Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 25
Heimastjórnarþing stofnsett í Belfast
Fornir fjendur
loks við sama borð
✓
Deilur um göngu Oraníureglunnar næstkomandi
---------------------7-----------------
sunnudag í Portadown á N-Irlandi vörpuðu skugga á
sögulega stund í gær þegar nýtt þing kom saman í
fyrsta sinn. Var loft því lævi blandið, segir Davíð Logi
Sigurðsson, þótt fæstum dyldist mikilvægi fundarins.
Belfast. Reuters.
TUTTUGU og sex ár eru síðan N-írland
hafði síðast eigið þing og ríkisstjórn og hefur
sá tími einkennst af vargöld og ósamlyndi
íbúa. Þykir dagurinn í gær marka eitt mikil-
vægasta skrefið á leiðinni til friðar sem stigið
hefur verið á þeim tíma því þingið er sett á
stofn í samræmi við samkomulag sem fulltrú-
ar næstum allra flokka á N-írlandi náðu í við-
ræðum og var síðan staðfest í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Eftir að kjöri hans var lýst biðlaði David
Trimble, forsætisráðherra N-írlands, til Sinn
Féin, stjórnmálaarms IRA, um að þeir lýstu
því nú yfir að „stríðinu væri lokið“ og sagði
hann framtíð þingsins nýja velta á þeirri
breytingu í afstöðu lýðveldissinna. Hafði
Gen-y Adams, leiðtogi Sinn Féin, fyrr um
daginn sagst styðja kjör Trimbles í embættið.
John Alderdice lávarður, sem sagði af sér
sem leiðtogi Alliance-flokksins í fyrradag,
stýrði fundinum sögulega í gær eftir að Mo
Mowlam, N-írlandsmálaráðherra, hafði til-
nefnt hann í embættið. Staðfestu fulltrúar
hins nýja n-írska þings seinna Alderdice sem
þingforseta en Alliance-flokkurinn hefur á
undanförnum árum barist fyrir því að brúa
bilið milli stjórnmálaflokka kaþólikka og mót-
mælenda.
í upphafi þingstarfa var eytt drjúgum tíma
í að útskýra hvemig þingið myndi starfa enda
hafði einn fréttaskýrenda Sky-sjónvarps-
stöðvarinnar á orði að augljóst væri að þing-
menn væru ögn ringlaðir, ekki aðeins vissu
þeir lítt hvernig þeir ættu að haga sér á þessu
nýja þingi heldur væru þau sögulegu tíðindi
að gerast að í fyrsta sinn sætu menn eins og
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, og Ian Pa-
isley, leiðtogi sambandsflokksins DUP, augliti
til auglitis í sama fundarsal. Eins og menn
muna gekk DUP út úr samningaviðræðunum,
sem lauk með samkomulaginu sem kennt er
við fóstudaginn langa, síðastliðið haust þegar
fulltrúum Sinn Féin var hleypt þar inn.
Trimble valinn
forsætisráðherra
Átti DUP-flokkurinn því ekki þátt í gerð
samkomulagsins og beittu flokksmenn sér
gegn því í þjóðaratkvæðagreiðslunni í maí.
Telja þeir það veita hi-yðjuverkamönnum IRA
syndaaflausn sem þeir eigi ekki skilið og er
það markmið Paisleys og félaga hans á þing-
inu nýja að koma í veg fyrir að Adams og
Martin McGuinness, helstu leiðtogar Sinn
Féin sem er stjómmálaarmur IRA, taki sæti í
ríkisstjórn, auk þess sem þeir hyggjast sjá til
%
Reuters
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Féin, horfir
íbygginn á Ian Paisley, leiðtoga sam-
bandsflokksins DUP, á þingfundi í gær.
Telja margir að brúa þurfi bilið milli
þessara manna til að koma á friði á N-ír-
landi en það verður þrautin þyngri.
þess að írska stjórnin í Dublin hljóti engin
völd í málefnum N-írlands.
