Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 33 BERNODUS O.G. FINNBOGASON + Bernódus Ö.G. Finnbogason fæddist á Snæfjöll- um í Norður-Isa- fjarðarsýslu 11. aprfl 1911. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík að kvöldi 4. júlí síðastliðinn. Faðir hans var Finnbogi Jón, for- maður í Bolungar- vík, hann var sonur Guðmundar Mark- ússonar útvegs- bónda og Sigríðar Ágústínu Örnólfs- dóttur frá Skálavík. Móðir Bernódusar var Steinunn, dótt- ir Magnúsar Magnússonar hreppstjóra á Hrófbergi í Strandasýslu, og konu hans Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Þiðriksvöllum. Systkini Bernód- usar eru Guðrún ljósmóðir, f. 1915, Sigurvin, fyrrv. verk- sljóri, f. 1918, Sigurgeir, versl- unarmaður, f. 1922, d. 8.2. 1993, Steinunn, ljósmóðir, f. 1924, Magnús verslunarmaður, f. 1927. Hinn 25. október 1947 kvæntist Bernódus eftirlifandi Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Hann afi, Bernódus Finnboga- son, hefur lokið ferðalagi sínu og þrátt fyrir að við vissum að senn myndi ferðalagi hans ljúka er mað- ur einhvern veginn aldrei viðbúinn og við fréttirnar tekur hjartað kipp. Afi var þreyttur ferðalangur og þreyttir eru hvíldinni fegnir. En það getur verið erfitt að kveðja og upp kemur söknuður og hugurinn fer að reika í safni minninganna. Upp í hugann koma svipmyndir - afi að koma heim í hádegismat og í húsinu er ilmur af soðinni ýsu með floti, afi að líta eftir bátnum sínum, Norðurljósinu, sem lengi vel stóð við gafl hússins, afi að vigta saltið í skúrnum og við að hjálpa, afi að dytta að húsinu og amma smeyk um að hann myndi detta í stigan- um, bæjarferðir með afa og ömmu, afi í skúrnum að hnýta tauma. Meðan afi og amma bjuggu í Fljótaselinu hjá pabba og mömmu fór afi í nokkrar gönguferðir á dag, hann setti sér markmið og oftast voru ferðirnar fimm yfir daginn. Eftir hverja göngu fékk hann kaffi- sopa og brauðsneið hjá ömmu. Hann fann að hann hafði gott af hreyfingunni. En honum fannst gönguferðirnar ekki duga og lang- aði í reiðhjól. Drjúgan tíma tók að finna hjól sem hentaði manninum sem kominn var á níræðisaldur, en hjólið fannst og mikið var hann afi glaður þegar hjólið loks kom. Eftir rúmlega hálfrar aldar hlé frá hjól- reiðum gefur augaleið að þörf er á æfingu. Hjólreiðarnar gengu þó vonum framar og afi var þakklátur nemandi. Hann Benni afí var duglegur maður og harður af sér. Sparsemi, nýtni og nægjusemi einkenndu hann eins og marga af hans kyn- slóð sem hafa alla tíð þurft að vinna hörðum höndum. Hann hafði gott auga fyrir fatnaði og tók alltaf eftir því hvort maður var í nýrri flík, og lét þá skoðun sína alltaf í Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. eiginkonu sinni, Kristínu M. Helga- dóttur f. 26.4. 1915. Hún dvelur nú á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar hennar voru Helgi Einarsson formað- ur í Bolungarvík og kona hans Guð- björg Sigurðardótt- ir. Sonur Bernódus- ar og Kristínar er Grétar Guðbjörn, f. 17.7. 1947, kona hans er Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 18.1. 1949. Börn þeirra eru: 1) Kristín Benný, f. 15.8. 1969, maki Davíð Héðinsson, og eiga þau tvo syni, Grétar Atla, f. 7.1. 1993 og Gunnar Atla, f. 20.4. 1994, 2) Óskar Eyjólfur, f. 22.9. 