Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 2

Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 2
2 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Veiða má 297 hrein- dýr í ár ÁKVEÐIÐ hefur verið að heimila veiðar á allt að 297 hreindýrum á tímabilinu 1. ágúst til 15. september í ár auk hreindýrakálfa. Heimilt er að hefja veiðar á törfum 20. júlí en þess skal gætt að þær veiðar trufli hvorki kýr né kálfa. Veiðar óheimilar tíma- bundið á vissum svæðum Óheimilt verður að stunda hreindýraveiðar fyrir 15. ágúst á ákveðnu svæði sem af- markast að austan af austur- bakka Jökulsár í Fljótsdal að Laugará, með Laugará að Hölkná og þaðan í beina línu í topp á Urgi, á Tungusporð, Búrfellstopp og að ósi Dysjar- ár. Vesturmörk svæðisins fylgja síðan Jökulsá á Brú að Jökli. Með unga í fóstri TALIÐ er að varp við Tjörn- ina sé í meðallagi í ár að sögn Jóhanns Óla Hilmars- sonar, sem fylgist með fugla- lífinu við Tjörnina, en talning á ungum fer fram upp úr miðjum júlí. Eins og sjá má er þessi skúfönd sem syndir um Tjörnina um þess- ar mundir ungum prýdd, því hvorki fleiri né færri en 17 ungar fylgja henni. Algengt er að skúfendur og dugg- endur taki að sér uppeldi annarra unga en sinna eigin og skiptast þær jafnvel á að gæta þeirra eða ein kollan tekur að sér að sjá um allt uppeldi. Jóhann Óli sagði að í vor hefði verið mikið um skúfönd á Tjöminni og þrjú gargandarpör hefðu sést við Ijömina. Fjöldi dugganda sagði hann að hefði verið í meðallagi en henni hefur farið fækkandi undanfarin ár. Fáir æðarfuglar settust að við Tjörnina í vor og fáar gæsir hafa sést þar með unga en fjöldi kría er í meðallagi í sumar. BLAÐINU í dag fylgir 8 síðna auglýsingablað fyrir Akranesbæ. FRETTIR Umhverfísráðuneytið úrskurðar um hreindýraveiðar Úthlutun arðs verði í samræmi við ágang UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur úrskurðað að fella beri úr gildi ákvörðun hreppsnefndar Jök- uldalshrepps frá því í desember um úthlutun á arði vegna hreindýra- veiða til Aðalsteins Jónssonar, Klausturseli, Egilsstöðum. Lagt er fyrir hreppsnefndina að úthluta til hans á ný í samræmi við ákvæði reglugerðar þannig að metin sé ágangur hreindýra á jörð hans. Forsaga málsins er sú að Aðal- steinn kærði til umhverfisráðu- neytisins ákvörðun Jökuldals- hrepps um úthlutun hreindýraarðs og fór fram á að úthlutunin yrði tekin til endurskoðunar og að úr- skurðað yrði að hreppsnefnd yrði gert að fara eftir fyrri úrskurði ráðuneytisins frá júlí 1997. I þeim úrskurði er skýrt kveðið á um að skipta skuli arði vegna hreindýra- veiða fyrir árið 1997 í samræmi við reglur um hreindýraveiðar þannig að þeir bændur og aðrir er verði fyrir ágangi af hreindýrum á jörð- um sínum njóti hans fyrst og fremst. Jafnframt er tekið fram að það sé skoðun ráðuneytisins að ákvæði reglugerðarinnar verði ein- ungis skýrt þannig að þó taka megi tillit til annarra sjónarmiða við skiptingu arðs, þá verði ekki geng- ið fram hjá þeim sem fyrir mestum ágangi verða af hreindýrum og skal arðurinn fyrst og fremst ganga til þeirra. Þrátt fyrir þennan úrskurð hafi hreppsnefnd ákveðið að skipta arði milli bæja miðað við verðmæti jarðanna og stærð þeirra. Ekki í samræmi við túlkun ráðuneytisins í úrskurði ráðuneytisins nú seg- ir að ekki sé talið að túlkun hreppsnefndar sé í samræmi við úrskurð ráðuneytisins frá 1997, enda hafi ekkert komið fram hjá hreppsnefndinni um að reynt hafi verið að meta ágang á jarðir í hreppnum. Þeim rökum sveitar- stjórnar að ekki sé hægt að meta ágang hreindýra er hafnað. Fallist er á að sveitarstjómum sé heimilt sem megin reglu að úthluta arði vegna veiðanna samkvæmt sam- komulagi hlutaðeigandi en sætti landeigandi sig ekki við þá úthlut- un sem byggist á mati á ágangi hreindýra á jörð hans ber hins vegar að úthluta honum arði í sam- ræmi við ákvæði í reglugerð um hreindýraveiðar þannig að metinn sé ágangur dýranna á jörð hans eða jarðir. í úrskurðinum segir enn fremur að komið hafi fram hjá hrepps- nefnd að sátt sé um skiptingu á arðinum fyrir árið 