Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 42

Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 42
*42 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ UTSALAN HEFST Á MÁNUDAG Góður afsláttur Opið kl. 10.00-18.30 mánud. til föstud., laugard. kl. 10.00-14.00. Eddufelli 2, sími 557 1730 Stakfell 568-7633 (f Lögfræöingur Þórhildur Sandholt Sölumaöúr Gíslt Sigurbjörnson Arnarnes - Við sjóinn Glæsilegt einbýlishús á einni hæð 217,3 fm, ásamt tvöföldum bílskúr 41,5 fm. Húsið er mjög vel staðsett á sunnanverðu nesinu og er allt í toppstandi. Stór og fallegur garður. Sefgarðar - Seltjarnarnesi Mjög vandað og velumgengið 212,4 fm einbýlishús á einni hæð með stórum innbyggðum bílskúr. Skiptist í stóra stofu, þrjú góð svefnherbergi, stórt eldhús, sjónvarpshol, þvottaherbergi og bað. Húsið er á fallegri og vel hannaðri lóð. Hiti í stéttum. Friðsæll staður. nr FASTEIGNA P MARKAÐURINN ehf ÓÐINSGðTU 4. SÍMAR 551-1540. 652-1700. FAX 562-0540 Bauganes 21A — Skerjafirði Opið hús Nýlegt og stórglæsilegt 250 fm einbýli á tveimur hæöum meö innb. bílskúr. Góð stofa með útg. út á afgirta lóð. Á efri hæð eru 4 svefnherb. Vandaðar innréttingar. Flísar á gólfum. Mikil lofthæð. Áhv. byggsj. 3,1 millj. Verð 22 millj. Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14—17. Gjörið svo vel að líta inn. 0PIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18 Jón Guðmundsson, sölust., lögg. fasteigna- og skipas. VELMKAMU Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fðstudags Okrað á vöffluformi í Eden Handfarangur í Flugleiðavélum VIÐ hjónin fórum til Dan- merkur og komum heim sl. miðvikudag með Flugleiða- vél, flug 217. Við höfum ferðast víða með mörgum flugfélögum og alltaf feng- ið ákaflega góða afgreiðslu og verið mjög ánægð. Við vorum með svokall- aða „flugfreyjutösku" í handfarangri sem aldrei hefur verið gerð nein at- hugasemd við. En nú bregður svo við, þegar við vorum við það að ganga um borð, að flugfreyja stöðvar okkur og spyr okkur hvort við séum ekki íslendingar. Við kváðum jú við því. „Því miður,“ segir hún „við leyfum ekki svona töskur í handfar- angri, því vélin er full.“ Við spyrjum hana hvað komi til því aldrei hafi verið gerð nein athuga- semd við þessa tösku. „Því miður,“ segir hún, „en þið getið tekið það sem þið þurfið að nota í vélinni uppúr töskunni." Við afhentum henni töskuna og vorum mjög óánægð. En tókum eftir því að margir farþeganna fóru með mikinn farangur inn í vélina án athuga- semda. Samkvæmt fyrirspum okkar var taskan innan leyfilegra stærðarmarka sem Flugleiðir setja um handfarangur. Við spyrj- um: Hvers vegna spyr flugfreyjan hvort við séum íslendingar? Skiptir það máli þegar takmarka þarf handfarangur í vélina? Farþegi. Hlýlegar móttökur á Vogi MIG langar að taka undir með þakklátri móður sem hafði samband við Velvak- anda á dögunum. Það varðaði þakkir til Elínar, sem starfar á símanum á Sjúkrahúsinu á Vogi og tUkynna sjúklingar sig til hennar þegar komið er á Vog. Ég var sjúklingur á Vogi og kom andlega nið- urbrotinn og var það ákaf- lega styrkjandi að fá geislandi bros Elínar og hlýlega móttökur í alla staði. Þakklátur sjúklingur. ÉG KOM í Eden í Hvera- gerði og keypti bamaís á 120 kr. og ætlaði að kaupa fyrir sjálfa mig bamaís í vöffluformi. Þá kostaði ís- inn 267 krónur. Ég spyr: