Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 1

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 1
155. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tryggðir bragðlaukar EDOARDO Raspelli, mesti sérfræðingiir um góðan mat á Italíu, hefur að eigin sögn orðið fyrstur allra til að tryggja tvö skiln- ingarvitanna, ilman og bragð. Segir hann frá því í dagblaðinu La Stampa, að trygg- ingafélag í Tórínó hafí fallist á að taka þessa áhættu og væri tryggingarupphæðin um 48 milljónir ísl. kr. Kvaðst Raspelli hafa beðið til guðs þegar hann skrifaði undir samninginn, að hann þyrfti aldrei á bótunum að halda. Skj ólstæðingur Suhartos tapaði AKBAR l’andjung var kjörinn formaður Golkar-flokksins í Indónesíu sem fer með völd í landinu en Tandjung er náinn vinur B.J. Habibies, forseta landsins, og hans hægri hönd í ríkisstjórninni. Bar Tandjung sigurorð af Edi Sudradjat, fyrrverandi varnarmálaráðherra, sem naut stuðnings skjólstæðinga Suhartos, fyrrverandi for- seta. Er þetta í fyrsta sinn sem Golkar- flokkurinn velur formann sinn í opnu kjöri. Stjórnvöld í Indónesíu tilkynntu í gær að þau hygðust leysa níutíu pólitíska fanga úr haldi í næstu viku en að Xanana Gusmao, leiðtogi skæruliðasveita Austur-Tímor, væri ekki þeirra á meðal. Rússar vongóðir um lán frá IMF AÐSTOÐARMAÐUR Anatólís Tsjúbajs, aðalsamningamanns Rússa við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn (IMF), sagði í gær að góður árangur hefði náðst í viðræðum við sjóðinn um lán upp á tíu til fimmtán millj- arða fsl. kr. til að blása lífi í rússneskan efnahag, en viðræður stóðu yfir í Moskvu á föstudag og laugardag, og sagðist vona að senn yrði hægt að leiða málið til lykta. Hélt Boris Jeltsín óvænt fúnd með helstu ráðgjöfum sínum um miðjan dag í gær og lýsti talsmaður hans ánægju forsetans með árangur viðræðnanna. Hafði hann á föstu- dag reynt að vinna stuðning Bill Clintons, Bandaríkjaforseta, og Helmuts Kohl, kanslara Þýskalands, fyrir lánveitingum. Netanyahu sagð- ur hamla friði FAROUQ al-Shara, utanríkisráðherra Sýr- lands, segir í vikuritinu Le Point í gær að enginn friður sé mögulegur við ísrael á meðan Beqjamin Netanyahu gegni þar embætti forsætisráðherra. „Staðan í Mið- Austurlöndum hefur ekki verið svo hættu- leg síðan fyrir alþjóðafriðarráðstefnu í Madrid 1991 og undir lok kalda stríðsins," sagði Shara. Reuters KOSIÐ er í dag til efri deildar japanska ~T7' _ ^ T __ __ gegn erfiðri efnahagskreppu hefur mjög þingsins en frammistaða Ryutaros rV | _ I JJ verið f brennidepli í kosningabaráttunni Hashimotos, forsætisráðherra landins, J. V/ J. kJ LAJty W/ll semlaukígær. Abiola borinn til grafar Viðræðum seinkaði á Norður-írlandi Lögreglan sökuð um harðræði Belfast, Portadown, London. Reuters. FYRIRHUGUÐUM viðræðum um lausn Drumcree-deilunnar á N-írlandi, sem áttu að hefjast eldsnemma í gærmorgun, seinkaði nokkuð vegna þess að ekki tókst að ákveða fundarstað er báðum aðilum líkaði. Sögðu talsmenn Tonys Blairs, forsætisráð- herra Bretlands, um ellefuleytið í gærmorg- un að „viðræður um viðræður" hefðu átt sér stað símleiðis og að viðbrögð fulltrúa Óraníu- reglunnar annars vegar og kaþólskra íbúa við Garvaghy-veginn í Portadown hins vegar, hefðu verið jákvæð vegna slíkra viðræðna. Fréttaskýrendur sögðu um það bil sem Morgunblaðið fór í prentun að náðst hefði samkomulag um fundarstað og að eiginlegar viðræður myndu hefjast þá og þegar. Enn kom til átaka aðfaranótt laugardags við Drumcree þegar mótmælendur reyndu að brjóta sér leið í gegnum vamarmúra lög- reglu og hers. Sögðu þeir lögreglu hafa beitt sig harðræði er hún skaut plastkúlum að þeim en því hafnaði lögreglan í gærdag og sendi frá sér myndbandsupptökur af óeirð- unum sem áttu að sýna að hún hefði brugðist eðlilega við er óeirðaseggur réðst að henni með skotvopni. Ottast um framtíð friðarferlis Spenna hefur stigmagnast vegna „göngu- deilunnar“ og óttast menn mjög um fram- hald friðarferlisins á N-írlandi ef ekki tekst að leysa deiluna fyrir mánudag þegar hátíða- höld Óraníumanna ná árlegu hámarki. Sem dæmi um hversu mikið liggur nú við benda menn á að lögreglunni í London tókst á fóstudagskvöld að hafa hendur í hári liðs- manna klofningshóps úr írska lýðveldishem- um (IRA), sem andsnúnir em friðarferlinu, einungis mínútum áður en þeir stóðu fyrir sprengjuárás í miðborg London. ÚTFÖR Moshoods Abiolas, leiðtoga sljórnarandstæð- inga í Nígeríu, fór fram í Lagos um miðjan dag í gær og var ekki gert ráð fyrir að niður- stöður krufningar á líki hans yrðu gerðar heyrin- kunnar fyrr en að útfórinni lokinni. Þykja niðurstöður krufningarinnar mikilvægar, því um sextíu manns hafa fallið í óeirðum sem brutust út eftir að fréttist um dauða Abiolas en eins og kunnugt er hafa alls kyns sögusagnir ver- ið á kreiki um banamein hans. Thabo Mbeki, aðstoðarforseti S-Afríku, sagði í gær eftir að hafa setið fundi með Abdusalam Abubakar, leiðtoga herfor- ingjasljórnarinnar í Nígeríu, að hann væri sannfærður um að Abubakar myndi standa við loforð sitt um að koma á lýð- ræði í iandinu. Ekkert umburdarlyndi VEGASALTIÐ VARÐ 26 AÐ BARNASMIÐJUNNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.