Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Sérverslun með
sígílda tónlist
Þó stórfyrirtæki í útgáfu á sígildri
tónlist barmi sér dafna smáfyrirtækin.
Árni Matthíasson kynnti sér starf nýrrar
sérverslunar með slíka tónlist sem leggur
höfuðáherslu á sjaldséðar útgáfur.
Morgunblaðið/Golli
LÁRUS Jóhannesson og Jóhannes Ágústsson í versluninni 12 tónum.
MARKAÐUR fyrir klassíska
tónlist hefur stækkað mjög
undanfarin ár, en þó hafa
stórfyrirtækin átt í erfíðleikum og
mikill samdráttur í sölu þar á bæ.
Fyrir vikið eru yfirlýsingar útgáfna-
nna mjög misvísandi; þær stóru tala
um samdrátt og kreppu en á meðan
fjölgar smáfyrh-tækjunum og þeim
útgáfum sem selja ódýra diska. Fyr-
ir stuttu tóku tveir ungir menn sig
til, annar starfsmaður í plötuverslun-
um til margra ára en hinn viðskipta-
vinur hans, og stofnuðu sérverslum
með sígilda tónlist, 12 tóna, sem hef-
ur meðal annars að markmiði að
sinna sérstaklega smáútgáfunum.
Þeir Jóhannes Ágústsson og Lár-
us Jóhannesson þekkja vel til í versl-
unarrrekstri með tónlist; Jóhannes
starfaði við afgreiðslu og innkaup
fyrir hljómplötuverslun um árabil,
en Lárus hefur safnað sígildri tónlist
í fjölda ára og þekkir því vel tii lífs-
ins hinum megin borðsins. Þeir segja
að margir hafí orðið til að letja þá frá
því að fara út í slíka óvissu sem
verslunarrekstur sé, en fleiri hafí
lýst ánægju sinn og hvatt þá til dáða.
„Við töldum lag á að auka þjónustu
við plötukaupendur og bæta úr þeim
skorti sem hefur verið á plötum frá
öðrum útgáfum en þeim allra
stærstu. Viðtökumar hafa og sýnt
okkur að margir höfðu áhuga á að
komast í þau merki sem við erum
með í sölu.“
Misvísandi yfírlýsingar
Markaður fyrir klassíska tónlist
hefur stækkað mjög undanfarin ár,
en þó hafa stórfyrirtækin átt í erfíð-
leikum og mikill samdráttur í sölu
þar á bæ. Fyrir vikið eru yfirlýsing-
ar útgáfnanna mjög misvísandi; þær
stóru tala um samdrátt og kreppu en
á meðan fjölgar smáfyrirtækjunum
og þeim útgáfum sem selja ódýra
diska. Þeir Jóhannes og Lárus segj-
ast einmitt hafa orðið varir við þetta
því hér á landi hafí menn haldið
mjög fast í það sem stórfyrirtækin
gera og ekki sinnt smáútgáfunum
nógu skipulega að þeirra mati. „Það
var því færi fyrir okkur að koma inn
á markaðinn með merki eins og Tel-
arc, Hanssler, Collins, Arkadia,
CPO, Ópera tres, ASV, DRG,
Symphonia, Mondo Musica, co legno
og Revelation, svo fáein séu talin.“
Þeir Jóhannes og Lárus segja að
vissulega sé snúið að henda reiður á
svo mörgum útgáfum en samskipti
séu líka persónulegri og allt gangi
hraðar fyrir sig. Þannig geti smáfyr-
irtækin brugðist hraðar við mark-
aðnum, ef til að mynda einhver gerð
tónlistar nær hylli vegna notkunar í
kvikmynd en þau stóru séu lengi að
átta sig á hlutunum og enn lengur að
bregðast við. „Við náum líka per-
sónulegra sambandi við merkin, er-
um jafnvel að eiga beint við eigand-
ann, þannig að við fylgjumst betur
með þvi sem er í aðsigi hjá viðkom-
andi útgáfu.“
Listamenn skipta minna máli
Þróun í útgáfu á sígildri tónlist
hefur undanfarin ár færst frá því að
vera nánast dýrkun á einstökum tón-
listarmönnum, sem tóku sömu verk-
in upp aftur með reglulegu millibili í
að höfuðáhersla er lögð á verkin
sjálf. Þannig sé fólk frekar tilbúið til
þess að kaupa disk með óþekktum
listamönnum ef þeir eru að flytja eft-
irtektarverð verk.