hvernig er hægt að selja vöffluform á 147 þar sem annars staðar kostar það ekkert auka- lega? Óánægður viðskiptavinur. Tapað/fundið Myndavélarpoki fannst í Langadal MYNDAVÉL og gler- augu fundust í myndavél- arpoka í Langadal í Þórs- mörk fóstudagskvöldið 3. júlí. Eigendur mega vitja þessara hluta í síma 551 9848. Reiðhjóli stolið á Baldursgötu ÉG ER vön að læsa hjól- inu mínu, þegar ég skil það við mig, en þurfti að stökkva inn í fimm mínút- ur fóstudaginn 3. júlí, og var hjólið ólæst úti á með- an. Vinkona dóttur minn- ar, sex ára, stóð í dyrun- um og horfði á er eldri maður gekk framhjá og settist á hjólið og kvaddi kumpánlega. Þar sem hún þekkti ekki hjólið áttaði hún sig ekki á því að hjólið var mitt og lét mig því ekki vita. Hjólið er grátt Trek 800 kvenhjól nokkurra mán- aða gamalt og eigandan- um kært. Sá sem gerðist svo bí- ræfinn að taka hjólið er vinsamlega beðinn um að skila því. En aðrir þeir sem um málið vita eru beðnir að hringja í síma 552 5859, eða skila hjólinu á Baldursgötu 25. Fyrrverandi reiðhjólaeigandi. Dýrahald Kettlingar fást gefins FJÓRIR níu vikna bröndóttir kettlingar, vel kassavanir, fást gefíns. Upplýsingar í síma 554 6788. SKÁK limsjón Margcír Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur. STAÐAN kom upp á hol- lenska meistaramótinu sem lauk í Rotterdam um síð- ustu helgi. Karel Van der Weide (2.450) hafði hvítt og átti leik gegn hinum þekkta stórmeistara Jeroen Piket (2.575), sem lék síðast 19. - Rg8-e7 og hótaði hvíta hróknum. 20. Rxe5! - Rxd5 21. Rxd7 (Einnig mátti leika 21. exd5! - Rxe5 22. Bg5 sem er gjörunnið) 21. - Hg8 22. Bg5 - Ba6 23. exd5 - Dxd7 24. De5+ og Piket gafst upp. Byrjun skákarinnar var afar athyglisverð, en hvítur fórnaði manni strax í tólfta leik og náði að refsa Piket fyrir að þróa ekki kóngsvænginn: 1. e4 - g6 2. d4 - Bg7 3. Rc3 - c6 4. Rf3 - d6 5. h3 - b5 6. Bd3 - Rd7 7. 0-0 - Bb7 8. Be3 - a6 9. a4 - e5 10. axb5 - cxb5 11. dxe5 - dxe5 12. Bxb5! - axb5 13. Rxb5 - Bf8 14. Dd3 - Ha6 15. Hfdl - Dc8 16. Hxa6 - Bxa6 17. Rd6+ - Bxd6 18. Dxd6 - Be2 19. Hd5 - Re7 og upp er komin staðan á stöðumyndinni. Þrátt fyrir þennan stór- glæsilega sigur lenti van der Weide samt í neðsta sæti á mótinu ásamt tveim- ur öðrum. HÖGNI HREKKVÍSI jt Ajfcjr út iyrirctb t/em, * Strondpartl * 0 £9 fl Magnús f Nýhöfn f Kaupmannahöfn Ævintýri til sölu Af sérstökum ástæðum er skemmtibáturinn Magnús B-1590 til sölu. Báturinn er staðsettur í Kaupmannahöfn. Tilvalið tækifæri fyrir einstakling eða hópa til að upplifa ævintýri eins og að fara til Berlínar og skoða múrinn eða kynnast frægum vínræktarhéruðum í Frakklandi. Einnig er stutt í Sænska- og Norska skerjagarðinn. Báturinn er með nýlega BMW turbo diesel vél (notuð 380 tíma) og er allur í góðu standi. Báturinn er smíðaður í USA 1975 og er 29 fet á lengd og 8 fet á breidd. Gott pláss er í bátnum m.a. svefnaðstaða fyrirsexfullorðna ogtvö börn, fullkomin eldunaraðstaða og nýr ísskápur Einnig fylgir 4 manna Zodiac gúmmfbátur og nýr Mariner utanborðsmótor.. Verð er kr. 1.500.000.