Morgunblaðið - 16.07.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 49
FRÉTTIR
i Ferðafélag Islands
l ““~
Fjórar helg-
arferðir
AÐ VENJU býður Ferðafélag ís-
lands upp á fjölda helgarferða. Um
hverja helgi eru farnar ferðir í
I Þórsmörk og gönguferðir um
| Fimmvörðuháls, en í þeim ferðum
. er gist í Skagfjörðsskála eða í tjöld-
’ um í Langadal. Þetta eru ferðir fyr-
ir alla fjölskylduna. Jeppafólki er
bent á að skálaverðir leiðbeina um
akstur yfir Krossá og á staðnum er
gott farartæki til aðstoðar við ána.
Brottfór í helgarferð í Þórsmörk
er á föstudögskvöldum kl. 20, en í
Fimmvörðuhálsferðir er oftast farið
á laugardagsmorgnum kl. 8 og ekið
I að Skógum, en farangurinn er flutt-
( ur inn í Langadal. Gangan tekur um
. 8-9 klst. Flestar helgar er farið í
Landmannalaugar, en um þessa
helgi verður ferð þar sem ekið er á
laugardeginum inn að Eldgjá og
farin létt ganga að mjög sérstæðum
jarðmyndunum á svokölluðum
Skælingi. Brottfór í ferðina er laug-
ardagskvöldið kl. 20 og komið til
baka á sunnudeginum, en þann dag
verða einnig dagsferðir í Land-
I mannalaugar og Þórsmörk, segir í
| fréttatilkynningu.
Fjórða helgarferðin á fræðsluferð
’ á Strandir í samvinnu við Skóg-
ræktarfélögin nefnist „Leitin að
Strandavíðinum" og verður brottfór
á föstudaginn kl. 14. Upplýsingar
fást á skrifstofu Ferðafélags Is-
lands.
-----------------
( Afmælisfagnað-
ur í Kringlunni
í TILEFNI af árs afmæli aðhalds-
námskeiða Gauja litla verður efnt til
afmælisfagnaðar í Kringlunni fyrir
framan Nýkaup hf. kl. 16 á morgun,
föstudag.
Þar afhendir Gaui litli afmælis-
gjöf til Landgræðslunnar, áburð
sem Áburðarverksmiðjan hf. hefur
( gefíð í tilefni afmælisins. Áburður-
inn vegur jafn mikið og öll sú fita
' sem þátttakendur á námskeiðunum
( hafa losað sig við undanfarið ár.
Þyngdin er þrjú tonn, sexhundruð
fjörutíu og fimm kíló og verður
áburðinum dreift á eitthundrað og
fimmtíu þúsund fermetra á hálendi
Islands.
I Kringlunni verður jafnframt
tískusýning, frá saumastofunni
Spori í rétta átt, á íslenska
( íþróttafatnaðinum Spilitt. Einnig
munu bræður í hljómsveitinni
' Súkkat troða upp og syngja nokkur
( ný og gömul lög.
-------♦-♦-♦-----
Kínaklúbbur Unnar
Ferð til Sýrlands
og Jórdaníu
< UNNUR Guðjónsdóttir, sem sér-
( hæft hefur sig í ferðum íyrir al-
| menning til Kína, skipuleggur
þriggja vikna ferð um Sýrland og
Jórdaníu í október.
Unnur mun kynna ferðina fóstu-
daginn 17. júlí í Reykjahlíð 12. Sýnt
verður m.a. myndband frá Jórdan-
íu.
<
<
<
<
<
Vitni
vantar
LÖGREGLAN í Reykjavík
lýsir eftir vitnum að árekstri
sem varð fimmtudaginn 2.
júlí klukkan 14.30 á Háaleit-
isbraut við gatnamót
Kringlumýrarbrautar.
Ekið var aftan á bíl af
gerðinni Mitsubishi Lancer,
JN-813, sem er brúnn að lit.
Hugsanleg vitni eru beðin að
hafa samband við lögregluna
í Reykjavík.
Upplýsingamiðstöð
vegna Galtalækjarmóts
HEILAGUR Þorlákur á frúnerkinu sem gefið var út árið 1956
og sérstimpillinn sem notaður verður um hátíðina.
Þorlákshátíð kaþ-
ólskra og sérstimpill
VEGNA undirbúnings bindindis-
mótsins í Galtalækjarskógi um
verslunarmannahelgina hefur ver-
ið opnuð sérstök upplýsingamið-
stöð á Grensásvegi 16 í Reykjavík.
Þar geta allir áhugasamir fengið
upplýsingar um fjölskylduhátíðina
í Galtalækjarskógi, hvort sem þeir
eru væntanlegir mótsgestir, fjöl-
miðlar eða starfsfólk. Upplýsinga-
miðstöðin er opin alla virka daga
kl.9-18.
í fréttatilkynningu segir að úti-
hátíðin í Galtalæk verði að venju
sniðin að áhuga og þörfum stór-
fjölskyldunnar og þar finni allir af-
þreyingu og skemmtun við hæfi.
