Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 FERÐALÖG MORGUNBLAÐIÐ I Nýja bakarí- inu á Patreks- firði er lífið saltfiskur MARINERAÐUR saltfískur, steiktur salt- fískur og steiktur steinbítur með tilheyr- andi meðlæti, allt bráðnaði þetta í munni blaðamanna og annarra gesta sem áttu kvðldstund í Nýja bakaríinu á Patreksfirði nýlega - en þann dag hélt veitingastaður- inn einmitt upp á eins árs afmæli. Þó að liúsnæðið sé nútímalega innréttað er andi gamla tímans einnig nálægur, þar sem gamlar Ijósmyndir úr sögu Patreks- fjarðar og nágrennis prýða veggi, m.a. er þar myndasyrpa frá björgunarafrekinu við Látrabjarg. Á matseðlinum má einnig lesa ágrip af sögu Patreksfjarðar, allt frá þeim tíma er fyrst er getið um þorpið í heimildum frá árinu 1570 og fram til nú- tímans. Þar er einnig vitnað í Þorpið, Ijóðabók Jóns úr Vör, sem þar var fæddur og uppalinn. Það eru hjónin Kristín Jóhanna Björns- dóttir og Krislján Skarphéðinsson, eða Stína og Denni í bakaríinu eins og þau eru oftast kölluð, sem eru gestgjafarnir, en veitingastaðurinn er undir sama þaki og bakaríið, sem þau hafa starfrækt síðastlið- in tíu ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg KRISTÍN Jóhanna Björnsdóttir og Kristján Skarphéðinsson taka vel á móti gestum í Nýja bakaríinu á Patreksfirði og sjá til þess að allir fari þaðan saddir og sælir. Fólk vill fisk þegar það kemur í sjávarþorp Aðspurð hvernig gangi að reka bæði bakarí, þar sem þarf að vakna fyrir allar aldir og baka brauð, og veitingastað, þar sem mest er um að vera á kvöldin og frameftir, segir Kristín það ganga alveg ágætlega. Lykilinn að því segir hún mjög skýra verkaskiptingu þeirra hjóna. „Eg sé um salinn, innkaup, bókhald og pen- ingamál - hann sér um eldhúsið og bak- aríið.“ Kristján er bakarameistari að mennt og Kristín sjúkraliði. Hún segir þann bakgrunn koma sér afar vel í þessu starfi, því bæði störfín snúist um mannleg samskipti, að þjóna fólki og vita hvað það vilji. Kristín segir að þau hafi fundið þörf fyrir veitingastað sem þennan á Patreks- fírði og því hafi þau ákveðið að mæta þeirri þörf. Ogjákvæð viðbrögð, jafnt ferðalanga sem heimamanna, hafi ekki Iátið á sér standa. Þau leggja sig líka fram um að láta öllum líða vel sem sækja þau heim og þar eru börnin engin undan- tekning. Nóg er af barnastólum, púslu- spilum, litum og öðrum leikföngum fyrir þau. Nýja bakaríið er veitingastaður með sérleyfi frá Pizza 67 en þó er langt í frá að þar séu einungis pizzur á boðstólum. „I sumar leggjum við sérstaka áherslu á fiskrétti, því við höfum fundið það að fólk vijl físk þegar það kemur í sjávarþorp og því er eðlilegt að við bjóðum upp á sjávar- rétti - eitthvað sem einkennir þorpið,“ segir Kristín. Handverk og hönnun á Islandi Leiðarvísir fyrir ferðamenn ÚT er kominn leiðarvísir fyrir innlenda og erlenda ferðamenn um handverkshús, gallerí og vinnustofur handverks- manna á Is- landi. Þar er að finna upplýsingar um fram- leiðendur og seljendur ís- lensks handverks, listhandverks og heimilisiðnaðar. Þetta er í annað sinn sem Handverk og hönnun gefur út leiðarvísi af þessu tagi. Það var Stíll ehf. á Ákureyri