Næst urðu fulltrúar þingsins nýja að rita
nöfn sín í bók og heita þar með að starfa í
samræmi við reglur páskasamningsins. Urðu
þeir einnig að geta þess hvort þeir kæmu úr
flokkum sambandssinna/mótmælenda eða
þjóðemissinna/kaþólikka eða hvort þeir væm
„hlutlausir“, líkt og Alliance-flokkurinn, en
þessir merkimiðar munu skipta sköpum á
þinginu því ákvarðanir í öllum meiri háttai-
málum verða að njóta stuðnings meirihluta í
hvorum hópi fyrir sig. Er þetta gert í sam-
ræmi við óskir kaþólikka sem vilja tryggja að
sambandssinnar nýti sér ekki meirihluta á
þinginu og taki upp svipaða stjórnarhætti og
þeir höfðu 1920-1972 þegar N-írland hafði
heimastjóm en sannað þykir að stjórn sam-
bandssinna mismunaði þegnum sínum eftir
kirkjudeild þeirra.
Skýrir þetta einnig hvers vegna rfldsstjórn
N-írlands mun verða samstjórn kaþólikka og
mótmælenda í samræmi við þingstyrk hvers
stjómmálaflokks og hvers vegna forsætisráð-
herra mun koma úr röðum sambandssinna,
sem þrátt fyrir allt era fleiri en þjóðernissinn-
ar, en aðstoðarforsætisráðherra kemur úr
röðum þeirra síðarnefndu.
Var David Trimble, leiðtogi Sambands-
flokks Ulster (UUP), tilnefndur í embætti for-
sætisráðherra eins og gert hafði verið ráð fyr-
ir og Séamus Mallon, varaformaður flokks
hófsamra kaþólikka (SDLP), aðstoðarforsæt-
isráðherra. Var það í samræmi við spár
fréttaskýrenda um að John Hume, leiðtogi
SDLP, myndi láta Mallon embættið eftir
vegna þess hversu Hume er störfum hlaðinn
fyrir og auk þess ekki heilsuhraustur.
Drumcree á dagskrá
Undir lok þessa fyi-sta fundar n-írska
þingsins gafst þingmönnum kostur á að ræða
önnur mál og vildu sambandssinnar þá ræða
gönguna umdeildu í gegnum Portadown
næstkomandi sunnudag. Ottast er að þar
muni koma til átaka því Óraníumenn hafa
strengt þess heit að hopa hvergi heldur ganga
sömu leið niður í miðbæ Portadown, er þeir
koma frá guðsþjónustu í Drumcree-kirkju, og
þeir hafa gengið síðan 1807 þrátt fyrir að sér-
leg „göngunefnd" breskra stjórnvalda hafi
bannað þeim það.
Krefjast sambandssinnar þess að rétturinn
til að ganga um þjóðvegi N-Irlands verði ekki
af þeim tekinn en kaþólikkar búsettir á Gar-
vaghy-veginum vilja ógjarnan fá Óraníumenn
í gegnum hverfi sitt. Reyna nú stjórnmála-
leiðtogar á N-írlandi sem mest þeir mega að
finna lausn á deilunni í snarhasti þannig að
allt það starf sem unnið hefur verið og var
kórónað með setningu þingsins í gær, hafi
ekki verið unnið fyrir gýg.
Útvarp og
segulband
Rafdrifnir
hliðarspeglar
Rafdrifnar
rúður
Samlitir
hliðarspeglar og
hurðahandföng
Litað
Stillanlegir
höfuðpúðar á
aftursætum
Líknarbelgir fyrir
farþega og ökumann
Kraftmikil 1600 vél,
16 ventla, 116 hestöfl
Niðurfellanleg
aftursæti
SamUtir
stuðarar
Samlæsingar
Vindskeið
Sparneytinn
Góður á
íslandi
Nú er tækifæri til aó gera reyfarakaup á ríkulega búnum Hyundai Elantra því sölumenn okkar
eru í einstaklega góðu samningsskapi þessa dagana.