Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 52
52 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍTILBÓÐ KR. 400 Á ALLÁR IVIYNDIR KL. 5 OG 7.1
20 ÁRA
<A> IVIÆEL Lil.
ENDURHLJÓO-
BLONDUEJ f
D ■ G I T A L
STEREO
Frábærlega
vel leikin
spennu-
mynd í
Film Noir
stíl.
out öfanvlhj
Bestamyiid Pedro AÍmodovar
síðan Konur á barmi taugaáfalls
Sýnd ki. 7, 9 og 11. B. i. 14.
Hagatorgi, simi 552 2140
Sjáið úrslitaleikinn, á stóru tjaldi, í beinni. ,!;\j t' f í.'iíú
Takíð þátt í HM getraun. Glæsileg verðlaun: HM bolti, skór o.fl.
miDiGITAL
SýndkJ 5,9og11.
UCSL.lt IffUS^N
FRUMSYNUM STORMYNDINA
ENDALOKIN
ERU NÆR
EN ÞIG
GRUNAR
ENDALOKIN
ERU NÆR
EN ÞIG
GRUNAR
SiX DayS
QENNIS QUAiD
DANNY GLOVER
SWITCHBACK
www .samfilm.is
Er vanur barsmíðum
STEVE Buscemi á glæsilegan
feril að baki í óháða kvik-
myndageiranum í Banda-
ríkjunum. Hann hefur leikið í
myndum á borð við The Big Le-
bowski, Reyfara, Reservoir Dogs,
Fargo og New York Stories svo
aðeins fáeinar séu nefndar. Einnig
skrifaði hann handritið að, leik-
stýrði og lék í myndinni Trees
Lounge frá árinu 1996. Hann er
fæddur í Brooklyn árið 1956 og
fékk áhuga á leiklist á síðasta ári í
framhaldsskóla. Það munaði þó
engu að hann yrði slökkviliðsmað-
ur en hann fékk ekki inngöngu í
slökkviliðið í New York.
Það er eins og hann sé að hefna
sín þegar hann stingur sígarettu á
milli tannanna og kveikir í. „Manni
er alls staðar bannað að reykja,
jafnvel á börum,“ segir hann og
blæs reyknum út í andrúmsloftið.
„Mér finnst það virkilega skrýtið
að sitja á bar og mega ekki kveikja
sér í sígarettu."
Hasarmyndir
fyrir soninn
Grunaði þig einhvern tíma að þú
ættir eftir að leika í stórmynd á
borð við Armageddon þegar þú
varst að hefja leikferilinn?
„Nei,“ segir hann og brosir.
„Það hvarflaði aldrei að mér.“
Horfðirðu á myndir af þessu
tagi þegarþú varst strákur?
„Þá voru ekki gerðar svona
myndir - ekki nema upp að vissu
marki. Myndir frá kvikmyndaver-
unum þegar ég var bam og ung-
lingur voru meira í ætt við óháðu
myndirnar í dag. Það voru myndir
eins og „The Graduate" sem heill-
uðu mig og veittu mér þann inn-
blástur sem þurfti til að gerast
leikari. Eg veitti hasarmyndum
ekki mikla athygli. Eg er hins veg-
ar opnari fyrir þeim núna, ekki að-
eins vegna þess að ég vínn við leik-
list og hef tvisvar unnið með Jerry
Bmckheimer heldur einnig vegna
þess að ég á sjö ára son sem vill
horfa á þessar myndir.“
Eru þetta ekki dálítil svik við
Steve Buscemi
málstaðinn að segja skilið við list-
rænar myndir fyrir stórmyndaiðn-
aðinn íBandaríkjunum?
„Eg lít ekki á þær myndir sem
ég hef leikið í fram að þessu sem
listrænar myndir. Fyrir mér eru
þetta aðeins myndir sem ná annað
hvort almennri skírskotun eða
ekki. Hvort þær em listrænar eða
ekki er erfítt að segja til um.“
Leikstjórn meira
krefjandi
Ertu að vinna að einhverju
handriti?
