Morgunblaðið - 02.07.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998 57
I -----;------
j Sendiherr-
ar með
viðtalstíma
1 UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ býð-
ur fyrirtækjum, samtökum, stofn-
Iunum og einstaklingum viðtalstíma
við sendiherra íslands þegar þeir
eru staddir hérlendis til þess að
ræða hagsmunarmál sín erlendis,
viðskiptamöguleika og önnur mál-
efni þar sem utanríkisþjónustan
getur orðið að liði.
Sendiherra íslands í Þýskalandi,
Ingimundur Sigfússon, verður til
1 viðtals í utam-íkisráðuneytinu
þriðjudaginn 7. júlí frá kl. 9-10 eða
eftir nánari samkomulagi. Önnur
umdæmislönd sendiráðsins eru
Austurríki, Serbía-Svartfjallaland,
Sviss og Ungverjaland.
Sendiherra Islands í Bretlandi,
Benedikt Ásgeirsson, verður til
viðtals í utanríkisráðuneytinu
mánudaginn 20. júlí frá kl. 9-12
eða eftir nánari samkomulagi.
Önnur umdæmislönd eru Grikk-
land, Holland, Indland, írland,
Maldíveyjar og Nepal.
Sama dag, mánudaginn 20. júlí,
verður til viðtals í ráðuneytinu
sendiherra íslands í Kína, Ólafur
Egilsson, frá kl. 13-16 eða eftir
nánara samkomulagi. Önnur um-
dæmislönd sendiráðsins eru
Ástralía, Indónesía, Japan,
Mongólía, Norður-Kóra, Nýja-Sjá-
land, Suður-Kóra, Taíland og Ví-
, etnam.
Sendiheira ísland í Frakklandi,
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
verður til viðtals í utanríkisráðu-
* neytinu þriðjudaginn 28. júlí frá kl.
9-12 eða eftir nánara samkomu-
lagi. Önnur umdæmislönd sendi-
ráðsins eru Andorra, Ítalía, Portú-
gal, San Marínó og Spánn. Jafn-
framt gegnir sendiráðið hlutverki
fastanefndar Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO) og Matvæla- og land-
j búnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (FAO) í Róm á Ítalíu.
Fastafulltrúi íslands í Genf,
| Benedikt Jónsson, verður til við-
tals í utanríkisráðuneytinu fimmtu-
daginn 27. ágúst kl. 9-12 eða eftir
nánara samkomulagi. Fastanefnd-
in fer með fyrirsvar Islands gagn-
vart Fríverslunarsamtökum Evr-
ópu (EFTA), Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni (WTO), Skrifstofu Sa-
meinuðu þjóðanna í Genf og öðrum
alþjóðastofnunum sem hafa aðset-
ur í Genf og ísland er aðili að.
-------—----------
Mikið sótt
í símaskrá
á netinu
Á ÞEIRRI viku sem liðin er síðan
Jsímaskrá Landssímans á netinu var
formlega opnuð hafa uppflettingar
verið 226 þúsund. Strax á fyrsta
degi voru nær 25 þúsund uppflett-
* ingar frá hádegi og daginn eftir 45
þúsund.
„Viðtökur fólks við skránni hafa
farið fram úr björtustu vonum og
fjölmargir notendur hafa lýst yfir
ánægju sinni með símaskrána.
Svartími er að meðaltali um 0,2 sek-
úndur,“ segir í frétt frá Landssím-
i anum.
LEIÐRÉTT
Söfnuðu fyrir hjartveik börn
ÁSGERÐUR Klara Gunnarsdóttir
og Margrét Svanborg Árnadóttir
héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri,
eins og sagt var frá í Morgunblað-
inu 1. júlí sl. Stúlkurnar söfnuðu
2.000 krónum til styrktar hjartveik-
um börnum en ekki krabbameins-
sjúkum börnum eins og missagt var
í blaðinu. Þetta leiðréttist hér með
og eru hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
FRÉTTIR
KIRKJUSTARF
NOKKRIR styrkþegar úr B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga 1998.
Styrkir úr Vísindasjóði
hj úkrunarfr æ ðinga
STJÓRN Vísindasjóðs Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga út-
hlutaði styrkjum úr B-hluta vís-
indasjóðsins 23. júni sl. Að þessu
sinni hlutu 16 hjúkrunarfræðing-
ar styrki til 12 verkefna alls að
upphæð 2.865.000 kr.
Hjúkrunarfræðingar, sem eiga
aðild að sjóðnum geta sótt um
styrk úr honum til að sinna
fræðimennsku.
