Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 9
Nýr forstöðu-
maður Mann-
fræðistofn-
unar Háskóla
Islands
•DR. GÍSLI Pálsson hefur verið
'ráðinn forstöðumaður Mannfræði-
stofnunar Háskóla Islands. Jafn-
framt gegnir
hann starfi pró-
fessors við fé-
lagsvísindadeild
Háskóla Islands.
Starf forstöðu-
manns var aug-
lýst laust til um-
sóknar þegar
fyrrverandi forstöðumaður lét af
störfum fyrir aldurs sakir og sóttu
fimm um starfið.
Mannfræðistofnun var sett á
laggirnar fyrir tæpum aldarfjórð-
ungi. Lengst af hefur starfsemi
stofnunarinnar beinst að líffræði-
legri mannfræði, þar sem áhersla
hefur verið lögð á rannsóknir á lík-
amseinkennum Islendinga fyiT og
síðar. Samkvæmt núverandi reglu-
gerð er hlutverk stofnunarinnar að
efla rannsóknir á sviði bæði félags-
legrar og líffræðilegrar mannfræði.
Skal stofnunin m.a. samhæfa
mannfræðirannsóknir á vettvangi
Háskóla íslands, gangast fyrir
rannsóknum á Islendingum og ís-
lensku samfélagi sem og á öðrum
þjóðum og samfélögum, annast
varðveislu rannsóknargagna og
stuðla að samstarfi við innlenda og
erienda rannsóknaraðila á sviði
mannfræði og skyldra greina. Há-
skólaráð kýs fimm menn í stjórn
stofnunarinnar, fjóra þeirra sam-
kvæmt tillögum félagsvísindadeild-
ar, læknadeildar og raunvísinda-
deildar.
Dr. Gísli Pálsson nam mannfræði
við Háskóla Islands og Manchester
háskóla. Hann hefur starfað við
Háskóla Islands frá 1982, sem pró-
fessor frá 1992. Meðal verka hanns
eru: The Textual Life of Savants:
Ethnography, Iceland, and the
Linguistic Turn (Harwood
Academic Publishers, 1995) og
Coastal Economies, Cultural
Accounts: Human Ecology and
Icelandic Discourse (Manchester
University Press, 1991). Hann hef-
ur birt greinar í fræðilegum tíma-
ritum og ritstýrt greinasöfnum um
mannfræðileg efni, ýmist einn eða
með öðrum, m.a.: Við og hinir:
Rannsóknir í mannfræði (Mann-
fræðistofnun Háskóla Islands,
1997), Nature and Society: Ant-
hropological Perspectives.
(Routledge, 1996), Images of
Contemporary Iceland: Everyday
Lives and Global Contexts (Uni-
versity of Iowa Press, 1996), From
Sagas to Society: Comparative
Approaches to Early Iceland (His-
arlik Press, 1992), og Beyond
Boundaries: Understanding,
Translation and Anthropological
Discourse (Berg Publishers, 1992).
Gísli er kvæntur Guðnýju Guð-
björnsdóttur alþingiskonu og eiga
þau tvö börn, Pál Oskar og Rósu
Signýju.
Mannfræðistofnun er til húsa á
Hólavallagötu 13 (sími 5254253).
Vefslóð stofnunarinnar er
http://www.rhi.hi.is/pub/anthrice/
mannfs.html.
Medvirkni
(Codependence)
Ráðgjafastofa
Ragnheiðar Óladóttur
Síðumúla 33
mun hefja aftur meðvirkninámskeið
þriðjudaginn 18. ágúst. Skráning er
þegar hafin. Næstu námskeið verða:
8. sept., 6. okt. og 3. nóv.
