Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 45

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 45 Hannes í toppbaráttunni SKAK K a ii |i m a n n a h ii r n 4.— 1 5. júlí POLITIKEN CUP Hannes Hlífar Stefánsson stórmeist- ari er efstur ásamt tíu öðrum. Hannes Hlífar Stefánsson HANNES Hlífar hefur hlotið fimm vinninga í sex umferðum á Politiken Cup-skákmótinu sem nú stendur yfir í Kaupmanna- höfn. Hannes er í 1,—11. sæti á mótinu. Hannes tapaði í þriðju umferð, en hefur unnið aðrar skákir. Vegna mikils fjölda þátttakenda hef- ur lítið dregið í sundur með sterkustu keppendum og efstu menn á mótinu hafa nánast ekkert teflt innbyrðis. Aðal baráttan um efstu sætin er því framundan. Þröstur Þórhallsson er með 4 vinninga í 18.-36. sæti, en þar sem 11 umferðir eru tefldar á mótinu á hann enn ágæta möguleika á því að blanda sér í hóp efstu manna. Þótt athyglin beinist jafnan að efstu sætunum á skákmótum, þá er einnig mjög ánægjulegt að fylgjast með góðum og oft óvæntum árangri þeirra ungu íslensku skákmanna sem taka þátt í mótinu. Sveinn Þór Wilhelmsson hefur mætt skák- mönnum með alþjóðleg skákstig í öllum 6 umferðunum, en hefur engu að síður náð 3Vá vinningi. Þetta er frábær árangur hjá þess- um unga skákmanni og ef hann teflir af sama krafti það sem eftir er mótsins má búast við að hann fái u.þ.b. 2.200 alþjóðleg stig. Guðjón Heiðar Valgarðsson er einnig með 3'/2 vinning, hefur teflt við þrjá skákmenn með alþjóðleg skákstig og unnið tvo þeirra. Auk þeiiTa Sveins Þórs og Guð- jóns Heiðars hafa margir hinna ís- lensku keppendanna einnig náð at- hyglisverðum árangri. Það verður því spennandi að íylgjast með framvindu mála í síðari hluta móts- ins. Staða efstu íslensku skákmann- anna er nú þessi: 1,—11. Hannes Hlífar Stefánsson 5 v. 18-36. Þröstur Þórhallsson 4 v. 37.-58. Sveinn Þór Wilhelmsson 3V4 v. 37.-58. Guðjón H. Valgarðsson 3/2 v. 59.-82. Kristján Eðvarðsson 3 v. 59.-82. Stefán Kristjánsson 3 v. 59.-82. Davíð Kjartansson 3 v. 59.-82. Hjalti Rúnar Ómarsson 3 v. 59.-82. Andri H. Kristinsson 3 v. I sjöundu umferð, sem tefld var laugardaginn 11. júlí, mættust með- al annars: Carsten Hoi 2430 - Hannes H. Stefánss. Þröstur Þórhallss. - Roland Greger 2340 Sveinn Wilhelmss. - Peter Bjamehag 2290 Hans 0. Lahlum 2215 - Guðjón Valgarðss. Politiken Cup er annað skákmót- ið í VISA-stórbikarkeppninni 1998-9. Öll úrslit, röð skákmanna og stigaútreikninga má sjá eftir hverja umferð á íslensku skáksíð- unni: www.vks.is/skak Ný FIDE-stig FIDE hefur nú birt alþjóðleg skákstig íslenskra skákmanna í júlí. Sextíu íslenskir skákmenn eru á listanum, sem takmarkast við skák- menn með 2.000 stig eða meira. Níu íslenskir skákmenn bera stórmeist- aratitil. Allir eru þeir á FIDE-list- anum fyrir utan Guðmund Sigur- jónsson. Alþjóðlegir meistarar eru einungis þrír, en það er einsdæmi í heiminum að land eigi fleiri stór- meistara en alþjóðlega meistara. íslenskir FIDE-meistarar eru 9 talsins. Stigalistinn fyrir júlí lítur þannig út: 1. Jóhann Hjartarson (2630, SM) 2. Margeir Pétursson (2550, SM) 3. Jón L. Ámason (2535, SM) 4. Hannes H. Stefánsson (2535, SM) 5. Helgi Ólafsson (2505, SM) 6. Þröstur Þórhallsson (2495, SM) 7. Helgi Áss Grétarsson (2480, SM) 8. Friðrik Ólafsson (2460, SM) 9. Jón Viktor Gunnarsson (2445) 10. Björgvin Jónsson (2395, AM) 12. Héðinn Steingrímsson (2390, AM) 13. Jón G. Viðarsson (2375, FM) 14. Ingvar Ásmundsson (2365, FM) 15. Róbert Harðarson (2325, FM) 16. Andri Áss Grétarsson (2315, FM) 17. Þorsteinn Þorsteinsson (2310, FM) 18. Guðmundur Gíslason (2305) 19. Ágúst S. Karlsson (2305, FM) Sævar Bjarnason (2295, AM), Magnús Öm Úlfarsson (2290), Benedikt Jónasson (2285, FM), Amar Þorsteinsson (2285), Gylfi Þór- hallsson (2280), Guðmundur Halldórsson (2275), Áskell Ö. Kárason (2270), Tómas Bjömsson (2255, FM), Bjöm Freyr Bjömsson (2250), Bragi Halldórsson (2250), Stefán Krist- jánsson (2250), Hrafn Loftsson (2250), Rúnar Sigurpálsson (2250), Arinbjöm Gunnarsson (2240), Matthías Kormáksson (2235), Bragi