Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSLAND er 124. landið í heiminum sem Emil, Liliana og Landcruiserinn þeirra ferðast um. Á ferðalagi í fjórtán ár „VIÐ búum í bflnum og höfum þar allt til alls.“ Eldhúsið er í afturenda bflsins, undir hjónarúminu sem nýtist sem geymsla á daginn. Morgunblaðið/Arnaldur Á TOPPI bifreiðarinnar geyma þau vatn, bensín og aðrar nauðsynjar. Þar er einnig brúsi með stóru loki sem er þvottavélin þeirra. „Við setj- um þvottinn og þvottaefnið í, keyrum svo af stað og þetta virkar sem hin fínasta þvottavél.11 LANGREYNDUSTU ferðalangar heims eru á ferðalagi um fsland um þessar mundir. Emil og Liliana Schmidt eiga þrjú heimsmet, þau hafa lagt að baki lengsta ferðalag heims, ekið flesta kflómetra og komið til flestra landa á sama bfln- um, og öll eru afrekin skráð í heimsmetabók Guinness. „Við hófum ferðalagið í október 1984 en ætluðum upphaflega að vera á ferðinni í eitt ár. Svo lengd- ist það bara einhvern veginn og nú erum við búin að ferðast í 14 ár og höfum komið til 124 landa. Við bú- um í bflnum og þar er allt til alls fyrir okkur,“ segir Emil Schmidt. Hjónin hafa lagt að baki 471.000 kflómetra á ferðalaginu mikla og eru alltaf á sama bflnum. Hann er af gerðinni Toyota Landcruiser, árgerð 1982 og er alls keyrður 482.000 kflómetra. Hann hefur alltaf gengið á sömu vélinni, sem er bensínvél, en Emil segir að ef hann hefði vitað hvað þau hefðu átt eftir að ferðast lengi hefði hann skipt um vél eftir fyrstu tvö árin. Þau eru bæði Svisslendingar og var Emil 42 ára og Liliana 41 þeg- ar þau hófu ferðalagið. Þau höfðu safnað í ferðasjóð sem hefur enst þeim til dagsins í dag. „Venjulegt fólk í Sviss á okkar aldri hefði byggt sér hús fyrir peningana. í stað þess að byggja okkur hús, eins og allir aðrir, eyddum við þeim í þetta ferðalag og eignumst minningarnar í staðinn,“ sögðu hjónin. Þau hafa ekki unnið í fjór- tán ár, svo þau borga hvergi skatta en eru svissneskir rflds- borgarar. Dagleg neysla þeirra krefst ekki mikilla fjárútláta, segja þau, en það fer að vísu eftir því hvar þau eru stödd í heiminum. Að meðal- tali hafa þau eytt rúmum 2.500 krónum á dag. Þar meðtalið er bensín, viðhald bflsins, allar nauð- synjar og í rauninni allt nema flug- fargjöld. „Emil hefur gaman af tölfræði," segir Liliana, enda heldur hann til haga tölum yfír ótrúlegustu hluti sem henda þau á leiðinni. 128 sinn- um hefur sprungið hjá þeim, eða að jafnaði einu sinni á hveijum 3.620 km. I þeim 124 löndum sem þau hafa heimsótt voru töluð 45 ólík tungumál og notaðir 105 ólfldr gjaldmiðlar. Þau hafa sótt um 58 vegabréfsáritanir og með því fyllt 7 vegabréf. Bfllinn hefur eytt 111.539 lítrum af bensíni og þau hafa tekið 31.730 myndir. Hjónin komu með Smyrli til ís- lands og hafa þegar ferðast um Suðurland í tæpa viku. Þau stopp- uðu í Reykjavík, létu dytta að bfln- um hjá Toyota-umboðinu og ætla svo um Vesturland, Vestfirði, há- lendið, Norðurland og Norð- Austurland áður en þau taka ferjuna aftur til Noregs í lok júlí. Þau eru hér í sex vikur en að þeirra sögn staldra þau alltaf töluvert lengi í hverju landi til að kynnast menningunni. Þau hafa eignast vini um allan heim sem þau halda sambandi við, en þau tala ensku, þýsku, frönsku og spænsku, auk þess sem Liliana talar itölsku. „Ferðalagið hefur gefið okkur svo margt. Við höfum kynnst ólík- um lifnaðarháttum fólks og séð að okkar lifnaðarhættir eni ekki endilega þeir réttu eða bestu. Við höfum komist að því að maður kemst af með mun minna en mað- ur heldur að maður þurfi. Oll þessi tæki og tól sem fylgja lúxuslífi dagsins í dag eru ekki nauðsynleg til að geta lifað hamingjusömu lífi,“ segir Liliana og er ánægð með litla eldhúsið sitt sem er aftan í skottinu á Landcruisernum. „Heimurinn er heldur ekki eins slæmur og sagt er í tjölmiðlum. Hvarvetna sem við höfum komið höfum við hitt yndislegt fólk og alls staðar hefur verið tekið vel á móti okkur,“ segir Liliana, og full- yrðir að maður þurfi ekki að tala sama tungumál og fólkið til að kynnast því, samskiptin gangi ein- hvern veginn alltaf upp. „Við myndum halda áfram að ferðast ánægjunnar vegna en fjár- hagslega getum við það ekki. Við erum ekki á styrkjum og þau lönd sem við eigum eftir að heimsækja í heiminum eru flest eylönd á víð og dreif um heimsins höf sem væri dýrt að komast til.