Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Grettir
/MUMDU, BÓl,AP KÓTT.
UK GETUfZ EKKTI GERT
OK LÍTUE>
Tommi og Jenni
Ljóska
HEY MARCIE,HOU) D0E5THI550UNP? 'YM50RRY I DIDN'T 6ET MY , REPORT D0NE,MA'AM 'THEREWA5A JACKKNIFEP B\6-RI6 0LOCKIN6THE I M 6ETTIN6 MY EXCU5E5 REAPY FOR WHEN SCHOOL OUR 5CH00L ISN'T NEAR THE FREEUJAY, 5IR.. DETAIL5 AREN'T IMPÖRTANT, MARCIE.. woulpn't IT BE EA5IER JU5T TO PO THEREPORT? © 1998 United Feature Syndicate, Inc. HOU ARE 50 WEIRP, MARCIS.^
É
ffl-C'. i-isTtffP
Hæ, Magga, „Stór þunga- Ég er að Skólinn okk- Smáat- Væri ekki Þú ert svo
hvemig hljómar vinnuvél lok- undirbúa af- ar er ekki riði eru auðveldara að skrýtin,
þetta? „Mér þykir aði hrað- sakanimar nálægt hrað- ekki mik- skrifa bara Maerera...
það leitt, kennari, brautinni.“ mínar áður brautinni, ilvæg, ritgerðina?
að ég lauk ekki en skólinn herra... Magga...
við ritgerðina." hefst.
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
„Á pabbi þinn kvóta?“
Sérréttindi
til sölu
Frá Guðmundi Erni Jónssyni:
HEFUR þú velt því fyrir þér
hvaða hömlur er búið að setja á at-
vinnufrelsi þitt? Þú getur ekki haf-
ið útgerð, rekið sjónvarpsstöð,
gerst bóndi eða leigubílstjóri eða
annast verktöku fyrir Varnarliðið
án þess að greiða þeim sem fyrir
eru í þessum greinum peninga.
Það skrítna er svo að þessir
menn fengu þessi sérréttindi
ókeypis. Þeir fengu þau af því að
ekki var nógu mikið af físki í sjón-
um, ekki nóg af sjónvarpsrásum,
ekki var étið nóg af lambakjöti,
ekki ferðast nóg með leigubílum og
af því að Bandaríkm eni ríkasta
þjóð í heimi. Af því fá þeir en ekki
þú að starfa í þessum greinum.
Við höfum einnig verið fullvissuð
af fulltrúum þessara greina um að
fórna verði jafnrétti til að við get-
um komist af. Að fjöregg þjóðar-
innar sé aðeins öruggt í þeirra
höndum og engin önnur leið geti
reynst hagkvæm. Þeir hafa einnig
bent okkur á kostina við núverandi
kerfí. Þeir verði ríkir og borgi því
meiri skatta sem renna til okkar
hinna.
Vinstrimenn eru þó ekki sáttir.
Þeir vilja viðhalda sérréttindunum
en skattleggja þau. Eflaust væri
hægt að gera marga athyglisverða
hluti fyrir þá peninga, t.d. koma
öllum Islendingum inn í félagsleg-
ar íbúðir eða margfalda atvinnu-
leysisbætur.
Fyrst sérréttindin eru svona
verðmæt og fleiri en handhafar
þeirra vilja viðhalda þeim erum við
þá að tapa einhverju með því að af-
nema þau? Er skilyrðið fyrir hag-
kvæmni í þessum greinum að mis-
muna landsmönnum?
Eg er sannfærður um að svarið
við báðum spumingunum sé nei-
kvætt. Má ekki bjóða upp veiðileyfi
og sjónvarpsrásir og nota fjármun-
ina til að lækka skatta hjá sem eru
sviptir frjálsum aðgangi að þessum
greinum? Má landbúnaður, verk-
taka fyrir varnarliðið og leigubíla-
akstur ekki vera frjáls?
Það þjóðfélag sem verið er að
koma á er ekki viðkunnanlegt. Það
á ekkert skylt við frjálshyggju eða
hægristefnu, helst minna sérrétt-
indin á Sovétríkin sálugu þar sem
tilteknar akreinar vom aðeins fyi’ir
útvalda.
GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON,
Bæjartúni 13, Kópavogur.
AHt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir