Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 37

Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 37 dalagsins hefst á morgun ianns Alþýðubandalagsins, bíður það u sína um sameiginlegt framboð án fnings innan flokksins. t eindregið til þess að félagshyggju- ssningum. stuðningsmenn sameiginlegs fram- boðs segja að það sé einfaldlega ekki hægt að draga það lengur að marka stefnuna. Verði ekki tekin afdráttarlaus af- staða á landsfundinum mun staða þingflokksins til að móta stefnuna styrkjast og þar með staða þeirra sem vilja að flokkurinn fari sér hægt í samfylkingarmálum. Þeir sem vilja að Alþýðubandalagið bjóði ekki fram í eigin nafni í næstu þing- kosningum heldur í samstarfí við aði'a stjórnarandstöðuflokka leggja því ofurkapp á að landsfundurinn taki afdráttarlausa stefnu sem gefi þingflokknum og öðrum stofnunum flokksins skýr fyrirmæli um hvernig beri að vinna fram að kosningum. Þeir vilja takmarka sem mest svig- rúm þingflokksins til að móta stefn- una. Yfirlýsingar Svavars Gestsson- ar, formanns þingflokksins, um að ólíklegt sé að hrein niðurstaða náist á landsfundinum hafa því farið illa í sameiningarsinna. Svavar hefur vilj- að fara varlega í samfylkingarmál- um, en þó reikna flestir með að hann styðji tillögu formanns flokks- ins á landsfundinum. Stuðningur við sameigin- legt frainboð eykst Enginn vafi þykir leika á að innan Alþýðubandalagsins hefur andstað- an við sameiginlegt framboð minnk- að á síðustu 2-3 árum. Skýringarn- ar á því eru ýmsar. Menn nefna gjarnan að sífellt fleiri séu að kom- ast að þeirri niðurstöðu að flokkur- inn verði að reyna nýjar leiðir til að komast til áhrifa. Flokkurinn hafi verið áhrifalítill við stjórn landsins mjög lengi og andstæðingar hans á hægii væng stjórnmálanna hafi sjaldan verið sterkari. Upp á síðkastið hafa alþýðu- bandalagsmenn í forystu verkalýðs- hreyfingunnar tekið einarða afstöðu með hugmyndum um sameiginlegt framboð. Þetta þykir hafa styrkt stöðu sameiningarsinna og ekki síð- ur stöðu Margrétar Frímannsdótt- ur, formanns flokksins, sem hefur oft þui'ft að heyja erfiða baráttu við að vinna sjónarmiðum sínum fylgi innan þingflokksins. Skiptar skoðanir eru um hvort úr- slit sveitarstjórnarkosninganna í vor hafi styrkt stöðu þeirra sem vilja sameiginlegt framboð. Þó að sameiginlegu framboðin hafi náð mjög góðum árangri í nokkrum sveitarfélögum voru úrslitin í heild ekki í samræmi við vonir alþýðu- bandalagsmanna. Almennt er þó talið að árangur sameiginlegu fram- boðanna í vor hafi ekki dregið úr áhuga alþýðubandalagsmanna á að halda áfram á þessari braut. Hvað þýðir fjögurra ára tilraun fyrir Alþýðubandalagið? Margi'ét Frímannsdóttir, formað- ur Alþýðubandalagsins, hefur enn ekki kynnt þá tillögu sem lögð verð- ur fram við upphaf fundarins á morgun. Flestir reikna þó með að tillagan geri ráð fyrir að Alþýðu- bandalagið lýsi sig reiðubúið, á grundvelli fjögurra ára samstarfs- samnings við aðra stjórnarand- stöðuflokka um markmið og mál- efni, að bjóða fram sameiginlegan framboðslista í næstu þingkosning- um. Þetta þýðir að Alþýðubandalag- ið mun ekki bjóða fram í eigin nafni svo fremi sem kjördæmisráð í ein- stökum kjördæmum fara að tilmæl- um landsfundarins. Margrét leggur áherslu á að ekki sé verið að gera tillögu um að leggja Alþýðubandalagið niður. Það muni starfa áfram, en hún segir jafnframt að ef sú fjögurra ára tilraun, sem rætt sé um að gera, gangi vel kunni svo að fara að stofnaður verði nýr stjórnmálaflokkur sem þýði að Al- þýðubandalagið hætti starfsemi. Steingrímur J. Sigfússon telur að það sé mikil einfoldun að tala um að Alþýðubandalagið komi til með að starfa áfram verði tillaga þessa efn- is samþykkt á landsfundinum. Það