Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
FERÐALÖG
MORGUNB LAÐIÐ
Við undirleik
þúfutittlinga og
hrossagauka
✓
I sumar leggja margir í gönguferðir
til að njóta náttúrunnar. Sigurkarl
Stefánsson gekk nýlega með félögum
sínum frá Kirkjustíg yfír Reynivalla-
i
Morgunblaðið/Margret Guttorrasdðttir
BUSÆLDARLEGUR Kjósardalurinn lá fyrir fótum göngumanna. Þar
Iiðast Laxá um í miklum bugðum.
háls að Fossá í Hvalfirði.
Á HVERJU vori skella starfsmenn
Menntaskólans við Hamrahlíð sér í
vorferð að loknum prófum, útskrift
stúdenta, frágangi, tiltekt og löng-
um fundarsetum. Þannig var kom-
inn góður ferðahugur í hópinn þeg-
ar lagt var upp frá skólanum
skömmu eftir hádegi mánudaginn
25. maí síðastliðinn.
Hægviðri var, bjart og fagurt og
úr háreistum langferðabílum mátti
ímynda sér hvemig borgin liti út
séð með augum ferðamannsins.
Fyrsti áfangastaðurinn nefndist
Hamrahlíð og þótti mörgum það
býsna gott nafn. Þetta er reitur
Skógræktarfélags Mosfellsbæjar í
hlíðum Úlfarsfells, rétt ofan við
Vesturlandsveg. Reiturinn er lið-
lega 40 ára gamall og þar hafa ver-
ið gróðursettar um 120 þúsund
plöntur af a.m.k. 15 tegundum.
Vegfarendum er lundurinn til
ánægjuauka og sumum finnst jafn-
vel að þeir séu komnir til Sviss
þegar þeir líta upp í hlíðina. Auk
þess fá Mosfellingar þar liðlega 200
jólatré árlega og í elsta lundinum
eru trén yfir 10 metra há.
Áfram var haldið og nutu ferða-
langamir ýmiss konar fræðslu og
skemmtunar á leiðinni, var ekki
hægt að merkja að kennarar hefðu
þurrausið viskubmnna sína um
veturinn. Farið var um Mosfells-
dal, Mosfellsheiði, Kjósarskarð og
að Reynivöllum.
Á bílastæðinu við ReynivaOa-
kirkjugarð skildi leiðir, nokkrir
fóm áfram í rútunni með sögu-
kennurunum að skoða rústir Mar-
íuhafnar en hún var á Búðasandi
sunnanvert á Hálsnesi og var ein
mesta kauphöfn landsins á 14. öld;
segir ekki meira af þeim í bili.
Flestir lögðu hins vegar upp í meg-
ingöngu dagsins, ætlunin var að
fara eftir svonefndum Kirkjustíg
yfir ReynivaOaháls að Fossá í
Hvalfirði. Forðum þótti þessi leið
greiðari en að fara fyrir hálsinn
þar sem þjóðvegurinn liggur nú,
því þai- var torfært vegna þess hve
skógurinn var þéttur!
Urð og grjót
Hópurinn þrammaði nú beint af
augum upp hlíðina yfir grösuga
móa við undirleik þúfutittlinga og
hrossagauka. Úr rátunni höfðum
við séð hvemig mótaði fyrir stígn-
um og innan skamms voram við
farin að feta í fótspor feðranna og
gengum sneiðing upp hlíðina.
Graslendið þraut fljótt og við tóku
gróðurlitlar urðir. Nokkuð er á
brattan að sækja og teygðist úr
hópnum, enginn asi var þó á fólki
og teknar góðar hvíldir. Þá var
rætt um það sem fyrir augu bar og
sagðar sögur. Með þessu lagi er
leiðin flestum fær og em þar engar
sérstakar hindranir, girðingar
meira að segja fáar.
í miklu
VINTERSPORT
ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG
BlLDSHÖFÐA - Bíldshöfða 20 - Slmi: 510 8020
í HAMRAHLÍÐ. Sigurkarl
leiddi göngumenn um skóginn.
í góðviðrinu var útsýnið stór-
kostlegt, grösugur og búsældarleg-
ur Kjósardalurinn lá fyrir fótum
okkar. Þar liðast Laxá um í mikl-
um bugðum en er þó ekki svo Iangt
komin í þroska að bugðurnar hafi
náð saman og myndað bjúgvötn. I
vestri sá yfir Hvalfjörð og í Akra-
fjalli sást vel hvemig hraunlögin
sem það mynda hafa smám saman
farið að hallast. Áfram var haldið
upp Kirkjustíginn eftir gróður-
lausri hlíðinni en efst í henni er þó
vel gróin hvilft, Fannahlíð. Þegar
upp á hálsinn kom var gengið eftir
Langamel í norðaustur og yfir á
Prestsás.
Hér vomm við komin í a.m.k.
360 m hæð yfir sjó og ekki var út-
sýnið síðra norðuraf. Sjónarhornið
var óvenjulegt, Miðsandur, Fer-
stikla og Saurbær kúrðu á Hval-
fjarðarströnd með hvassa tinda
Skarðsheiðar í baksýn. I austurátt
sáust Botnssúlur en sumir segja að
af tindunum fjómm sé dregið bæj-
amafnið Ferstikla.
Kirkjustígsgangan endar
Nú var stefnan tekin á bæinn
Fossá og þá tók brátt að halla und-
an fæti. Gróðurinn varð sífellt fjöl-
breyttari og öflugri og að lokum
voram við farin að ganga í skógi,
en Kópavogsbúar hafa gróðursett
talsvert í landi Fossár. Við hlaðna
rétt skammt frá þjóðveginum sam-
einuðust svo hópamir og snæddu
nesti sitt. Þessi Kirkjustígsganga
tók um það bil tvo tíma og eins og
áður sagði voru menn ekki að flýta
sér.
Ferðinni var þó ekki lokið því nú
var stigið upp í rátuna á ný og
haldið fram á Botnsdal þar sem
farið var í leiki. Þá friðsæld sem
ríkir í Botnsdalnum má að nokkm
þakka því að þjóðvegurinn var
færður utar í fjörðinn og eftir að
Hvalfjarðargöngin komast í gagnið
verður þar vart önnur hljóð að
heyra en fuglasöng og lækjarnið.
Úr Botnsdal var haldið að felags-
heimilinu að Hlöðum og var það
síðasti viðkomustaðurinn. Þar vora
vöðvar mýktir í sundi og heitum
pottum. Eftir gómsætan kvöldverð
var svo sungið og dansað fram eftir
kvöldi.
Kynnum nýja
líkamskremið
Body Radiance
Moisturizer ásamt
öðrum nýjungum
og frábærum tilboðum
frá Christian Dior
í Hringbrautarapóteki
í dag, fimmtudaginn 2. júlí kl. 14—18,
fostudaginn 3. júíí kl. 14-18.