Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Talebanar halda sókn sinni áfram í Afganistan Vígi stjórnarandstæð- inga falla eitt af öðru Kabúl, Teheran, Moskvu. Reuters. „Sér“í gegnum klæði Tókýó. Reuters. Raftækjaframleiðandinn Sony hefur stöðvað útflutning á til- tekinni gerð myndbandsupp- tökuvéla eftir að í Ijós hefur komið að nota má hana til að taka helst til nákvæmar mynd- ir af þeim sem lenda framan við linsuna. Umrædd myndavélargerð býður upp á innrauða upptöku- tækni sem nota má til mynda- töku í myrkri. En í ljós hefur komið að ef þessi tækni er not- uð í dagsbirtu ásamt tiltekinni ljóssíu „sér“ myndavélin í gegnum fót - nærfót koma í ljós og þeir sem eru i sundfót- um virðast alveg naktir. Fulltrúi Sony sagði fyrirtæk- ið fyrst hafa fengið vitneskju um þennan möguleika þegar fréttamenn hefðu farið að spyrja út í þessa „nýjung“. Lestar- slys í Finnlandi Helsinki. Reuters. FJÓRTÁN slösuðust lítillega í lestarslysi í Finnlandi í gær. Hraðlest með 50 farþega á leið til Helsinki ók beint framan á flutningalest við lestarstöðina í Suonenjoki. Ekki er Ijóst um til- drög slyssins en báðar lestirnar voru áýtilli ferð þegar það varð. Á myndinni sést hvar fremsti hluti farþegalestarinnar hvílir ofan á flutningalestinni. PRÓFESSOR sem talinn var hafa sýnt fram á að genabreytt matvæli gætu reynst hættuleg hefur verið leystur frá störfum eftir að Rowett- rannsóknarstofnunin í Aberdeen, þar sem hann vann, komst að því að hann gat ekki iagt fram gögn er studdu sumar af þeim niðurstöðum sem hann kvaðst hafa fengið. Prófessorinn, Arpad Puztai, sagði frá því á mánudag að niðurstöður sínar sýndu að genabreytt fæða gæti hamlað vexti rottna og valdið skemmdum á ónæmiskerfí þeirra. HERSVEITIR Talebana í Afganist- an héldu áfram sókn sinni í gær þeg- ar þeir náðu á sitt vald höfuðvígjum stjórnarandstæðinga í mið- og norð- austurhluta landsins. Borgin Pul-i- Khumri í Baghlan-héraði, sem þótti afai- mikilvæg_ stjórnarandstæðing- um, féll fljótt og auðveldlega í hend- ur Talebana sem og borgin Hairatan sem liggur nærri landamærum Úz- bekistans í norðurhluta Afganistans. Burhanuddin Rabbani, fyrrverandi forseti landsins, sagði hins vegar í gær að herir stjórnarandstöðunnar hefðu langt frá því sagt sitt síðasta orð. Fyrr í gær tóku Talebanar borgina Nahrin þar sem hluti herliðs Masood fyrrverandi herforingja Afganistan- stjórnar, sem Talebanar steyptu af stóli árið 1996, hafði aðsetur. Gerir fa.ll borgarinnar það að verkum að TEKIST hefur að miðla málum svo að deilendur í borgarastríðinu í Gíneu-Bissá setjist að samninga- borði og reyni að fmna friðsamlega lausn deilunnar, en vopnahlé hefur verið í gildi á milli stjórnar og upp- reisnarmanna frá 26. júlí. Efna- hagsbandalag Vestur-Afríkuríkja (ECOWAS) hefur haft forgöngu um að stilla til friðar í Gíneu-Bissá en hópur portúgölskumælandi ríkja í Vestur-Afríku hefur einnig reynt að leggja deilendum lið. Kvaðst hann hafa fóðrað rotturnar á genabreyttum kartöflum í 110 daga og hefðu rannsóknirnar leitt ofangreindar niðurstöður í Ijós. Andrew Chesson, vísindamaður