Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDSMOT HESTAMANNA MELGERÐIS MELUM />0 1998 *** DAGSKRÁ LANDSMÓTS HESTAMANNA 98 i i Kl. 9.00-12.00 Kl. 14.00-19.00 Kl. 9.00-12.00 Kl. 13.00-13.30 Kl. 14.00-16.00 Kl. 9.00-12.30 Kl. 14.00-16.00 Kl. 16.30-18.30 Miðvikudagur 8. júlí: Kynbótavöliur Hæfileikadómar kynbótahrossa, hryssur 4ra, 5, og 6 vetra og eldri. Sýndar eftir númeraröð í hverjum flokki. Hæfileikadómar kynbótahrossa, framhald. Aðalvöllur B-flokkur gæðinga, forkeppni. Setning Landsmóts B-flokkur gæðinga, forkeppni, framhald. Melavöllur Barnaflokkur, forkeppni. Ungmennaflokkur, forkeppni. Ungmennaflokkur, forkeppni, framhald. Kl. 9.00-12.00 Kl. 13.00-19.00 Kl. 9.00-12.00 Kl. 13.00-15.30 Kl. 18.00-20.00 Kl. 20.00-22.00 Kl. 10.00-12.00 Kl. 13.00-15.00 Fimmtudagur 9. júlf: Kynbótavöllur Hæfileikadómar kynbótahrossa, hryssur 6 vetra og eldri, framh. Stóðhestar 4ra, 5 og 6 vetra og eldri. Sýndir eftir númeraröð í hverjum flokki. Aðalvöllur A-flokkur gæðinga, forkeppni. A-flokkur gæðinga, forkeppni, framhald. Undanrásir kappreiða, 150 og 250 m skeið, 300 m stökk. Tölt, forkeppni. Melavöllur Unglingaflokkur, forkeppni. Unglingaflokkur, forkeppni, framhald. ( i * í l 3 Kl. 9.00-11.00 Kl. 11.15-12.30 Kl. 13.30-16.30 Kl. 17.00-19.30 Kl. 20.00-20.30 Kl. 20.30-22.00 Kl. 22.30- 3.00 Kl. 10.00-12.00 Kl. 13.00-15.00 Kl. 16.00-18.00 Föstudagur 10. júlí: Aðalvöllur B-flokkur gæðinga, milliriðill Yfirlitssýning kynbótahrossa. Stóðhestar 4ra og 5 vetra Yfirlitssýning kynbótahrossa, framhald. Stóð- hestar 6 vetra og eldri. Afkvæmasýndir stóðhestar. Afkvæmasýndar hryssur. Sýning ræktunarbúa. B-úrslit í tölti. Seinni sprettir í skeiði og úrslit í 300 m stökki, verðlaunaafhending. Dansleikur. Melavöllur Barnaflokkur, milliriðill. Ungmennaflokkur, milliriðlar. Unglingaflokkur, milliriðill. Kl. 9.00-11.00 Kl. 11.15-12.00 Kl. 13.00-15.00 Kl. 15.00-18.00 Kl. 19.30-3.00 Kl. 13.00-14.00 Kl. 14.00-15.00 Kl. 15.00-16.00 Laugardagur 11. júlí: Aðalvöllur A-flokkur gæðinga, milliriðill. Yfirlitssýning kynbótahrossa. Hryssur 4ra vetra. Sýning ræktunarbúa. Yfirlitssýning kynbótahrossa, framhald. Hryssur 5 og 6 vetra og eldri. Kvöldvaka, söngur, hópreið, úrslit í tölti, verðlaunaafhending, skemmtun, dansleikur. Melavöllur Barnaflokkur, sýnt eftir skrá. Unglingaflokkur, sýnt eftir skrá. Ungmennaflokkur, sýnt eftir skrá. Kl. 10.00-11.15 Kl. 11.30-12.15 Kl. 12.15-13.00 Kl. 13.00-13.30 Kl. 13.30-14.15 Kl. 14.15-15.00 Kl. 15.00-17.00 Kl. 17.00-18.00 Kl. 18.00 Sunnudagur 12. júlí: Aðalvöllur Kynbótahross, verðlaunaafhending. Hryssur 4 v., 5 efstu. Hryssur 5 v., 7 efstu. Hryssur 6 v. og eldri, 12 efstu. Ungmennaflokkur, úrslit 10 efstu. Barnaflokkur, úrslit, 10 efstu. Helgistund, ávörp gesta. B-flokkur gæðinga, úrslit, 10 efstu. Unglingaflokkur, úrslit, 10 efstu. Kynbótahross,verðlaunaafhending. Stóðhestar 4 v., 3 efstu. Stóðhestar 5 v„ 5 efstu. Stóðhestar 6 v. og eldri, 10 efstu. Afkvæmasýndar hryssur. Afkvæmasýndir stóðhestar, allir. A-flokkur gæðinga, úrslit, 10 efstu. Mótsslit. Framkvæmdanefnd Landsmóts áskilur sér rétt til að breyta tímasetningum og dagskrá. í DAG VELVAKAJMÐI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hver þekkir þessa Þjóðverja? UNDIRRITAÐUR vinnur að samningu og útgáfu bókar með ljósmyndum