Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Æfingin skapar meistarann FEÐGININ Jón Gunnar og Elísa höfðu komið sér Eh'sa, sem er fjögiirra ára, var að læra réttu að- vel fyrir við Reykjavíkurhöfn á dögunum og ferðirnar við veiðarnar og naut við þaö leiðbein- dorguðu saman. inga föður síns. Staða lífeyrissjóðakerfísins á almennum vinnumarkaði Há ávöxtun hefur leyst fortíðarvandann STAÐA lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði er góð miðað við þá forsendu að ávöxtun þeirra í fram- tíðinni verði 3,5%, þar sem há ávöxtun sjóðanna á undanförnum árum er búin að vinna upp þann for- tíðarvanda sem sjóðirnir áttu við að glíma á árum áður vegna lágra raunvaxta og áður en almenn verð- trygging var tekin upp. Eignir líf- eyrissjóða á almennum markaði námu 240 milljörðum króna í árslok 1996 og horfur eru á að eignir þeirra tvöfaldist á næstu tíu árum. Þær eiga eftir að halda áfram að vaxa marga áratugi eftir það og ættu að komast í jafnvægi við land- framleiðslu árið 2040 og gætu þá verið orðnar nokkru hærri en árleg landframleiðsla. Þetta er meðal þess sem kemur fram í grein Guðmundar Guð- MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur að fenginni umsögn stjórn- ar Lánasjóðs íslenskra náms- manna skipað Steingrím Ara Arason framkvæmdastjóra Lána- sjóðs íslenskra námsmanna um fimm ára skeið frá 1. janúar 1999. Horfur á að eignir tvöfaldist á næstu tíu árum mundssonar um þróun lífeyrissjóða í nýútkomnu hefti Fjármálatíðinda sem Seðlabanki íslands gefur út, en í greininni eru skoðuð áhrif raun- vaxta, hagvaxtar og fólksfjölda á af- komu lífeyrissjóða og hag lífeyris- þega og hvernig eignir lífeyrissjóð- anna munu vaxa næstu áratugi. Fram kemur að greiðslur úr líf- eyrissjóðum eigi eftir að hækka mikið frá því sem nú er með aukn- um réttindum bótaþega. Þær verði óhjákvæmilega misháar í almennu sjóðunum þó iðgjöld séu hin sömu og búast megi við því að breytingar Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra LÍN rann út 10. júlí sl. Fjórar umsóknir bár- ust um stöðuna. Aðrir umsækj- endur voru Henrý Þór Gránz, Hjálmar Kjartansson og Pétur Rasmussen. á lífeyrisréttindum með hliðsjón af afkomu sjóða eigi eftir að verða eitt helsta deiluefni í lífeyrísmálum. 61% af tekjum í eftirlaun Þá kemur fram að sá sem borgað hefur í lífeyrissjóð alla starfsævina megi búast við því að fá 61% af með- allaunum á aldrinum 40-60 ára í líf- eyrissgreiðslur miðað við það að hann byrji að taka eftirlaun á 69. aldursári og raunvextir séu 3,5%. Ef eftirlaunaaldur miðaðist við 60 ára aldur þyrfti iðgjald til lífeyris- sjóðs að hækka úr 10% af launum í 17% til að greiða sama hlutfall af launum frá þeim aldri. I greininni kemur fram að af- koma lífeyrissjóða sé afar háð raun- vöxtum og framleiðnibreytingar hafi líka talsverð áhrif og enn meiri á hlutfall eftirlauna af launum þeirra sem eru í starfl. „Þegar litið er á söguleg gildi þessara stærða yfir nokkra áratugi sést að þau hafa tekið miklum og óreglulegum breyt- ingum. Engin ástæða er til að ætla að þeim sé lokið. Það er ekkert ólík- legt að þessir þættir verði svo frá- brugðnir forsendum sem nú er mið- að við aö breyta þurfi lífeyri eða ið- gjöldum um tugi prósenta," segir síðan. Nýr framkvæmdastjóri LIN Mataraðstaða og nesti grunnskólabarna Einungis fjórir skólar bjóða heitan mat Inga Einungis 4 skólar af 36 bjóða börnum upp á heitan mat í hádeg- inu og í flestum skólum matast börn við sama borð og þau læra við. Þetta kem- ur fram í könnun sem gerð var fýrr á þessu ári og ber heitið Mataraðstaða og nesti bama í grunnskólum á Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Það voru þrir nemar í hjúkrunarfræði sem stóðu að könnuninni sem var hluti af samnorrænni könnun og var lokaverkefni þeirra til BS prófs í hjúkrunarfræði. Eftir er að gera sams konar könnun á landsbyggðinni. Að könnuninni stóðu Helga Jónsdóttir, Fanney Gunn- arsdóttir og Þórdís Ingjaldsdóttir. Leiðbein- indur þeirra voru Brynhild- ur Briem, lektor við Kenn- araháskóla íslands, og dr. Þórsdóttir prófessor. „Við gerðum könnunina í febr- úar á þessu ári og sendum spurn- ingalista til skólastjóra 51 skóla