Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 48
^8 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
„Snúrurnar hrökkva: Snældan er full, / og
snurðulaust allt sem ég spann. / Þeir kalla
það ull, en glóandi gull / úr greip minni rann
- það allt fyrir hann, / sem hóf mitt líf upp í
hærra veldi / og hjarta mitt ungrar varði
með eldi, / sem alla ævina brann.“
Svo kveður Guðmundur Kamban í tíu er-
inda kvæðabálki sínum sem nefnist
„Spunakonan" og birtist fyrst á
prenti árið 1911 í ísafold.
Kvæðabálkurinn fjallar um
spunakonu sem rifjar upp minning-
ar um ást sína tengda „örlaga-nótt“
fyrir sextán árum. Ástina tengir
hún spunanum „úr greip minni rann
- það var allt fyrir hann“. Það þarf
ekki að efast um að drifkraftur ást-
arinnar getur verið sterkur og er
áreiðanlega sá kraftur sem snúið
hefur rokkhjólunum hvað hraðast í gegnum
/ildirnar. Þannig hefur rokkhljóðið og hraði
rokkhjólsins verið ágætis mælikvarði á sálar-
líf, vanlíðan, vellíðan, ást eða ástleysi, þeirra
kvenna sem stunduðu þá iðju að spinna á
rokk.
Árið 1662 var í Kaupmannahöfn stofnað
kvennafangelsi og vinnuhæli sem hét því
virðulega nafni „Spunahúsið" (Spindehuset).
Flestar konurnar sem þar dvöldu voru dæmd-
ar til að vera þar til lífstíðar. Nafnið „Spuna-
húsið" kemur til vegna þess að konumar unnu
við að spmna ull og vefa klæði fyrir danska
herinn. Á 18. öld vora margar íslenskar konur
sendar til Kaupmannahafnar til að taka út sinn
dóm í „Spunahúsinu" sem var starfrækt til
ársins 1928. Fróðlegt væri að grennslast fyrir
um afdrif þessara íslensku kvenna sem sendar
voru þangað. Það er víst ábyggilegt að ef þær
hafa getað látið huggast við eitthvað þá hefur
spunalistin átt þar dijúgan þátt.
Spunahúsið í Kaupmannahöfn hefur ef-
laust verið fullt af spunakonum sem
átt hafa sér líkan „minninga-fans“
og spunakona Guðmundar Kam-
bans, sem þær hafa rifjað upp fyrir
sér á erfiðum stundum. „Þú vitjar
mín aftur, mín örlaga-nótt, / með
allan þinn minninga-fans“ og líklegt
er að oft hafi spunnist inn í góm
þeirra Spunahússkvenna líkt og
þessarar sem hér er um rætt.
„Eg orka’ ekki meir, enda þarf ekki
það, / á þráðnum er hvergi gróm. /
ef blóðugur er hann á einum stað, / er orsök-
in sú að hann spannst inn í góm. / Því þar
var hnútur, sem þurfti að renna, / og þá var
það sem ég fann hold mitt brenna - / og
skildi minn skapadóm."
I spunaþætti júlímánaðar þegar sumarið
stendur sem hæst er boðið upp á sólríka og
sumarlega peysu á yngstu grallarana okk-
ar. Einnig er uppskrift að glaðlegri og ein-
faldri kollu sem allir geta prjónað. Peysan
og húfan eru prjónaðar úr Mandarin Petit
sem er 100% mersiseruð bómull, mjúk og
áferðarfalleg. Einnig er hægt að prjóna
settið úr Sisu ullargarni fyrir þá sem vilja
hlýrri flík.
PEYSUNA prýða hundar, hjólbörur, bjöllur, könnur og blóm.
„ Myndræn og
sumarleg peysa
Ef þú vilt heldur prjóna úr Sisu ull-
argami þá mælum við með þessum
litum: Nr. 761, 788, 627, 716, 600,
738 og 18.
Stærðir á flfldnni sjálfri:
6m 12 4 ára
Yfirvídd: 57 62 67 73 sm
Sídd: 28 33 36 40 sm
Ennalengd: 17 20 26 30 sm
Handvegur: 14 15 16 18 sm
Garn MANDARIN PETIT
Blátt nr. 358 1 1 2 2 d.