„Mér fínnst erfitt að skrifa og
ég hef ekki gert neitt handrit eftir
Trees Lounge. Ég er með handrit
í bígerð sem mig langar að leik-
stýra eftir Eddie Bunker. Það er
fangelsismynd og ég mun líklega
leika í myndinni en hef einnig
áhuga á að leikstýra henni.“
Þú virðist mjög áhugasamur um
leikstjóm.
„Hún er meira krefjandi og ég
kann vel við ábyrgðina sem henni
fýlgir. Mér er ekki eins vel við
taugaspennuna. Það erfiðasta við
að gera kvikmynd er undirbúning-
urinn. Um leið og tökur hefjast
kemur allt af sjálfu sér. En mest
vinna liggur í því að útvega fjár-
munina, leikarana, tökuliðið og
gera allt klárt fyrir tökur.“
Nú kemur Bruce Willis úr öðr-
um geira en þú. Hann hefur helst
getið sér orð fyrir stórmyndir frá
Hollywood á meðan þú hefur öðl-
ast frægð fyrir óháðar myndir.
Funduð þið fyrir þessum mun á
tökustað?
„Bruce er frábær,“ svarar
Buscemi. „Fyrir mér varð hann
svipaður og hann er í myndinni.
Hann var mjög örlátur, bauð okk-
ur gjarnan út og mér fannst það
skila sér þegar tökur fóra fram.
Það var ekki eins og hann léki sína
rullu, lokaði sig inni í sínu hjólhýsi
og yrti ekki á okkur. Það skemmti-
legasta við kvikmyndir að mínu
mati er með hverjum þú vinnur
og þessi mynd var afar ánægju-
leg að því leyti.“
Hvernig er vinna við óháðar
myndir í samanburði við stör-
myndir af þessum toga?
„Það erfiðasta við allar
kvikmyndatökur era ferða-
lögin. Að fara af tökustað á
hótelherbergi en ekki heim
til sín er ekki góð tilfinning.
Annars er kvikmyndagerð
bara kvikmyndagerð. Það
eina sem peningarair
kaupa er meiri tími. En
þeim mun meiri tími sem
er til stefnu þeim mun meiri tími
fer í að sitja með hendur í skauti
og glápa út í loftið. Þá vil ég held-
ur hafa eitthvað fyrir stafni.“
Hvemig var í geimnum ?
„Það var mjög óþægilegt því við
héngum í vírum,“ segir hann og
hlær. „Það var erfitt.“
Hvernig er hin líkamlega hlið
leiklistarinnar; að vera stöðugt á
þeytingi ogjafnvel barinn?
„Ég er nú orðinn vanur því að
vera barinn,“ svarar Buscemi og
glottir. „Þetta er alltaf skemmti-
legt til að byrja með og svo verður
þetta þreytandi eftir því sem tök-
urnar verða fleiri. En ég vinn við
þetta og get vel skilið að gerðar
séu kröfur til mín.“
Hvernig ferðu að því að velja
trekk í trekk góðar
myndir?
„Þær hafa eiginlega
valið mig,“ svarar
Buscemi af einlægri
hógværð. „Ég hef bara
verið opinn fyrir mynd-
um af ákveðnum toga
og verið svo heppinn að
góðir leikstjórar hafa
verið fúsir að vinna með
mér.“
Er fyrirmynd Armageddon sótt
ímyndina „The Dirty Dozen"?
„Þannig lýsti Jerry myndinni fyr-
ir mér í byrjun. Hugmyndin var að
senda af stað hóp manna sem vissi
ekkert um geimferðir; hálfgert
samansafn af rötum í geimnum.“
í mínum huga
er ég ekki
kvikmynda-
stjarna. Ég er
aðeins þakk-
látur fyrir að
fá vinnu sem
leikari.