Skipulögð tónlistarkennsla hefur
skilað því að grúi hæfileikaríkra tón-
listarmann er að störfum um heim
allan og þó enn séu til stjömur eru
þeir legíó sem standa þeim nánast á
sporði hvað varðar hæfileika. Þeir
Jóhann og Lárus segjast og merkja
það á sínum innflutningi að lista-
menn skipta minna máli; menn
treysti því yfírleitt að merki eins og
til að mynda ASV, Hanssler eða
Collins séu aðeins með góða tónlist-
armenn á sínum snærum og spái
frekar í það hvaða verk er verið að
leika. „Stórfyrirtækin hafa gert of
mikið af því að hljóðrita aftur og aft-
ur sömu verkin og þegar þau bregð-
ast við samkeppni frá til að mynda
Naxos með því að endurútgefa gaml-
ar upptökur á lágu verði eru þau
fyrst og fremst að taka markað frá
sjálfum sér.“
Á meðan Jóhann bregður sér fram
í búð að afgreiða viðskiptavin segir
Láms að sér sýnist mest sala vera í
versluninni á samtímaverkum og
nefnir sem dæmi þýsku útgáfuna col
legno, sem meðal annars gefur út
Berio, Cmmb, Kurtág, Hesse og
fleiri tónskáld okkar tíma, sem flest
eru á lífi, en einnig útgáfuraðir sem
helgaðar séu tónlistarhátíðinni í
Darmstadt og Donauerschinger tón-
listardögunum. „Sending af col legno
staldrar jafnan stutt við hjá okkur,
og mér finnst einmitt skemmtilegast
að selja slíka tónlist, því hún er til
marks um að það er mikið líf 1 sam-
tímatónlist og gott að tónskáldin fá
viðurkenningu." Lárus nefnir einnig
Revelation-útgáfuna sem hann segi
hafa selst vel en ólfkt col legno sér-
hæfir hún sig í útgáfu á gömlum
upptökum úr safni rússneska ríkis-
útvarpsins og þar sé að finna ýmis-
legt forvitnilegt eins og flutning
Sjostakovitsj á 10. sinfóníu sinni í út-
setningu fyrir tvö píanó, gamlar upp-
tökur með Kissin og þar fram eftir
götunum. „Ekki má svo gleyma
þýsku útgáfunni Hanssler sem var
fyrst fyrirtækja til að gefa út allar
kantötur Bachs og stefnir á enn
stærra verk; heildarútgáfu á verkum
hans sem verður mesta útgáfuþrek-
virki okkar tíma. að mínu mati.“
EITT verkanna á sýningunni.
Morgunblaðið/Júlíus
Sigurbjörn sýnir í Eden
SIGURBJÖRN Eldon Logason
opnar málverkasýningu í Eden í
Hveragerði mánudaginn 13. júlí
eftir hádegi. Á sýningunni verða
aðallega vatnslitamyndir.
Sigurbjöm hefur haldið
einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum. Sýningin í Eden
er sölusýning og henni lýkur
26. júlí.
Einsöngstónleikar
á Hofsósi
JÓN Rúnar Arason,
tenór og Þórhildur
Björnsdóttir píanóleik-
ari halda tónleika í fé-
lagsheimilinu Höfða-
borg á Hofsósi í dag,
sunnudag kl. 17. Á efn-
isskrá þeirra eru ítölsk
sönglög og aríur og ís-
lensk sönglög, m.a.
Lindin eftir Eyþór
Stefánsson, Fuglinn í
fjörunni eftir Jón Þór-
arinsson, Stormar,
Heimir og Jarpar eftir
Sigvalda Kaldalóns.
