Morgunblaðið - 16.07.1998, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
-*
Snigla-
fj ölskyldan
Börn kafa gott afþví að sniglast um í
tilbreytingarleysi. Þau koma þá auga
á lífið í kringum sig. Því minna sem
þau eru mötuð á skemmtun, því
meira skaþa þau sjálf.
Fyrir sjötíu árum
sagði Bertrand
Russell að það
þyrfti að kenna
börnum strax í
bernsku að sætta sig við til-
breytingarleysi. Það vanræktu
foreldrar oft og héldu að börn-
um dægrastyttingu þar sem
börnin væru óvirk. Einnig sagði
hann að sú tegund leiðinda sem
helst þjakaði borgarbúa nútím-
ans stafaði að miklu leyti af
sambandsleysi þeirra við líf
jarðar.
Ekki er fráleitt að ætla að
þessi orð hans
VIÐHORF
Eftir Kristínu
Marju
Baldursdóttur
séu enn í gildi.
Foreldrar
hafa til að
mynda oft
áhyggjur af því
hvernig þeir
eigi að hafa ofan af fyrir börn-
um sínum í sumarleyfum, og
fari þeir til útlanda með þau,
kjósa þeir oft að dvelja á stöð-
um þar sem leiðindi eru fyrir-
byggð með einhverjum tækja-
eða vatnsbrautagörðum til
dæmis.
En í raun eru þessar áhyggj-
ur óþarfar. Böm eru nefnilega
nokkuð glúrin að hafa ofan af
fyrir sér sjálf fái þau aðeins frið
og tíma.
Fyrir nokkrum árum fóru
hjón með dætur sínar til Aust-
urríkis í sumarleyfl, og leigðu
íbúð í litlu þorpi ekki langt frá
Salzburg. Þar hugðust þau eyða
hálfum mánuði við hin háróm-
antísku fjallavötn og stunda
göngur, sólböð og sund.
En á öðrum degi í Austurríki
fór hann að rigna. Foreldrarnir
ákváðu þó að láta ekki smávætu
eyðileggja sumarleyfið, heldur
hafa ofan af fyrir börnunum
með leikjum og skoðunarferð-
um, enda voru þetta vel upp-
lýstir foreldrar sem höfðu lesið
margar bækur eftir fræga upp-
eldisfræðinga og heimspekinga,
þar á meðal Russell. Þau óku
því með dæturnar, tvær sex ára
og eina átta ára, til Salzburg,
skoðuðu borgina í ausandi rign-
ingu og fóru svo í Mozarthúsið
þar sem dæturnar fengu
fræðsluerindi um meistarann.
En áfram rigndi hann, og
næstu daga skoðuðu þau meðal
annars sumarhöll Franz Jos-
ephs keisara, þar sem dæturnar
fengu stutt ágrip af sögu Aust-
urríkis, hús tónskáldsins
Lehárs, merkilegt munka-
klaustur og eldgamalt bóka-
safn. Dætumar voru hinar
ánægðustu eftir því sem best
varð séð, enda lauk þessum
menningarreisum iðulega inni á
austurrískum kafflhúsum þar
sem þær máttu raða í sig kræs-
ingum. Seinnipart dags var eytt
í innisundlaug þorpsins og á
kvöldin voru alls konar þroska-
spil dregin fram.
Þegar hér var komið sögu
var nú samt farið að síga í
menn vegna aðgerða skapar-
ans. Allt var á floti. Glaðlegir
lækir höfðu breyst í grenjandi
fljót og við vötnin var ekki lif-
andi sálu eða nokkuð kvikt að
sjá, fiðrildin dáin og fuglarnir
flúnir. Foreldrarnir höfðu þó
hemil á vaxandi biturð sinni.
Að morgni hins sjöunda dags
rigningar varð mömmunni Ijóst
að guði var í nöp við hana. Hún
skildi þó ekki hvernig hann gat
gert saklausum dætrum hennar
þetta. Þegar þær spurðu eitt
sólskinsbros í framan hvað yrði
nú gert þennan daginn, var
urrað. Yngismeyjunum var svo
sagt að nú yrði bara farið fót-
gangandi niður í þorpið til að
gera innkaupin.
