Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 22

Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Ljósmyndir/Einar Heimisson GYLLTU turnarnir, prúnadonnurnar, þær gægðust til himins, rétt eins og Isiendingurinn ungi, sem var á góðri leið með að missa trúna á það, sem hann var að læra í skdlanum. Moskva, Moskva - lífsins andsiæður í bráð og lengd „Vera Hertsch hvarf okkur öllum í mars 1938 - en gott er til þess að vita, að við höfum nálgast hana nokkuð, og ennþá meiri vitneskja mun fást innan skamms,“ skrifar Einar Heimisson. Hann fór til Moskvu að grafast fyrir um örlög mægðn- anna Veru og Sólveigar Erlu. ÚSSNESKAR stofnanir fullyrða að Vera Hertsch hafi verið flutt í fangabúð- ir, og telja sig nú geta .fundið nýjar upplýsingar um örlög hennar, og barnsins, sem fæddist í kjölfar ástarinnar, sem varð til í næsta húsi við Kreml, í mestu hugsanlegri nálægð við stað- inn, þar sem saga Rússlands liggur geymd - og lifir enn í hinum stór- fenglegu turnum sínum. Síðasta húsið, sem Vera Hertsch bjó í, og þar sem Halldór Laxness heimsótti hana, er fundið, og er nú í fyrsta sinn birt ljósmynd af þessum stað, þar sem kona og bam áttu sín hinstu örlög - allt vegna firringar leiðtoga og yfírvalda. Við vitum núna meira en áður um Benjamín og Veru: við vitum með vissu að Vera Hertseh var flutt í fangabúðir. Við höfum fundið húsið, þar seiri Vera bjó síðustu mánuðina í Moskvu. Rauði krossinn í Moskvu, og sú stofnun, sem eitt sinn hét KGB hafa veitt okkur upplýsingar um það. Skjalasöfnin eru að ein- hverju leyti orðin tölvuvædd, þótt fúkkinn geri starfsumhverfi óskemmtilegt, nýjar upplýsingar eru á næsta leiti - líklega á allra næstu vikum. Þá mun að líkindum koma í ljós í hvaða búðum Vera lenti, hvort hún lifði eða dó, þessi leyndardómsfulla kona, sem Hall- dór Laxness skrifaði svo eftirminni- lega um og Benjamín Eiríksson kynntist með ástríðufullum hætti í næsta húsi við Kreml, þegar Stalín réð þar ríkjum, og menn máttu telj- ast hólpnir af þeir fengu að halda einhverju sönnu - en neyddust ekki bara til að trúa á lygarnar. Framhaldsdeild K.U.N.M.Z. var skóli Benjamíns Eiríkssonar; hann var staðsettur beint við Kreml, í kölnu hjarta Moskvu, í miðpunkti allrar sögu hennar bæði iyrr og síð- ar: bæði í tíð Stalíns og tíð Ivans grimma. Þama sat Benjamín í tímum um kommúnistafræði, stundaði nám í skylmingum, borðaði kálsúpu með brauði, og hlustaði á fólk tala fyrir lífi sínu, lofsyngja hinn guðlega leiðtoga frammi íyrir ungum mönnum á uppleið, sem höfðu fengið gljáfægð stígvél hjá yfirvöldunum til að ganga á. Og Benjamín fór og sá Stalín á Rauða torginu, á næsta bæ við skólann sinn, og fánarnir rauðu, þeir blöktu og malbikið titraði beinlínis undir mann- fjöldanum - meðal annarra þessum nemendum, sem voru komnir víða að: frá íslandi, Þýskalandi, Ungverjalandi, Sí- beríu og víðar. Núna er þama stærsta hótel SIÐASTA húsið, sem Vera Hertsch bjó í, og þar sem Halldór Laxness heimsótti hana, er fundið, og er nú í fyrsta sinn birt ljósmynd af þessum stað, þar sem kona og barn áttu sín hinstu örlög - allt vegna firr- ingar leiðtoga og yfirvalda. LJÓSMYND tekin í Moskvu 1937 VERA með Sólveigu Erlu, dótt- ur sína og Benjamíns Eiríksson- ar, sem fæddist 22. mars 1937. kjarninn: hjartað, ef menn vilja kalla það svo. Og gullnu tumamir, þeir mynd- uðu andstæðu við þetta allt: fátækt- ina, sem lengstum ríkti í þessu landi og ríkir enn - en kannski em gullnir tumar einmitt vonarturnar fátæk- linga: kannski verður nú einhvem tíma hægt að klífa vegginn háa, komast upp á þennan turn - en fá- tæklingamir rússnesku, þeir gátu reyndar allt eins átt von á því að vera teknir af lífi á þessu helga rauða torgi, á aftökupalli þess, mönnum og bömum og hundum þeirra til daglegs innblásturs og af- þreyingar. Og svo eru þama enn aðrir turn- ar, og þá reisti ívan grimmi. ívan grimmi reisti ekki bara eina ldrkju á þessu torgi, og ekld heldur tvær - heldm- níu kirkjur. Valdhafar, þeir geta verið fullir af mótsögnum, af mannvonsku og manngæsku, kær- leik og illsku - og því hefur Rússland kynnst á þessari öld, heldur betur, rétt eins og á sextándu öld þegar Iv- í heimi: Hótel Rossiya með fimm þúsund herbergjum - en sýnin til mannvirkjanna gömlu, til sögunnar og til fortíðarinnar, hún er hin sama - menn geta notið henn- ar núna, rétt eins og Benja- mín Eiríksson naut hennar á sínum tíma. Kreml: þama er allt Rússland, fortíð, nútíð (og eflaust framtíð líka) - og þetta allt sá Benjamín út um gluggann sinn á morgn- ana þegar gylltu turnarnir, prímadonnurnar, þær gægðust til himins, rétt eins og Islendingurinn ungi, sem var á góðri leið með að missa trúna á það, sem hann var að læra í skól- anum. Kreml: stórfengleiki keisara- veldisins, þunglamalegur veru- leiki Sovétríkjanna: minningar um hersýningar, ræður, betrunarhæli lyganna, aðsetur hins meinta sann- leika; Kreml: miðjan í öllu þessu,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.