Sjóðssljórn skipa Anna Lilja
Gunnarsdóttir formaður sjóðs-
sljórnar, Guðrún Yrsa Ómars-
dóttir, Halla Grétarsdóttir og
Dagrún Hálfdánardóttir.
Þeir sem hlutu styrki voru:
Anna Birna Jensdóttir, Ingibjörg
Hjaltadóttir, Hlíf Guðmundsdótt-
ir, Gæðaumbótastarf í íslenskri
öldrunarhjúkrun, 400.000 kr. Ás-
dís Elfarsdóttir, Þuríður Stefáns-
dóttir, Þarfir aðstandenda dauð-
vona sjúklinga, 400.000 kr.
Dóróthea Bergs, Reynsla kvenna
sem hugsa um eiginmenn með
COPD, 140.000 kr. Elín M. Hall-
grímsdóttir, Reynsla bráðahjúkr-
unarfræðinga af hjúkrun fjöl-
skyldna alvarlega veikra/slas-
aðra, 300.000 kr. Elísabet gjör-
Ipifsdótt.ir, Reynsla Ijnrða árs
hjúkrunarfræðinema af sam-
skiptum við mikið veika og deyj-
andi krabbameinssjúklinga og
fjölskyldur þeirra, 300.000 kr.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Gluggað í reynsluheim: Fyrir-
bærafræðileg rannsókn á því
hvernig krabbameinssjúklingar
upplifa samskipti sín við hjúkr-
unarfræðinga 300.000 kr. Laura
Sch. Thorsteinsson, Gæði hjúkr-
unar - frá sjónarhóli sjúklinga,
200.000 kr. Linda Hersteinsdótt-
ir, Handbók foreldra barna sem
greinast með heilaæxli, 50.000
kr. Sigfríður Inga Karlsdóttir,
Könnun á ánægju barnshafandi
kvenna með þá þjónustu sem
þær fá í mæðravernd, 125.000
kr. Þorbjörg Guðmundsdóttir,
Rannsókn á trúarlegri reynslu
og/eða upplifun sjúklinga sem
greinast með lífshættulegan
sjúkdóm og um leið á trúarleg-
um þörfum þessara sjúklinga,
200.000 kr. Þóra Ákadóttir,
Helga Erlingsdóttir, Umbóta-
starf á skurðdeild FSA, mót-
töku, 150.000 kr. Þóra Elín
Guðjónsdóttir, Samband milli
dagsyfju og mataræðis ung-
linga, 3IHUH10.kr
Landmannalauga-
ferðir eru að hefjast
Á ÞESSU sumri opnaðist leiðin inn
í Landmannalaugar mun fyrr en
verið hefur eða hinn 4. júní og fóru
skálaverðir á staðinn um svipað
leyti. Þá hefur núna í júnímánuði
verið haldið áfram framkvæmdum
við nýja salernisaðstöðu og bætta
tjaldaðstöðu í Landmannalaugum
og hafa þær framkvæmdir gengið
vel. Hlé verður á þeim yfir aðal-
ferðamannatímann sem nú er að
hefjast.
Um næstu helgi er fyrsta helgar-
ferð Ferðafélagsins þangað og er
brottför föstudagskvöldið 3. júlí kl.
20 og komið til baka á sunnudaginn
4. júlí. Gist verður tvær nætur í
sæluhúsinu í Laugum og farnar
styttri og lengri gönguferðir um hið
stórbrotna umhveri Landmanna-
lauga. Á sunnudeginum er í boði
nýjung sem er dagsferð í Land-
mannalaugar og er brottför kl. 8 að
morgni og komið til baka um kvöld-
matarleytið.
Á sama tíma og helgarferðin er
farið af stað í fyrstu gönguferð sum-
arsins um hina vinsælu gönguleið
frá Landmannalaugum í Þórsmörk,
hinn svokallaða „Laugaveg".
Gengið um
SJÖTTA skógarganga sumar-
sins á vegum Skógræktarfélags
Reykjakur verður fimmtudaginn
2. júlí. Mæting er kl. 20.30 við
Félagsheimili Rafmagnsveitu
Reykjavíkur í Elliðaárdal.
Gengið verður um Elliðaárdal
og skoðaðir fjölbreyttir mann-
gerðir skógar m.a. komið við í
ræktunarsvæði Sveinbjarnar
Jónssonar þar sem hæstu greni-
tré landsins vaxa. Göngunni lýk-
ur síðan við félagsheimili Raíveit-
unnar. Leiðsögumaður verður
Valdimar Reynisson, umhverfis-
fræðingur. Að venju er boðið upp
Elliðaárdal
á rútuferð frá Ferðafélagi ís-
lands, Mörkinni 6, kl. 20 og er
gjaldið 500 kr.