Göngustígurinn lá í gegnum
lítinn skóg. Þau gengu í ein-
faldri röð í regnkápunum,
fremstur fór pabbinn, þungbú-
inn og allur í herðunum, á eftir
honum mamman í uppnámi, bú-
in að ákveða að segja sig úr
þjóðkirkjunni og slíta stjóm-
málasambandi við Austurríki,
og lestina ráku trítlurnar þrjár.
Gangan gekk hægt því hinar
skrefstuttu þurftu sífellt að
stoppa til að masa hver við
aðra, en þegar pískur og pukur
fóru að ágerast og tefja göng-
una allverulega, urðu foreldr-
arnir óþolinmóðir og athuguðu
hverju sætti.
í ljós kom að þær stuttu
höfðu safnað saman heilli
sniglafjölskyldu sem þær báru
virðulega á stórum laufblöðum í
lófum sér. Þama var
sniglapabbi, sniglamamma,
börnin fimm, ömmumar báðar
og einhverjar frænkur. Þær
tóku ekki annað í mál en að
þessi fjölskylda færi með í búð-
ir. Með fortölum og ábending-
um um þá félagslegu erfiðleika
sem mundi mæta þessari fjöl-
skyldu ef hún þyrfti að yfirgefa
heimkynni sín, var loks hægt að
fá þær ofan af þeirri fyrirætlan.
Fjölskyldan var svo heimsótt á
heimleiðinni.
Og alla næstu daga. Svo und-
arlega vildi til að hann stytti
upp og síðustu daga sumarleyf-
isins skein sólin glatt. Allt lifn-
aði við, en þótt nóg væri nú um
skemmtanir snerist líf dætr-
anna um sniglafjölskylduna
sem þurfti á miklum selskap að
halda að því er virtist.
Dæturnar höfðu komist í
samband við líf jarðar.
Sniglafjölskyldan kynnti þær
svo fyrir nokkrum maurum sem
unnu þarna á samyrkjubúi á
göngustígnum og fór því drjúg-
ur tími í félagsstörf.
Heimspekingurinn hafði því
líklega rétt fyrir sér. Börn hafa
bara gott af því að sniglast að-
eins um í tilbreytingarleysi.
Þau koma þá auga á lífið í
kringum sig. Því minna sem
þau eru mötuð á skemmtun, því
meira skapa þau sjálf. Og þótt
það sé gaman og nauðsynlegt
að gera eitthvað skemmtilegt
og fræðandi með bömum sínum
er óþarfi að halda þeim selskap
frá morgni til kvölds. Enda
voru þeir víst orðnir leiðir undir
lokin, sniglarnir í Austurríki.
Þegar máttarstólpar
reynast vera kalkvistir
EKKI hefur farið
framhjá neinum sem
fylgst hefur með fjöl-
miðlum undanfarna
daga að eitthvað hefur
verið að gerast hjá Al-
þýðubandalaginu.
Fyrst lýstu 72% full-
trúa á aukalandsfundi
flokksins yfir stuðn-
ingi við ákveðna til-
lögu flokksformanns-
ins, Margrétar
Frímannsdóttur. Jafn-
framt kom í Ijós að all-
ir karlmennirnir í
þingflokknum, sex að
tölu, eru þessari góðu
meirihlutasamþykkt
ósamþykkir. Kvenmennirnir í
þingflokknum, þrír að tölu, eru
hins vegar samþykkir samþykkt-
inni.
Við þessi tíðindi urðu fyrr-
greindir karlar hinir verstu, enda
hafa þeir lengi talið sig eiga að
ráða öllu í flokknum samkvæmt
náttúrunnar lögmáli. Einn þeirra,
Hjörleifur Guttormsson, sagði sig
úr Alþýðubandalaginu þegar í
stað. Annar, Ögmundur Jónasson,
lýsti því yfir að hann væri Hjörleifi
sammála í þessum málum en þar
sem hann, Ógmundur, væri ekki í
flokknum, gæti hann ekki sagt sig
úr honum. Sá þriðji, Steingrímur
J. Sigfússon, beið hins vegar með
úrsögn úr Alþýðubandalaginu
þangað til hann hefði ráðfært sig
við bakland sitt í kjördæminu. Það
gerði hann daginn eftir aukalands-
fundinn og kvaddi síðan flokkinn
ásamt 23 öðrum félögum á Þórs-
höfn.
Fleiri hafa verið að
segja sig úr flokknum,
bæði í kjördæmi
Steingríms, Norður-
landi eystra, og Aust-
urlandi, kjördæmi
Hjörleifs. Ljóst er að
skoðanir um málið eru
á báðum stöðum mjög
skiptar. Nokkrir fé-
lagar í ABR hafa
einnig yfirgefið flokk-
inn að sögn. Úrsagn-
irnar hafa ávallt borist
fjölmiðlum en ekki
endilega flokksskrif-
stofu.
Formaður þing-
flokksins, Svavar
Gestsson, harmar eðlilega úrsagn-
ir þessar og sýnir þeim víðtækan
skilning. Hann kastar allri sök í
Litlir smákóngar
heima í héraði, segir
Gísli Gunnarsson,
ákveða að hefna þess í
héraði sem hallaðist á
á landsfundi.
þessum efnum á þau 72% lands-
fundarmanna sem samþykktu
fyrrnefnda tillögu og gerir við það
enga athugasemd að lífsreyndir
stjórnmálamenn þoli engan veginn
að vera í minnihluta.
Hvaða voðalega tillaga var þetta
sem hefur hrakið landsþekkta
máttarstólpa og fyrrverandi ráð-
herra Alþýðubandalagsins úr sín-
um heittelskaða flokki þar sem
þeir karlarnir voru komungir
gefnir Njáli á svipuðum lífaldri að
sögn?
Þessi tillaga var eins og áður
sagði málamiðlun mismunandi
sjónarmiða og gekk út á það að
stefnt skuli að sameiginlegu fram-
boði Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks, Kvennalista og óháðra fé-
lagshyggjumanna í næstkomandi
alþingiskosningum í apríl 1999.
Meira var það nú ekki. Þannig á
ekki samkvæmt tillögu þessari að
leggja Alþýðubandalagið niður;
þar er heldur ekki lagt til að sam-
eiginlegt framboð eigi að standa
um alla eilífð. Aðeins að stefnt
skuli að því á árinu 1999.
Þessi tillaga er nær samhljóða
fjölda svipaðra samfylkingartil-
lagna sem Alþýðubandalagið hefur
margsinnis samþykkt einróma í
áranna rás. Sú er eina breytingin
nú að Alþýðflokkurinn er sam-
þykkur slíkri samfylkingu. Voru
þá fyrri tillögur ekki meintar í al-
vöru eða liggur hér eitthvað annað
að baki? T.d. hreinn og klár yfir-
gangur vissra þingmanna („flokks-
eigenda") sem þoldu ekki að tapa
enn þá einni orustunni um yfirráð-
in í flokknum og töldu að með því
að tapa atkvæðagreiðslunni væri
nú mælirinn loksins fullur?
Ein skýringin útilokar engan
veginn aðra og vafalaust era þær
báðar réttar að vissu marki. Eg er
þó fremur trúaður á þá síðari:
Sömu aðilar og nú eru að segja sig
úr Alþýðubandalaginu hafa ráðið
þar mestu ásamt Svavari Gests-
syni í langan tíma. Arið 1987 stóðu
Gísli
Gunnarsson
Ekki gesta-
vinnustofa
NOTALEGT að fá
skjót viðbrögð við
skrifum um listir, jafn
sjaldgæft og sjást við-
brögð við öðru í þessu
þjóðfélagi en pólitísku
dægurþrasi og al-
mennu argaþrasi með
efnishyggjuna að leið-
arljósi. Margt af hhð-
stæðu efni er helst af-
greitt með smáletri á
síðum erlendra dag-
blaða og á hvergi ann-
ars staðar heima, á síst
að taka rými frá orð-
ræðu er varða blóðrík-
ari hliðar mannlífisins.
Ennþá notalegra að
sjá viðbrögð borgarráðsmanna
Sjálfstæðisflokksins á vettvangin-
um, loksins lífsmark úr þeiri átt.