Grænt nr. 388 1 1 1 2 d.
Rautt nr. 343 1 1 1 2 d.
Gult nr. 315 1 dokka í allar st.
Kremað nr. 302 1 dokka í allar st.
Ryðbrúnt nr. 337 1 dokka í allar st.
Svart nr. 312 1 dokka í allar st.
Einnig er hægt að nota SISU
PRJÓNAR: 40 em hringprjónn nr.
2,5 (stroff og húfa) 40 og 50 eða 60
cm hringprjónn nr. 3 (bolur, húfa)
40 cm hringprjónn nr. 2 (hálslíning)
Sokkaprjónar nr. 2,5 og 3 (ermar)
* Meklunál nr. 2,5 Tölur: 3 stk.
PRJÓNFESTA Á MANDARIN
PETIT: 27 lykkjur í sléttu prjóni á
prjóna nr. 3 = 10 cm. Ef of laust er
prjónað þarf fínni prjóna. Ef of fast
er prjónað þarf grófari prjóna.
BOLUR: Fitjið upp með bláu á
hringprjón nr. 2,5, 144-154-166-180
lykkjur. Prjónið stroff 1 sl., 1 br. í
hring 3 cm. Prjónið 1 hring sléttan
og aukið í 154-168-182-196 lykkjur.
Skiptið yfír í hringprjón nr. 3 og
prjónið munstur A. Byrjið að prjóna
við örina sem sýnir rétta stærð.
Þegar allur bolurinn mælist 14-18-
20-22 cm er sett merki í báðar hlið-
ar með 77-84-91-98 lykkjum á hvor-
um helmingi. Fitjið jafnframt upp 3
nýjar lykkjur við bæði hliðannerkin
- lykkjur sem alitaf eru prjónaðar
brugðnar, teljast ekki með og klippt
er upp í síðar. Prjónið munstur A
áíram í hring. ATHUGIÐ: Þegar
allur bolurinn mælist 24-29-32-36
cm er komið að hálsmálinu að fram-
an. Slítið frá í hliðinni. Setjið 11-14-
15-16 Iykkjur í miðju á nælu. Byrjið
að prjóna vinstra megin við háls-
málið og prjónið fram og til baka yf-
ir allar lykkjurnar. Fellið jafnframt
af í byrjun prjóns báðum megin við
hálsmálið 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkj-
ur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni - 25-
27-30-33 lykkjur á öxL Prjónið þar
til allur bolurinn mælist 28-33-36-40
cm. Fellið af.
ERMAR: Fitjið upp bláu á sokka-
prjóna nr. 2.5, 36-40-44-48 lykkjur.
Prjónið stroff 1 sl. 1 br. í hring 3-4-
4-4 cm. Prjónið 1 hring sléttan og
aukið út í 52-56-60-64 lykkjur.
Skiptið yfír á sokkaprjóna nr. 3 og
prjónið munstur B. ATHUGIÐ:
Síðasta lykkjan á hringnum er alltaf
prjónuð brugðin - merkilykkja.
Aukið jafnframt í 1 lykkju báðum
megin við merkilykkjuna með 1-1-
1,5-1,5 cm millibili þar til 76-82-88-
94 lykkjur eru á erminni. Prjónið
þar til öll ermin mælist 17-20-26-30
/
llí
ííí
Munstur B,
endurtekið
□
0
S1
B
0
m
ii
= Kremað nr. 302
= Grænt nr. 388
= Rautt nr. 343
= Svart nr. 312
= Gult nr. 315
= Ryðbrúnt nr. 337
= Blátt nr. 358
uanrMmvuunuumomztKmíuuonu'z
uurmuaKáKnawuurAtzunwtumnuuvturí
íinaaanaanaaaaaaaaaaniaanacmaa
rAnrAWjtrAUKtUUUUUWtuWkUKtnKiUaUKtUrí
uuurAimauuuuuKtKtuuummuuuuuwi
uuurArArmiauuumKtuuuwmmtuuuKtrAKt
Hííí
TI
ATHUGIÐ: Fyrsti prjónn
eftir litaskipti er alltaf
prjónaður brugðinn.
