Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 2 7
ÞJÓNN í Tjörninni, stærstu brauðsúpu landsins.
málsins er aftur á móti sá að hún
tók leikstjórnina að sér.
Því næst voru kraftar þriggja
leikara til viðbótar virkjaðir, Bessa
Bjarnasonar, Margrétar Vil-
hjálmsdóttur og Kjartans Guð-
jónssonar, auk Stefáns Karls Stef-
ánssonar leiklistarnema. Hófst þá
spuninn.
Að sögn Eddu kom um tíma til
greina að fá rithöfund tiJ liðs við
hópinn en frá því var horfið. Þess í
stað tók María að sér að halda af-
rakstri spunans til haga. „Hér er
átt við punkta til að spinna út frá á
sýningum," útskýrir Edda, „en
þeir geta, eðli málsins samkvæmt,
tekið óendanlegum breytingum",
enda hafa áhorfendur „frelsi til að
bregðast við eins og þeim sýnist,“
skýtur María inn í. Hópurinn legg-
ur, með öðrum orðum, upp með
ákveðna grind á hverri sýningu.
Hún er aftur á móti síbreytileg og
ljóst má vera að sýningar á Þjóni í
súpunni verða jafn ólíkar og þær
verða margar.
Eldglæringar
í allar áttir
Edda ber mikið lof á framlag
Maríu til sýningarinnar, henni hafi
með undraverðum hætti tekist að
halda utan um þetta. „Hugmynda-
flæðið var mikið og þegar mest
gekk á stóð hreinlega út úr okkur
bunan - eldglæringar í allar áttir.
Eigi að síður tókst Maríu, með ein-
hverjum hætti, að ná þessu öllu
niður á blað og mæta með það
næsta dag, skipulega upp raðað.
Það er afrek út af fyrir sig!“
María viðurkennir að oft og tíð-
um hafi verið handagangur í öskj-
unni. Á hinn bóginn hafi verið
nauðsynlegt að ná öllum gullkorn-
unum niður á blað. Undir kring-
umstæðum sem þessum séu þau
fljót að gleymast. „Annars hef ég
ekki yfir neinu að kvarta. Það eru
forréttindi að fá að vinna með
svona frjóu fólki.“
Æfingaferlið var, eðli málsins
samkvæmt, talsvert frábrugðið því
sem Edda og María eiga að venj-
ast. „Það er flókið að setja svona
sýningu saman, mynda heild, og
eftir að við fengum áhorfendur
fyrst á æfingu gerðum við miklar
breytingar,“ segir Edda. „í raun
má segja að við byrjum ekki að
æfa fyrr en á frumsýningunni. Það
er ný reynsla!
María líkir æfingatímanum við
að vera í andaglasi - hópurinn hafi
ekki hugmynd um hvernig gestir
komi til með að bregðast við grín-
inu - áreitinu. Neita þeir að taka
þátt eða taka þeir jafnvel sýning-
una yfir?
Það orð fer af íslendingum að
þeir séu hlédrægir og lokaðir að
eðlisfari - séu lítið fyrir að láta
„abbast upp á sig“. Hafa stöllurnar
ekki áhyggjur af því?
„Þegar við vorum að æfa Hár &
hitt var ég alls ekki bjartsýn -
treysti ekki Islendingum til að
taka þátt í spunanum," segir
Edda. „Annað kom hins vegar á
daginn. Áhorfendur vildu ólmir
vera með í leiknum - voru hreint
út sagt yndislegir! Þess vegna hef
ég engar áhyggjur nú.“
Gefandi leikarar
María segir viðbrögð áhorfenda
að verulegu leyti undir leikurunum
í sýningunni komin. Einmitt þess
vegna er hún bjartsýn á að sam-
leikurinn við gesti eigi eftir að
ganga vel í Þjóni í súpunni - leik-
hópurinn kunni galdurinn. „Leik-
ararnir eru allir sem einn hlýtt
fólk að upplagi - fólk sem gefur af
sér og smitar út frá sér. Þess
vegna er ég ekki í vafa um að
áhorfendur eiga eftir að taka virk-
an þátt í leiknum."
Edda segir vinnuna við Þjón í
súpunni með því skemmtilegasta
sem hún hafi tekið sér fyrir hend-
ur. „Þetta hefur verið alveg brjál-
æðislega skemmtilegt. Ég er búin
að vera með stöðuga magaverki af
hlátri - fólkið sem ég er að vinna
með er svo fyndið! Það væri ósk-
andi að Þjónn í súpunni yrði upp-
haf að föstu spunaleikhúsi af þessu
tagi á Islandi!"
María tekur í sama streng.
„Þetta hefur verið frábær tími.
Það er eðlilegt að leikarar séu
stöðugt að leita en hér eru engar
hömlur - allt er opið. Ég er eigin-
lega alveg miður mín yfir því að
vera að hætta!“
MATARLITIR
fyrir kökur, marsipan
og skreytingar.
15 mismunandi litir
Póstsendum j
la*n PIPAROGSALT
II Klapparstíg 44
S: 562 3614
ER
STÍFLAÐ?
Fáðu þér þá brúsa af Fermitex og málið er leyst.
Fermitex losar stfflur í frárennslispípum, saiemum
og vðskum. Skaðlaust fyrir gler, postulín, plast og
flestar tegundir málma. Fljótvirk og
sótthreinsandi. Fœst I fiestum byggingavöru-
verslunum og bensinstöQvum ESSO.
^VATNSVIRKINN ehf
Ánnúla 21, simi 533 2020
Útsalan
hefst í dag
30-70%
afsláttur
skohöllinP 11
BÆJARHRAUNI 16-555 4420
www.mbl.is
Stórgóð mjólk
fyrir litlar hendur
alvegsttkgóð
Þau vítamin og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma
gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi.
Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili.
Þú átt eftir
dö rtá Idrtgt
Auktu notkunarmöguieika
OG IANGDRÆGNI FARSÍMANS.
Úrval loftneta og aukabúnaðarfyrir
GSM og NMT í bústaðinn, bílinn og
bátinn.
SÍMINN
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, simi 800 7000
Afgreiðslustaðir Islandspósts um land allt