sem sá um hönnunina en smáverkefna- sjóður landbúnaðrins styrkti útgáfuna. Leiðarvísinn má nálgast á upplýsingamiðstöðv- um ferðamála um landið svo og í handverkshúsum og gallerí- um. Útiskilti Vatnsheld og vindþolin Allar stærðir og gerðir Margir litir - gott verð JbOfnasmiðjan Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100 Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100 íslensk framleiðsla síðan 1972 MUR- HÚÐUNAR- NET Margar tegundir Gott verð ■Í steinprýði STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777 DANSKIR dagar verða í Stykkishólmi um helgina, m.a. verða list- og sögusýningar í Norska húsinu, Námskeiðið er 20 klsi Leiðbeinandi er Gunnar Grímsson Tölvuskóli Prenttæknistofnunar Skráningar á námskeið eru í síma 562 0720 Markmið námskeiðsjns er að þátttakendur iæri að búa til vefsíður á Netinu þar sem blandað er saman texta, myndum og hreyfimyndum. HTML er grunnurinn sem Veraldarvefurinn byggist á og verður farið I þær skipanir þess sem virka I öllum vefskoðurum. Áhersla er lögð á útlitshönnun og skipulag. Vandaðir gönguskór fyrir meiri- og minni- háttar gönguferðir. Verð frá kr. 5.900 Persónuleg og fagleg þjónusta S?o*t E I G A Nl ÚTIVISTARBÚÐIN http://www.mmedia.is/sportleigan alpina gönguskór llu Danskir dagar í Stykkishólmi DANSKIR dagar verða haldnir í Stykkishólmi 14.-16. ágúst og er þetta í fimmta skipti sem þessi fjöl- skylduhátíð verður haldin þar. Dag- skráin verður fjölbreytt og uppákom- ur víða um bæinn frá morgni til kvölds. Á fóstudeginum hefst hátíðin á skrúðgöngu leikskólabarna í fylgd trúða, en dagskráin fer að mestu fram niðri við höfnina þar sem heitt verður í kolunum í grillveislunni. Setning hátíðarinnar verður við minnisvarða sjómanna, síðan verður varðeldur og brekkusöngur og þá Ogleymanlegt ævintýri! Stórhvalaskoðun frá Ólafsvík Fuglaparadfs Skelveiði og smökkun Stykkishólmi, s. 438 1450 bryggjuballið á sínum stað með flug- eldasýningu í lokin. Hljómsveitin Stykk leikur á Knudsen. Á laugardeginum hefur verið skipulögð gönguferð með leiðsögn og list- og sögusýningar. Þá verða hand- verkshús opin og markaðstjald sett upp. Sjávarkvikindaker verða niðri við höfn og risaleiktæki við íþrótta- miðstöðina. Einnig verða fjölbreyttar uppákomur á sviði, leiksvið og upp- boð. Söngdagskrá með Bjama Ára, Bogomil Font, Ragga Bjarna ásamt hljómsveit Milljónamæringanna verður á hótelinuu og hljómsveitin Stykk leikur á Knudsen. Á útisviðinu verður um kvöldið unglingadansleik- ur þar sem hljómsveitin Gos leikur. Á sunnudaginum verður sprautu- bolti á bryggjunni og krítarmót við íþróttamiðstöðina. List- og sögusýn- ingar verða í Norska húsinu. Tvennir tónleikar verða í Stykkis- hólmskirkju á Dönskum dögum. Á laugardag kl. 17 leika Eva Mjöll Ing- ólfsdóttir og Andrea Kristinsdóttir á fíðlu og Peter Maté á píanó. Á sunnu- dag kl. 17 verða flytjendur Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópran, og Öm Magnússon sem leikur á píanó. Einnig verður dönsk matargerðar- list í hávegum höfð á hótelum og veit- ingahúsum bæjarins sem og í eyja- siglingum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.