“ Léttlesin blöð fyrir þá sem eiga í erfíðleikum með að lesa venjuleg dagblöð Stuttar og skýrar setningar Þónokkur hópur fólks á erfítt með að lesa dagblöðin, þar sem letrið —------------------------------7---- er helst til smátt og fréttirnar stundum í fióknara lagi. I nokkrum nágrannalandanna hefur verið komið til móts við þarfir þessa hóps með því að gefa út svokölluð léttlesin blöð. Margrét Sveinbjörns- dóttir ræddi við Tomas von Martens, ritstjóra eins slíks blaðs. Morgunblaðið/RAX TOMAS von Martens, ritstjóri LL-bladet, en það er léttlesið blað sem gefið er út í Finnlandi - á sænsku og finnsku. Lesendahópurinn er breið- ur; þroskaheftir, sjónskertir, Iesblindir, aldraðir og innflytjendur. LL-BLADET, sem á íslensku gæti útlagst „Léttlesna blaðið", kemur út hálfsmánaðarlega á sænsku og finnsku í Helsingfors í Finnlandi. Það er ekki stórt í sniðum, átta síð- ur, en flytur engu að síður fréttir, innlendar jafnt sem erlendar, ýmis viðtöl og greinar. Helsti munurinn á LL-blaðinu og öðrum blöðum er sá að letrið er stærra, línubil rúmt, myndir stórar og setningar yfirleitt stuttar, skýrar og einfaldar - án þess þó að þær séu á neinu barnamáli. Lesendahópurinn er breiður; þroskaheftir, sjónskertir, fólk með lestrarörðugleika, aldraðir og innflytjendur. Einn þriggja ritstjóra blaðsins, Tomas von Martens, kom hingað til lands í stutta heimsókn á dögunum ásamt frænku sinni, Irinu von Mar- tens, en hún er höfundur leikritsins Irinas nya liv sem leikhópurinn Unga Klara sýndi á Listahátíð í Reykjavík. Irina, sem er með Downs-heilkenni, kom hingað í boði Landssamtakanna Þroskahjálpar. Raunar er þetta ekki í fyrsta sinn sem Tomas sækir ísland heim, því hann vann í frystihúsi í Grundarfirði sumarið 1984. Þróunin í átt að sjálfstæðum blöðum í Evrópu eru nú gefin út tíu létt- lesin fréttablöð, eitt á Ítalíu, tvö í Hollandi, eitt í Belgíu, eitt í Noregi, eitt í Danmörku, tvö í Svíþjóð og tvö í Finnlandi. Blaðamenn og ritstjórar þessara blaða hittast árlega á mál- þingum og bera saman bækur sínar. LL-bladet hóf göngu sína fyrir sjö árum, undir ritstjórn Hannu Virtanen, sem hefur verið aðalrit- stjóri blaðsins frá upphafi, en auk hans eru tveir ritstjórar á blaðinu, annar á finnsku útgáfunni og hinn, Tomas von Martens, á þeirri sænsku. Upplag blaðsins er alls 5.000 eintök, 3.000 á finnsku og 2.000 á sænsku. Tomas segir að flest léttlesnu blöðin á Norðurlöndunum hafi fyrst komið út fyrir um sjö árum. Sum- staðar hafi þau fyrst komið út sem hluti af stærra dagblaði, þ.e. sem aukablað, síða eða síður í aðalblað- inu. Það hafi raunar ekki gengið sér- lega vel til lengdar, svo yfirleitt hafi þróunin orðið í átt að sjálfstæðum blöðum, sem oftar en ekki séu ríkis- styrkt að meira eða minna leyti. LL- bladet er til að mynda gefið út af FDUV, sem eru systursamtök Þroskahjálpar í Finnlandi. Sömu grundvallarreglur blaðamennsku Aðspurður um lesendahóp nefnir Tomas þroskahefta, sjónskerta, fólk með lestrarörðugleika, aldraða, alzheimersjúklinga og innflytjendur. Hann segir það mismunandi inn á hversu breiðan hóp léttlesnu blöðin stíli, sum þeirra reyni að höfða til allra þessara hópa en önnur leggi sér- staka áherslu á t.d. þroskahefta. Auk þess er blaðið mikið notað í sænsku- kennslu í finnskum menntaskólum. LL-bladet flytur innlendar og er- lendar fréttir rétt eins og önnur blöð, en framsetningin er sem fyrr segir með nokkuð öðrum hætti. „Við leggjum áherslu á viðtöl og reynum að hafa allt mjög áþreifanlegt og rökrétt, skýrt og greinilegt. Mynd- irnar eru yfirleitt stórar og setning- arnar stuttar en þó eru allar sömu grundvallarreglur blaðamennsku viðhafðar og við skrif í önnur blöð. Við getum ekki einfaldað staðreynd- ir eða sett þær upp sem svart og hvítt, því blaðið má heldur ekki verða barnalegt," segir Tomas von Martens.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.