Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 24

Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU ERLENT Morgunblaðið/Sigurgeir SVERRIR Gunnlaugsson skipstjóri sést hér til hægri á myndinni sem tekin var í brúnni á Jóni Vídalín, en með honum á myndinni er Harald- ur Benediktsson 1. stýrimaður og afleysingaskipstjóri. Veiðst hafa tæp 11 þús- und tonn af gulllaxi UM síðustu mánaðamót höfðu veiðst alls 10.800 tonn af gulllaxi á þessu fískveiðiári og hefur mestur hluti afl- ans fengist síðastliðna tvo mánuði. Tæplega 60 skip hafa reynt við gull- laxinn og fengið tímabundin til- raunaleyfi til veiðanna. Aflahæstu skipin eru Vestmannaey VE með 1.750 tonn, Hrafn Sveinbjamarson GK með 1.730 tonn og Jón Vídalín ÁR með 1.380 tonn. I fyrra veiddust samtals 3.400 tonn af gulllaxi, en fram að þeim tíma hafði aflinn orðið mestur tæp 1.300 tonn árið 1993. Þar sem lítið er vitað um afrakstursgetu stofnsins hefur Hafrannsóknastofnun lagt til að sóknin verði ekki aukin of mikið og að aflinn á næsta fiskveiðiári fari ekki yfir 6.000 tonn. Að sögn Sverris Gunnlaugssonar, skipstjóra á Jóni Vídalín, gengu veið- arnar einna best seinnipartinn í maí, en síðan hefur dregið jafnt og þétt úr veiðunum eftir að fleiri skip hófu veiðar. „Við erum eiginlega búnir að snúa frá þessu núna og erum að athuga með karfann, en að vísu höfum við árangurslítið verið að draga austur undir Mýragrunn og gulllaxinn virð- ist ekki vera til staðar þar. Hann er greinilega búinn að hrygna og þá hverfur hann sennilega eitthvað tii að jafna sig. Allavega hefur hann dottið af sióðinni," sagði Sverrir. Hann sagði að rennt hefði verið blint í sjóinn með veiðarnar og senni- lega yrði að fara varlega í þær, en greinilegt væri að stunda mætti veið- arnar meirihluta ársins og þá líka á vetuma. „Það eru að detta niður hol hér og þar, en svo er eins og það þýði ekk- ert að fara í það sama aftur. Það verður því bara að hafa auga með þessu ásamt öðm. Drýgstu blettirnir hafa verið í kringum Eyjar og austur fyrir Skaftárdýpið, en einnig kom ágætis skot austur í Skerjadýpi um daginn. Hann virðist því vera nokk- uð víða við landið með suðurströnd- inni og vestur í Víkurál. Þetta er bara spurningin um að detta niður á blettina," sagði Sverrir. Ágætis búbót með öðru Gulllaxinn hefur m.a. verið seldur til Rússlands og einnig hefur eitt- hvað af mamingi verið selt til Nor- egs. Sverrir sagði að frystingin hefði verið að fá 50-60 krónur fyrir haus- aðan og slordreginn gulllax og 47 krónur hefðu fengist fyrir heilfryst- an físk með haus. „Svo höfum við verið að fá þetta upp í 25 kall fyrir ísaðan físk í kör- um. Maímánuðurinn var ágætlega drjúgur hjá okkur, en þá fengum við eitthvað á 9. hundrað tonn þar sem uppistaðan var gulllax. Við munum hafa auga með þessu í framtíðinni, en þetta fer greinilega í kvóta og því hljótum við að fá eitthvað. Þetta er ágætis búbót með öðra og þegar hægt er að taka þetta á skömmum tíma með þá gefur þetta pening," sagði Sverrir. **»* tNTIRNAtrOHAL M*vsrcs otv m>»ao Sjálfboðaliðar óskast við 29. ðlympíuleikana í eðlisfræði Þakkir fyrir góðar viðtökur Ólympíuleikar í eðlisfræði eru árleg samkoma afburða námsmanna i eðlisfræði og í ár verða þeir haldnir í fyrsta sinn á íslandi dagana 2.