Árni. framan gi’einir virðist skína í gegn sú fyrirætlan stefnanda og lög- manns hans að fá dóm um máls- kostnaðarkröfu lögmannsstofunn- ar Lögmanna, Mörkinni 1, og að stefndi, íslenska ríkið, beri þann kostnað. Það er stefnda, íslenska ríkinu, óviðkomandi hvort stefn- andi kýs að ráða sér lögmann til að koma fram fyrir hans hönd í sam- skiptum aðila. Stefndi, íslenska ríkið, gaf ekk- ert tilefni til að mál þetta yrði höfð- að enda krafa um biðlaun auk dráttai-vaxta fyrir löngu greidd og móttekin án fyrírvara. Er máls- höfðun þessi því með öllu þarflaus og mátti umboðsmanni stefnanda vera Ijóst að dómkröfur í máli þessu væra haldlausar. Þegar litið er til þess sem hér að framan er rakið er stefnda, íslenska ríkið, sýknað af öllum kröfum stefn- anda.“ Var málskostnaður felldur niður. Halla Bachmann Ólafsdóttir, sett- ur héraðsdómari, kvað upp dóm- ana. Furðugóð veiði í þurrkinum ÞRÁTT fyrir lakari skilyrði en í fyrra standa sumar ár betur eftir júníveiðina en í fyrra. Það á til dæmis við um Laxá í Kjós sem gaf 170 laxa í júní á móti 106 fiskum á jafnlöngum tíma í fyrra. Þetta ger- ist þrátt fyrir afspyrnu óhagstæða vatnshæð og stöðug bjartviðri. „Enda erum við mjög ánægð með gang mála í Kjósinni og höfum ekki áhyggjur af öðru í bili en að þurrk- urinn vari enn lengur. Annars var eitthvað verið að lofa rigningu á veðurkortunum. Við verðum að fá einhverja vætu bráðlega, áin rétt sytrar áfram,“ sagði Ásgeir Heiðar, fulltrúi leigutaka Laxár, í gærdag. Ásgeir sagði ekki nóg með að lax væri genginn um allt svæðið, held- ur væri komið talsvert af vænum sjóbirtingi. Hann héldi sig mest neðst á miðsvæðinu og væri sumt af honum 5-7 pund. Menn hafa að- eins fengið hann til að koma í agn- arsmáar þurrflugur og þeir hafa sloppið. Frábær byrjun í Svartá Veiði hófst í Svartá í Húnavatns- sýslu á þriðjudagsmorgun og lauk fyrsta hollið veiðum á hádegi í gær, veiddi sem sagt í einn og hálfan dag. Aflinn varð 15 laxar, sem er besta byrjun í ánni í áraraðir. Lax reynd- ist vera um alla á og veiddust t.d. nokkrir í Brúnarhyl, sem er á efsta veiðisvæðinu, nokkrir í Botnastaða- hyl á miðsvæðinu og hinir í ármót- unum við Blöndu. Flestir vora lax- arnir 10 til 12 punda hrygnur, en það voru einnig nokkrir 5-6 punda hængir í aflanum. Verðhækk- anir á áfengi Ingvar kokkur í veiðihúsinu við Langá sagði menn mjög sátta við gang mála, veiðin hefði verið furðu- góð miðað við stöðugt sólskin og bjart veður. 73 laxar voru komnir á land, laxinn tæki grannt, en menn sæju mikið af fiski. Guðmundur kokkur við Hítará sagði allt vera að fyllast af laxi í ánni og fimmtán hefðu veiðst síð- ustu tvo til þrjá dagana. Heildartal- an því rokin úr 5 í 20 og horfur góð- ar. Dauft er enn í Soginu, en þar ör- vænta menn ekki, því yfirleitt er júní lélegur. Þrír laxar voru komnir á þurrt í gær, tveir í Alviðru og einn í Bíldsfelli. Mjög góð bleikjuveiði hefur hins vegar haft ofan af fyrir veiðimönnum. VERÐ áfengis hækkaði í gær að meðaltali um 1,24%. Nokkur verð- lækkun varð þó á léttvíni. Bjór hækkaði að meðaltali um 0,28% og sterk vín, eða áfengi með styrkleika yfir 22%, hækkaði um 3,49%. Léttvín, eða áfengi með styrkleika undir 22% lækkaði að meðaltali um 0,83% þó sumar teg- undir borðvíns hafi lækkað um 3%. Þessar verðbreytingar stafa af nýjum ákvæðum laga um áfengis- gjald og breytingum á verði vöru frá birgjum, þrátt fyrir umtalsverða lækkun ÁTVR á áfengi. Áfengis- verslunin hefur lækkað álagningu sína sem nemur 50 milljónum ki’óna miðað við sölu síðustu 12 mánuða. Frá og með deginum í gær var einnig hægt að kaupa áfengi með krítarkorti. Þetta á þó einungis við um þá sem nota Eurokort greiðslu- miðil, en samningum ÁTVR við Visa um notkun samnefnds gi-eiðslukorts er ekki lokið. Að sögn Bjarna Þor- steinssonar hjá ÁTVR var ekki unnt að greina frá því hvers vegna samn- ingar hefðu ekki tekist milli samn- ingsaðila. Ekki náðist í Einar S. Ein- arsson forstjóra Visa Island í gær. STÓRLAX þreyttur í Pokafossi í Laxá í Kjós.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.