Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.07.1998, Blaðsíða 64
64 FIMMTUÐAGUR 2. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM MYNDBÖND 10 árum síðar 9 Vz vika í viðbót (Another 9 í4 Weeks) Erótfk Framleiðsla: Steffan Ahrenberg. Leikstjórn: Anne Goursaud. Handrit: Michael Davis. Kvikmyndataka: Ro- bert Alazraki. Tónlist: Stephen W. Parsons. Aðalhlutverk: Mickey Rour- ^ ke, Agathe De La Fontaine og Angie Everhart. 104 mín. Fjölþjóðleg. Myndform, júní 1998. Bönnuð börn- um innan 16 ára. TÍU árum eftir að Elizabeth (Kim Basinger) yfírgaf John í 9 lh viku situr hann enn inni í stofu og bíður þess að hún snúi aftur. Hann fréttir að hún hyggist selja málverkasafn sitt, fer til Parísar og kaupir mynd- irnar. Þar kynnist hann Leu, sem gengur um með slæðuna sem hann gaf Elizabetu í New York í denn, og brátt upphefst undarlegt samband þeirra á milli. Það var álitamál hvort hin uppruna- lega 9'A vika var góð og/eða erótísk mynd og skiptust menn í hópa með og móti henni. Hér þarf ekkert að ríf- ast, framhaldið er ömurlegt. Það vantar einfaldlega allt það sem bjargaði fyrri myndinni, ákveðna spennu og stemmningu sem mynd- aðist milli sögupersónanna og út- koman er álíka erótísk og óhrein borðtuska á heitum sumardegi. Angie Everhart, sem leikur aðal kvenhlutverkið, er sílíkonsæt en frekar sjarmablönk á meðan Rour- ke er bara orðinn ljótur og einstak- lega ótrúverðugt kyntröll. Myndin silast áfram með slíkum hraða að 104 mínútur virðast sem vikur að líða. Forlögin verndi okkur gegn enn annarri 9 'h viku. Guðmundur Asgeirsson Stórskemmtileg tímafiækja Afturvirkni (Retroactive) Vísindahasar irk+'h Fi-amleiðsla: Brad Krevoy, Steve Sta- bler, David Bixler og- Michael Na- deau. Leikstjórn: Louis Morneau. Handrit: Micheal Hamilton-Wright, Robert Strauss og Philip Badger. Kvikmyndataka: George Mooradian. Tónlist: Tim Truman. Aðalhlutverk: James Belushi og Kylie Travis. 87 mín. Bandarísk. Myndform, júní 1998. Bönnuð börnum innan 16 ára. KAREN Warren (Kylie Travis) er sálfræðingur sem er búin að upplifa ömurlega viku, sem snar- versnar þegar hún lendir í bíl með Frank Lloyd (James Belushi) og konu hans Ray Anne, úti í eyði- mörk í Texas. Ekki fer betur en svo að Frank reynir að drepa hana eftir að skjóta kærustuna í hausinn og Karen kemst við illan leik inn í neðanjarðarbyrgi þar sem einmana vísindamaður stundar tilraunir með tímavél. Fyrir slysni er hún send tuttugu mínútur aftur í tím- ann og situr í bíl morðingjans fímmtán mínútum fyrir morðið. Hún gerir að vonum sitt besta til að breyta atburðarásinni, en slíkt er vandmeðfarið eins og hún kemst að raun um. Þetta er frábær og margslungin saga sem rennur hratt og vel yfír skjáinn. Sem dæmi um það má nefna að lýsingin að ofan segir að- eins frá fyrsta korteri hennar. Spumingin er: Hvað gerði mað- ur öðruvísi ef maður gæti ferðast aftur í tímann? Er hægt að breyta örlögunum og bæta þau, eða er sumt óhjákvæmilegt? Þessu er velt fram og aftur í einhverri bestu spennumynd sem lengi hefur kom- ið á markað og það er nánast óskiljanlegt hvers vegna hún fór ekki í bíódreifingu. Allir leikararn- ir standa sig óaðfinnanlega, en Belushi er frábær sem alger skít- hæll. Myndataka er eftirminnilega góð á köflum og þrátt fyrir augljós- lega lágan framleiðslukostnað eru engir verulegir hnökrar á tækni- legum þáttum. I stuttu máli, frá- bær skemmtun. Guðmundur Asgeirsson I boöi Heilsuhússins í Mbl og á FM 957 í hádeginu í dag Hvítar baunir í karrý 1 dós hvítar baunir 1 msk ólífuolía Vh msk karrý 1 laukur, meðalstór 1 tsk Herbamare kryddsalt V/i dl rjðmi eða kaffirjómi Hitið baunirnar þar til að þær eru gegnheitar. Hreinsið og saxið laukinn smátt. Hitið ólífuolíuna og setjið karrýið útí, látið krauma örstutt og bætið síðan lauknum útí og steikið hann þar til hann er orðinn glær. Bætið jurtasalti, rjóma og baununum útí. Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 5-10 mínútur. Éh Verði ykkur að góðu. leilsuhúsið Þú finnur fleiri uppskriftir á heimasíðunni okkar www.heilsa.is Morgunblaðið/Jim Smart LYÐUR Arnason og Jókakim Reynisson fyrir aftan kvikmyndatökuvélina. „I einni sængu Hvað eiga læknir á Vestfjörðum, tón- menntakennari í Garðabæ og verkfræð- ingur í Reykjavík sam- eiginlegt? Birna Anna Björnsdóttir hitti að ✓ máli þau Lýð Arnason, Hildi Jóhannesdóttur og Jóakim Reynisson og fékk að vita meira um þetta forvitnilega HILDUR Jóhannesdóttir tilbúin í slaginn í sumarblíðunni. um konuna sem átti sjö börn í landi og sjö í sjó,“ segir Jóakim. „Það fjallar í stuttu máli um ungan skipstjóra sem missir brúði sína á brúðkaups- daginn. En þrátt fyrir að sögu- þráðurinn sé dapurlegur að mörgu leyti verður þetta ekki þunglamaleg mynd heldur ætl- um við að reyna að gera skemmtilega og jákvæða mynd um sorglega hluti. Þannig er líka lífíð, erfitt en skemmtilegt." Lýð- ur tekur undir þetta: „Já, oft er það sem sýnist vera mjög slæmt kannski ekki alltaf sem verst þegai' grannt er skoðað." samstarf. SAMAN reka j:au kvikmynda- gerðarfyrii-tækið „I einni sæng“ sem hefur framleitt fjölda stuttmynda, þar á meðal myndina „Ertu sann- ur?“ sem var sýnd í sjónvarpinu fyrir fáeinum árum og þar að auki valin í keppnina Nordisk Panorama. Fyrirtækið stefnir nú að framleiðslu kvikmyndar í fullri lengd sem ber vinnuheitið „ álögum". Þau vh'ðast mjög samrýnd og eru tengd saman af brennandi áhuga á kvikmyndum og kvik- myndagerð. Enda er það aðalá- hugamál þeirra og verja þau öllum frístundum sínum í vinnu að verkefnum fyrirtæk- is síns. Hildur og Jóakim eru þar að auki hjón og eiga fjögur böm. Það er greini- legt að kvikmyndin „I álög- um“ á hug þeirra allan um þessar mundir en handritið að henni var eitt af þrem- ur handritum sem komust alla leið í handritasamkeppni kvik- myndasjóðs sem hófst haustið ‘96. Hingað til hafa þau fjármagnað allar myndir sínar sjálf en þar sem þetta á að verða kvikmynd í fullri lengd þurfa að koma til styrkir og eru þau að vinna í því að afla þeirra bæði inn- an lands og utan. Þau hafa mikla trú á handritinu, hafa lagt í það mikla vinnu og segja að til að gera góða mynd þurfi skothelt handrit og það hafí þau núna og sjá því fram á að geta gert frábæra mynd. Skrifuðum handritið á næturnar - Hvernig unnu þið handritið, skrifuðu þiðþað öll saman? „Já, við gerðum þetta þannig að Lýður og Jóakim voru í vinnunni all- an daginn og mættu svo klukkan hálf níu þegar ég var búin að svæfa börn- in. Þá settumst við niður og unnum til fimm, þá fóru allir að sofa og þeir vöknuðu svo til að fara í vinnuna og ég gerði það sem ég þurfti að gera og svaf líka yfir daginn, Þeir sváfu frá fimm til átta á kvöldin og svo byrjuðum við aftur klukkan hálf níu,“ svarar Hildur. Þau segja að oft hafi komið löng tímabil þar sem dagarnir hafi verið með þessum hætti. „Við erum alveg rosalega ólík og höfum mismunandi áherslur og það gengur mjög vel fyrir okkur að vinna saman,“ segir Hildur. „Þetta er ágætt,“ gi-ípur Lýður fram í, „Jóakim er sá sem heldur í tvær blöðrur og togar okkur Hildi niður á jörðina. Hildur hefur svo þessa kvenlegu áferð sem við karlmenn höfum ekki.“ Jóakim bætir því svo við að Lýður sé mjög næmur fyrir persónusköpun og uppbyggingu og þannig hafi þau öll sínar sterku hliðar sem nýtast vel þegai' þær koma saman. - Um hvað fjallar svo handritið? „Kveikjan er íslenska þjóðsagan Enginn er allur þar sem hann er séður Hildur talai- um það hversu margt fólk á Islandi vinni skapandi störf í frístundum sínum. „Það er fullt af fólki út um allan bæ að gera alveg frábæra hluti og það er æðislegt að upplifa það hvað enginn er allur þar sem hann er séður, hvað allir eru fullir af orku og hugmyndum, alls- konar fólk og á öllum aldri. Eg held að það gæti svolítið verið tengt því að þetta er svo lítið land og við erum svo fá. Þess vegna er yfirleitt mögu- leiki á því að koma því sem maður býr til, listinni sinni, á framfæri og fá þannig viðbrögð við því sem maður er að gera sem er reyndar nauðsyn- legt fyiTr listamenn." - Stefnið þið að því að geta unnið að kvikmyndagerð sem atvinnu- menn? „Við höfum nú enga ákveðna stefnu þannig,“ segja þau hvert ofan í annað. Hildur ítrekar síðan að þau geri þetta öll af áhuga og ánægju og segir að lokum: „Við njótum dagsins í dag, þetta er bara ævintýri." Það er samt greinilegt að þeim er líka al- vara og af ákafanum og jákvæðninni að dæma verður spennandi að fylgj- ast með afurðum þeirra í framtíð- inni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.