—10. júlí. Menntamálaráðuneytið er gestgjafi leikanna en að framkvæmd þeirra koma jafnt leikir sem lærðir. Störf fyrir vinnufúsar hendur eru fjölmörg á þessari 500 manna ráðstefnu og er hún upplagt tækifæri fyrir áhugasama að leggja vísindunum lið og stofna til tengsla við úrvals fólk alls staðar að úr heiminum. Framkvæmdanefnd vill þakka þeim 86 gestgjöfum - einstak- lingum, sendiráðum og ræðismönnum - sem bjóða þátttakendum leikanna til kvöldverðar á meðan á leikunum stendur. Einnig fá bestu þakkir þær 26 stofnanir og fyrirtæki sem boðið hafa þátttakendum leikanna að skoða starfsemi sína. Fjöldi sjálfboðaliða hefur boðið vinnu sína við undirbúníng og framkvæmd leikanna en enn vantar sjálfboðaliða á öllum aldri til að vinna við Ijósritun, símsvörun, akstur og keppnisaðstoð. Sérstaklega vantar fólk til að: 1. Vinna á skrifstofunni við símavörslu, sendiferðir og aðstoðar störf á dagtíma einhvern eða alla dagana 2,—10. júlí. 2. Vinna við kennilegu keppnina laugardaginn 4. júli kl 13—17. 3. Vinna við verklegu keppnina sunnudaginn 5. júlí kl 10—17 og mánudaginn 6. júlí kl 13—20. Nánari upplýsingar gefa skrifstofustjóri, Þórdís Eiríks- dóttir, í síma 525-5812 eða framkvæmdastjóri, Viðar Ágústsson, í síma 898-5966. Einnig má sjá frekari upplýsingar á heimasiðu leikanna www.hi.is/ipho og senda tölvupóst til ipho@rhi.hi.is Arafat segir að A-Jerúsalem verði varin með öllum ráðum Þolinmæði Palestínu- manna á þrotum Ramallah á Vesturbakkanum, Jerúsalem. Reuters. YASSER Árafat, for- seti heimastjórnar Palestínu, sagði í gær þolinmæði Palestínu- manna gagnvart ísra- el vera á þrotum og að þeir myndu verja „með öllum ráðum“ austurhluta Jerúsal- emborgar, þar sem arabar búa, gegn að- gerðum ísraelsstjóm- ar. Samtimis ákváðu þeir Ezer Weisman, forseti Israels, og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, að hætta að deila opin- berlega um framhald friðarviðræðna við araba. Ai-afat hélt ræðu á palestínska löggjafarþinginu og fór fram á fund arabaþjóða og jafnframt að utanrík- isráðherrar íslamstrúarþjóða hitt- ust til að ræða hvernig brugðist verður við áætlun Israels um að stækka borgarmörk Jerúsalem. ísraelsstjóm lítur á austurhluta Jer- úsalem sem óaðskiljan- legan hluta höfuðborgar sinnar en hefur annars haldið því fram að efna- hagslegar ástæður liggi að baki áætlaðri stækk- un því hún myndi auka skattatekjur borgarinn- ar. Arafat sagði deiluna um austurhluta Jerúsal- em, sem gyðingar náðu á sitt vald árið 1967 og innlimuðu síðan, hins vegar vera „spumingu um líf eða dauða“. „Það mun enginn frið- ur ríkja, ekkert öryggi vera til stað- ar og enginn stöðugleiki nema Jer- úsalem verði skilað, borgin mun ætfð vera höfuðborg sjálfstæðrar Palestínu hvort sem þeim líkar bet- ur eða verr“, sagði Arafat við mik- inn fögnuð þingmanna. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, og Ezer Weizman, forseti, ákváðu í gær á klukku- stundarlöngum fundi að slíðra sverðin og hætta að deila opinber- lega um framhald friðarviðræðna við Palestínumenn. Skeytin hafa flogið á milli mannanna eftir að Weizman sagði á mánudag að Net- anyahu ætti að boða til kosninga. Hann sagði á þriðjudag að forsætis- ráðherrann væri „veruleikafirrtur" en Netanyahu svaraði fyrir sig og sakaði Weizman um að taka málstað araba. Forsetinn væri með ummæl- um sínum að afhenda Palestínu- mönnum sterk vopn í samningavið- ræðunum um framsal lands á Vest- urbakkanum. Sagði í yfirlýsingu þeirra Weizmans og Netanyahus, að þeir hefðu nú ákveðið að slíðra sverðin „í þágu ísraels" og að öll skoðana- skipti þeirra myndu framvegis fara fram í einkasamræðum og ekki á opinberum vettvangi. Yasser Arafat Díönusafn opnað í Althorp SAFN til minningar um Díönu prinsessu