Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 17 Staða hörpudisks á markaði erlendis fer batnandi Nokkrir bátar eru nú að hefja vertíðina EITTHVAÐ er ennþá eftir af afla- heimildum í hörpudiski á þessu fiskveiðiári og munu nokkrir bátar fara á veiðar næstu daga. Kvótinn á fiskveiðiárinu er um 10 þúsund tonn og veiddist mest af því síðast- liðið haust og eitthvað lítilsháttar fram yfir áramót. Beðið hefur verið með veiðar á því sem eftir er af kvótanum þar til nú m.a. vegna þess að nýtingin á hörpudiskinum er ekki sem best yfir sumarið. Veið- arnar hefjast síðan af fullum krafti þegar nýtt kvótaár hefst 1. septem- ber næstkomandi. Langmest á Frakkland Á síðasta ári veiddust rúmlega 10.400 tonn af hörpudiski en árið 1996 voru veidd tæp 8.900 tonn. Aflinn í fyrra var sá mesti síðan 1993 og endurspeglar batnandi stöðu á erlendum mörkuðum, en mest af hörpudiskinum fer á mark- að í Frakklandi og eru engar birgð- ir nú til í landinu. Útflutningsverð- mætið í fyrra var um einn milljarð- ur króna samanborið við 560 millj- ónh- króna árið áður. í fyrra var aflinn að venju mest- ur í Breiðafirði, eða um 8.900 tonn, og var meðalaflinn þar á veiðistund 1.720 kíló og hefur hann aldrei ver- ið meiri. I Húnaflóa var veiðin um 950 tonn í fyrra, en á árunum 1993- 1996 var veiðin þar um 400 tonn á ári. Meðalaflinn á veiðistund var í fyrra sá mesti þar síðan um 1980, eða 537 kíló. Stafar það bæði af því að sókn hefur verið lítil á svæðinu undanfarin ár og ennfremur að veiðitæknin hefur aukist. I fyrra hófust veiðar á nýjan leik í Hval- firði eftir 15 ára hlé, en stofnmæl- ingar sem gerðar voru í Hvalfirði leiddu í ljós að stofninn á svæðinu er vaxandi. Sveiflukenndur markaður Að sögn Sigurðar Ágústssonar, framkvæmdastjóra hjá Sigurði Ágústssyni ehf. í Stykkishólmi, reiknar hann með að fyrirtækið taki á móti um 400 tonnum af hörpudiski i þessum mánuði. „Þetta eru tveir bátar hérna í Breiðafirði og síðan eru þrír bátar í Húnaflóa. Okkar eigin bátur, Krist- inn Friðriksson, var svo að fara á tilraunaveiðar í Vopnafirði og eig- um við von á fyrstu fréttum frá honum innan skamms. Eg held að menn séu sammála um að útlitið á mörkuðum sé mjög gott eða óbreytt frá því í fyrra. Verð hækk- aði mikið þá en hráefnisverð hækk- uðu þá líka mjög mikið,“ sagði Sig- urður. Meðal annarra sem fara á hörpu- diskveiðar á næstu dögum er einn bátur sem landar hjá Rækjunesi í Stykkishólmi. Að sögn Irisar Jó- hannsdóttur hjá Rækjunesi á sá bátur eftir eitthvað lítilsháttar af kvóta en veiðarnar fara síðan á fullt aftur eftir 1. september. „Þetta gekk ljómandi vel á þessu fiskveiðiári og markaðurinn var góður, en maður veit ekki hvernig þetta verður núna þar sem þetta er sveiflukenndur markaður," sagði hún. Gengur bæði upp og niður Hjá Þórsnesi í Styktóshólmi kláraðist kvótinn, sem var um 900 tonn, í fýrrahaust, og svipaða sögu er að segja hjá Fistóðjunni Skag- firðingi í Grundarfírði. Að sögn Jóns E. Friðrikssonar framkvæmda- stjóra var kvótinn rúmlega 1.000 tonn upp úr sjó og sagði hann mark- aðina hafa verið ljómandi góða en hörpudiskurinn irá Fistóðjunni Skagfirðingi fór allur til Frakklands. „Þetta var allt tetóð á þremur mánuðum og nánast var gengið frá sölu á því íyrirfram. Þetta gekk mjög ljúflega þá en annars gengur þetta svona upp og niður. Við fór- um ekkert í gang aftur fyrr en á nýju fiskveiðiári en það á eftir að setjast svolítið yfir þetta með bát- ana hjá okkur,“ sagði Jón. ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI hörpudisks í fyrra var um einn milljarð- ur króna samanborið við 560 milljónir króna árið áður. MMC Fisktækni selur fyrstu ósonkerfín MMC Fisktækni hefur nú gengið frá sölu á fyrstu ósonkerfunum frá Osotech/MMC hér á landi. Alls hef- ur verið staðfest sala á kerfum í fimm báta og mjög lítóega í þijá til viðbótar, að sögn Björgvins Ingva- sonar, sölumanns hjá MMC Fisk- tækni. Þau stóp, sem þegar hafa gengið frá sölu, eru Beitir NK, Börkur NK, Þórshamar GK, Jón Kjartansson SU og Hólmaborg SU. Að sögn Björgvins hafa kerfi þessi valdið byltingu í meðferð afla og hreinleika í lestum stópa, sem eru búin sjókælikerfum, frá því að þau voru fýrst sett upp fyrir um ári í tvö norsk skip til prufu. „Eftir að það spurðist út hversu vel kerfin virkuðu varð hrein og klár spreng- ing í sölu á kerfunum og nú eru seld yfir eitt hundrað kerfi fi’á Osotech/MMC til útgerða í Noregi, Færeyjum, Skotlandi, Irlandi, Chile og nú bætist ísland í hópinn.“ — skemmtilegi btlinn Árrnúla 13 • Sími 575 1220 • Skiptiborð 575 1200 i p'siuJd Álfylyuf '^JlJ j rj j ýrawsuljýzj frá kr. Hyundai Huyndai Accent er glæsilegur og rúmgoður fjölskyldubíll á verði smábíls. Hyundai Accent fæst bæði með 1,3 og 1,5 vél; 3, 4 og 5 dyra. Kynntu þér Hyundai Accent, sölumenn okkar veita allar nánari upplýsingar 995 000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.