Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BÓKASALA í júlí
Röð Var'Titill/Hðfunduf/Otgefandi
1 ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN (A ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Steindór Steindórsson
frá Hlöðum/lslenska bókaútgáfan.
2 AMAZING ICELAND (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Texti eftir Helga Guðmundsson og
Ijósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið
3 ÍSLAND, EYJAN HLÝJA í NORÐRI (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Texti eftir Torfa H.
Tulinius og Ijósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið.
4 EKKI KLÚÐRA LÍFI ÞÍNU KONA/ Laura Schlessinger/Vöxtur.
5 ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG ÆVINTÝRI (Á ýmsum tungumálum)/
/lceland Review.
6 SJÁLFSTÆTT FÓLK/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell.
7 LANDSCAPES (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Ljósmyndir Sigurgeir Sigurjónsson og
texti Sigurgeir Sigurgeirsson/Forlagið
8 HEIMSATLAS/ Ritstj. Björn Þorsteinsson og Kristján B. Jónasson/Mál og menning.
9 ÍSLENSK FLÓRA/ Ágúst H. Bjarnason/Forlagið.
10 LIFSINS TRE/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning.
Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝPP SKÁLDVERK
1 SJÁLFSTÆTT FÓLK/ Halldór Kiljan LaxnessA/aka-Helgafell.
2 LIFSINS TRE/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning.
3 HÍBÝLI VINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning.
4 ENGLAR ALHEIMSINS/ Einar Már Guðmundsson/Mál og menning.
5 GYLTING/ Marie Darrieusseq/Mál og menning.
6 ILMURINN/ Patric Súskind/Forlagið.
7 RIDDARAR HRINGSTIGANS/ Einar Már Guðmundsson/Mál og menning.
8-9 ENGILL MEÐAL ÁHORFENDA/ Þorvaldur Þorsteinsson/Bjartur.
8-9 KVEÐJUVALSINN/ Milan Kundera/Mál og menning.
10 HINIR ÓÐU/Árnór Hannibalsson/Arnór Hannibalsson.
ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ ~
1 HÁVAMÁL/ /Vaka-Helgafell.
2-3 EDDUKVÆÐI/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/Mál og menning.
2-3 LJÓÐ ÚR AUSTRI/ Þorsteinn Gylfason/Mál og menning.
4-5 STEINN STEINARR LJÓÐASAFN/ Steinn Steinarr/Vaka-Helgafell.
4- 5 STÚLKA - LJÓÐ EFTIR ÍSLENSKAR KONUR/ Helga Kress valdi efni/
Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands.
ÍSLENSKAR 0G ÞÝDDAR BARNA- 0G UNGLINGABÆKUR
1 TÓMSTUNDABÓK SIMPSONS FJÖLSKYLDUNNAR/ Matt Groening/Mái og menning.
2-3 ÞAÐ SEM ENGINN SÉR/ Gunnhildur Hrólfsdóttir/Mál og menning.
2-3 LÚLLI LITLI LUNDI (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Kristín Marti/Fjölvi.
4 PÚSLUBÆKUR/ /Mái og menning.
5- 6 HALASTJARNA/ Þórarinn Eldjárn. Sigrún Eldjárn myndskreytti/Forlagið.
5-6 LUKKU-LÁKA BÆKUR/Herve/Fjölvi.
7 í LOFTBELG YFIR HAFIÐ/ Mats Wahl/Mál og menning.
8 ÚLFURINN OG SJÖ KIÐLINGAR/ Richard Scarry/Björk
9 LITLI PRINSINN/ Antonie de Saint-Exupéry/Mál og menning.
10 STAFRÓFSKVER/ Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn/Forlagið.
ALMENNT EFNI 0G HANPBÆKUR
1 ÍSLENSKA VEGAHANDBÓKIN (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Steindór Steindórsson
frá Hlöðum/islenska bókaútgáfan.
2 AMAZING ICELAND (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Texti eftir Helga Guðmundsson og
Ijósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið
3 ÍSLAND, EYJAN HLÝJA í NORÐRI (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Texti eftir Torfa H.
Tulinius og Ijósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson/Forlagið.
4 EKKI KLÚÐRA LÍFI ÞÍNU KONA/ Laura Schlessinger/Vöxtur.
5 ISLANDSKE FOLKESAGN OG EVENTYR (Á ýmsum tungumálumj/
/lceland Review.