Heldurðu að þessi hörkutól
gætu í aIvöru bjargað heiminum?
„Það er dálítið langsótt," svarar
hann og dæsir. „En það væri það
líka þótt þetta væru geimfarar.
Sjálf hugmyndin er langsótt en að
sama skapi mjög spennandi."
Þetta eru nú ekki spennandi að-
stæður.
„Nei, ég veit ekki hvað ég
myndi gera ef svona loftsteinn
stefndi á jörðina," segir Buscemi
og hristir höfuðið. „Ég á fjölskyldu
svo ég_ veit hvar ég myndi vilja
vera. í myndinni fer maðurinn
sem ég leik aðeins í þessa ferð
vegna þess að hann er beðinn. Ég
held að hann hefði frek-
ar viljað enda líf sitt á
fatafelluknæpu."
Hvað myndir þú gera
ef þér yrði sagt að
heimsendir væri í
nánd?
„Ég held að það sé
ekki hægt að gera sér
það í hugarlund, nema
það væri að gerast í
raun. Ég veit bara að
ég myndi vilja vera hjá fjölskyld-
unni minni. Það væri hræðilegt ef
heimsendir yrði núna og ég væri
ekki í New York.“ Buscemi bætir
við til að leggja áherslu á mál sitt:
„Það myndi koma mér í mikið
uppnám."
Algjört letiblóð
Michael Bay segist vera aðdá-
andi Coen-bræðra. Eins og þú
veist eftir að hafa unnið með þeim
er ekki margt líkt með rnyndum
þessara leikstjóra. En hvemig
koma þeir þér fyrir sjónir? -
„Michael veitti okkur mikið
frelsi með textann. í þeim mynd-
um Coen-bræðra sem ég hef unnið
að er textinn aftur á móti niður-
pjörvaður að því marki að leikar-
amir fá frelsi til að ná tökum á
persónunni. Það er lítið um spuna.
Bay lék hins vegar forvitni á að
vita hvað leikurunum dytti í hug.“
Seturðu þig inn í heim persón-
anna á svipaðan hátt og t.d. Jenni-
fer Jásori Leigh sem'vinnur nánast
eins og rannsóknarbhiðamaður?
„Nei, ef til vill er ég algjört leti-
blóð en ég hef aldrei beitt slíkum
aðferðum."
Þú hefur unnið með fjölmörgum
afbragðs leikstjórum. Nýtist það
þér þegar þú sest í leikstjórastól-
inn?
„Ég hef tekið eftir því hjá öllum
þeim góðu leikstjórum sem ég hef
unnið með að þeir láta leikurunum
og tökuliðinu líða eins og sam-
starfsfólki; að samstarfið sé mikil-
vægt og aðstoð sé vel þegin; af
henni stafi ekki ógn. Þessir leik-
stjórar era opnir fyrir hugmyndum
jafnvel þótt þeir noti þær ekki. Þeir
hafa áhuga á því sem samstarfsfólk
þeirra hefur að segja. Ég reyndi að
temja mér þetta í Trees Lounge.“
Það væri óneitanlega garnan að
sjá þig vinna með Woody Allen.
„Ég hef unnið með honum en
var klipptur úr myndinni. Það var
í myndinni Alice og ég lék Jesú
Krist. Ég hef heyrt að hann hafi
Jesú Krist í öllum myndum sínum
en þau atriði detti iðulega út á
klippiborðinu.“
Hvers konar Jesú varst þú?
„Ég var vitni í réttarhöldum."
Ertu kvikmyndastjarna?
„í mínum huga er ég ekki kvik-
myndastjama. Ég er aðeins þakk-
látur fyrir að fá vinnu sem leikari.
Hver veit hvar ég verð eftir fimm
ár. Þetta er harður heimur. Ætli
það sé ekki þess vegna sem ég
legg svona mikla áherslu á leik-
stjórnina. Þá hef ég eitthvað til að
snúa mér að ef allt annað bregst."