Morgunblaðið - 02.07.1998, Side 66
66 FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK f FRÉTTUM
Öll lögin
eru frábær
Grease
frumsýndur
A FÖSTUDAGINN verður söng-
leikurinn Grease frumsýndur Borg-
arleikhúsinu, en mikil tilhlökkun
ríkir meðal hinna fjölmörgu aðdá-
enda myndarinnar, sem eflaust
verða á öllum aldri; sumir sem sjálf-
ir hafa upplifað Grease æðið fyrir 20
árum, og aðrir sem uppgötvuðu
w SS
ast. Við
tókum
tali tvo
Grease
aðdáendur sem báðir eru undir tví-
tugu, og komumst að því hvemig
þau kynntust Danny og Sandy.
Ástin kemur alls
staðar í gegn
Hulda Proppé er 19 ára brjálaður
Grease aðdáandi. I kennaraverkfall-
inu 1995 horfði hún á kvikmyndina
ótal sinnum.
„Þetta byrjaði þannig að ég sá
myndina í skólanum og fannst hún
alveg frábær, enda er hún svo sæt,
söguþráðurinn er alveg frábær og
ég var alveg heilluð. Ég sökkti mér
ofan í myndina eins og vitleysingur,
fór út og keypti mér spóluna og
diskinn, og er búin að spila það allt í
gegn. Svo eyddi ég mörgum klukku-
tímum í að sauma kjól lyrir Grease
ball sem ég fór á.“
- Hvað finnst þér æðislegast við
myndina?
„Ég held að það sé ástin, hún
kemur alls staðar í gegn.“
- En hver er uppáhaldspersónan
þín?
„Þessi litli feiti í töffaragenginu
hans Dannys, ég man ekki hvað
hann heitir. Mér finnst hann æði,
hann er svo rosalega mikill auli.“
- En uppáhaldslagið þitt?
„Öll lögin, gjörsamlega. Ég kann
þau öll utan að.“
- Ertu búin að sjá myndina í bíó?
„Já, ég fékk miða á frumsýning-
una á Hard Rokk þar sem ég vinn.
Við fórum nokkrir krakkar saman
og ég fílaði þetta alveg í tætlur. Mér
fannst æðislegt. Leikararnir úr sýn-
ingunni í Borgarleikhúsinu komu og
sungu „Summer loving“. Það var
mjög flott hjá þeim, þótt mér finnist
smá asnalegt þegar er verið að þýða
yfir á íslensku. Þegar maður heldur
svona rosalega mikið upp á mynd-
ina þá er erfitt að fá það til að hitta
beint í mark. Ég hlakka samt til að
sjá þessa uppsetningu og held að
hún verði mjög flott.“
-Er uppáhaldspersónan þín líka í
sviðsuppsetningunni?
„Já, hann er leikinn af Jóhanni G.
Jóhannssyni. Hann er alveg frábær
leikari. Hann sá um leiklistarklúbb-
inn í 10. bekk í skólanum hjá mér,
þannig að ég má ekki sjá hann leika
þá verð ég alveg tryllt. Eða
þannig.“
Söngleikurinn
er skemmtilegri
Bragi Þór Antoníusson er 13 ára.
Hann var svo heppinn að komast á
söngleikinn í London og honum
fannst hann frábær. Þar með keypti
hann sér geisladiskinn með tónlist-
Morgunblaðið/Halldór
HULDA Proppé með diskinn
góða sem hún kann utan að.
nema kannski í Grease tilfellinu."
- Hver er uppáhalds persónan þín?
„Það er hún Rizzo, þessi dökk-
hærða með stutta hárið í Pink La-
dies, og svo líka Sandy. Mér finnst
Rizzo mjög svöl gella, en Sandy er
samt eiginlega skemmtilegri.“
- Hvaða lagfinnst þér best?
„Það er upphafsstefið sem heitir,
að ég held, bara Grease. Svo er líka
Grease Lightning mjög gott lag.“
- Áttu leðurjakka?
„Nei, reyndar ekki, enda ætla ég
að reyna að fá hann í keppninni um
Grease aðdáanda nr. l.“
- Ætlarðu að fara í Borgarleikhús-
ið?
„Já, það er löngu ákveðið. Það er
alltaf svo góð stemmning á svona
söngleikjum, þannig að mér finnst
eiginlega söngleikurinn skemmti-
legri en kvikmyndin. Svo líst mér
líka mjög vel á íslensku leikarana."
OPMA GOLFMOTIÐ
Merrild kaffi og golfklúbburinn Keilir
efna til golfmóts á Hvaleyrarvelli,
laugardaginn 4. júlí.
Ræst verður út kl. 8.00 og leikinn
18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2.
og 3. sæti, með og án forgjafar.
Einnig verða veitt aukaverðlaun fyrir
að vera næst holu á 10. og 16. flöt.
Skráning í síma 555 3360
Keppnisgjald er 2000 kr.
MmiM ^ur fcro<»°ér,"’ern
'MEIfiA AF ÖLLU
BRAGA Þór Antoníusson langar í Grease leðurjakka.
inni sem hann hefur spilað aftur og
aftur, og myndbandið sem oft hefur
rúllað gegnum tækið.
„Ég hafði heyrt öll lögin og
fannst þau skemmtileg, en svo sá ég
söngleikinn og þá fékk ég æði fyrir
Grease. Ég syng alltaf með þegar
ég horfi á myndina og er alls ekki
búinn að fá leiða á henni.“
- Hvers vegna er svona skemmti-
legt við Grease?
„Það eru aðallega lögin sem mér
finnast góð, og svo er sagan nátt-
úrulega mjög skemmtileg. Góðir
töffarar og flottar setningar. Ég er
nú ekki mikið fyrir ástarsögur,
MewriM
Sólarferðir • Ævintýraferðir
Borgarferðir • Málaskólar
Frábær fargjöld
Ungmenni allra landa:
F rðist
Málanám
er fjárfesting til frambúðar
Enska, franska, spænska,
ítalska, þýska, japanska.
Getum enn tekið við bókunum
í ágúst og september.
Skólar og námskeið við allra hæfi.
V
s ferðaskrifstofa
| stúdenta
t Slmi: 561 5656
WWW.fs.is/stndtta.vel ...og ferðin er hqfin