Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 9
Leikin sjón-
varpsmynd
tekin upp á
Landsmótinu
MARGIR ráku upp hlátrasköll í
áhorfendabrekkunni á Lands-
móti hestamanna á Mejgerðis-
melum þegar Samúel Orn Erl-
ingsson íþróttafréttamaður á
Sjónvarpinu var að taka viðtal
við Pálma Gestsson leikara og
fóru þeir mikinn. Þegar betur
var að gáð var verið að taka upp
leikna sjónvarpsmynd sem byggð
er á sögu eftir Hrafn Gunnlaugs-
son.
Sagan heitir „Þegar það ger-
ist“ og er byggð á bernskuminn-
ingum Hrafns frá því hann var í
sveit hjá Gunnari Bjarnasyni
hrossaræktarráðunauti á Hólum.
Tinna Gunnlaugsdóttir leikstýrir
myndinni ásamt Hrafni og er
handrit myndarinnar einnig unn-
ið í samstarfí þeirra. „Þetta er
ekki heimiidarmynd, heldur
skáldskapur," segir Tinna. „Sag-
an fjallar um ungan dreng sem
fer í sveit hjá manni sem verður
nokkurs konar átrúnaðargoð
hans. Við sögu kemur hestakona
og þegar hún kemur fram á sjón-
arsviðið finnst drengnum átrún-
aðargoðið verða gagntekið af
mannalátum. Drengurinn skilur
ekki alveg hvað um er að vera og
hvers vegna maðurinn breytist
svona. Konan fellur heldur ekki
fyrir manninum fyrr en manna-
lætin renna af honum og allt fer
vel að lokum.“
Auk Pálma fara með aðalhlut-
verk í myndinni þau Unnur
Steinsson sem Ieikur hestakon-
una og Steinar Torfi Vilhjálms-
son sem leikur drenginn. 011 eru
þau vant hestafólk og er Steinar
Torfi meðal keppenda í barna-
fiokki á Landsmótinu.
Pittmann-málið
Afrýjunar-
réttur
staðfestir
frávísun
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Banda-
ríkjunum hefur staðfest úrskurð
dómara í undirrétti að vísa frá máli
Fredriks Pittmans á hendur Flug-
leiðum vegna brottnáms Emu Eyj-
ólfsdóttur á dætrum sínum frá
Bandaríkjunum.
Dómari í undirrétti vísaði málinu
frá á sínum tíma og nam jafnframt
úr gildi 15 milljóna dollara bætur
sem kviðdómur hafði úrskurðað
Pittman og dóttur hans. Er það
jafnvirðri tæpra 1100 milljóna
króna íslenskra.
Niðurstöðu dómara var áfrýjað
til áfrýjunarréttar sem hefur nú
staðfest frávísun málsins.
Fylgstu með nýjustu
fréttum á fréttavef
Morgunblaðsins
www.mbl.is
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
PÁLMI Gestsson leikari í síðum leðurfrakka með hatt í atriði þar sem
hann er í viðtali við Samúel Örn Erlingsson fréttamann.
Fólk
Skipaður
skrifstofu-
sljóri Hæsta-
réttar
SIMON Sigvaldason lögfræðingur
hefur verið skipaður skrifstofu-
stjóri Hæstaréttar. Um er að ræða
embætti sem varð til með nýjum
dómstólalögum er tóku gildi 1. júlí
síðastliðinn. Embætti hæstaréttar-
ritara var þá um leið aflagt.
Símon er 36 ára, lauk lagaprófi
1989. Hann hefur meðal annars
starfað sem aðstoðarmaður hæsta-
réttardómara, settur skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu og
var skipaður
saksóknari frá 1.
janúar 1998.
Símon er kvænt-
ur Ingu Dóru
Sigfúsdóttur
stjómmálafræð-
ingi og eiga þau
tvær dætur.
Aðrir um-
sækjendur um
stöðuna voru
Erla Jónsdóttir hæstaréttarritari,
Sigríður Norðmann, deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu, Sigur-
jóna Símonardóttir, aðstoðarmaður
hæstaréttardómara, og Þorgerður
Erlendsdóttir, settur héraðsdóm-
ari.
IP VAIAHLUTIR
Hjá NP varaWuíum færðu alla þá hluli sem skipta máli: Bremsuklossa, reimar, kerti, mðuþurrkur,
rafgeyma, kveikjur og fleira. Ekki aðeins í einhverjar spes tegundir bifreiða, heldur allar. Já, AL
TEGIDIR BIFREIDA. Það ættir þú að hafa í huga næst þegar þig vantar lugt... eða hásingu
eða ktíplingu... eða bremsuborða...