og fulltrúi Rowett, sagði í gær að stofnunin hefði fengið fjölda fyrir- spurna í kjölfar fregnanna af rann- sókn Puztais þar sem farið hefði verið fram á upplýsingar um þau gögn sem rannsóknin hefði verið byggð á. „Við báðum dr. Puztai að safna þessum upplýsingum saman þannig að við gætum dreift þeim, en Masood á erfitt með aðgang að birgðastöðvum sínum í Panjsher- dalnum, um 90 kílómetra norðaustur af höfuðborginni Kabúl. I fyn’adag féll borgin Taloqan, höfuðborg Takh- ar-héraðs, í hendur Talebana. Rússar órólegir Rússnesk stjómvöid tilkynntu í gær að þau hygðust efla vamii' þeirra landa innan Samveldis sjálf- stæðra ríkja sem landamæri eiga að Afganistan. Hafa þau áhyggjur af framgangi Talebana, sem þau telja íslamska öfgatrúarmenn, og þótt Rússland eigi ekki sjálft landamæri að Afganistan vilja stjórnvöld þar verja landamæri samveldisríkjanna Tadjíkistan og Úzbekistan. Sagði Igor Sergeijev, varnarmálaráðherra Rússlands, í gær að aukin hætta staf- aði af Talebönum og að að Rússar Átök blossuðu upp í Gíneu-Bissá í byrjun júní þegar forseti landsins, Joao Bemardo Vieira, rak yfirmann hersins, Ansumane Mane, og sak- aðai hann um vopnasmygl. Mane snerist gegn forsetanum og gerðist leiðtogi uppreisnarmanna í landinu. Hann hefur hingað til ekki viljað að ECOWAS miðlaði málum í stríðinu í Gíneu-Bissá. Gínea-Bissá var áður portúgölsk nýlenda, en hlaut sjálfstæði árið 1973. þegar nánar var að gáð kom í Ijós ósamræmi á nokkrum stöðum," sagði Chesson við Reuters. Astæða þess að Puztai hafi verið leystur frá störfum væri sú, að ekki hefði reynst unnt að skjóta stoðum undir sumar þeirra fullyrðinga sem hann setti fram um áhrif gena- breyttu kartaflnanna á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann byggi yfir. Sumar þeirra langtímafóðrun- arrannsókna sem Puztai hafi gert hafi reynst ófullnægjandi. Fullyrðingar Puztais rötuðu á áskildu sér sér rétt til að verja landa- mæri samveldis sjálfstæðra ríkja. Talebanar hafa svarið þess eið að koma á fót strangtrúaðasta íslams- ríki á jörðinni en hafa einungis hlotið viðurkenningu Pakistans, Saudi- Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Hafa þeir undan- famar fjórar vikur unnið marga sigi’a á hersveitum stjórnarandstöð- unnar og náðu um síðustu helgi Maz- ar, sem var síðasta stórborgin sem stjórnarandstæðingar héldu. Era þefr nú í óðaönn að tryggja stöðu sína í Mazar en á síðasta ári mistókst þeim í tvígang að ná borg- inni á sitt vald. Stjórnarandstæðing- ar hafa einungis 10% landsvæðis í Afganistan á sínu valdi og telja fréttaskýrendur víst að atburðir lið- inna daga hafi veikt andspyrnu þeirra enn frekar. Fékk raf- lost frá farsíma SÆNSK kona sem segist hafa fengið raflost af farsíma sínum hefur krafíst skaðabóta frá far- símafyrirtækinu Motorola, að því er greint var frá í sænska dagblaðinu Aftonbladet í vik- unni. Vekja staðhæfingar kon- unnar nokkra furðu í farsíma- heiminum. Konan heldur því fram að hún hafí fengið svo öflugt raflost frá sfmanum að hún hafí tapað heyrn á öðru eyra og hálft and- lit hennar lamaðist. Staðhæfír konan að þetta