6 LANDSCAPES (Á ÝMSUM TUNGUMÁLUM)/ Ljósmyndir Sigurgeir Sigurjónsson
og texti Sigurgeir Sigurgeirsson/Forlagið
7 HEIMSATLAS/ Ritstj. Björn Þorsteinsson og Kristján B. Jónasson/Mál og menning.
8 ÍSLENSK FLÓRA/ Ágúst H. Bjarnason/Forlagið.
9 ÍSSKÁPASERÍAN/ Þýðandi Þórdis Hadda Yngvadóttir/Vaka-Helgafell.
10 ÍSLENSKAR LÆKNINGAJURTIR/Arnbjörg Jóhannsdóttir/Mál og menning.
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið: Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla KÁ, Selfossi
Bóksala stúdenta v/Hringbraut
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Eymundsson, Kringlunni
Penninn, Hallarmúla
Penninn, Kringlunni
Penninn, Hafnarfirði
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka á sölu bóka í júlí 1998 Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur
sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tfmablli, né kennslubækur.
LISTIR
YFIRLITSMYND af „Sýningn fyrir allt“ á Seyðisfirði.
Andi
Dieters
MYNPLIST
Skaftfell, Seyðisfirði
INNSETNINGAR/
HUGMYNDALIST
ÝMSIR LISTAMENN
Opið 12 til 18. Aðgangseyrir 300 kr. á
allar sýningar á Seyðisfirði. Sýningin
stendur til 16. ágúst.
Á SEYÐISFIRÐI hefur nú í sum-
ar staðið mikil listahátíð og hefur
dagskráin verið fjölbreytt. Af mynd-
listarsýningum er samsýning í hús-
inu Skaftfelli við Austurveg einna
eftirtektarverðust, en þar má sjá
verk eftir stóran hóp listamanna á
ýmsum aldri og eru verkin, eins og
sýningin sjálf, til minningar um og
til heiðurs listamanninum Dieter
Roth sem lést fyrr í sumar. Flestir
listamannanna á sýningunni tengj-
ast Dieter á einn eða annan hátt,
sumir þekktu hann vel og störfuðu
með honum, en allir ólust að
minnsta kosti upp við þá víðsýni og
sköpunarorku sem Dieter innleiddi í
íslenskt listalíf.
Þáttur Dieters Roth í íslenskri
listasögu verður víst seint ofmetinn.
Hann var fæddur í Hannover árið
1930 og hóf feril
sinn í Sviss og
dvaldi um tíma í
Kaupmannahöfn,
en fluttist til Is-
lands árið 1957.
Hér heima
kynntist hann
ungum lista-
mönnum og
höfðu hann og
þeir straumar
sem hann veitti
með sér frá meginlandinu gríðarleg
áhrif á marga þeirra. Dieter var
kunnugur mörgum þeirra evrópsku
listamanna sem seinna kenndu sig
við Flúxus og var hann raunar á
ýmsan hátt leiðandi meðal þeirra.
Margir þessara listamanna komu til
íslands ýmist fyrir tilstilli Dieters
eða einfaldlega til að heimsækja
hann og því atvikaðist það svo að
ungir íslenskir listamenn á sjöunda
og áttunda áratugnum fengu tæki-
færi til að vinna og jafnvel sýna með
mörgum af framsæknustu og þekkt-
ustu listamönnum Vesturlanda.
Ungir listamenn á íslandi gátu því
réttilega talið sig vera í miðri hring-
iðu samtímalistarinnar og var það að
miklu leyti Dieter Roth að þakka.
Eins og Magnús Pálsson orðaði það
einhvern tíma: ,Án Dieters hefði
þetta kannski allt saman farið fram
hjá okkur.“
Dieter Roth
i
,PNv« T f í 1 ll 1
f f % . L' „•
|FK* 1
|§ f
YFIRLITSMYND af sýningu Péturs Kristjánssonar,
„Kæri viðtakandi“.
