Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Vil halda flotta tónleika
á Islandi
Það er býsna langt síðan landinn hefur
heyrt í Svölu Björgvinsdóttur. Nýlega birt-
ist við hana viðtal í Sunday Mail þar sem
hún er að vinna nýja plötu með skoska
upptökustjóranum Ian Morrow.
SVALA hóf söngkonuferil sinn
óvenju snemma þegar hún söng,
sjö ára að aldri, bakraddir á plötu
hjá pabba sínum, Björgvini Hall-
dórssyni. Fram að tólf ára aldri
söng hún inn á þrjár jólaplötur
með pabba, en stofnaði síðan sína
eigin hljómsveit, „Scope“, sem átti
þið geysivinsæla lag „Was It All It
Was“. Hún varð söngkona í
„Bubbleflies", söng mikið og gaf út
smáskífur með þeim.
I dag er hún 21 árs og hefur lok-
ið upptökum á fyrstu sólóplötu
sinni.
Lög alls staðar frá
- Hver eru upptökin að þessari
plötu?
„Eg er á samningi hjá Jóni
Olafssyni í Skífunni og hann kynnti
mig fyrir Ian Morrow, sem ég er
núna búin að þekkja í fjögur ár og
við erum mjög góðir vinir. Ian
heyrði eitthvert lag með mér og
leist vel á þannig að úr því varð
samvinna. Hann fór að semja fyrir
mig og við höfum líka samið nokk-
ur lög saman. Eg var reyndar að
klára Kvennaskólann í vor og hef
verið að taka upp plötuna í tvö ár
meðfram náminu."
- Eru fleiri lagahöfundar?
„Já, Ian semur sex lög, við
semjum fjögur saman og svo fékk
ég send lög alls_ staðar að úr heim-
inum, frá Ástralíu, Kanada,
Bandaríkjum, Bretlandi og úr
þeim valdi ég þau sem mér fannst
*óð.“
- Er einhver úr Wet Wet Wet
sem kemur nálægt gerð plötunn-
ar?
„Já, Ian hefur verið aðstoðar-
upptökustjóri á flestum plötunum
þeirra. Þannig kynntist ég Neil,
hljómborðsleikaranum, sem er
mjög góður vinur minn og hefur
unnið með mér tvö lög á plötunni
auk þess að spila inn á mörg
þeirra."
Vinna í Bandaríkjunum
að
OPIÐ TIL KL. 21
í KVÖLD Á
LAUGAVEGINUM
- Eru Ameríkanarnir farnir
vonast eftir samningi við þig?
„Við stöndum einmitt núna í
samningaviðræðum við Ameríkan-
ana. Eg vil helst vinna út frá
Bandaríkjunum því þetta er R&B-
tónlist, sem er amerísk og vin-
sælust þar. Þeir kunna alla mark-
aðsfræðina í sambandi við þessa
tegund tónlistar. Það er fyrirtæki í
Los Angleles sem kemur mjög
sterklega til greina sem útgefandi
því það sýnir mikinn áhuga og hef-
ur fylgst með okkur frá upphafi."
- Hversu langt erplatan komin?
„Við erum að fara að
hljóðblanda hana og vonandi
kemur hún út í byrjun
næsta árs. Hún hefur ekki
fengið neitt nafn ennþá, þó
að margar hugmyndir hafi
komið upp. Við erum að
byrja á upptöku mynd-
bandanna núna eftir tvær
vikur.“
- Er satt að það sé verið að
gera um þig heimildamynd?
„Já, Saga film hefur fylgst
með öllu sem ég geri síðastliðið
ár og fer með mér út.“
- Er það ekki leiðinlegt?
„Neinei, upptökumennirnir
eru mjög skemmtilegir, þeir
Ottar og Lalli. Eg þekki þá og
það er fínt að hafa með sér
hressa náunga.“
R&B á uppleið
- Hvenær fáum við að sjá þig
á tónleikum?
„Það verða útgáfutónleikar
örugglega á nokkrum stöð-
um, einhvers staðar erlendis
en alveg pottþétt hér, því ég
vil endilega halda flotta tón-
leika á íslandi."
- Finnst þér ekki R&B-tón-
list vera á mikilli uppleið á
íslandi?
„Jú, allt í einu. Þegar ég
byrjaði á þessu verkefni
fyrir þremur árum var
þessi tónlist ekki mikið
spiluð á útvarpsstöðvum
almennt, heldur bara í sér-
stökum þáttum. En nú er R&B
orðið mjög vinsælt, sem er gaman
og betra fyrir mig.“
- Hvað bíður þín Svala ef platan
slær ígegn erlendis?
„Ég veit það ekki. Ég er búin
að vinna svo mikið í þessari plötu,
að mér finnst eins og ég eigi
aldrei eftir að klára hana. Ég er
alltaf að taka upp aftur til að hafa
þetta allt sem flottast. Þannig
spái ég ekkert í það heldur hlakka
bara til þegar platan kemur loks-
ins út.“
UTSOLULOK
Á LAUGARDAG
Aðeins 3 dagar eftir
Enn meiri verðlækkun
flllt að
70
Opið
% atsi. mm
1 1 f- ’ s
í/
KNÍCXKR3
Mán.-fim. frá kl. 10-18
Fös. frá kl. 10-18.30
Lau. frá kl. 10-16
Langur laugardagur
frá kl. 10-17
Laugavegi 91, sími 511 1717.
NYTT
KORTATÍMABIL
Sendum í póstkröfu
:< n : c :< h R3 0x
Laugavegi 62, sími 5515444