hafí gerst þegar hún tengdi farsíma við sígar- ettukveikjara í bíl sfnum. Við athugun fundu fulltrúar Motorola ekkert athugavert við símann eða útbúnað hans. Mun hins vegar leiðslan sem konan tengdi símann við sígarettu- kveikjarann ekki vera viður- kennd af fyrirtækinu en það hyggst samt sem áður rannsaka málið til hlítar enda er staðhæft að konan hafí fengið yfir hund- rað volta rafmagnsstraum. Því eiga sérfræðingar reynd- ar erfitt með að trúa enda mun farsiminn einungis ganga fyrir tólf volta rafhlöðu og því erfítt að sjá hvernig hann gæti leitt svo mikinn straum í gegnum sig. Telja menn einu hugsanlegu skýringuna geta verið þá að við skammhlaup hafi rafhlöður sím- ans skyndilega leitt í gegnum sig mjög háan straumstyrk. forsíður fjölda blaða víðs vegar í heiminum, þ.ám. Morgunblaðsins, og nokkrir breskir stjórnmálamenn gengu svo langt að krefjast þess að bann yrði sett við sölu á genabreytt- um matvælum. Chesson sagði í gær að óráðlegt væri að draga nokkrar ályktanir af þeim upplýsingum sem lægju fyrir. Bandaríska líftæknifyr- irtækið Monsanto hefur varið um einni milljón sterlingspunda í aug- lýsingaherferð í Bretlandi þar sem ágæti genabreyttrar fæðu er tíund- að. Eldflaug springur ELDFLAUG sem bar með sér háleynilegan njósnagervihnött sprakk í loft upp skömmu eftir geimskot frá Canaveral-höfða í Flórída í gær, að því er bandaríski flugherinn greindi frá. Ástæða sprengingarinnar er ókunn, en talið er að tjónið nemi um einum milljarði doll- ara. Geimferðasérfræðingar hafa leitt getum að því að gervihnötturinn hafi verið ætl- aður til hlerana á „heitum svæðurn" eins og í Mið-Aust- urlöndum, Indlandi, Pakistan og Kína. Hækkerup til NATO? DANSKA dagblaðið Jyllands- Posten sagði frá því í gær að varnarmálaráðherra Dan- merkur, Hans Hækkerup, væri líklegur eftirmaður Ja- viers Solana á framkvæmda- stjórastóli Atlantshafsbanda- lagsins (NATO). Solana mun láta af starfmu í lok næsta árs. Borgarstjóri Teheran áfrýjar BORGARSTJÓRINN í Teheran, Gholamhossein Kar- baschi, hefur áfrýjað dómi fyr- ir spillingu, sem féll í síðasta mánuði. Hans bíður nú fimm ára fangelsisvist, auk þess sem honum er meinað að gegna op- inberum embættum og gert að greiða háa sekt, felli áfrýjun- ardómstóll ekki fyrri úrskurð úr gildi. Nýnazistar neita mála- miðlun NÝNAZISTAR í Danmörku hafa neitað að fallast á tilboð lögreglunnar í Köge um að þeir fái að koma saman á lysti- bátahöfn bæjarins á laugar- dag, en bæjaryfirvöld hafa lagt bann við fyrirhugaðri göngu samtaka þeirra um mið- bæinn. Leiðtogi nýnazistanna, Jonni Hansen, segir að þeir muni leita réttar síns hjá dómsmálaráðuneytinu. Taívanar fangelsaðir DÓMSTÓLL í Peking dæmdi í gær Kou Chien-ming, sem rekur útgáfufyrirtæki á Taív- an, í fjögurra ára fangelsi fyrir njósnir. Þrír aðrir menn voru sýknaðir íyrir að hafa veitt „mikilsverða aðstoð“ við lausn málsins. Reuters SamningsgTund- völlur í Gíneu-Bissá Abidjan. Reuters. Efasemdir um rannsóknir á hættum genabreyttra matvæla Höfundinum vikið úr starfi London. Reuters.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.