Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 44
J 44 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ______________AÐSENDAR GREINAR_ Góður - betri - bestur ÞETTA er fyrsta greinin af þremur um gamlan og nýjan vanda skólakerfisins, einkum þó um það sem ég kalla kreppu sérkennslunn- ar. Góður skóli Mikil tíðindi hafa verið að gerast í skólamálum undanfarna mánuði. Grunnskólinn er að fullu kominn í hendur sveitarfélaga, voldug fræðslumiðstöð er starfrækt í Reykjavík, fræðslu- eða skólaskrif- stofur hafa verið settar á stofn í stærstu kaupstöðunum, ráðgjafar eru ráðnir í grunnskóla og fram- haldsskóla, sérkennsla eykst að umfangi og dýrleika og millistjórn- endum í skólum fjölgar. Vönduð skólahús eru reist, búin dýrum kennslutækjum og fjölmiðlar segja að sátt ríki um skólann. En lengi má gott bæta enda boðar mennta- málaráðuneytið enn betri skóla í nýrri skólastefnu og sveitarstjómir kynna ekki aðeins góða skóla heima í héraði heldur bestu skól- ana. Þetta er ævintýralega fögur mynd af fyrirmyndarríki sem met- ur böm og unglinga að verðleikum og sinnir hverjum og einum af kostgæfni. En því miður ber nokkurn skugga á þessa glæstu mynd. Nokkrar staðreyndir 1. Árlega ljúka hátt í 1.000 böm skyldunámi með svo lélegum ár- angri að framhaldsnám er þeim nánast lokað. 2. Framhaldsskólinn er einn. Hann er samræmdur, þess vegna em sömu kröfur gerðar í öll- um bóklegum byrjun: aráföngum hans. 3. I nær öllum framhalds- skólum stendur aðeins einnar annar undir- búningsnám (fomám, 0-áfangar) til boða bömunum sem stand- ast ekki kröfur grann- skólans. Hugmyndir era þó uppi um lengra nám fyrir þau. 4. Sam- kvæmt alþjóðlegri könnun á kunnáttu í stærðfræði og raun- greinum standa íslensk böm á grannskólaaldri sig illa. Ungmenni í framhaldsskóla standa sig betur. 5. Miklum fjármunum er árlega varið til sérkennslu heil- brigðra barna, þ.e.a.s. barna sem ekki hafa skorið sig úr á neinn hátt íyrir skólaskyldualdur og era hvorki fótluð né vangefin. 6. Bömin sem „falla“ í grannskóla era nær öll með brotna sjálfsmynd. 7. Margir álíta að með skólastefn- unni, sem var tekin 1974, hafi námskröfur minnkað og agaleysi aukist. Til vitnis um hið fyrra má nefna brotakennda þekkingu ung- menna í bókmenntum, sögu og landafræði. Til vitnis um hið síðara er nærtækast að taka ummæli for- manns Skólastjórafélags Reykja- víkur, Þorsteins Sæberg, er hann kom úr Bjarmalandsför sinni til Singapore sl. vor. Hann segir að skólastjórar komi til með að skoða agamál í grunnskólum borgarinnar en þau séu mjög alvarleg. (Morg- unblaðið 17. apríl 1998.) Hvernig má þetta vera? Hvemig stend- ur á þessu mikla mis- ræmi sem er annars vegar á ytra borðinu og þess sem inni fyrir býr? Áður en lengra er haldið er rétt að bregða sér svo sem 30 ár aftur í tímann. Mengi Um 1960 urðu há- værar þær raddir á Vesturlöndum sem töldu skólum vest- rænna þjóða áfátt í mörgu og þeir ekki standast samanburð við skóla sósíalísku landanna. Til marks um það var forskot Sovét; ríkjanna á sviði geimrannsókna. I kjölfarið fylgdu snöggsoðnar um- bætur í stærðfræði- og raungreina- kennslu ungra barna. Þjóðirnar töldu hættu á ferðum, þær mættu engan tíma missa í kapphlaupinu um geiminn. (Sjá bók mína þjóð í hættu. 