Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 21 ERLENT Ný ríkisstjórn í Hollandi eftir þriggja mánaða stjórnarmyndunarviðræður Amsterdam. Morgunblaðið. Reuters WIM Kok, forsætisráðherra Hollands, fagnar kosningasigri í maí sl. Lengri tíma tók að mynda ríkisstjórn en til stóð, tæpa þijá mánuði. Aukin útgjöld í heilbrigðis- og menntamálum Noregur Tilræði við einkaritara ráðherra LÖGREGLAN í Ósló stendur ráðþrota frammi fyrir tveim- ur tilraunum til að svipta einkaritara vamarmálaráð- herra Noregs lífi. I fyrrinótt var bensíni hellt á götuna fyr- ir utan íbúðarhús einkaritar- ans og opnum gaskút komið fyrir á stigaganginum fyrir framan íbúðina. Þá er aðeins tæpur mánuður siðan sprengju var komið fyrir undir bíl hans. Eiginmaður einkaritarans, Önnu Orderud Paust, heyrði umgang í fyrrinótt og gerði lögreglu viðvart, sem rýmdi fjölbýlishúsið sem hjónin búa í þar sem bensínlykt fannst fyrir utan. Er talið að hend- ing hafi ráðið því að þeim sem kom gaskútnum fyrir tókst ekki að koma af stað sprengingu. Um miðjan síðasta mánuð fannst sprengja, sem hefði getað orðið Paust að bana, undir bíl hennar, og er talið fullvíst að henni hafí verið komið fyrir er bíllinn stóð fyrir utan varnarmálaráðu- neytið. Ekki er vitað hver stendur að baki þessari aðför, og hvort hún beinist gegn Paust persónulega eða tengist starfi hennar. Eiginmaðurinn starfar í utanríkisráðuneyt- mu. NY rikisstjorn undir forystu Wims Koks tók við stjórnartaumunum í Hollandi 3. ágúst síðastliðinn. Er því hafið nýtt stjórnarsamstarf Verkamannaflokksins (PVDA), flókks frjálshyggju- og íhaldsmanna (WD) og Frjálslyndra demókrata, (D66) sem einnig störfuðu saman síðasta kjörtímabil. Það var ánægður hópur fólks sem brosti til hollensku þjóðarinnar af tröppum Noordeinde-hallarinnar í Haag eftir að hafa svarið Beatrix drottningu eið sinn. Eftir tæpra þriggja mánaða stjórnarmyndunar- viðræður flokkanna þriggja var „fjólublá stjórn 11“ orðin að veru- leika. Við upphaf stjómarmyndunarvið- ræðna eftir kosningarnar 6. maí áttu fáir von á því að þær myndu dragast eins á langinn og raun varð á. Kosn- ingarnar, sem að mestu leyti sner- ust um það hvort fjólubláu stjórn- inni svokölluðu yrði gefið tækifæri á að starfa saman áfram, gáfu ein- dregið til kynna að hollenskir kjós- endur væm jákvæðir í garð hennar, og var því búist við að ný íjólublá stjórn yrði skjótt mynduð. Raunin reyndist hins vegar önnur og þar að auki ríkti mikil leynd yfir framvindu samningaviðræðna. Þeg- ar líða fór á júnímánuð tók að gæta ókyrrðar um stöðu mála í röðum stjórnarandstöðunnar og voru full- trúar flokkanna þriggja að lokum krafnir svara um framgang mála á þingi. Látið af varkárnir og sparnaði Um miðjan júlí náðu flokkarnir þrir samkomulagi um stjórnarsátt- mála. Þegar á heildina er litið má segja að helsta breyting á nýjum stjórnarsáttmála flokkanna sé að í stað varkárni og sparnaðarhugsun- ar sem einkenndi stjómarsáttmála fjólubláu stjórnarinnar íyrstu eru nýjar fjárfestingar í ríkisgeiranum stefnumarkandi núna. Em 9,2 millj- arðar gyllina, um 320 milljarðar ísl. kr., ætlaðir til nýrra stefnumála og þá að mestu leyti til endurbóta í heilbrigðiskerfinu, í menntamálum og á kjörum þeirra sem lægstar hafa tekjurnar. Gagnrýni stjómarandstöðunnar hefur helst beinst að því að stjómar- sáttmálinn sé of ýtarlegur og gefi því lítið svigrúm. Einnig hefur