Morgunblaðið - 16.07.1998, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kári
UMBROT í Kverkjökli gætu skýrt hlaupið að mati skálavarða.
YFIRBORÐ Volgu hækkaði um metra í hlaupinu.
Hlaup í Volgu
Stjórn Landsvirkjunar einroma
í vali á nýjum forstjóra
Friðrik Sophusson
ráðinn forstjóri
Rökstutt álit frá Eftir-
litsstofnun EFTA
Tæknilegar
reglugerðir
ekki bornar
undir stofn-
unina
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA hef-
ur sent frá sér rökstutt álit þar sem
fram kemur að íslensk stjómvöld
hafi ekki fylgt ákvæðum samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið þess
efnis að tilkynna skuli stofnunni um
tæknilegar reglugerðir sem gætu
hindrað frjálsa flutninga á vörum
milli landa áður en þær koma til
framkvæmda.
Hákan Berglin, deildarstjóri laga-
deildar og skrifstofu stjómarráðs
EFTA, segir að upprunalega hafi ís-
lendingar sett á annan tug slfkra
reglugerða sem ekki vom bomar
undir Eftirlitsstofnunina, þar af séu
þrjár eftir, lög um tóbaksvamir og
tvær auglýsingar um innflutning á
sláturafurðum.
Alit það sem nú er sent íslending-
um er eina athugasemd stoftiunar-
innar við framkvæmd íslendinga á
samningnum um Evrópska efnahags-
svæðið fyrir tímabilið maí, júní og
júh'. Á sama tíma hafa stjómvöldum í
Lichtenstein og Noregi hvomm um
sig verið send tvö rökstudd álit. Rök-
stutt álit er efsta stig athugasemda
stofnunarinnar áður en mál er sent
EFTA-dómstólnum til úrskurðar.
JÖKULSÁIN Volga, sem er ein
af fyrstu kvíslum Jökulsár á
Fjöllum og rennur úr
Kverkjökli, hljóp á dögunum og
hækkaði yfirborð hennar um
metra þegar mest var. Allt að
tveggja metra ísstykki brotnuðu
úr jöklinum og bárust með ánni
um 200-300 m.
Skálaverðir í Kverkfjöllum,
þau Þór Vilhjálmsson og Berg-
lind Vilmundardóttir, urðu vör
við umbrotin þegar þau heyrðu
dynki í jöklinum. „Dynkimir
stöfúðu af þvf að ísstykki voru
að hrynja úr þaki ísheliisins sem
Volga rennur úr. Það stafar af
umbrotum í jöklinum, sem geta
verið af því að jökullinn er að
skrfða fram“ sagði Þór í samtali
við Morgunblaðið.
„Volga er vanalega smá-
spræna sem hægt er að stikla yf-
ir en yfirborð hennar hækkaði
um heilan metra f hlaupinu sem
hófst 4. júh' og stóð í fjóra
daga.“ Að sögn Þórs er talið að
umbrotin f jöklinum hafi valdið
því að farvegur jökulár sem
liggfur 500 m austar hafí færst
til undir jöklinum og sú á sam-
einast Volgu, það styður þetta
að austari áin hefur minnkað tíl
muna.
Hlaupið skolaði burt göngu-
brú sem liggur yfir Volgu en
ferðamenn sem koma í Kverk-
fjöll ganga gjaman upp á Vatna-
jökul og fara þá sem leið liggur
fyrir neðan Kverkjökul. „Við
settum upp nýja göngubrú sem
leiðsögumenn hafa þurft að
færa til eftir því hvemig áin
breytir sér,“ segir Þór.
STJÓRN Landsvirkjunar sam-
þykkti einróma í gær að ráða
Friðrik Sophusson, alþingismann
og fyrrverandi fjármálaráðherra, í
stöðu forstjóra
Landsvirkjunar frá
og með 1. janúar
1999. Halldór Jóna-
tansson forstjóri,
sem gegnt hefur
stöðunni frá 1. maí
1983, mun þá láta af
störfum, en hann
hefur starfað hjá
Landsvirkjun frá því
fyrirtækið var stofn-
að 1965.
Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson, stjórnar-
formaður Lands-
virkjunar, sagði að
eining hefði verið
innan stjómarinnar
um ráðninguna. I
stjóminni sitja full-
trúar eigendanna, ríkisins,
Reykjavíkurborgar og Akureyrar-
bæjar.
„Friðrik er ráðinn á faglegum
forsendum. Þær forsendur em
hins vegar að hluta til pólitískar,
þ.e.a.s. þetta er opinbert fyrirtæki
í eigu ríkisins og sveitarfélaga.
Framtíð þess ræðst mjög á hinu
pólitíska sviði. Framundan er mik-
il vinna Landsvirkjunar með hags-
munaaðilum að samræma virkjun-
arstefnu Landsvirkjunar stefnu
fyrirtækisins í umhverfísmálum.
Það er einnig mjög mikil vinna
framundan varðandi skipulags-
málin, þ.e. hver staða Landsvirkj-
unar á að verða í ffamtíðinni. Allt
byggist þetta endanlega á pólitísk-
um ákvörðunum og við teljum að
reynsla Friðriks geti nýst okkur
mjög vel í þessari vinnu. Við höf-
um innan fyrirtækisins yfirburða-
þekkingu á verkfræðisviði og fjár-
málasviði þannig að við þurftum
ekki að styrkja þá þætti með ráðn-
ingu forstjóra," sagði Jóhannes
Geir.
Hann sagði að stjómin hefði
ennfremur litið til farsælla starfa
Friðriks sem fjármálaráðherra,
sem væri flókin stjórnunarstaða.
Staðan ekki
auglýst
Jóhannes Geir sagði að alla tíð
hefði legið fyrir að ekki þyrfti að
auglýsa stöðuna. Það hefði hins
vegar komið til tals að gera það.
„Stjómin tók þá ákvörðun að gera
það ekki. Aðallega tvennt kom til.
Annars vegar taldi meirihluti
stjómar að stöðu sem þessa ætti
ekki að auglýsa. Það væri nánast
viðtekin venja með
stöður af þessari
stærðargráðu að
stjómin leitaði að
mönnum en aug-
lýsti ekki. Hins veg-
ar var ljóst undir
það síðasta að það
var orðinn einhugur
um einn ákveðinn
einstakling og þá er
það ekkert annað
en hræsni að vera
að auglýsa."
Ánægður
með traust
stjómarinnar
„Mér er efst í
huga að þakka það
traust sem stjómin
sýnir mér með því að ráða mig frá
næstu áramótum forstjóra Lands-
virkjunar. Mér þykir vænt um að
stjómin er einhuga í þessu máli.
Allir stjómarmennimir, burtséð
frá því hvar þeir standa í pólitík og
allir eignaraðilamir þrír, standa að
þessari ráðningu. Þetta þykir mér
mikilvægt hjá þessu stóra fyrir-
tæki,“ sagði Friðrik í samtali við
Morgunblaðið.
Friðrik sagði ekki tímabært að
svara spumingum um breytingar
á stefnu fyrirtækisins. Það væri þó
ljóst að með nýjum mönnum
kæmu nýjar áherslur. ViðfangS;
eftiin hjá fyrirtækinu væru mörg. I
vaxandi mæli þyrfti að gæta sam-
ræmis milli orkustefnunnar ann-
ars vegar og umhverfissjónarmiða
hins vegar. Skipulag orkugeirans
ætti einnig eftir að verða mikið til
umræðu á næstu ámm.
Friðrik sagðist á þessari stundu
reikna með að sitja á Alþingi til
næstu áramóta. Ennfremur myndi
hann segja af sér embætti varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi flokksins í mars á
næsta ári. Það gæfi hins vegar
augaleið að frá áramótum yrði
hann óvirkur þátttakandi í pólitík.
Friðrik Sophusson er fæddur
18. október 1943. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1963 og lögfræði-
prófi frá Háskóla íslands 1972.
Friðrik var kjörinn alþingismaður
Reykvíkmga 1978, var iðnaðarráð-
herra 1987-1988 og fjármálaráð-
herra 1991-1998.