1976. Bernódus og Kristín fluttu frá Bolungarvík 1953, eftir komu til Reykjavíkur starfaði Bernódus sem vörubflstjóri á vörubflastöðinni Þrótti. Útför Bernódusar fer fram frá Laugarneskirkju á morgun, mánudag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ljós hvort sem honum líkaði flíkin eða ekki. Á síðustu mánuðum hrakaði heilsu afa mikið og þrekið fjaraði smám saman út uns komið var að ferðalokum. Honum var gefinn langur tími til ferðarinnar og hann var ekki aðeins afi heldui- einnig langafi. Hann hafði gaman af þegar langafabörnin, Grétar Atli og Gunnar Atli, komu í heimsókn þrátt fyrir að stundum væri mikill at- gangur. Þeir voru vanir að gera sig heimakomna og þeir vissu að alltaf var von um að fá kannski súkkulaðimola eða rúsínur. Elsku afi, við vitum að nú hefur þú öðlast aftur þann styrk og þá krafta sem horfnir vom. Það er okkar trú að nú líði þér vel og við vitum að þú munt fylgjast með okk- ur öllum, fjölskyldunni þinni, hvert sem leið okkar mun liggja í framtíð- inni. Við kveðjum þig nú með orð- um í stað handtaks og koss á kinn. Guð geymi þig, afi okkar. Kristín Benný og Óskar Eyjólfur. Benna hús. Uppi í hlíðinni nyrst í Víkinni. Undir Traðarhyrnu. Vor. Bræðurnir em að taka upp mó. Ilmur í lofti. Tjöruangan. Kallarnir að dytta að bátum sínum niðri við Brjót. Sólin skín. Allt er gott. Lífið hjá smáfólkinu er samt við sig. Benni og Stína kjölfestan. Já, ef eitthvað bjátar á í fjölskyldunni eru þau þar. Og þess vegna er litlum manneskjum komið fyrir hjá frændfólkinu í Víkinni þegar mikið liggur við. Við vitum ekkert um veikindi og erfiðleika enda ekki til siðs hjá þessu fólki að íþyngja börn- um með slíku. Benni var elsti bróðir mömmu. Sá sem ævinlega var leitað til í blíðu og stríðu. Og hún Stína. Ekk- ert barn var óþekkt hjá henni Stínu, það var bara svoleiðis. Já, þetta var ljúfur heimur þó að út- hafsaldan brotnaði rétt fyrir neðan okkur og hamaðist á hálfklámðum brimbrjótnum og ólmaðist upp í fjöru með látum. Hvað vomm við að fást um það, tvö lítil systkini, annað hjá Stínu og Benna og hitt hjá Geira og Huldu? Við vomm bara úti í Vík af því að pabbi var veikur og mamma hjá honum í Reykjavík. Litlir krakkar urðu stórir. Lífið breyttist og frændfólk- ið fluttist suður. Á Laugarnestanga í Reykjavík reis annað Benna hús. Rétt fyrir of- an fjöraborðið og aftur só maður ölduna brotna en ekki jafnákafa og æsta og fyrir vestan. Lítil barn- fóstra lallaði sér þá stundum inn á Laugarnestanga. Eins og ósjálfrátt sveigðu barnakerran og fæturnir ævinlega í þá áttina. Já, Benni og Stína með litla Grétar sinn bjuggu um sig í Laugameshverfinu og Benni hélt áfram starfinu sem hann hafði haft fyrir vestan, að keyra vömbílinn eins og það hét í þá daga. Benni frændi var maður gerða fremur en orða. Hægur maður en fylginn sér. Kíminn og notalegur. Hafði gaman af skvaldrinu í ætt- ingjum sínum, brosti í kampinn en lagði til málanna þegar honum þótti næg ástæða. I Víkinni hafði hann komið ná- lægt leiklistinni og verið í kór. Einnig spilaði hann á harmoniku á böllum sveitunga sinna hér fyrr á ámm. Enda alist upp við söng og spil í heimahúsum frá blautu barns- beini. Eftir að þau hjón fiuttust suður var minna um slíkt. En þau sungu saman, Stína og Benni. Benni með mjúkan baryton og Stína með sinn fallega sópran sem hæft hefði hljómleikasölum. Það vora skemmtilegar stundir í afmæl- um og á hátíðum að heyra þau taka lagið. Þar var gleðin í öndvegi. Og rausnin sömuleiðis. Það var aldrei þurrð á neinu hjá Stínu og Benna, þar vantaði aldrei neitt. Hvorki hjartagæsku og hlýju né yfirleitt nokkuð annað. Stórir og smáir áttu þar athvarf. Vinir og vandamenn að vestan. Systkini og þeirra afkvæmi sunnan heiða. Þar var ævinlega