og frásögnum nokkurra þýskra gesta hér á landi á millistríðsárunum. Þess vegna auglýsti ég eftir sendibréfum, Ijósmyndum og öðru sem varðar dvöl þeirra hér á landi, einnig fólki sem man eftir þeim eða veit nánari atriði varð- andi veru þeirra hér. Hel- stir þeirra sem við sögu koma eru þessir: Dr. Bru- no Schweizer, þjóðháttar- fræðingur, dr. Hans Kuhn, prófessor, dr. Reihnhard Prinz, kennari og skóla- stjóri og Nora kona hans. Aðrir eru m.a. Walter Lor- enz, stúdent og einkakenn- ari á Ísafírði 1923-1924, Erich Konsemulier stúd- ent (1923), Regine Dinse kaupakona á Breiðabóls- stað á Skógarströnd og lík- lega á Stað í Reykhólasveit (1925-1926), Adolf Schröt- er listmálari (1929-1978), dr. Helmut Lotz á Kifsá við Akureyri, Spath eða Spaeth stúdent, sldptinemi í Skagafírði og Leo Schweizer nemandi á Hólabaki í Vatnsdal og á Akureyri. Ennfremur vis- indamennirnir dr. Ferdin- and Dannmeyer, dr. Jo- hannes Georgi og Friedrich Friedrichs, sem stunduðu rannsóknir í Að- alvík og í Eyjafirði sumrin 1926 og 1927. Þeir sem vita um eða hafa í fórum sínum sendibréf, ljósmyndir eða önnur gögn um þetta fólk eða hefur upplýsingum að miðla er vinsamlegast beðnir um að hafa sam- band við mig sem fyrst eða Magnús Kristinsson, Schmidener Str. 241, D 70374 Stuttgart, Þýska- landi, sími og fax (00) 49 711-5324052; netfang: kristinssonz@z.zgs.dc Örlygur Hálfdanarson, Hjarðarhaga 54, 107 Reykjavík, hs. 562 6658, vs. 581 3999, fax: 568-3995. Sjúklingar ekki útskrifaðir INGVAR hafði samband við Velvakanda og vildi koma því á framfæri að þegar fjölmiðlafólk, sjúkrahúsfólk og aðrir tali um að útskrifa sjúklinga í sambandi við yfirvofandi uppsagnir hjúkrunarfræð- inga orki það tvímælis vegna þess að þegar sjúk- lingar eru útskrifaðir er það gert með læknisfræði- legu mati og að lækningu lokinni en því væri ekki að skipta í þessum tilvikum. Heldur eru sjúklingar sendir heim gegn læknis- fræðilegu mati. Aspirnar á Hverfisgötunni SIGHVATUR hringdi og vildi vekja athygli á öspum sem plantað hefur verið á Hverfisgötunni. Sagði hann þær ekki þrífast vegna mengunar og hvort ekki væri hægt að færa þær á lóðina við Safnahús- ið. Þar væru fyrir reynitré sem orðin væru gömul og ljót og tilvalið að planta öspunum þar sem þær myndu þrífast betur. Fyrirspurn til Vinnu- skóla Reykjavíkur SKULI hringdi með íyrir- spurn til Vinnuskóla Reykjavíkur. Honum hafði verið lofuð garðvinnu fyrir Tungusel 4 en ekkert væri farið að gera í málunum. Hann sagðist hafa haft samband við Vinnuskólann en þá var honum tjáð að vinnuflokkurinn væri kom- inn í annað hverfi. Skúli vildi fá að vita hvort hætt væri að hirða garðana fyrir aldraða. Tapað/fundið Lyklar töpuðust LYKLAKIPPA tapaðist um hádegisbilið á þriðju- dag í Leifsstöð. Finnandi visamlegast hafið samband í s. 898 5198 Magnús. Lyklakippa fannst SEX lyklar á hring fund- ust fyrir utan DHL hrað- flutninga sl. fóstudag. Uppl. á staðnum. Taska tapaðist GRÆN taska tapaðist á mánudag í Fossvogsdaln- um Kópavogsmegin. Uppl. í síma 564 4046. Armbandsúr fannst ARMBANDSÚR fannst í Esjunni. Uppl. í síma 5521601. Dýrahald Köttur týndist GULBRÖNDÓTTUR fressköttur fór að heiman mánudagskvöld frá Dverg- arborgum. Kötturinn er ól- arlaus en eyrnamerktur. Kötturinn er styggur en meinlaus. Finnandi vin- samlegast hafið samband í síma 586 1190. Róbert er týndur KÖTTURINN Róbert, grár og hvítur, tapaðist frá Miðbraut á Seltjamai'nesi fyrir u.