Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 7 Morgunblaðið/Árni Sæberg ÆTLI lyngið líti svona út í haust? Berjaspretta í sumar Sætukoppar og berjalyng lofa góðu ENN er fullsnennnt að segja fyrir um berjasprettu í ár að mati Sveins Rúnars Haukssonar heim- ildarmanns Morgunblaðsins um þau mál. Hann segir þó sætu- koppa og beijalyng á Suður- og Suðvesturlandi lofa góðu. Hann hefur skoðað Iyngið á þeim slóð- um og segir það víða fallegt. Morgunblaðið hafði einnig samband við Anton Guðlaugsson á Dalvík og segir hann enga ástæðu til að ætla annað en spretta verði í góðu lagi norðan- lands í ár. Frostnótt sé í raun það eina sem selji alvarlegt strik í sprettuna og þau hafl sloppið við það hingað til. I fyrrasumar hafi frost hins vegar eyðilagt kræki- beija- og aðalblábeijasprettu, en mikið hafi verið af blábeijum sem komi seinna til. Sveinn Haukur segir margt hafa áhrif á sprettuna, í ár hafí verið sólríkt og hlýtt sem sé gott fyrir berin en hins vegar vanti ör- litla vætu. „Snjóléttur vetur eins og í vetur getur haft slæm áhrif á lyngið, því snjórinn veitir skjól í vetrarhörkum. Það er því enn ekki fullljóst hver útkoman verð- ur, en við bíðum allavega í einn og hálfan mánuð eftir því að fá ber á disk,“ segir Sveinn. Sveinn Haukur fylgist með sprettunni fram eftir sumri en fer sjálfur ekki í beijamó fyrr en í lok ágúst. Hann segir fólk oft barma sér yfír beijaleysi að ástæðulausu. „Það eru alltaf ber, það þarf bara að bera sig eftir þeim og leita." -------------- Kvikmyndasjdður Islands Styrkir veittir til handrits- gerðar KVIKMYNDASJÓÐUR íslands hefur úthlutað fjórum framhalds- styrkjum til handritsgerðar. Styrkþegarnir eru, ásamt vinnu- heitum á handritum þeirra: Huldar Breiðfjörð, fyrir Þegar rafmagnið fór af. Margrét Ömólfsdóttir og Sjón, fyrir Regína. María Sigurðar- dóttir, fyrir Móðir snillingsins. Ósk- ar Jónasson, fyrir S.S. Hver höfundur hlýtur nú 300.000 kr. til að vinna nýja útgáfu að hand- riti sínu. Höfundarnir hlutu, ásamt fjórum öðrum, upphafsstyrk við út- hlutun sl. vetur, og tóku þátt í hand- ritaþróun á vegum Kvikmyndasjóðs. Nú hefur þátttakendum í handrita- þróuninni verið fækkað um helming, en henni lýkur með því að tveir höf- undar hljóta lokastyrki í haust. Úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs skipa þau Bjarni Jónsson, Björn Vignir Sigurpálsson og Laufey Guð- jónsdóttir. Aðstaða fyr- ir flotkví í Hafnarfírði VINNA við aðstöðu fyrir flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar sf. í Hafnarfjarðarhöfn er vel á veg komin. Að sögn Eiríks Orms Víglundssonar, eiganda vélsmiðj- unnar, er miðað við að hún verði tilbúin um næstu áramót en upp- haflega var gert ráð fyrir að kví- in yrði komin upp í haust. „Kvfin er skemmd og viðgerð á henni tekur fjóra til fímm mánuði og verður ekki Iokið fyrr en um ára- mót. Það nægir því að fram- kvæmdum við höfnina verður lokið þá,“ sagði Eiríkur. Morgunblaðið/Arnaldur Franskur stfll ot>' frábært tilboð fvrir Far- og' Gullkorthafa VISA oe' Vildarkorthafa VISA oe' Fludleiða: Takmarkað Haustævintýri í París á mann, innifalió: Flug og flugvallarskattar. 8.- ll.október Þetta tilboösfargjald til Parlsar er eingöngu selt 1 söluskrifstofum Flugleiða í Kringlunni, Laugavegi 7, Hótel Esju og í Leifsstöð og i símsöludeild Flugleiða i síma SO SO 100. Svarað erí simsöludeild, mánud. - föstud. kl. 8 - 20, laugard. kl. 9 -17 og sunnud kl. 10 -16. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi í París opnast veröld gáska og gleðskapar sem á fáa sína líka. Torg og stræti iða af mannlífi, ilmur af heimsins bestu krásum herst að vitum og hvarvetna bíða söfn og glæsibyggingar sem er ógleymanlegt að skoða. Tilboðið gildir eingöngu í flugferð til Parísar fimmtudaginn 8. október og heim aftur til íslands sunnudaginn 11. október. Sölumenn Flugleiða aðstoða farþega við að finna hótelgistingu. Vefur Flugleiða á Intemetinu: www.teelandair.is Netfangiýrir almennar upplj/singar info@icelandair.is V/SA Munið raðgreiðslur VIS A. Greiða verður farseðil við bókun og er fargjaldið óendurkræft.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.