Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.07.1998, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM „Hjartsláttur“ Birna Anna Björnsdóttir hitti Alfred More og hr. Örlyg og forvitnaðist um fyrirbærið Hjartslátt og sló á þráðinn til plötu- snúðarins Martins Brew sem mun ásamt Alfred spila á Hjartsláttarkvöldi á Kaffi Thomsen í kvöld. s Asunnudagskvoldum, einu sinni í mánuði eða svo, heyrast nýstárlegir og for- vitnilegir tónar út um dyr Kaffi Thomsen í Hafnarstræti. Þangað streymir ungt og forvitið fólk sem vill eiga notalega kvöldstund og kynnast um leið því nýjasta sem er að gerast í tóniist. Þessi kvöld ganga undir nafninu Hjartsláttur og eru skipulögð og útfærð af hópi fólks sem samanstendur af Gus Gus, hr. Örlygi og Björk og fá þau til landsins mjög spennandi og at- hyglisverða plötusnúða. Fólk komi til að hlusta á tónlistina - Hver er hugmyndin á bak við „Hjartslátt"? „Hugsunin er sú að koma ein- hverju af stað í skemmtanalífinu sem er ekki á föstudags- eða laug- ardagskvöldum þannig að fólk sé að koma fyrst og fremst til þess að hlusta á tónlistina. Til þess að heyra góða og öðruvísi tónlist," svarar Alfred og undir þetta tekur hr. Örlygur. „Við viljum vera með góða tónlist í góðu umhverfi svo tónlistin fái að njóta sín. Þá er nauðsynlegt að hafa þetta á öðrum kvöldum en föstudags- eða laugar- dagskvöldum þvi þá er fólk svo oft upptekið af öðrum hlutum.“ Það er engin ákveðin stefna í þeirri tónlist sem borin er fram á Hjartsláttarkvöldum, nema bara að koma fram með eitthvað alveg nýtt og áhugavert. „Þetta er hug- sjónavinna, við erum að miðla boð- skap og sá boðskapur er tónlist og Hjartsláttarkvöldin eru mjög gott tækifæri. til að heyra nýja og framsækna tónlist," segir hr. Ör- lygur. „Það er mikill kraftur í tónlistar- lífinu héma í Reykjavík og þrátt fyrir mannfæðina eru íslendingar metnaðarfullir og við viljum hafa tónlistina og tónlistarlífið ferskt. Það er fullt af spennandi hlutum í gangi hérna og við í Hjartslætti er- um bara einn hluti af öllu því sem er að gerast.“ Hlakka til að spila á íslandi Martin Brew er tæplega þrítug- ur plötusnúður frá Manchester og vinnur þar í plötubúðinni Fat City Records. Hann gefur út eigin tón- list undir nöfnunum „Strange- brew“ og „J-Walk“ en kemur HÁGÆÐfl Steiningarlím » Til filtunar, kústunar og sem þéttimúr. » Gufuopið, vatnsþétt og frostþolið. * Tryggir góða áferð. » 15,ára reynsla á Islandi. Smiðjuvegur 72,200 Kópavogur Sími: 564 1740, Fax: 554 1769 SPECTROMIC ---yy/----- TS-400 Handsimi Bílasími Festmg i bil með 12V hleðslutæki, handfrjálsri notkun, tengingu f. loftnet og ioftnetskapli. Hleðslutæki f. 230V, 120 klst. NiMH rafhlaða. 37 - 108 Reykjavik 588-2800 - Fax. 588-7447 www.mbl l.is Nýjung! Þýsk gæðavara Ekta augnahára- og augna- brúnalitur sem samanstendur af litakremi og geli sem blandast saman, allt í einum pakka. Mjög auðveldur í notkun, fæst í þremur litum og gefur frábæran árangur. Útsöiustaðir snyrtivöruverslanir og apótek: Nana Lóuhólum, Libia Mjódd, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Andorra Hafnarfirði, Snyrtivöruversl. Gulibrá, Spes Háaleitisbraut, Sandra Smáratorgi, Ingólfs Apótek, Apótekiö Skeifan, Holtsapótek, Vesturbæiar Apótek, Borgar Apótek, Lyfjakaup Mosfellsbæ, Hringbrautar Apótek, Austurbæjar Apótek, Arbæjar Apótek, Snyrtivöruverslunin Sigurboginn, Breiöholtsapótek, Apótek Garöabæjar, Fjarðarkaups Apótek, Apótek Vestmannaeyja, Húsavíkur Apótek, Stjörnu Apótek Akureyri, Dalvíkur Apótek, Akranes Apótek, Borgarness Apótek, (safjaröar Apótek, Kaupfélag Hvammstanga, Hafnarapótek Höfn, Selfoss Apótek, Stykkishólmsapótek, Patreks Apótek. TANA Cosmetics Einkaumboó: S. Gunnbjörnsson ehf., s. 565 6317 og 897 3317 Morgunblaðið/Golli ALFRED More, sem mun spila í kvöld með Martin Brew, og hr. Örlygur. einnig fram sem plötusnúður. Hann kemur til íslands til að spila á Hjartsláttarkvöldi í kvöld. - Hvemig líst þér á að koma til Islands? „Alveg frábærlega vel og ég hlakka mjög mikið til að koma. Það er alltaf spennandi að spila fyrir nýja áheyrendur á nýjum stöðum. Þegar maður er að spila skiptir miklu máli hvemig áheyrendumir era því það myndast alltaf ákveðið samspil milli plötusnúðarins og áheyrenda. Það samspil á sinn þátt í því að skapa þá tónlist sem verður til í hvert sinn.“ - Hvað geturðu sagt um tónlist- ina þína? „Eg spila fyrst og fremst Hipphopp í bland við svolítið diskó. Þetta er samt ekki hreint diskó en það koma íyrir diskóhendingar sem gerir þetta að mjög skemmti- legri danstónlist. Þetta er blanda af nýju og gömlu sem hljómar von- andi vel saman.