Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 15
HM I KNATTSPYRNU
Króatar sigurvegarar
ÞAÐ fylgir því alltaf ákveðin
spenna á heimsmeistaramót-
um í knattspyrnu að komast
að því hvaða lið kemur mest á
óvart. í ár er alveg Ijóst hvaða
lið kom mest á óvart. Það var
lið Króatíu og það skiptir ekki
máli hvernig leikur þess við
Hollendinga um þriðja sætið
fór. Króatar eru einir af sigur-
vegurum HM.
Fyrir úrslitakeppni HM voru lík-
umar 40 á móti einum að lið
Miloslavs Blazevic yrði heims-
meistari. Knattspymuspekingar
um allan heim töldu litlar líkur á að
lið, þar sem meðalaldurinn er 29
ár, ætti einhverja möguleika á að
ná langt. En eftir að Króatar urðu í
öðm sæti í H-riðli, á eftir Argent-
ínu, fóm ýmsir spekingar að efast.
Tvær grímur mnnu á enn fleiri
þegar Króatía lagði Rúmeníu í 16-
liða úrslitum og ef einhverjir vora
enn efins sannfærðust þeir um
styrk Króata þegar þeir lögðu
Þjóðverja 3:0 í 8-liða úrslitum.
Þrátt fyrir að Króatar séu á viss-
an hátt vonsviknir að komast ekki í
úrslitaleikinn geta þeir vel við un-
að, og þeir era stoltir því lið þeirra
kom liða mest á óvart og leikmenn
hafa öðlast mikla reynslu og virð-
ingu með frammistöðu sinni. „Við
getum verið stoltir. Króatía er lítið
land og þar búa aðeins um fjórar
miiljónir. Þrátt fyrir smæðina höf-
um við lagt stórþjóðir að velli,“
sagði vamarmaðurinn Igor Stimac.
Króötum virðist hafa farið mikið
fram síðan þeir töpuðu fyrir Þjóð-
verjum í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar 1996. Blazevic ákvað
að halda sig við svipaðan leik-
mannahóp, „gamla“ og reynslu-
mikla leikmenn sem hafa skipað
landslið Króatíu síðan landið fékk
sjálfstæði í október 1990. „Gömlu“
mennimir hafa sýnt að þeir voru
traustsins verðir því þeir hafa leik-
ið vel og sýnt og sannað að menn á
þeirra aldri geta verið í nógu góðu
líkamlegu ástandi til að standast
yngri mönnum snúning.
Vamarmaðurinn Slven Bilic
þakkar þjálfaranum velgengnina.
„Við eram eins og fjölskylda og Bl-
azevic er pabbinn. Eg man þegar
hann settist niður með okkur fyrir
þremur áram og sannfærði okkur
um að við gætum orðið eitt af bestu
liðum heims. Okkur hefur tekist
það.“
Halda heim sem hetjur
Hvort velgengnin á eftir að
koma Króatíu til góða síðar er allt
www.mb ll.ÍS
önnur spurning. Leikmenn halda
heim á leið á morgun sem hetjur,
en framtíð landsliðs Króatíu er
óljós. Eins og áður segir eru
margir af lykilmönnum liðsins
komnir á aldur og miklar efa-
semdarraddir heyrast; menn telja
ólíklegt að Króötum takist að
festa sig í sessi sem ein af bestu
knattspyrnuþjóðum heims. Til að
það verði þarf nýtt blóð í liðið og
það gæti reynst erfitt. Enginn
ungur efnilegur leikmaður frá
Króatíu sást á HM og deildar-
keppnin þar í landi, einokuð af Za-
greb og Hajduk Split, er ekki líkt
því eins sterk og hún var fyrir
1990 þannig að minna er um unga
og efnilega leikmenn en áður. A
móti kemur að margir leikmenn
fara í atvinnumennsku til annarra
landa Evrópu en það kemur í veg
fyrir að hægt sé að nota aðferðir
Blazevic þjálfara.
Blazevic hefur fengið nokkur
tilboð um að þjálfa, þar á meðal
frá nokkram frönskum félögum og
víst er að eftir árangur hans með
króatíska liðið mun tilboðum
fjölga. Þess má geta að hann var
við stjómvölinn hjá Nantes í
Frakklandi og þjálfaði þá meðal
annars Desailly, hinn frábæra
varnarmann Frakka og fyrirlið-
ann Deschamps, og það var
einmitt Blazevic sem gerði hann
að fyrirliða aðeins átján ára gaml-
an.
Hvort sem hann fer til Frakk-
lands eða heldur áfram sem lands-
liðsþjálfari Króata er nokkuð víst
að Króatar munu eiga í vandræð-
um með að standa undir þeim
væntingum sem stuðningsmenn
landsliðsins gera í kjölfar árang-
ursins í Frakklandi.
Króatar eru með Júgóslavíu og
Irlandi í riðli í Evrópukeppninni og
svo gæti farið að þeir kæmust ekki
áfram í úrslitakeppnina árið 2000.
En hinir fjölmörgu Króatar sem
fylgdu liðinu til Frakklands era
ekki að velta framtíð króatíska
landsliðsins fyrir sér þessa dagana,
það getur beðið. Þeir era að fagna
árangrinum í Frakklandi og Bl-
azevic og strákamir hans geta ver-
ið vissir um að það verður vel tekið
á móti þeim þegar þeir lenda í Za-
greb.
Reuetrs
MIROSLAV Brazevic.
wmúld mj
muum MáKj
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
i uyrpr...
SEGLAGERÐIN
Eyjaslóð 7 Reykjavík sími 511 2200
Útsalan hefst á morgun • Útsalan hefst á morgun
"VI HERRAFATAVERSLUN
2J BIRGIS
FÁKAFEN 11 • SÍMI 553 1170