1996.) Hér á landi voru svokölluð mengjafræði tekin upp í stað venjulegs reiknings í barna- skóla en með kennslu í mengjum átti að leggja betri grann að stærð- fræðilegri hugsun en unnt hafði verið með hefðbundinni reiknings- kennslu. Námskeið vora haldin fyr- ir kennara og foreldram tekinn vari við að hjálpa börnunum við heimanámið, það gæti spillt fyrir góðum árangri kennslunnar. Eins og allir vita mistókst þetta og nú mun mengjakennslan og framkvæmd hennar vera talin skólabókardæmi um það hvernig ekki á að standa að nýjungum í námi og kennslu. Hins vegar er ekki vitað hversu afdrifarík til- raunin varð fyrir börnin sem hún bitnaði á. Vel má vera að hún hafi spillt verulega fyrir mörgum og Þó kennaramenntunar- stofnanir haldi dellu- kenningar í heiðri, segir Helga Siguijóns- dóttir í þessari fyrstu grein af þremur um kreppu sérkennslunn- ar, mega þær ekki bitna á hverri kynslóð- inni á fætur annarri. jafnvel valdið því að sumir, sem annars hefðu haldið áfram námi, gerðu það ekki. Einna verst var þó hvað mengja-ævintýrið breikkaði bilið milli heimila og skóla. Svipað gerðist um 1940 þegar svokölluð „hljóðaaðferð" varð algengasta kennsluaðferðin í lestri. Þá var for- eldram nánast bannað að æfa bömin í lestri. Enn heyrast þær raddir að best sé að börnin komi ólæs í skólann þó að vitað sé að því meira sem forskólaböm læra í lestri, skrift og reikningi þeim mun betur famast þeim í námi síðar. Helga Sigurjónsdóttir Dellukenning Nú skyldi maður ætla að eftir til- raunastarfsemina hefði verið horfið til fýrri kennsluhátta í stærðfræði en því var ekki að heilsa. Um svip- að leyti hafði Kennaraháskólinn innbyrt og gert að sínum þroska- kenningar Piaget nokkurs, líffræð- ings sem reyndi að komast að raun um hvemig lífverur tileinka sér þekkingu. Kenningar hans hafa aldrei verið annað en skemmtileg- ar tilgátur en samkvæmt þeim ná börn ekki valdi á óhlutbundinni hugsun (rökhugsun) fyrr en um 12 ára aldur. Ung böm gætu því skað- ast væri þeim ætlað námsefni sem hæfði ekki hugsanastigi þeirra. Því er jafnvel haldið fram að sumir nái aldrei tökum á rökhugsun. Oftrú á þessar vafasömu kenningar hefur trúlega átt stærstan þátt í því að kröfur til ungra barna í íslenska skólakerfinu hafa verið allt of litlar um langan aldur. Mér býður í gran að lesblind börn hafi líka orðið fyr- ir barðinu á þessari dellu, þau verið talin ekki hafa vald á rökhugsun! En nú er mál að linni; lestur og reikning á hiklaust að kenna 5 ára börnum, þau era námfús og þyrstir í fróðleik. Og þau hugsa rökrétt fullum fetum enda er rökhugsun eitt það þýðingarmesta sem greinir manninn frá öðrum tegundum. Enn sem komið er hef ég engan þann mann hitt fyrir, hvorki karl né konu, sem ekki hugsar rökrétt. Þó að kennaramenntunarstofn- anir haldi í heiðri dellukenningar á það ekki að bitna á hverri kynslóð- inni á fætur annarri. En þetta verður ekki lengra að sinni. I næstu grein verður fjallað um skólakerfi og sérkennslu. Höfundur er námsráðgjafi og kenn- a riíMK. Markaðsmenn félagshyggjunnar LANDSFUNDUR Alþýðubandalagsins er á næstunni. Þar mun tekist á um framhald samvinnu félags- hyggjuaflanna. Mörg- um þótti vel til takast um samstarfið og ár- angurinn hjá þessu liði með R-listanum í