Þorfinnsson (2235), Kristján Eðvarðsson (2220), Sigurður Daði Sigfússon (2215, FM), Björgvin Víglundsson (2215), Bergsteinn Ein- arsson (2210), Júlíus Friðjónsson (2210), Ólafur B. Þórsson (2205), Jón Ámi Halldórsson (2200), Magnús P. Ömólfsson (2200), Sigurbjöm Bjömsson (2190), Einar Hjalti Jensson (2185), Hrannar Baldursson (2180), Stefán Briem (2180), Amar Gunnarsson (2180), Erlingur Þor- steinsson (2160), Torfi Leósson (2150), Halldór Pálsson (2145), Davíð Kjartansson (2130), Stef- án Þór Sigurjónsson (2130), Einar Kristinn Einarsson (2125), Heimir Ásgeirsson (2115), Bjöm Þorfinnsson (2115), Matthías Kjeld (2110), Jóhann H. Ragnarsson (2105), Páll A Þórarinsson (2105), Þorvarður Ólafsson (2050), Hrannar Amarsson (2035). Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson FRETTIR Sorpeyðingarstöð Suðurnesja semur við Sorpu Yarnarliðið kann ar aðrar leiðir STJÓRN Sorpeyðingarstöðvar Suð- urnesja hefur undirritað drög að samkomulagi við Sorpu bs. um sorp- eyðingu og gildir samningurinn frá 1. janúar 1999 til ársloka 2004. Að sögn Guðjóns Guðmundssonar framkvæmdastjóra er samkomulag- ið til kynningar og afgreiðslu í fimm sveitarstjómum þ.e. Reykjanesbæ, Grindavík, Sandgerði, Garði og Vatnsleysustrandarhreppi. Undan- farin ár hafa sveitarfélögin og varn- arliðið á Keflavíkurflugvelli rekið í sameiningu brennsluofn innan vall- argirðingar og sagði Einar Gunn- arsson, sendiráðsritai-i og staðgeng- ill skrifstofustjóra Varnarmálaskrif- stofunnar, að verið sé að kanna aðra möguleika fyrir varnarliðið til sorp- urðunar, sem uppfylla auknar kröf- ur til umhverfisverndar samkvæmt íslenskum lögum. Að sögn Guðjóns stendur vamar- liðið á Keflavíkurflugvelli utan við samkomulagið og segir í bókun stjórnar Sorpeyðingarstöðvarinnar að ljóst sé að ekki náist viðunandi samningar við varnarliðið um sam- starf um sorpeyðingu og því sé hag- kvæmast að semja við Sorpu. Með samningnum sé tryggð lausn á sorp- eyðingu fyrir sveitarfélögin þegar starfsleyfi núverandi brennslustöðv- ar rennur út árið 2000. Hætt við að reisa aðra brennslu „Við höfum átt í viðræðum við varnarliðið og ætlunin var að reisa aðra brennslu en við emm fallnir á tíma miðað við árið 2000 þegar nú- verandi stöð verður lögð niður,“ sagði Guðjón. „Varnarliðið hefur engu svarað um hvað þeir ætla að gera í framtíðinni. Að minnsta kosti er ljóst að töluverðan tíma tekur að endumýja brennslustöðina þannig að sveitarfélögin eru að bregðast við með þessum hætti til að tryggja að þessi mál verði í lagi.“ Árlega falla til 12-13 þús. tonn af sorpi hjá sveitarfélögunum fimm á Suðurnesjum og um 3-4 þús. tonn hjá vamarliðinu. Samningaviðræður em í gangi milli vamarliðsins á Keflavíkurflug- velli og sveitarfélaganna um áfram- haldandi samstarf um sorpeyðingu með nýjum brennsluofni. „Það hefur ekki fundist samstarfsgrundvöllur um það verkefni," sagði Einar Gunnarsson. „Er varnarliðið að kanna aðrar leiðir til að koma fyrir sínu sorpi í samræmi við gildandi lög og reglur á íslandi og gildandi kröfur á sviði umhverfismála en hvort það felur í sér nálgun gagn- vart sveitarfélögunum vitum við ekki á þessari stundu." Þess er kraf- ist að vamarliðið fargi sínu sorpi innan vallarsvæðisins og sagði Ein- ar að engin áform væm uppi um að breyta þeirri kröfu af hálfu Vamar- málaskrifstofunnar. I húsasorpi frá Varnarliðinu gætu verið leifar af matvælum sem heimilt væri að flytja inn til vallarins og hefur ekki þótt eðlilegt að það færi út af vam- arsvæðinu. i i í i i i ; i < i i i í i < Eftirtaldir leikir í 8-liða úrslitum fara fram Coca-Cola bikars karla og kvenna Mánudagur 13. júlí Kl. 20:00 Haukar - Breiðablik yR Ásvellir jK* *5v' Þriðjudagur 14. júlí Kl. 20:00 Grindavík - Þróttur R. 1 Grindavíkurvöilur IBV — KR Vestmannaeyjavöllur Leiftur - Víkingur R. Ólafsfjarðarvöllur ÍBA - ÍA Æ' Akureyrarvöllur •v* »\l Miðvikudagur 15. júlí Kl. 20:00 Fylkir - Breiðablik Fylkisvöllur w * ÍBV - Stjarnan Vestmannaeyjavöllur KR - Valur KR-völlur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.