stjómar- andstaðan látið í ljósi óánægju með að lítið tillit sé tekið til félagslegra málefna og umhverfismála. Eftir að stjórnarflokkarnir höfðu komið sér saman um stjórnarsátt- mála hófst umræða um skipan emb- ætta ráðherra og ráðuneytisstjóra. Töluverðar deilur stóðu um bæði hlutfall ráðherrastóla á flokkana sem og hvaða ráðherrastólar og ráðuneyti féllu í hlut hvers flokks. Fjórar konur ráðlierrar D66 sem er minnstur stjómar- flokkanna (rúm 9% atkvæða) stóð fast á kröfu sinni um þrjá ráðherra- stóla, í stað þeirra tveggja sem PVDA og WD ætluðu flokknum. Á endanum var deilan leyst með því að einu embætti ráðherra var bætt við þau 14 sem fyrir voru; ráðherra málefna borga og minnihlutahópa sem kom í hlut D66. Stjórnina skipa sem sagt 15 ráð- herrar. Sex úr flokki PVDA (þar með talinn forsætisráðherra), sex frá WD og þrír frá D66. PVDA skipar sjö ráðuneytisstjóra, VVD fimm og D66 tvo. Sex fyrrverandi ráðherrar gegna áfram ráðherra- stöðum og níu nýir komu því til starfa. Af ráðherrunum 15 eru fjórar konur sem flestum finnst vera of lít- ið. En þar vegur upp á móti að tvær kvennanna gegna embætti varafor- sætisráðherra. Er það í fyrsta skipti í sögu Hollands að kona og hvað þá konur skipi það embætti. Frá WS er það Annemarie Jorritsma-Lebb- ink sem einnig gegnir stöðu efna- hagsmálaráðherra, var hún sam- göngumálaráðherra í síðustu stjórn. Frá D66 er um að ræða Els Borst- Eilers sem gegnir stöðu heilbrigðis- ráðherra áfram. Formaður WD hættir Á sama tíma og nýir ráðherrar voru opinberlega kynntir, tilkynnti Frits Bolkestein, formaður VVD, ákvörðun sína um að draga sig í hlé. Mun hann gegna þingmennsku áfram næsta eitt og hálfa árið en hefur falið Hans Dijkstaal, fym'er- andi innanríkisráðherra, for- mennsku í þingflokknum. Fylgir Frits Bolkestein þar með í fótspor Hans van Mierlo, fyrrverandi utan- ríkisráðherra, sem fyrr á þessu ári sagði af sér formennsku D66 og til- kynnti fyrir skömmu afsögn sína sem þingmaður. I lok ágúst mun hollenska þingið taka til starfa á ný eftir sumarleyfi og munu þá hefjast umræður um fjárlög næsta árs og stefnuyfirlýs- ingu stjórnarinnar nýju. Að lifa lífinu! , LANDSBREF HF. Sá dagur mun koma að við þurfum ekki að keppast við, heldur njóta lífsins. Fjárfesting fyrir tækifæri framtíðarinnar Með reglulegum sparnaði í Islenska lífeyrissjóðnum getur þú tryggt þér fjárhagslegt sjálfstæði við starfslok, sjálfstæði til að verja tímanum eins og þér hentar og grípa þau tækifæri sem gefast til að njóta lífsins. Nýtt val í lífeyrissparnaði Oskir manna á sviði lífeyrissparnaðar eru mismunandi. Islenski lífeyrissjóðurinn býður nýtt val í lífeyrissparnaði - Lífsbrautina. Lífsbrautin gefur sjóðfélögum kost á að fjárfesta í þremur mismunandi deildum: Lífl Líf I stefnir að góðri langtímaávöxtun, en sveiflur í ávöxtun geta orðið nokkrar yfir skemmri tímabil. Deildin hentar þeim sem eiga 20 ár eða meira eftir af söfnunartíma sínum. Líf II er ætluð þeim sem kjósa að taka hóflega áhættu með lífeyris- sparnað sinn og ná þannig góðri ávöxtun til lengri tíma. Deildin hentar þeim sem eiga eftir a.m.k. 8-10 ár af söfnunartíma sínum. Líj m Líf III er áhættuminnsta deildin og þar eru sveiflur í ávöxtun litlar. Deildin hentar þeim sem eiga fá ár eftir af söfnunartíma sínum eða eru komnir á eftirlaun. Hafðu samband við ráðgjafa Landsbréfa 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.