Reykjavík. Því fram- boði tókst þó að svíkja kjósendur í veigamikl- um málum og þessi óskapnaður náði aftur meirihluta í borginni með því að láta kosn- ingamar snúast um einn frambjóðanda en engin málefni. Ef menn skoða framboðsræður og greinar R-lista og D-lista fólks fyrir kosningamar gæti ókunnugur ekki komist að annarri niðurstöðu en að R- lista liðið væri svona hægri sinnað miðjulið en D-lista fólkið nokk- uð svo vinstri sinnað miðjufólk. Þegar svo frambjóð- endur R-listans eru skoðaðir kemur í ljós að t.d. borgarstjóra- efnið hefur alls ekki viljað skipa sér form- lega til vinstri í stjóm- málum. I vinnubrögð- um gagnvart leigjend- um borgarinnar og láglaunafólki í störfum hjá borginni, svo og í einkavæðingarmálum, er kona þessi gallhörð hægri manneskja. Fyrir þessari hægri sinnuðu konu klappar forseti Alþýðusambands íslands um leið og hann tekur und- ir að borgin skuli ekki taka upp 80 þúsund króna lágmarkslaun. Þau vitna bæði í að samningar séu í gildi og ekki sé hægt að hrófla við þeim. Þá má spyrja hvernig má það þá gerast, að launaskrið er í miklum gangi upp á við hjá hærra launuðum stéttum hér á landi? Slíkt launaskrið hinna lægst launuðu hjá Reykjavíkur- borg kemur ekki til greina, sam- kvæmt áliti Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, borgarstjóra í Reykjavík, og Grétars Þorsteins- Kristinn Snæland V. ÖLL HREINSIEFNI IBESTAI Úrvalið er hjá okkur Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 sonar, forseta Alþýðusambands ís- lands, en hann er einn þeirra sem hvetur mjög til samvinnu félags- hyggjuaflanna. Sú samvinna hefur þó m.a. leitt til þess stjórnlausa óskapnaðar sem R-listinn er orð- inn að í Reykjavík. Þau stjómmálaöfl sem að honum stóðu upphaflega hafa nú ekkert að segja um stefnu skrýmslisins að segja né gera. Þær fjöldahreyfíng- ar standa nú máttlausar og horfa margir þar vanmáttugir á hrylling- inn. Göfugustu markmið félags- A komandi landsfundi Alþýðubandalagsins geta menn sýnt, segir Kristinn Snæland, hvort hagsmunir alþýðu eða einhvers konar vinstri-markaðs- hyggja ráða ferðinni. hyggju eru þar fótum troðin en hugsjónir markaðs og frjálshyggju hafnar upp til vegs og valda. í sjálfri kosningahríðinni komu upp svæsnar árásir í tvo þá menn, sem einna fremstir fara í flokki þeim sem hæst hefur um nauðsyn á sameiningu félagshyggjuaflanna. Þær árásir snerust ekki um það sem ætti miklu fremur að vera þessum markaðsmönnum til hnjóðs. Helgi Hjörvar og Hrannar B. Arnarson vora með atvinnu- rekstur sem kallar á talsvert starfslið. Þetta fólk munu þeir hafa ráðið til sín sem verktaka. Einka- væðingar-, frjálshyggju- og mark- aðsmenn gera slíkt að sjálfsögðu, því með slíkum vinnubrögðum komast markaðsmenn hjá því að bera nokkra ábyrgð á starfsfólk- inu. Að ráða fólk til starfa í almenn störf og semja við það um verk- töku er svívirðing við allt sem heit- ir verkalýðsbarátta og félags- hyggja og fyrir þessu liði klappaði Grétar Þorsteinsson, forseti Al- þýðusambands Islands, ja svei. Það er réttmæt krafa til manna sem Helga Hjörvars og Hrannars B. Arnarsonar sem stilla sér upp til forystu í hópi félagshyggjufólks að þeir þekki og virði þá baráttu sem íslenskur verkalýður hefur háð síðustu áratugi. Með svita, tár- um