Nánarí upplýsingar í símum 568 7228
og 897 7225, e-mail: ragnh@mmedia.is
Skiptameðferð Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga
Viðbótarúthlutun
úr þrotabúinu
BOÐAÐ hefur verið til skiptafund-
ar í þrotabúi Endurtryggingafé-
lags Samvinnutrygginga hf. í lok
mánaðarins til að fjalla um frum-
varp til viðbótarúthlutunar úr bú-
inu. Eiríkur Tómasson skiptastjóri
segir að fundurinn verði líklega sá
síðasti. Skiptameðferð í þrotabúinu
stóð yfir í rúm 12 ár og miðað við
fjárhæð krafna var gjaldþrotið eitt
hið stærsta sem orðið hefur hér-
lendis. Kröfuhafar eru allir erlend-
ir nema Gjaldheimtan í Reykjavík.
Kröfur í þrotabúið námu á annan
milljarð króna.
Eiríkur segir að meðferð nokk-
urra mála hafi haldið áfram eftir að
skiptum lauk fyrir tæpum tveimur
árum. „Nokkrum eignum er ennþá
óúthlutað og við ætlum að gera það
núna. Það eru eignir upp á um tólf
milljónir kr. sem koma til skipta
núna. Þetta eru eftirhreytur sem
er verið að gera upp til kröfuhaf-
anna,“ sagði Eiríkur.
Eiríkur segir að þetta hafi verið
með erfiðari og flóknari gjald-
þrotamálum. Kröfuhafar skiptu
mörgum hundruðum. Tæknilega sé
búið að greiða upp allar almennar
kröfur miðað við gengi 1984. Síðan
hafi myndast mikill gengismunur
og nú sé verið að greiða upp í hann.
Endurtryggingafélag Sam-
vinnutrygginga varð gjaldþrota 27.
nóvember 1984. Þá voru starfs-
menn þess þrír en framkvæmda-
stjórinn hafði látið af starfi fyrir
gjaldþrotið.
Stærstu eignir í útistandandi
kröfum
Endurtryggingafélög era þau
tryggingafélög sem almennu
tryggingafélögin skipta við. Um
árabil hafði Endurtryggingafélag
Samvinnutrygginga stundað reglu-
leg viðskipti í gegnum trygginga-
miðlara í London. Það sem olli falh
félagsins var hins vegar að síðustu
árin hafði umboðsfyrirtækjum er-
lendis verið gefið umboð til að gera
samninga fyrir þess hönd. Við
gjaldþrotið átti félagið í handbæra
fé 74 milljónir kr. sem miðað við
þróun lánskjaravísitölu jafngilti í
ársbyrjun 1997 290 milljónum kr.
Þá átti það hluta í húseign í Aust-
urstræti en stærstu eignir sínar
átti það í útistandandi kröfum hjá
endurtryggingafélögum sem höfðu
endurtryggt Endurtryggingafélag
Samvinnutrygginga.
Alls námu kröfur í þrotabúið
283,7 milljónum íslenskra króna
miðað við gengi krónunnar í lok
nóvember 1984. Miðað við þróun
lánskjaravísitölu frá árinu 1984 til
ársbyrjunar 1997 jafngildir sú fjár-
hæð um 1.113 milljónum kr.
Lokað í dag
^ Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
ÚTSALA
Munið okkar góðu vörumerki
LOU ROSCH CALIDA
PARÍSARbúðin
Austurstræti 3, s: 551 4566
^ær eru stílhreinar, einfaldar, sterkar
)g umfram allt - á mjög hagstæðu
reröi. Nýkomin sending í svörtu .
/erö frá 1.450-
Danicl
Ray
Stærsta töskuverslun landsins, Skólavöröustíg 7, sími 551-5814
íA(ýkomnar vörurfrá ‘Einnig domu- og herrasíoppar Sendum í póstkröfu.
B YOUNG Gullbrá
Nóatúni, sími 562 4217
Borðstofuborð
og stólar
nttu
431ornnö 1974- munít
Ljósakrónur
*
Ikonar
Full búð fágætra muna
Antík munir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Síðustu dagar
útsölunnar
Opið laugardaginn 15. ágúst
frá kl. 11-14
$T í LL
Skólavörðustíg 4a, sími 551 3069
USALAN
ER HAFIN
20—60%
afsláttur
Laugavegi 4, sími 551 4473
Síðustu dagar
útsölunnar
HVERFISGATA 6 - 101 REYKJAVÍK - SÍMI 562 2862