þ.b viku. Róbert er með gráa hálsól með græn- um bjöllum og er mjög gæf- ur. Uppl. í síma 561 1885. Með morgunkaffinu COSPER HJÁLPARÐU mér ekki með uppvaskið fyrst að *nn 1 miðjunni konan er ekki heima, OG hvernig líður þér í dag og hvernig hefur fjöl- skyldan það Víkverji skrifar... Musterisdúettinn úr Perluköfúr- um Bizets hefúr staðið af sér alla stonna og verið efstur í at- kvæðagreiðslum hlustenda rásar tvö í brezka útvarpinu. Þar er á dagskrá á sunnudagskvöldum þáttur um sí- gilda tónlist og við stjómvölinn elzti útvarpsmaður brezkur, Alan Keith, sem stendur nú á níræðu. Hlustendur þáttarins greiddu um það atkvæði 1984, aftur 1993 og enn í fyrra, hver væru þeirra uppáhaldstón- verk og í öll skiptin stóð dúett tenórsins og baritónsins úr Perluköfúrum efstur. í fyrra varð Finlandia eftir Sibelius í öðru sæti, en 1993 hafnaði það verk í sjötta sæti, en 1984 var það ekki í hópi þeirra tíu verka, sem mestra vinsælda nutu þá. Þriðja verkið sem aftur varð meðal þeirra tíu vinsælustu nú er Pí- anókonsert Rachmaninovs númer 2, sem varð númer átta í fyrra og hækk- aði um eitt sæti síðan 1993. XXX Margt stuðlar að breytingum á svona vinsældalistum. Smekk- ur fólks breytist stöðugt af ýmsum ástæðum, en sumar breytingarnar eiga sér sjáanlegar rætur í tízku- straumum annars staðar. Þannig eru vatnasvítur Handels nú vinsæl- ar við brúðkaup í Englandi og höfnuðu í þriðja sæti listans í fyrra, en voru númer 90 í síðustu könnun þaráður. Oðurinn til gleðinnar eftir Beethoven hafnaði nú í fimmta sæti og rekja menn það til þess að hann var einkennislag sjónvarpsút- sendinga frá Evrópumeistaramót- inu í knattspymu 1996. Og uppá- haldssálmur Díönu prinsessu" I Vow To Thee My Country, sem er sunginn við Júpítertónlist Holst og var fluttur bæði í brúðkaupi henn- ar og útfór, skilaði Plánetum Holst í níunda sæti listans í fyrra. xxx Af þeim verkum, sem lentu í hópi þeirra tíu vinsælustu í fyrra og ekki hafa verið nefnd hér, eru: Tunglsöngur Rusalka eftir Dvorak (4.), Adagio úr sellókonsert Elgars (6.), Nunnukórinn úr Casa- nova eftir Johann Strauss II. (7.) og Eg veit að lausnarinn lifir úr Messíasi Handels (10.). Eitt verk var í hópi þeirra tíu vin- sælustu bæði 1984 og 1993, en ekki í fyrra. Þetta er Fangakórinn úr Na- bucco eftír Verdi, sem hafnaði í 22. sæti. Tvö önnur norræn verk eru í hópi þeirra 100 vinsælustu í fyrra; Finlandia var í 2. sæti, sem fyrr segir, og annað verk eftir Sibelius, marz úr Kareliasvítu hans, varð í 54. sæti. Þriðja norræna verkið er svo Pétur Gautur eftir Grieg, sem varð númer 47. Talið er að hlustendur þáttarins, Hundrað vinsælustu verkin þín, séu meðal dyggustu hlustenda BBC og virðist ekkert lát á. Þeir eru á öllum aldri og yngsti þáttakandinn í kosn- ingunum í fyrra var 25 ára. Blaða- frásögn af þessum kosningunum lauk með tilvitnun í bréf eins þátt- takandans: „Winston Churchill sagði, að þegar hann kæmi til himna myndi hann eyða fyrstu milljón ár- unum í að mála. Sjálfur myndi ég vilja verja mínum fyrstu milljón ár- um í himnaríki til þess að hlusta á þáttinn: Hundrað vinsælustu verkin þín.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.