á höfuðborgarsvæðinu þar sem við óskuðum einnig eftir að skólarnir tækju þátt í könnuninni,“ segir Helga Jónsdóttir, einn aðstand- enda könnunarinnar. Um 70% svörun fékkst í könnuninni. - Hversu margir koma með nesti í skólann? „Að meðaltali koma um 80% nemenda með nesti, þar af eru í 1-4 bekk um 95% með nesti og í 5-7 bekk rúmlega 86% en í 8-10 bekk kom tæplega helmingur nemenda með nesti í skólann. Við skoðuðum Iengd skóladags og meðallengd nestistíma. Sam- ræmi var milli lengdar skóladags, fjölda nestistíma og lengdar nest- istíma. Því eldri sem nemendur eru því lengri verður skóladagur- innn, lengri nestistímar og þeim fjölgar. Að sama skapi fækkar þeim nemendum sem koma með nesti að heiman á þessum aldri. -Bjóða margir skólar heitan mat í hádeginu? „Nei, það kom okkur á óvart að einungis fjórir skólar af þeim 36 sem svöruðu könnuninni buðu upp á heita máltíð í hádeginu. í 78% tilvika var á hinn bóginn hægt að kaupa eitthvað matar- kyns í skólanum og þá var oftast um að ræða jógúrt, skyr eða aðrar mjólkurvörur og brauðmat. Fáir skólar seldu ávexti eða súpur.“ Helga segir þetta á skjön við aðra „vinnustaði" í þjóðfélaginu. Margir foreldrar hafa aðgang að mötuneyti á vinnustað sínum og þar er yfirleitt boðið upp á heita máltíð ásamt öðru og því hafa þeir val um hvað þeir borða. Oft elda foreldramir svo ekkert á kvöldin og hafa á borðum snarl sem oft kann að vera brauðmatur og skyr eða jógúrt því þeir borða heitan mat í hádeginu. Þetta verður því of einhæft fæði fyrir börnin sem eru einmitt á þeim aldri að þurfa á fjölbreyttri og hollri fæðu að halda. Helga segir það mat þeirra að bömin eigi að geta valið um að fá heitan mat í hádeginu rétt eins og foreldramir. „Á meðan börnin eru í leikskóla stendur þeim heitur matur til boða en þegar þau kom- ast á skólaaldur fá þau brauð og jógúrt. Það er síðan ekki íyrr en komið er á fullorðinsár að þeim býðst á ný heit hressing í hádeg- inu.“ -Hvernig reyndist aðstaðan í skólunum til að matast? Helga Jónsdóttir ► Helga Jónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1971. Hún lauk námi í hjúkrunarfræði frá Há- skóla íslands árið 1998 og starfar nú sem hjúkmnarfræð- ingur á krabbameinslækninga- deild Landspítalans. Sums staðar matast nem- endurá göng- um skólans „Það kom í ljós að nemendur í yngstu bekkjunum matast yfirleitt í kennslustofum sínum en þegar þeir em orðnir eldri, komnir í í 8-10 bekk eru gangar skólans oft eini staðurinn til að matast á. Það er náttúrlega engin matar- aðstaða að vera að borða í kennslustofunni eða á göngum skólans. Fullorðnum þætti það ekki boðlegt að matast við skrif- borðið sitt í vinnunni. Að sama skapi á ekki að bjóða bömum upp á slíka aðstöðu. Fyrir bragðið fá þau enga tilbreytingu." Helga segir að greiður aðgang- ur sé að drykkjarvatni í 72% skól- anna. - Pið könnuðuð líka hvort boðið væri upp á fræðslu um næringu í skólunum? „I 61% tilvika var boðið upp á slíka fræðslu á vegum hjúkrunar- fræðings en það er okkar mat að fræðslan eigi að vera í öllum skól- um.“ Hún segir að í tengslum við þessa könnun hafi þær kannað hvort reglugerðir væru til varð- andi hlutverk skólahjúkrunar- fræðinga í tengslum við fræðslu í skólum. „Það kom á daginn að ekkert skriflegt er til um hvaða fræðsla eigi að fara fram í skólum og hvert hlutverk skólahjúkrunar- fræðinga er. Þeim er í raun í sjálfsvald sett hvað þeir gera. Við teljum mikilvægt að til séu reglu- gerðir um hlutverk skólahjúkrunarfræð- inga svo samræmi skapist milli skóla. -Höfðu skólar sett _________ reglw um hvað mátti ' hafa með í nesti? „I flestum skólum voru reglur og þær lutu að því að nemendur mættu ekki koma með gos, sæl- gæti eða sætabrauð í skólann." Helga segir að nemendur hafi ekki mátt yfirgefa skólalóð á skólatíma fyrr en í áttunda bekk var komið en þá var um helming- ur skólanna sem leyfði það. „Krakkar í 8-10 bekk eru oft komin með einhver auraráð og fara þá og kaupa sér hressingu í frímínútum sem getur skýrt hvers vegna nestispökkum fækkar á þessum aldri.“ Ritgerðin um mataraðstöðu og nesti skólabama liggur frammi í Þjóðarbókhlöðunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.