Sllxx:
i xa
gl
■ 8
xlx
SIH
Munstur A,
endurtekið
Byrjið hér, 6 mán. og 2 ára.
Byrjið hér,
1 og 4 ára
cm. Snúið henni við og prjónið 5
hringi slétta (kantur). Fellið af.
FRÁGANGUR: Mæhð breidd ermar-
innar við handveginn - 14-15-16-18
cm og meridð. Saumið í saumavél 2
beina sauma með smáu spori báðum
megin við handveginn. Kiippið á milli
saumanna og sikk-sakkið þétt yfir
sárkantinn. Saumið axlir saman, en á
stærð 6 mán. og 1 árs er skilin eftir 3
cm klauf á vinstri öxl við hálsmálið.
HÁLSLÍNING: 6 mán. og 1 árs:
Byrjið við vinstri öxi og prjónið upp
með bláu á hringprjón nr. 2, u.þ.b.
88-94 lykkjur. Prjónið stroff 1 sl. 1
br. fram og tilbaka 4 cm. Feliið af
með sléttum og brugðnum iykkjum.
Brjótið líninguna tvöfalda yfír á
rönguna og saumið niður. Heklið 2
umferðir af fastapinnum meðfram
klaufinni á vinstri öxfy hálslíningin
meðtalin. ATHUGIÐ: í seinni um-
ferðinni eru gerð 3
hnappagöt þannig: 2
loftlykkjur, hlaupið yfír
2 fastapinna. 2 og 4 ára:
Prjónið upp með bláu í
hálsmálinu á hring-
prjón nr. 2, u.þ.b.
100-106 lykkjur. Prjón-
ið stroff 1 sl. 1 br. í
hring 4 cm. Fellið af
með sléttum og brugðn-
um lyklqum. Brjótið
líninguna tvöfalda yfír á
rönguna og saumið nið-
ur. Saumið ermarnar í
fyrir innan kantinn og
notið hann til að hylja
sárið. Saumið þvotta-
merki innan í peysuna.
HÚFA:
Stærðir: 6 mán. 1-2 ára
3-4 ára.
Fitjið upp með bláu á
lítinn hringprjón nr.
2,5, 96-104-112 lykkjur.
Prjónið stroff 1 sl. 1 br.
í hring 2-3-3 cm. Skipt-
ið yfir á hringprjón nr.
3 og prjónið munstur
B. Þegar húfan mælist
öll 8-9-9 cm er tekið úr
þannig: * 10-11-12
sléttar, 2 sléttar saman
*. Endurtakið frá * til *
allan hringinn. Prjónið
1 hring án úrtöku. Tak-
ið úr þannig: * 9-10-11 sléttar, 2
sléttar saman *. Endurtakið frá * til
* allan hringinn og prjónið 1 hring
án úrtöku. Takið þannig úr á öðrum
hverjum hring, alltaf með 1 lykkju
minna á milli úrtaka, þar til 32
lykkjur eru eftir á prjóninum. Þá er
tekið úr í hverjum hring þar til 8
lykkjur eru eftir. Slítið frá. Dragið
bandið í gegnum lykkjurnar sem
eftir eru og herðið vel að.
BRIDS
(Im.8jón Arnór G.
Ragnarsson
FYRSTA umferðin á Norður-
landamótinu 1998 i Osló var spiluð
þriðjudaginn 30. júní. í opnum
flokki fékk ísland 17 vinningsstig
gegn 13 á móti Finnlandi. Úrslit úr
fyrstu umferð voru:
Island - Finnland 17-13
Noregur - Danmörk 20-10
Svíþjóð - Færeyjar 25-4
I kvennaflokki spilaði Island
gegn Noregi. Þar töpuðu íslensku
konurnar með minnsta mun, 13
vinningsstigum gegn 17. Aðrir leikir
í 1. umferð fóru:
ísland - Noregur 13-17
Finnland - Danmörk 15-15
Svíþjóð - Yfírseta 18-0
Miðvikudaginn 1. júlí eru spilaðar
3 umferðir. Andstæðingar Islands í
opnum flokki eru: Danmörk, Sví-
þjóð og Noregur. í kvennaflokki
spilar Island gegn: Danmörk, Sví-
þjóð og Finnland.