„Efnisskráin er í heild
mjög klassísk og við
byrjum á léttum og vel-
Jón Rúnar
Arason
þekktum lögum og
þyngjum hana síðan
eftir því sem á líður.
Eftir hlé hleypum við
ítalska „stórskotalið-
inu“ fram og flytjum
m.a. aríu hertogans úr
Rigoletto og aríu Al-
fredos úr La traviata
eftir Verdi og aríu Rod-
olfos úr La Boh'eme
eftir Puccini," segir Jón
Rúnar.
Jón Rúnar heldur til
Svíþjóðar í haust og
syngur hlutverk Rodol-
fos í La Boheme í upp-
færslu Óperunnar í
Gautaborg.
Fékk hæstu einkunn í
Royal Academy of Music
Hulda Björk Garðarsdóttir
hefur nýverið lokið prófí frá
Royal Academy of Music 1
London og hlaut hún hæstu
einkunn sem skólinn veitir
eða „Outstanding DipIoma“.
„Það er meira en maður þorði
að vona,“ sagði hún 1 stuttu
spjalli við Dag Gunnarsson.
HULDA Björk hóf söngnám á Akureyri, var
fyrstu árin hjá Þuríði Baldursdóttur og segist
oft verða hugsað til þess sem hún lærði hjá
henni. „Maður býr lengi að þessum fyrstu tímum og ég
finn að íslenskir söngnemendur koma vel undirbúnir
hingað út, það koma góðir söngvarar að heiman, sem er
fyrst og fremst því að þakka að við eigum svo góða
kennara á íslandi."
Hulda Björk lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík eftir tveggja ára nám hjá Dóru Reyndal og
Þuríði Pálsdóttur. Eftir það fór hún og söng fyrir í
Berlin og komst inn í Hochschule Der Kúnste í klass-
ískt söngnám i óperu- og ljóðasöng og tengdum grein-
um og var þar einn vetur. „Það var ágætt að vera þar
en mér finnst Bretar setja markið hærra og er ánægð-
ari með þá menntun sem ég hlaut síðan hér í London.
Ég fékk styrk til tveggja ára náms við RAM frá As-
sociated Board of The Royal Schools of Music, en var
komin með heimþrá og orðin leið á námsmannalífinu
og ákvað að taka þessi tvö ár á einu. Þó að ég næði
kannski ekki prófi út úr þvi þá væri ég að minnsta
kosti með þessa reynslu." Ekki nóg með að Hulda
Björk næði prófinu með glæsilegum árangri heldur
vakti hún athygli umboðsmanna og hefur nú skrifað
undir samning við einn þeirra og kemur þess vegna til
með að heimsækja London reglulega næsta vetur til
að syngja fyrir og stunda söngtíma. „Ég er að læra
hlutverk Danae, sem er aðalhlutverk í óperunni Die
liebe der Danae eftir Richard Strauss, fyrir næsta vor
þar sem ég verð að vera tilbúin að stökkva inn í sem
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
Hulda Björk Garðarsdóttir
„varasöngkona" hjá Garsington Opera Company sem
verður með óperuhátíð úti undir berum himni í ná-
grenni Oxford. Þetta er einn hlekkurinn í ferlinu; með
þessu móti getur maður útvegað sér reynslu í
sviðsvinnu og samstarfi í óperuuppsetningu. Það tekur
tíma að syngja hlutverkið inn í röddina, og því er gott
að hafa góðan tíma.“ Áður en það gerist mun Hulda
Björk halda ljóðatónleika heima í tónleikaröð sem Ása
Richardsdóttir er að skipuleggja í Kaffileikhúsinu í lok
ágúst. „Það sem er framundan hjá mér er að koma i
sem mest fram heima og finna góð verkefni að glíma
við og öðlast meiri reynslu. Eftir tónleikana í Kaffileik-
húsinu ætla ég svo að heimsækja heimaslóðir mínar
norður í landi og halda þar tónleika.“