Haldnir verði þrír útidansleikir
á palli, þrjú unglingaböll í kúlu,
tvær barnaskemmtanir, tvær
kvöldvökur, söngvarakeppni og
tvö barnaböll. Þá verði á svæðinu
íþrótta- og þrautaleikir, ævintýra-
leiktæki, hestar og veiðivatn, varð-
eldur og flugeldar, svo eitthvað sé
nefnt.
„Aðstaðan í Galtalækjarskógi
hefur byggst upp á 30 árum og er
nú eins og hún gerist best á útihá-
tíð eins og bindindismótin hafa
verið undanfarin misseri, fjölmenn
og vel heppnuð. Umhverfið gerist
vart betra þegar tjaldað er til
þriggja nátta, rómuð tjaldstæði og
tjaldavagnasvæði, góð hreinlætis-
aðstaða, fallegar gönguleiðir í ná-
grenni, göngustígar um kjarrskóg,
veitingaþjónusta- og verslun. 350
starfsmenn í þjónustu og gæslu sjá
um að allt fari fram eftir þeim lög-
um og reglum sem tryggja öryggi
og vellíðan mótsgesta - í vímulausu
umhverfi," segir í fréttatilkynn-
ingu.
KAÞÓLSKIR leikmenn halda
Þorlákshátíð í Skálholti dagana
17.-19. júli. Hátíðin er haldin til að
minnast þess að 800 ár eru liðin frá
því að Páll biskup Jónsson heimil-
aði í Lögréttu að menn mættu
biðja um fulltingi Þorláks biskups
Þórhallssonar, voru svo bein hans
grafin upp og skrínlögð. Þá er og
aðfangatími að árinu helga, 2000,
en þá eru jafn mörg ár frá fæðingu
Krists og þúsund ár frá kristnitöku
á Islandi, að lögum.
Hátíðin hefst í Aratungu á
fóstudagskvöld með kynningu,
kvöldbænum og vai'ðeldi. Á
sunnudag verður svo meðal ann-
ars hámessa í Skálholtskirkju
klukkan 14 og tónleikar á sama
stað klukkan 16.15. Að öðru leyti
fer hátíðahaldið og fyrirlestrar
fram í Aratungu.
Heilags Þorláks var minnst á
frímerki árið 1956, en þá komu út
frímerki í tilefni af 900 ára afmælis
þess að settui' var biskupsstóll í
Skálholti. Mynd Þorláks var prent-
uð eins og hún er á saumuðum refli
í Þjóðminjasafni, á 75 og 25 aura
frímerki. Þá er til stytta af Þorláki
á vesturhlið dómkii'kjunnar í
Niðarósi og í kirkju skóla þess er
hann stundaði nám í, á Englandi,
en auk þess er nýleg stytta hans í
Landakotskirkju.
Sérstakt pósthús með sérstimpli
verður starfrækt á stöðunum
þessa daga. Verður það starfrækt í
Skálholti kl. 12-14 á laugardag, en
í Aratungu kl. 20-22 á föstudag,
9-11 á laugardag og 10-10.30 á
sunnudag. Frímerkja verður póst-
sendingar með a.m.k. lágmarks-
burðargjöldum til viðkomustaða,
segir í fréttatilkynningu.
Kaþólska kirkjan hélt á síðasta
ári hátíð í Viðey sem aðför að árinu
heilaga, 200. Næsta ár verður há-
tíðin haldin á Hólum og árið 2000, í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góð veiði í
Reynisvatni
VEIÐI í Reynisvatni fyrir ofan
Reykjavík hefur verið nvjög góð
það sem af er árinu. Alls hafa
veiðst 12 þúsund fiskar, bæði sil-
ungur og lax. Um helgina var
100 löxum sleppt í vatnið. Enn er
óveiddur 32 kílóa lax, sem sleppt
var í vatnið fyrr í sumar.
Oskað sambands
við danskan
ferðamann
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
verið beðin að ná sambandi við Ole
Steiniche Rasmussen frá
Brændstrup í Danmörku en hann
er nú staddur í fríi hér á landi
ásamt Marianne eigikonu sinni og
vini.
Þau eru trúlega á ferð um landið
á bílaleigubíl. Þeir sem vita af ferð-
um þeirra eða vita hvar þau eru
stödd eru beðnir að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík eða
biðja Ole að hafa samband við lög-
regluna.
Rauða kross ferð
eldri borgara á
Vestfjörðum
ÁRLEGT ferðalag á vegum RKÍ,
fyrir eldri borgara á Vestfjörðum,
verður dagana 21.-27. ágúst. Dval-
ið verður í Nesjaskóla við Höfn í
Hornafirði, farið í skoðunarferðir
um nágrennið og ýmislegt til gam-
ans gert.
Pantanir teknar niður frá og
með föstudeginum 17. júlí frá kl.
19-20. Fararstjórar eru Helga
Jónasdóttir, Tálknafirði, Sigrún
Magnúsdóttir, Reykjavík og Sig-
rún Gísladóttir, Flateyri.