Spilarar í opnum flokki eru: Jak-
ob Kristinsson, Jónas P. Erlings-
son, Magnús E. Magnússon, Anton
Haraldsson og Sigurbjörn Haralds-
son.
í kvennaflokki spila: Hrafnhildur
Skúladóttir, Soffía Daníelsdóttir,
Arngunnur Jónsdóttir, Svala Páls-
dóttir og fyrirliði er Stefanía Skarp-
héðinsdóttir.
Upplýsingar um mótið er hægt að
fá hjá Bridgesambandi Islands milli
13.00 og 17.00 í síma 587-9360.
Heimasíða með úrslitum frá mót-
inu: http://home.sol.no/— perlange/
nordisk98p.html
Sumarbridge 1998
Fimmtudagskvöldið 25. júní spiluðu
20 pör eins kvölds Mitchell-tvímenn-
ing. Meðalskor var 216 og þessi pör
urðu efst:
NS
Sigurleifur Guðjónsson - Friðrik Jónsson 251
GísliSigurkarlss.-HalldórArmannss. 242
Una Amadóttir - Hjálmtýr R. Baldursson 234
Böðvar Magnússon - Nicolai Porsteinsson 222
AV Z
Þórður Sigurðss. - Guðmundur Gunnarss. 256
Torfi Ásgeirsson - Þórður Sigfússon 253
Erla Sigurj ónsdóttir - Guðni Ingvarsson 248
Hanna Friðriksd. - Ragnheiður Tómasd. 233
Föstudagskvöldið 26. júní varð staða
efstu para svona (meðalskor 216):
NS
Albert Þorsteinsson - Bjöm Amason 259
Friðrik Egilsson - Cecil Haraldsson 234
Hanna Friðriksd. - Ragnheiður Tómasd. 232
Tómas Siguijónsson - Bjöm Svavarsson 227
AV
Erla Sigmjónsdóttir - Guðni Ingvarsson 244
Dröfn Guðmundsd. -AsgeirP. Asbjömss. 242
Heimir Tryggvason - Gísli Tryggvason 236
Eggert Bergsson - Þórður Sigfússon 232
Eftir tvímenninginn var svo spil-
uð útsláttarsveitakeppni að venju.
Sex sveitir tóku þátt í henni og vann
sveit Jörundar Þórðarsonar að
þessu sinni. Með honum spiluðu
Hermann Friðriksson, Albert Þor-
steinsson og Bjöm Árnason. í öðru
sæti varð sveit Erlu Sigurjónsdótt-
ur, en auk hennar spiluðu Guðni
Ingvarsson, Heimir Tryggvason og
Gísli Tryggvason.
Sunnudagskvöldið 28. júní var
spilaður Howell-tvímenningur í ein-
um riðli. Lauk hér sjöttu spilavik-
unni í sumar og varð staða efstu
para þessi (meðalskor 108):
Sturla Snæbjömsson - Cecil Haraldsson 126
Sigrún Pétursdóttir - Dúa Ólafsdóttir 122
Jón V. Jónmundsson - Friðrik Egilsson 120
Guðlaugur Bessason - Jón St. Ingólfsson 114
Friðrik vann vikuna
Röð efstu manna í liðinni viku varð
svona:
1. Friðrik Jónsson 47 bronsstig
2. Jón Steinar Ingólfsson 37
3. -4. Erla Sigurjónsdóttir 36
3.-4. Guðni Ingvarsson 36
5. Jón Viðar Jónmundsson 35
6. Cecil Haraldsson 34
7. Jörundur Þórðarson 31
8. -9. Albert Þorsteinsson 29
8.-9. Björn Árnason 29
10. Guðbjörn Þórðarson 25
Að launum fyi-ir efsta sætið í þessari
viku fær Friðrik 3ja rétta kvöldverð
fyrir tvo á LA Café.
Spilað er öll kvöld nema laugardags-
kvöld og hefst spilamennskan alltaf kl.
19:00. Spilastaður er að venju Þöngla-
bakki 1 í Mjódd, húsnæði Bridgesam-
bands íslands. Allir eru hvattir til að
mæta, hjálpað er til við að mynda pör
úr stökum spilurum.