Göngurnar eru skipulagðar í
samvinnu við Ferðafélag Islands
og eru hluti af fræðsluverkefni
Skógræktarfélags íslands og
Búnaðarbanka íslands. Minnt
skal á að þeir sem taka þátt í öll-
um skógargöngum sumarsins fá
að launum fallegt jólatré.
Sjöunda ganga sumarsins
verður 9. júlí nk. á vegum Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur, geng-
ið verður um ræktunarsvæði
Hermanns Jónssonar í Fossvogi.
Afallastuðnings-
hópur tekur til
starfa á Selfossi
Á SELFOSSI hefur teldð til starfa
áfallastuðningshópur. I honum er
fagfólk með sérstakan áhuga og
þekkingu á áfallahjálp sem getur
miðlað af þekkingu sinni um algeng
og eðlileg viðbrögð í kjölfar alvar-
legra áfalla. Hópurinn getur leitað
eftir samstarfi við aðra aðila eftir
þörfum hverju sinni.
Áfallastuðningshópurinn er
reiðubúinn að veita stuðning í kjöl-
far alvarlegra áfalla s.s. náttúru-
hamfara, umferðarslysa, sjóslysa,
eldsvoða, sjálfsvíga, nauðgana og
annars alvarlegs ofbeldis. Aðstoð
áfallastuðningshópsins stendur til
boða einstaklingum eða hópum sem
hlut eiga að máli, beint eða óbeint.
Þar má nefna: þolendur áfalla,
sjónarvotta og hjálparaðila.
„Stuðningur þessa hóps kemur
ekki í staðinn fyrir stuðning frá
nánustu vinum og ættingjum og
útilokar ekki aðra möguleika sem
viðkomandi kýs að nýta sér. Hins
vegar getur íhlutun hópsins opnað
leiðir í samskiptum og úrvinnslu
mála.
Stuðningur hópsins er tímabund-
inn en ef þörf er á frekari aðstoð
eða meðferð, geta meðlimir hans
leiðbeint eða haft milligöngu um að
koma því í kring.
Markmið hópsins er að gefa fólki
tækifæri til að deila með öðrum til-
finningum, hugsunum og viðbrögð-
um sem tengjast válegum atburði, í
því skyni að fyrirbyggja alvarleg og
langvinn sálræn eftirköst.
Meðlimir hópsins eru bundnir
þagnarskyldu," segir í fréttatil-
kynningu.
Þeir sem vilja ná sambandi við
hópinn hafi samband við vakthaf-
andi heilsugæslulækni í síma
854 7500.
Safnaðarstarf
Háteigskirkja. Kvöldsöngur með
taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun,
endurnæring. Allir velkomnir.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund
verður í kirkjunni í dag kl. 10.30.
Umsjón Guðlaug Ragnarsdóttir.
Grafarvogskirkja.
Kópavogskirkja.Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum
má koma til prests eða kirkjuvarð-
ar.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lof-
gjörðarsamkoma í umsjá Áslaugar
Haugland.
yörumar
frá Karin HerzOg
/
• enduruppbyggja luiðina
• vinna á appelsinuhúA
<>g sliti g|
• vinna á unglingabóhini
• vidliéldur ferskleika hiió-
arinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Leiðbeiningar um val
og rétta notkun í dag í
Clöru, Kringlunni,
frá kl. 15-18,
föstudag,'' í Söndru,
Smáratorgi, frá kl. 14-18
I Góð loftræsting
léttir lífið!
Bjóðum mikið úrval af viftum og loftræstibúnaði frá Xpelair.
Hönnun og framleiðsla Xpelair er þróuð eftir viðurkenndum
IS0 9001 staðli. Vanti þig loftræstibúnað fyrir heimilið,
sumarbústaðinn eða iðnaðar- og atvinnuhúsnæðið hefur
Xpelair örugglega lausnina.
Xpelair DX100
glugga- og veggviftur.
Öflugar og öruggar viftur. Ýmsar útfærslur.
Tilvaldar í bað- og snyrtiherbergi á
heimilum, sumarbústöðum og smærri
vinnustöðum.
Leitið nánari upplýsinga.
Xpelair NWA og NWAN
spaðaviftur.
Fyrir þá sem hafa kynnst þessum vinsælu
spaðaviftum eru þær algjörlega ómissandi
þáttur í tilverunni. Henta vel á öllum
vinnustöðum. Kynntu þér málið.
(§)Xpelair
Ferskur andblær.
SMITH &
Borðviftur frá Bomann.
Þrjár stærðir.
Mjög hagstætt verð.
Nóatúni 4
105 Reykjavík
20 3000
'.sminor.is