Það er því vel við hæfi að íslenskir
listamenn efni til sýningar til heið-
urs Dieter nú þegar hann hefur lát-
ist um aldur fram og það er viðeig-
andi að sýningin sé sett upp á Seyð-
isfirði því þar dvaldi Dieter oft síð-
ustu árin og átti þar hús. Allt of
langt mál yrði að telja hér upp alla
þá sem eiga verk á sýningunni enda
er þai- að fmna stykki eftir flesta þá
yngri listamenn sem eitthvað hefur
borið á síðustu árin. Flest láta verk-
in frekar lítið yfir sér og nær öll
bera skýrt vitni þeirra áhrifa sem
Dieter veitti hingað upp; mörg eru
samsett úr fundnum hlutum,
ómerkilegum rifrildum eða brotum
sem öðlast óvænta merkingu þegar
þeim er komið fyrir í nýju samhengi.
Þótt flestir þessara listamanna hafi
þróað list sína áfram og vinni nú á
eigin forsendum sýna þessi verk
glöggt hve nærtæk þeim eru vinnu-
brögðin og sú fagurfræðilega af-
staða sem Dieter boðaði. Þessi sam-
sýning er eins konar staðfesting á
þeim sameiginlegu forsendum sem
liggja að baki svo miklu af íslenski-i
samtímalist. Þrátt fyrir mikla fjöl-
breytni má sem sagt greina þar
sterkan þráð.
Áhrifa Dieters gætir auðvitað
mun víðar en á Islandi því frá upp-
hafi sýndi hann míkið, bæði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum, og átti í
samstarfi við fjölmarga aðra alþjóð-
lega listamenn. Strax árið 1971 var
haldin einkasýning á verkum hans í
Samtímalistasafninu í London og
fyrir nokkrum árum stóð Samtíma-
listasafnið í Chicago fyrir umfangs-
mikilli yfirlitssýningu á verkum
hans þar sem farið var yfir allan fer-
il hans. Einna mest hafa áhrif Diet-
ers þó iíklega verið í gegnum bók-
verk hans og útgáfustarfsemi, en á
því sviði var hann stórtækur. Meðal
þess sem hann gaf út var tímarit á
íslensku og þýsku - Zeitschrift fur
Alles eða Tímarit fyrir allt. Af titli
þessa tímarits er yfirskrift sýning-
arinnar á Seyðisfirði dregin og heit-
ir hún „Sýning fyrir allt“.
Skaftfell, Seyðisfirði
INNSETNING
PÉTUR KRISTJÁNSSON
PÉTUR Ki-istjánsson fæddist í
Ameríku árið 1952 en býr á Seyðis-
firði og hefur eins og hann segir
sjálfur verið undanfarin ár í námi hjá
Dieter Roth. Hann sýnir í stóru rými
á efri hæð hússins Skaftfells við
Austurveg á Seyðisfirði, fyrir ofan
samsýninguna sem tileinkuð er
minningu Dieters. Það er óhætt að
segja að áhrifa Dieters gæti greini-
lega í innsetningu Péturs. Alls kyns
hlutum hefur verið komið fyrir í
samsetningum sem virðast næstum
handahófskenndar en fylgja þó ein-
hverri vart greinanlegri reglu.
Áhorfandanum fmnst kannski eins
og hann sé kominn á einhvers konar
safn þar sem hlutum er raðað eftir
flokkunarkerfi sem hann þekkir ekki
og getur ekki greint samhengið í.
Eðlilegu samhengi er breytt svo úr
verður nýtt og síðan ki’ukkar lista-
maðurinn svolítið í hlutina hér og
hvar svo yfir allt leggst nýtt merk-
ingarlag. Hér er því um að ræða eins
konar décollage í anda þeirra Diet-
ers og Wolfs Vostell, eins konar af-
hjúpun á þeirri merkingu sem liggur
falin í hversdagslegum hlutum, eða
framsetningu á merkingu sem hvers-
dagslegir hlutir geta öðlast umfram
það sem þeim var í upphafi ætlað.
Sýningu sinni hefur Pétur valið yfir-
skriftina „Kæri viðtakandi" og talar
þannig beint til áhorfandans. Sýning
hans er í senn látlaus og ögrandi,
samræða við sýningargestinn um
veruleikann, hlutina og lífið, án alls
ofstopa, en þó í fuliri alvöru. Verk
Péturs eru þannig afbragðsgóð við-
bót við samsýninguna til heiðurs Di-
eter Roth á neðri hæð hússins, en
um leið sjálfstætt framlag til hinnar
óendanlegu samræðu um samhengi
og samhengisleysi lífsins og listar-
innar.
Jón Proppé