og blóði hefur íslenskur verka- lýður náð nokkuð sterkri stöðu réttinda. Þau réttindi skulu tíund- uð hér markaðsmönnum til fróð- leiks. Verkfallsréttur, atvinnuleys- isbætur, sjúkrabætur, veikinda- greiðslur, orlofsgreiðslur, sjúkra- sjóðir, uppsagnarfrestur, greiddir helgidagar, viðurkennd stéttarfé- lög o.fl. o.fl. Öllu þessu, svo þýðingarmikið sem það er, sviftu Helgi Hjörvar og Hrannar B. Arnarson fólkinu sem hjá þeim vann sem verktakar. Þau vinnubrögð sýna mér að þess- ir umræddu menn bera enga virð- ingu fyrir verkafólki og réttindum þess. Slík vinnubrögð temja sér aðeins þeir sem eru harðsvíraðir gróðahyggju-, frjálshyggju- og markaðshyggjumenn. Þetta sáu ekki kommarnir, kratarnir, kvennaliðið, Þjóðvaki né Fram- sóknarliðið sem hampaði þessum mönnum og gerir enn. Af þessum sökum átti forseti Alþýðusam- bands íslands ekki að klappa R- listanum lof í lófa. Slíkir forystu- menn eiga ekkert að fá frá forseta Alþýðusambands Islands annað en fyrirlitningu. Frá raunveralegu fé- lagshyggjufólki eiga slíkir menn ekki að hljóta vegtyllur. Á stefnu- skrá Grósku, sem nefndir mark- aðsmenn eru í fylkingarbroddi fyr- ir, er viðrað að leggja Trygginga- stofnun ríkisins niður og láta líf- eyrissjóðina taka við hlutverki hennar. Lífeyrissjóðirnir eru al- gerlega óþörf apparöt - ef - al- menningur og þá einkanlega for- ustumenn hans krefðust þess ein- faldlega að Tryggingastofnuninni væri gert kleyft að standa undir mannsæmandi bótakerfi, hverju nafni sem þörf er á. Hjá Trygg- ingastofnun era landsmenn allir jafnir. Innan lífeyrissjóðanna eða milli þeirra er hinsvegar himin- hrópandi munur og allur í órétt- lætisátt, þeim mun meira sem fólk er lægra launað. Þessu apparati vilja forystumenn Grósku, og Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur tekið undir það, koma á. Loks skal það nefnt að hlutafé- lagsvæðing er óskaþróun Helga Hjörvars og fleiri manna sem þó gefa sig út fyrir að vera sérstakir vemdarar almennings og heppileg- ir í forystulið félagshyggjufólks. Helgi Hjörvar útskýrði hlutafélag- svæðingarsvik R-listans í borgar- stjóm nýlega með því að hlutafé- lagsvæðingin hjá R-listanum væri alls ekki hlutafélagsvæðing heldur nútímavæðing. Slíka menn sem Helga Hjörvar og fylgismenn hans á félagshyggjufólk að varast. Slíka menn á ekki að velja til forystu fé- lagshyggjufólks. Því meira sem barist er fyrir sameiningu félags- hyggjufólks, því brýnna er að skil- greina hvað er raunveruleg vinstri stefna. Grandvallaratriðið hlýtur að vera að skilgreina óvininn. Hver er það sem sækir að hagsmunum al- mennings? Fyrir mér er andstæð- ingurinn, markaðshyggjan, frjáls- hyggjan og sú nútímavæðing, sem svo er kallað, þegar fyrirtæki al- mennings era sölsuð undi fjár- magnseigendur. Sá dagur kann að koma að leigjendur Reykjavíkur- borgar greiði leiguna til arabísks olíufursta og símareikninginn til fjármálaveldis í Bandaríkjunum. Þá verður stutt í að handleggsbrot verði ekki tekið til lækningar á slysadeild nema fyrir liggi kort er sýni rétta greiðslustöðu í réttum lífeyrissjóði. Á komandi landsfundi Alþýðu- bandalagsins geta menn sýnt hvert stefnir í þessum efnum. Höfundur er bifreiðarstjóri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.