“ - En er þetta líkt einhverju sem heyrst hefur áður eða er þetta eitt- hvað alveg nýtt? „Ég myndi segja að þetta væri eitthvað alveg nýtt. Það era ekki margir sem era að blanda saman Hiphoppi og diskói. Hérna a.m.k. er þetta nokkurs konar neðanjarð- artónlist. Mörgum er líka meinilla við diskó sem ég skil vel því meiri- hlutinn af því er bara rusl. En sumt er alveg frábært, í því er mik- il tilfinning og það er það sem mér finnst gaman að spila.“ Martin hættir allt í einu að tala og hlær við, biðst svo afsökunar og segir að félagi sinn í plötubúðinni sé að hlæja sig máttlausan að sér þegar hann er að reyna að lýsa tón- listinni sinni. -Hann er bara öfundsjúkur af því að þú ert að fara til Islands, er það ekki? „Jú, engin spurning, hann er grænn af öfund, það langar alla til Islands, hvað þá að spila þar. Það vita allir af fslandi og sérstaklega þeir sem eru inní tónlist. Það þekkja flestir Björk og Gus Gus og vita að það er margt spennandi að gerast í tónlistinni hjá ykkur. Þannig að ég hlakka mikið til að spila á íslandi." Leslie Nielsen í fótspor DiCaprio ► SPRELLARINN Leslie Niel- sen, sem hefur gert Naked Gun myndirnar ddauðlegar, er ekki að baki dottinn og innan skamms verður frumsýnd í Bandaríkjunum myndin „Titan- ic: Wrongfully Accused". Ekki þarf að fjölyrða um efnivið myndarinnar en mótleikkona hans í þessari grínmynd er Melinda McGraw. Forvitnilegt verður að sjá hvort Nielsen reynir að feta í fótspor kyn- táknsins Leonardos DiCaprios sem hreif kvenþjóðina sem Jack í „Titanic". MYNDBÖND Einkalíf snillings Wilde (Wilde)___________ Drama býggt á sannri sögu ★★★ Framleiðendur: Marc og Peter Samu- elson. Leikstjóri: Brian Gilbert. Handritshöfundur: Julian Mitchell. Kvikmyndataka: Martin Fuhrer. Tón- list: Debbie Wiseman. Aðalhlutverk: Stephen Fry, Jude Law, Vanessa Redgrave, Jennifer Ehle og Tom Wilkinson. (112 mín.) Bresk. Mynd- form, júní 1998. Myndin er bönnuð innan 16 ára. í ÞESSARI ágætu mynd er sögð saga Óskars Wilde, sem var jafn frægur fyrir leikrit sín og ljóð og hann var fyrir mikilfenglegan per- sónuleika. Wilde var uppi undir lok síðustu aldar, þegar stíf siðferðis- gildi Viktoríutímans héldu samfé- lagi heldri manna í heljargreipum. Wilde var of frjór í hugsun til að kyngja skrifuðum og óskrifuðum reglum samfélagsins. Hann lagðist gegn þeim í skáldskap sínum og daglegu fasi með mælsku, orðheppni og hárfínan húmor að vopni. Kvikmyndin tekur upp þann þráð í ævi Wilde sem lýtur að einkalífi hans og ástarmálum, sem reyndust akkilesarhællinn í viður- eign hans við samfélagið. Frásögn- in spannar tímann frá því er Wilde uppgötvar samkynhneigð sína, þá nýgiftur, til þess að hann er sóttur til saka fyrir ósiðlegt athæfi. I handriti myndarinnar eru for- sögu Wilde ekki gerð sérstök skil og gengið út frá að áhorfandinn þekki í meginatriðum ævi skáldsins og snilligáfu. Mörgu er sleppt og verða því ákveðnir þættir dálítið vanræktir, sérstaklega sá hluti sem fjallar um samskipti Wilde við fjöl- skyldu sína sem og ástarævintýri Wilde og Bosie. Hins vegar virkar þetta vel þegar líður á myndina, því þótt atburðarásin sé fremur rislítil og blátt áfram, verður uppgjörið í lokin áhrifaríkt. Dómsmálið gengur svo hratt og örugglega fyrir sig að það verður óhugnanlegt og raun- veralegt. Sú and-melódramatíska stefna sem myndin tekur samsvar- ar sér þannig vel þegar upp er stað- ið. Það sem gerir þessa mynd eftir- minnilega er leikurinn í heild sinni. Bresku leikararair gæða handritið lífi og dýpt, smyrja það og fylla út í glufur. Stephen Fry er fullkominn Wilde. Hann miðlar mikilfenglegu fasi, mælsku og hnyttni persónunn- ar en um leið vamarleysi hennar og viðkvæmni. Meðleikararnir era heldur engir eftirbátar hans. Jude Law er guðdómlega fallegur og traflaður í hlutverki Bosie, unga aðalsmannsins sem Wilde var hel- tekinn af og Michael Sheen myndar sterkt mótvægi sem traustur vinur Wildes. Jennifer Ehle nær á aðdá- unarverðan hátt að gæða dauflegt hlutverk sitt dýpt og tilfínningu og Tom Wilkins, sem lék yfirstrippar- ann í „The Full Monty", virðist hér stökkbreyttur í hlutverki hins ill- skeytta föður Bosie. Vanessa Red- grave sýnir stórleik í annars stuttu hlutverki móður Wilde. Kvikmyndin er best þegar hún setur fram þau orð og tilsvör sem liggja eftir Wilde sjálfan. Af svo djúpviturri en áreynslulausri speki er ekki hægt annað en að hrífast. Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.