Friðrik Sophusson
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar fundaði í gær um hækkun á launum bæjarfulltrúa
Vilja viðræður um bætt
kjör bæjarstarfsmanna
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
Starfsmannafélags Hafnarfjarðar-
bæjar samþykkti í gær ályktun þar
sem óskað er eftir að bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði Ijúki þeim langvinnu
og erfiðu deilum sem þau hafa átt í
við Starfsmannafélagið. Ályktunin
er gerð í kjölfar ákvarðana sem ný-
lega voru teknar um að hækka laun
bæjarstjóra og bæjarfulltrúa.
„Sú ráðagerð bæjaryfirvalda
varðandi hækkanir til bæjarstjóra
og annarra bæjarfulltrúa hefur vak-
ið nokkra undrun og mjög sterk við-
brögð hjá félagsmönnum okkar, sér
í lagi þegar tekið er mið af þeim erf-
iðu og langvinnu deilum sem félagið
hefur átt í við bæjaryfirvöld án
nokkurs skilnings hingað til, hvað
sem síðar kann að verða. I ljósi
þessara síðustu breytinga á kjara-
málum Hafnarfjarðarbæjar er mikil
nauðsyn að klára mál gagnvart
STH hið fyrsta og með sama krafti
og gert var í tilfellum hinna kjömu
fulltrúa og varðandi laun bæjar-
stjóra. Fundurinn væntir þess að
gengið verði til verksins af fullum
krafti sem fyrst,“ segir í ályktun
fundarins.
Langvinnar deilur
Ámi Guðmundsson, formaður St-
arfsmannafélagsins, sagði að sam-
skipti bæjaryfirvalda í Hafnarfirði
og félagsins hefðu verið mjög erfið
allt frá því að bærinn sagði upp sér-
kjarasamningum hluta bæjarstarfs-
manna haustið 1995. Síðan hefðu
staðið yfir viðræður milli bæjaryfir-
valda og félagsins án þess að þær
hefðu leitt til niðurstöðu. Ekki hefði
reynt á samningsvilja eftir að ný
bæjarstjóm tók við völdum í vor, en
forysta Starfsmannafélagins gengi
bjartsýn til viðræðna.
„Þessi hækkun á launum bæjar-
stjóra og bæjarfulltrúa er mikið
rædd hér á kaffistofum og mönnum
finnst almennt að forgangsröðunin
sé ekki í lagi. Menn binda miklar
vonir við að þessi meirihluti lendi í
þessum vandamálum sem hafa verið
í gangi undanfarin misseri. Þessi
launahækkun gefur okkur vonandi
vísbendingar um að það verði gert,“
sagði Ami.
Vantraust milli félagsins og
launanefndar
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, kemur úr fríi á mánu-
daginn og sagðist Ámi reikna með
að þá strax yrðu teknar upp við-
ræður milli bæjaryfirvalda og St-
arfsmannafélagsins. Félagið hefði á
mánudaginn ritað bæjarstjóra bréf
þar sem óskað væri eftir viðræðum.
Ámi sagði að meðal þess sem
deilt væri um væri aðgangur fé-
lagsmanna að námskeiðum sem
gefa launaflokkahækkanir. Starfs-
mannafélag Hafnarfjarðar hefði
ekki sömu möguleika á þessu sviði
og starfsmannafélög í nágranna-
sveitarfélögum. Mikil óánægja væri
einnig með endurmenntunarmál.
Háskólamenntaðir félagsmenn
hefðu orðið að sætta sig við mun lé-
legri kjör í þeim efnum en t.d. sál-
fræðingar sem bærinn hefði gert
samning við stuttu eftir að skrifað
var undir samning við félagið. Árni
sagði að mikið vantraust ríkti milli
félagsins og samninganefndar
sveitarfélaga og félagið myndi ekki
sætta sig við að bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði vísuðu á hana. Sveitar-
félög eins og Akureyrarbær hefðu
samið við hluta starfsmanna sinna
án afskipta launanefndarinnar og
Hafnarfjarðarbær gæti farið eins
að.