sé vissulega skilgi-einingaratriði hvenær flokkur hætti að starfa, en þegar hann sé búinn að lýsa því yfir að hann ætli ekki að bjóða fram í eigin nafni og þingmenn hans og aðrir trúnaðarmenn séu hættir að tala í hans nafni heldur í nafni ein- hvers annars flokks eða samtaka þá sé ekki mikið líf eftir í flokknum og nánast aðeins formsatriði að leggja hann niður. Það má reikna með að tekist verði á um þetta atriði á fundinum. Er verið að leggja Alþýðubandalagið niður í reynd eða er verið að tala um að gera fjögurra ára tilraun? Það kann að ráða miklu um niðurstöðu fundarins hvernig þeir sem koma til fundarins án þess að hafa tekið mjög afdráttarlausa afstöðu til til- lögunnar um sameiginlegt framboð svara spurningunni. Kjördæmisráðin taka endanlega ákvörðun Skipulag Alþýðubandalagsins gerir ráð fyrir að kjördæmisráð í hverju kjördæmi fari með fram- boðsmál flokksins. Það er því ekki hlutverk landsfundar eða foi’ystu flokksins að segja fyrir um hvernig flokkurinn hagar framboðsmálum í einstökum kjördæmum. í reynd getur landsfundur því ekki gert annað en að beina því til kjördæmis- ráðanna að eiga samstarf við hina stjórnarandstöðuflokkana við undir- búning næstu kosninga. Væntan- lega mun landsfundurinn taka af- stöðu til þess hversu náið þetta sam- starf skuli vera. Stefna landsfundar- ins í samfylkingarmálum hefur án ef mikil áhrif á afstöðu kjördæmisráð- anna, en eftir sem áður er hið form- lega vald til að taka ákvörðun um sameiginlegt framboð í þeirra hönd- um. Kjördæmisráðin þurfa einnig að ná samkomulagi við kjördæmisráð Alþýðuflokksins og við Kvennalist- ann um uppstillingu á lista. Allt eins má reikna með að kjördæmisráðin fari ólíkar leiðh' við að stilla upp á lista. Þau geta falið uppstillingar- nefnd að raða á listann, efnt til sam- eiginlegs prófkjörs, verið með próf- kjör í hverjum flokki fyrir sig o.s.frv. Ekki er heldur hægt að úti- loka að kjördæmisráð flokkanna komist að þeirri niðurstöðu að bjóða fram í nafni flokka sinna eins og gert hefur verið fram að þessu. Hætta á klofningi Ljóst er að margir alþýðubanda- lagsmenn óttast að flokkurinn klofni í kjölfar þeirrar ákvörðunar sem tekin verður á landsfundinum. Sum- ir segja reyndar rangt að tala um hættu á klofningi. Ekki sé nema eðlilegt að leiðir skilji með sumum flokksmönnum ef framboðsmálum flokksins verði fundinn nýi' farveg- ur. Það muni gerast hjá Alþýðu- bandalaginu og Alþýðuflokknum einnig. Þá liggi fyrir að Kvennalist- inn sé klofinn í afstöðu til sameigin- legs framboðs. Þeirri spurningu hef- ur verið varpað fram hvort Alþýðu- bandalagið klofnaði þegar Ossur Skarphéðinsson og fleiri gengu úr flokknum á sínum tíma. Það liggur einnig fyrir að taki landsfundurinn þá afstöðu að fresta afgreiðslu málsins eða ákveði að taka ekki þátt í sameiginlegu fram- boði i næstu alþingiskosningum eru miklar líkur á að hluti flokksmanna gangi til liðs við Alþýðuflokkinn. Staðan innan flokksins er því við- kvæm. Hversu margir segja skilið við flokkinn eftir landsfundinn mun m.a. ráðast af því „hvort stigið verð- ur fast á tærnar á mönnum í þeim dansi sem stiginn verður á fundin- um“ eins og einn flokksmaður orð- aði það. Þegar liggur fyi'ir að Hjörieifur Guttormsson ætlar ekki að starfa með Alþýðubandalaginu taki flokk- urinn ákvörðun um að bjóða fram með Alþýðuflokknum í næstu kosn- ingum. Hjörleifur sagði að ástæðan væri bæði sú að milli flokkanna væri ági-einingur í mörgum grundvallar- málum og eins hitt að sú stefna sem Alþýðuflokkurinn hafi fylgt á síð- asta kjörtímabili bendi ekki til þess að flokkarnir eigi margt sameigin- legt. Það er því almennt gengið út frá því að Hjörleifur muni segja sig úr Alþýðubandalaginu eftir landsfund- inn fari