- (Skipti á bíl koma til greina.) Upplýsingar í síma 896 4436 eða 552 7260. Víkverji skrifar... HÁHYRNINGURINN Keikur flytur lögheimili sitt til Vest- mannaeyja með haustinu, að sögn, og sezt að í Klettsvík. Víkin sú geymdi fyrr á tíð laxakví ISNO, sem kom nokkuð við fréttir. Umhverfis víkina á þrjár hliðar standa Heima- klettur, Miðklettur og Yztiklettur - en úti fyrir er sjálf innsiglingin 1 Vestmannaeyjahöfn, frægustu físki- höfn landsins. Þar getur vindhraði orðið mikill sem og ölduhæð, að ekki sé fastar að orði kveðið. Keikur verður trúlega kærkominn til Eyja, enda ekkert venjulegt smá- hveli á ferð. Kannski má tala um „hvalreka" fyrir byggðarlagið? Sama verður ekki sagt um serknesku sjó- ræningjana frá Alsír, sem kallaðir eru Tyrkir í gömlum heimildum, og stigu á land í Vestmannaeyjum 16. júlí árið 1627. Núna í vikunni er 371 ár frá þeim atburði. Enn í dag lifa frásagnir af honum með þjóðinni. xxx SJÓRÆNINGJAR þessir komu víða við hér á landi, fóru með brauki og bramli. Harkalegastur var atgangur þeirra þó í Eyjum. Þangað fóru þeir á þremur skipum; hand- tóku rúmlega 240 manns, karla, kon- ur og börn. Héldu þeir síðan með herfang sitt til Alsír. Þar voru íslendingarnir seldir í ánauð á þrælamarkaði. Ein- hverjir þeirra rötuðu um síðir leiðina til frelsis og fóðurlandsins á nýjan leik. Þeirra frægust var Guðríður Símonardóttir „Tyrkja-Gudda“, sem varð eiginkona prestsins og sálma- skáldsins Hallgríms Péturssonar. Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti ber nafn hans. Eftir „Tyrkjaránið" var skansinn í Vestmannaeyjum endureistur og ráðinn þar byssuskytta. Eyjaskeggj- ar vildu, reynslunni ríkari, tryggja öryggi sitt betur eftir en áður. Vel megum við íslendingar muna þessa dapurlegu júlídaga fyrir meira en 370 árum, svo afdrifaríkir sem þeir voru fyrir landa okkar á þeirri tíð. Og víst megum við heiðra minningu prestsmaddömunnar, Guðríðar Sím- onardóttur, sem lifði af herleiðing- una til Alsír. Og þreyði síðar súrt sem sætt með höfundi Passíu- sálmanna, sem skipa svo veglegan sess í menningararfleifð okkar. xxx HVER hefði trúað því fyrir nokkrum áratugum að við ækj- um fremur undir en fyrir Hvalfjörð? Áreiðanlega fáir. Sú er engu að síður staðreyndin í dag. Þjóðvegurinn liggur sum sé undir hafsbotninum í Hvalfírði! Skrifandi um Hvalfjörð kemur hvalvinnslustöð, sem þar var lengi rekin, upp í huga, a.m.k. hinna eldri. Þeir elztu muna og þá tíð er Hval- fjörður var mikilvægt lægi skipalesta bandamanna í heimsstyrjöldinni síð- ari. Sögufróðir vita að auki að Hval- fjörður var aðalhöfn landsins á 14. öld. Nú hefur tæknin bætt um betui- með Hvalfjarðargöngum, sem auka enn á reisn fjarðarins; gera veg hans meiri, ef svo má að orði komast, og greiða veg okkar allra milli lands- hluta. xxx VÍKVERJI dagsins er ekki hestamaður. Pátt þykir honum samt sem áður fegurri sýn en vel setinn fagurbyggður hestur. Það er og skemmtilegt til þess að hugsa að fákurinn var um 10 alda skeið nánast eina „samgöngutæki" íslendinga á þurru landi. Tungutak landans ber þessa víða merki. Við tölum t.d. enn um að einhver „setji sig á háan hest“, það er geri sig digran. Annað dæmi: „þeir leiða saman hesta sína“, þ.e. deila, takast á. Eða: „hann ríður ekki feitum hesti frá þingstörfum“, þ.e. heldur heim með skottið á milli fótanna. Við tölum og enn um að „gefa ein- hverjum lausan tauminn“ (veita frjálsræði), „taka í taumana" (herð- um aðhald), „höfum taumhald á hlut- um“ (stjórn) og „erum treg í taumi“ (látum illa að stjóm), sem er dæmi- gert íslenzkt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.