var opnað í Althorp House, landareign Spencer- fjölskyldunnar, á afmælisdegi hennar í gær. Hundruð gesta lögðu blóm og afmæliskveðj- ur við dórískt musterið á æskustöðvum prinsessunnar. Bróðir Díönu, Charles Spencer jarl, tók á móti gestunum og stillti sér upp með þeim til myndatöku. Gestirnir létu vel af safninu, þar sem sýnd eru föt, gömul leikföng og ýmsir munir í eigu prinsessunnar, auk fjölmargra mynda af henni frá því hún ólst upp í Althorp Hou- se og þar til hún kom þangað í lieimsókn með sonum sínum. Gestirnir gátu einnig virt fyrir sér legstað Díönu á hólma á landar- eigninni. „Þetta er dásamlegt," sagði ung kona meðal gestanna. „Þetta er rétti staðurinn fyrir hana. Eg finn að hún er hér. Það fer stórkostleg friðartilfinning um mann hérna.“ Safnið verður opið í tvo mánuði í sumar og aðgöngumiðarnir 150.000 seldust upp á nokkrum dögum fyrir hálfu ári. Reuters Evrópudómstóllinn Álandseyjar Vilja eigin EÞ-fulltrúa Uppsögn á meðgöngu- tíma dæmd ólögleg Lúxemborg. The Daily Telegraph. EVRÓPUDÓMSTÓLLINN í Lúx- emborg felldi í fyrradag úrskurð, sem styrkir málstað kvenna, sem hafa orðið fyrir því að vera sagt upp störfum á meðan þær gengu með barn undir belti, og krefjast skaða- bóta vegna þess frá vinnuveitend- um. Dómurinn komst að þeirri niður- stöðu, að sé konu sagt upp einhvem tímann á meðan á meðgöngu stend- ur eða vegna fjarveru frá vinnu vegna veikinda sem orsakast af óléttu, brjóti það í bága við jafnrétt- isreglur Evrópusambandsins. Þessi úrskurður var sigur fyrir Mary Brown, 42 ára gamla skozka konu, sem var leyst frá störfum sem bílstjóri á meðan hún var ólétt 1991. Það var lávarðadeild brezka þings- ins sem vísaði máli hennar til Evr- ópudómstólsins eftir að þrjú dóm- stig í Bretlandi höfðu hafnað full- yrðingu Brown um að uppsögn hennar hefði verið brot á brezkum jafnréttislögum. Konan hafði tjáð vinnuveitanda sínum haustið 1990 að hún væri barnshafandi og að hún yrði að hætta vinnu vegna veikinda sem fylgdu þunguninni. Samkvæmt ráðningarsamningi fyrirtækisins má starfsmaður, sem er 26 vikur frá vinnu, búast við uppsögn, og þar sem Mary Brown mætti ekki til vinnu í febrúar 1991 var henni sagt upp störfum. Sex vikum síðar fædd- ist barnið. Evrópudómstóllinn staðfesti með úrskurði sínum þá grandvallar- reglu, að þar sem einungis konur geti orðið óléttar sé uppsögn á for- sendum sem rekja megi beint til þungunar hreint og klárt kynjamis- rétti. Hclsinki. Reutere. HEIMASTJÓRN Álandseyja, sem annars heyrir undir Finnland, hefur sett pólitísk skilyrði fyrir samþykki sínu við gildistöku Amsterdam-sátt- mála Evrópusambandsins (ESB). Fulltrúar á þingi Álandseyinga, sem 30 eyjarskeggjar eiga sæti á, krefjast þess að sjálfsstjórn eyjanna verði tryggð og að Álandseyingar fái sinn eigin fulltrúa á Evrópuþingið, þing Evrópusambandsins. Amsterdam-sáttmáli ESB er end- urskoðaður stofnsáttmáli sambands- ins og var undirritaður af leiðtogum þess fyrir rúmu ári. Margir hinna 25.000 sænskumæl- andi íbúa eyjanna eru óánægðir með tilflutning valds frá heimastjórninni til stjórnvalda í Helsinki, sem þeir telja að hafí átt sér stað við inngöngu Finna í ESB 1995. Finnska þingið staðfesti Amster- dam-sáttmálann fyrir Finnlands hönd í júnímánuði, eftir að stjórnar- skrárdómstóll landsins hafði komizt að þeirri niðurstöðu að samþykki Álandseyjaþings væri ekki nauðsyn- legt til þess að Finnland gæti stað- fest sáttmálann með löglegum hætti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.