sem horfir að fundurinn samþykki að Alþýðubandalagið bjóði fram sameiginlegan lista. Hjörleifur vildi í samtali við Morg- unblaðið ekki svara því hver yrðu hans viðbrögð eftir fundinn, en hann i svaraði því afdráttarlaust að hann væri ekki hættur í pólitík. Meiri óvissa ríkir um viðbrögð Steingríms J. Sigfússonar ef sam- þykkt verður að fara út i sameigin- legt framboð. Hann hefur hvatt til þess að gerður verði samningur milli stjórnarandstöðuflokkanna um samstarf til 4 ára, sem m.a. feli í sér sameiginlegan málefnagrundvöll. Hann vill hins vegar ekki ganga svo langt að efna til sameiginlegs fram- boðs í næstu kosningum, en útilokar ekki slíkt framboð í þingkosningun- um 2003. Steingrímur hefur ekki lýst því yfir afdráttarlaust að hann muni greiða atkvæði gegn tillögu um sameiginlegt framboð þó enginn ætti að velkjast í vafa um að hann er andsnúinn slíkri tillögu. Hann sagð- ist aðspurður ætla að sjá hvað gerð- ist á fundinum og hvernig umræður þróuðust. Hann sagðist vara við af- leiðingum slíkrar samþykktar fyrir flokkinn. Því væri ekki að neita að viss hætta væri á klofningi, en hann kvaðst ekki vera að boða klofning heldur vara við honum. Hvað gerist eftir fundinn? J Steingi'ímur þykir hafa sterka stöðu í flokknum ekki síst í sínu kjördæmi, á Norðurlandi eystra, sem er eitt sterkasta vígi flokksins. Hann er fyrrverandi ráðherra flokksins og keppti við Margréti Frímannsdóttur um formannsemb- ættið. Enginn vafi er á að ákveði hann að segja skilið við Alþýðu- bandalagið verður það áfall fyrir hið sameiginlega framboð sem rætt er um að efna til. Steingrímur hefur andmælt harðlega hugmyndum um veiðileyfagjald, en mjög skiptar skoðanir eiu um það innan flokks- ins. Það eru fleiri mál sem erfitt get- ur orðið að skapa samstöðu um meðal félagshyggjuflokkanna. Næg- ir að nefna utanríkismál og landbún- aðarmál. Þá má ekki gleyma því að hópar utan Alþýðubandalagsins hafa lýst andstöðu við sameiginlegt framboð og þeir sem ekki hafa hug á að starfa innan Alþýðubandalagsins að sameiginlegu framboði gætu hugs- anlega tekið höndum saman við þá. Þar má nefna Ögmund Jónasson, alþingismann og formann BSRB, en hann var á lista Alþýðubanda- lagsins og óháðra í Reykjavík í síð- ustu kosningum. Stuðningsmenn hans hafa stofnað félag sem hefur talað gegn sameiginlegu framboði. Kvennalistinn er ennfremur klofinn í afstöðu til sameiginlegs framboðs og þar eru því konur sem vantar pólitískan vettvang. Það má því færa rök fyrir því að það kunni að vera rúm fyrir ný stjórnmálasam- tök á vinstri væng stjórnmálanna fari svo að Alþýðubandalag, Al- þýðuflokkur og Kvennalisti efni til sameiginlegs framboðs í næstu kosningum. Það er hins vegar ekki víst að málefnaleg samstaða milli Steingríms J. Sigfússonar, Hjör- leifs Guttormssonar, Ögmundar Jónassonar og andstæðinga sam- eiginlegs framboðs innan Kvenna- listans sé nægilega mikil til að þau geti stofnað trúverðugt stjórnmála- afl. Það er einnig erfítt að spá fyrir um hvort styrkur andstæðinga sam- eiginlegs framboðs á landsfundinum endurspegli styrk þeiiTa í flokknum. Hvorki Hjörleifur né Steingrímur hafa verið með liðskönnun eða reynt að safna andstæðingum sameigin- legs framboðs saman í einn hóp. . Stuðningsmenn sameiginlegs fram- boð hafa hins vegar reynt að stilla saman strengi sína og virðast því koma til fundarins sem nokkuð skipulögð liðsheild. Það bendir því flest til að tillaga Margrétar Frímannsdóttur verði samþykkt á fundinum. Það er hins vegar erfitt f að spá fyrir um hvað gerist í fram- haldinu. STEINGRÍMUR J. Sigfússon er einn þeirra sem hafa lýst yfir andstöðu við hugmyndir um sameiginlegt framboð í næstu þingkosningum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.