Var margyfirlýst skoðun mín að
eini möguleikinn fyrir flokkinn til
að vinna borgina í afstöðnum kosn-
ingum væri að marka honum gilda
menningarstefnu. Vera um leið
samstiga þróun sem á sér stað um
alla Evrópu, í raun allan heim, trúr
þeirri stefnu að vera víðsýnt
stjómmálaafl er ber hagsmuni
allra stétta fyrir brjósti, með
einkaframtakið í forgrunni. Að öðr-
um kosti væri hann ekki í takt við
tímann, dæmdur til að bíða ósigur.
Mikill misskilningur, að myndlist
og aðrar listgreinar séu séreign fé-
lagshyggjuflokka og á alls ekki að
afskrifa þær sem slíkar. Hún á sig
sjálf líkt og hin fyrsta gyðja, Hera,
systir og eiginkona Seifs, drottning
Olympusargoðanna og vemdari
hjúskaparins, sem hafði að venju
að lauga sig í lindinni
Kanaþos og endurnýja
um leið hreinleika sinn
og kvenleika, les mey-
dóm.
Margir hafa jafnt
leitast við að hagnýta
sem misnota hstina í
tímans rás og sagan
segir okkur að sumum
hafi tekist það um
lengri og skemmri
tíma. Svikist að henni
líkt og Seifur forðum
að systur sinni í ham
illa leikins gauksunga,
blautum og slæptum.
Hera tók hann var-
færnislega upp og ylj-
aði við barm sér, en þá greip Seifur
tækifærið kastaði hamnum og tók
hana nauðuga svo hún varð að gift-
ast honum sakir velsæmis. En þótt
Hera væri dæmd til að lúta Seifi og
væri svipt öllum sínum dularmætti
hafði hún óskorðað vald á einum
vettvangi; hún gat gætt spádóms-
gáfu hvern þann sem hún óskaði.
Eins er með listina, hún á sig sjálf,
að viðbættri dulargáfunni og öllum
klækjabrögðum konunnar, hefur
alltaf shtið sig lausa, rifið sig frá
höfðingjum, trúarbrögðum og póli-
tík, það mun hún einnig gera frá
tilhneigingunni til að hversdags-
gera hana, afmá. Jafnan er lindin
Kanaþos nærri og nýir tímar
framundan fyrir músu alhfsins,
ímynd háleits metnaðar.
Rétt að minna sjálfstæðismenn
og aðra á, að það voru auðmenn
sem lögðu grunn að flestum
stærstu þjóðlistasöfnum heimsins
til að efla þjóðarvitund almennings
og þrjár konur auðmanna að fyrsta
nútímalistasafninu MoMA í New
York. Og þótt Frakkar hafi viljað
spyrða opnun fyrsta listasafnsins
Louvre árið 1793 við byltinguna
hafði Friðrik mikli Prússakonung-
ur opnað Myndhús sitt við Sans-
souci-hölhna í Potsdam í útjaðri
Berlínar mun fyrr. Þar fyrir utan
voru verkin í París úr safni kon-
ungs og aðalsins. En listin er ekki
fyrir neina eina stétt sérstaklega
heldur allar stéttir og sérhvern
mann sem vih nálgast hana, fer
ekki í manngreinarálit og mun
Listin er ekki fyrir
neina eina stétt sér-
staklega, segir Bragi
Ásgeirsson, heldur
allar stéttir og sér-
hvern mann sem vill
nálgast hana.
verða einn gildasti hlekkur
menntakerfísins á nýrri öld ef að
líkum lætur. Og vísa skal til þess
að verðgildi listaverka og listíða í
hverju landi fyrir sig telst örugg-
ust loftvog á styi-k andlegs hfs og
efnahagskerfisins.
Að afskrifa listir og skapandi
kenndir er þannig sjálfsmorð til
lengri tíma litið, eins og öll mann-
kynssagan er til vitnis um, einnig
að jarða fortíðina í stað þess að
miðla henni til framtíðar. Varðandi
hugsanleg kaup á húsi málaranna á
Bergstaðastræti 74 hafa komið upp
hugmyndir um gestavinnustofu í
samráði við SÍM, Samband ísl.
myndlistarmanna, sameiginlega að-
stöðu fyrir skrifstofur félagsins og
gestavinnustofu á vegum borgar-
innar. Það er jafn misvísandi og
háskaleg hugmynd varðandi hús
málaranna og áður Englaborg Jóns