gott að koma. Benni vissi alltaf hvernig öðram leið og án þess að hafa um það mörg orð rétti hann hjálparhönd þeim sem stóðu höllum fæti eða tóku kannski óvart einhver hiiðarspor á lífsgöngunni. Það er gæfa þessarar þjóðar að eiga menn eins og hann. Hann var salt jarðar. Litla frænkan sem trítlaði ósjálfrátt út á Tangann í gamla daga þakkar fyrir sig svo og systk- inin öll, Gunnubörnin að vestan. Elsku Stína mín, Grétar og fjöl- skylda. Þökkum fyrir að hafa átt þennan öðling að. Guð blessi ykkur. Sigríður Gunnlaugsdóttir. BERGUR HALLGRÍMSSON + Bergur Hallgrímsson fæddist í Hafnamesi við Fáskrúðs- Qörð 4. október 1929. Hann and- aðist á Selfossi 20. júní síðastlið- inn og fór útfor hans fram frá Kópavogskirkju 1. júlí. Laugardaginn 20. júní vomm við stödd í sumarbústað uppi í Borgar- firði, þegar okkur barst sú harma- fregn að Bergur Hallgrímsson, vin- ur okkar og tengdafaðh' dóttur okkar, hefði orðið bráðkvaddur í morgun við vinnu sína. Það er mjög erfitt að kyngja því að einn af manns bestu vinum sé kvaddur svo snögglega á brott. En oft hafði ég leitt hugann að því að svona færi Bergur. Hann var svo mikill bjart- sýnismaður og mikill eljumaður, alltaf að vinna. Það var eins og hann væri í kapphlaupi við lífið sjálft. Við hjónin viljum þakka þér með þessum fátæklegu orðum alla þína vináttu og þær stundir sem þú stoppaðir hjá okkur þegar þú varst að fara austur á land að sækja síld og fisk. Þú hafðir einstakt lag á því að hrífa mann með þegar þú sagðir frá með þínum eldmóð og bjartsýni, aldrei neitt mál að fara á milli staða jafnvel í hálku og myrkri, mér fannst þurfa hörku til þess. Sökn- uðurinn er sár og þó mestur hjá eiginkonu og börnum. Helga mín, við biðjum góðan guð að styrkja þig og fjölskyldu þína og vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Valdís og Hreinn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNARJÓNSSON forstjóri, Blikanesi 14, Garðabæ, lést mánudaginn 6. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 13. júlí kl. 15.00. Sigríður Regína Waage. Helen Gunnarsdóttir, Valdimar Bergsson, Nancy Gunnarsdóttir, Gunnar Arnþórsson, Anna Lísa Arnþórsdóttir, Hlín Arnþórsdóttir, Sigríður Regína Valdimarsdóttir, Haraldur Valdimarsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, UNNUR GÍSLADÓTTIR BACHMANN, Eskihlíð 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðju- daginn 14. júlí kl. 13.30. Sigurður Bachmann, Birgir Bachmann, Þórunn B. Jónsdóttir, Hörður Bachmann, Auður Kjartansdóttir, Gísli Bachmann og barnabörn. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, HULDA SIGURÐARDÓTTIR kaupkona, Lönguhlíð 3, Reykjavík, sem andaðist iaugardaginn 4. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. júlíkl. 15.00. Garðar Jóhann Guðmundarson, Þórunn Kristinsdóttir, Gunnar Garðarsson. + Elskuleg móðir okkai, tengdamóðir og amma, SIGRÚN BJARNADÓTTIR, Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 27. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þór Jóhannesson, María Þ Úlfar Árnason, Ágústa Rögnvaldur Kristii + Sambýlismaður minn, KRISTJÁN Ó. TÓMASSON, Ránargötu 5a, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 5. júlí. Útförin fer fram frá Litiu kapellunní í Fossvogi þriðjudaginn 14. júlí kl. 15.00. Anna Kristín Guðnadóttir. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og móður, HJÖRDÍSAR KRISTÓFERSDÓTTUR, Háaleitisbraut 57, Reykjavík. Ragnar Hansen og börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.