1997 hjá öllum sveitungum kæranda. Því þyki rétt að ógilda aðeins úthlutun til kær- anda en að úthlutun til annarra í hreppnum standi. Ráðuneytið átel- ur jafnframt hreppsnefndina fýrir að hundsa úrskurð ráðuneytisins frá júlí 1997 um skiptingu hrein- dýraarðs í hreppnum. Morgunblaðið/Golli Galsi heldur for- ystunni í A-flokki GALSI frá Sauðárkróki og Baldvin Ari Guðlaugsson halda enn foryst- unni í A-flokki á landsmótinu á Melgerðismelum eftir milliriðil sem fram fór í gærmorgun, hlutu 8,75 í einkunn. Jafnir í öðru til þriðja sæti með 8,67 eru Ormur frá Dallandi og Atli Guðmundsson og Sjóli frá Þverá og Ragnar Hinriksson. Váli frá Nýja- bæ og Elías Þórhallsson eru í fjórða sæti með 8,60. Geysir frá Dalsmynni og Sigurður V. Matthí- asson eru í fimmta sæti með 8,58 og jafnir í sjötta til sjöunda sæti Baldur frá Bakka og Stefán Frið- geirsson og Hjörvar frá Ketilsstöð- um og Bergur Jónsson með 8,57 og Gammur frá Hreiðursborg og Vignir Siggeirsson og Prins frá Hörgshóli eru jafnir í níunda til tí- unda sæti með 8,52. Keppnin fór fram í blíðskaparveðri og áttu fjöl- margir áhorfendur þátt í að skapa stemmninguna. Mikil stemmning á kappreiðunum Lúta frá Ytra-Dalsgerði og Þórður Þorgeirsson sigruðu í 150 metra skeiði á 14,21 sekúndu, Bendill frá Sauðafelli og Ragnar Hinriksson sigruðu í 250 m skeiði á 22,61 sekúndu. í 300 metra stökki sigraði Kósi frá Efri-Þverá og Daníel I. Smárason á 22,14. Feiknagóð stemmning var í fyrra- kvöld á kappreiðunum og eru ár og dagar síðan jafnmargir mótsgestir á landsmóti hafa fylgst með. Þykir þetta órækt merki um uppgang kappreiðanna. Ekið á fé í Ölfusi EKIÐ var á á með tvö lömb í Ölfusinu í fyrrinótt. Kvöldið áður hafði verið ekið á lamb á svipuðum slóðum og drapst fénaðurinn allur. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi er talsvert um að ekið sé á fé sem sloppið hefur úr girð- ingum, en lausaganga er bönn- uð á þessum slóðum. Yfirleitt þarf að lóga fénu hafi það ekki drepist við að verða fyrir bílum og bílar geta stórskemmst við höggin. ► 1-56 Hvers virði er öryggið? ►Lögreglan í Reykjavik hefur undanfamar vikur breytt starfsað- ferðum sínum og tekur nú mun harðar en fyrr á því sem mörgum finnst vera litlar syndir. /10 Umdeild bandalög risa loftleiðanna ►Deildar meiningar eru um bandaiag British Airways og Am- erican Airlines. /12 Benjamín og Vera í Kreml ►Einar Heimisson fórtil Moskvu að grafast fyrir um örlög mægðn- anna Veru og Sólveigar Erlu. /20 Færeyjaráieið tll fullveldis ►Rætt við Hagna Hoydal sem er 32 ára ráðherra í nýrri landstjóm Færeyja og fer með sjálfstjórnar- mál og undirbúning færeysks full- veldis. /24 Vegasaltið varð að Barnasmiðjunni ►í Viðskiptum/Átvinnulífi á sunnudegi er rætt við hjónin Elínu Ágústsdóttur og Hrafn Ingimund- arson sem reka Bamasmiðjuna. /26 B ► 1-16 Spítalalíf á vígaslóð ►Fjórar íslenskar konur, tvær þeirra læknar og tvær hjúkmnar- fræðingar komu heim reynslunni ríkari af starfi friðargæslusveita í Bosníu. /1 & 2-4 Fröken úr Reykjavík eða stúlka úr sveit ►Af lífi vinnukvenna í Reykjavík og öðram byggðarkjömum úti á landsbyggðinni fyrir miðja öldina. /6 Svipmyndirfrá Eþíópíu ►Eþíópíumenn hafa ekki farið varhluta af hungursneyð, ófriði og sjúkdómum f tímans rás. /8 Frú Dinesen í Róm ►Hótelstýran María Dinesen hýsti margan íslenskan iistamanninn á árum áður. /16 c FERDALOG ► 1-4 Safaríævintýri og strandlíf í Kenýa ►Fyrsta beina farþegaflugið til Afríku f vændum. /1 V-Barðastrandasýsla ►Á slóðum klerka landnáms- manna og listamanna. /2 BÍLAR___________ ► 1-4 Tímamótabíl ekið ►Hefur alla burði til að slá keppi- nautunum við. / Reynsluakstur ►Leganza hlaðinn búnaði. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► 1-16 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Leiðari 28 Helgispjall 28 Reykjavíkurbréf 28 Skoðun 32 Minningar 33 Myndasögur 40 Bréftil blaðsins 40 fdag 42 Brids 42 Stjömuspá 42 Skák 42 Fólk í fréttum 46 Útv./sjónv. 44,54 Dagbók/veður 55 Mannl.str. lOb Dægurtónl. 13b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.