Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 16

Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Bændur bjóða heim BÆNDUR á tuttugu og fjórum bæjum víðs vegar um landið bjóða öllum sem koma vilja í heimsókn sunnudaginn 16. ágúst kl. 13-20. Þetta er fimmta sumarið í röð sem bændur bjóða gestum og gangandi heim á bú sín. Tilgangur heimboðsins er að gefa fólki tæki- færi til þess að fá innsýn í lífið í sveitinni og búreksturinn. Mismun- andi er hvað stendur til boða á hverjum bæ en víðast er hægt að hitta dýr, njóta töðuilms og sveita- lofts og annars sem sveitin hefur upp á að bjóða, m.a. gefst fólki sums staðar kostur á að fara á hestbak. Bæirnir verða auðkenndir með fánum með merki landbúnaðarins en þeir eru að þessu sinni: 1. Dalsbú í Mosfellsdal, við veg 36 (minkabú). 2. Bakki á Kjalarnesi, við veg 1 (nautgripir, hross). 3. Sauðafell í Dölum, 17 km frá Búðardal, við veg 60 (blandað bú). 4. Kirkjuból í Valþjófsdal, 17 km frá Flateyri, við veg 625 (blandað bú). 5. Syðra-Skörðugil á Langholti, 5 km frá Varmahlíð, við veg 75 (blandað bú). 6. Garðakot í Hjaltadal, 23 km frá Hofsósi og Sauðárkróki, við veg 767 (nautgripir). 7. Litla-Brekka á Höfðaströnd, 5 km frá Hofsósi, við veg 76 (blandað bú). 8. Sakka í Svarfaðardal, 5 km frá Dalvík, við veg 807 (blandað bú). 9. Stóri-Dunhagi í Hörgárdal, 12 km frá Akureyri, við veg 815 (blandað bú). 10. Bakki í Öxnadal, 30 km frá Akureyri, við veg 1 (blandað bú). 11. Víðigerði í Eyjafírði, 15 km frá Akureyri, við veg 821 (blandað bú). 12. Ytri-Tjarnir í Eyjafirði, 13 km frá Akureyri, við veg 829 (nautgrip- ir, hestar). 13. Halldórsstaðir í Bárðardal, 82 km frá Húsavík, við veg 842 (bland- að bú). 14. Baldursheimur I í Mývatns- sveit, 71 km frá Húsavík (blandað bú). 15. Baidursheimur II í Mývatns- sveit, 71 km frá Húsavík (blandað bú). 16. Einarsstaðir í Vopnafirði, 25 km frá Vopnafirði veg 919 (sauðfé). 17. Hof í Fellum, 16 km frá Fella- bæ, við veg 931 (blandað bú). 18. Þrep í Eiðaþinghá, 5,5 km frá Egilsstöðum, við veg 94 (loðdýra- bú). 19. Sólheimahjáleiga í Mýrdal, 25 km frá Vík, við veg 1 (blandað bú). 20. Lambhagi á Rangárvöilum, 8 km frá Hellu og Hvolsvelli, við veg 1 (blandað bú). 21. Heiði í Biskupstungum, 52 km frá Selfossi, við veg 35 (blandað bú). 22. Melar á Flúðum, við veg 30 (garðyrkja). 23. Litlu-Reykir í Hraungerðis- hreppi, 11 km frá Selfossi, við veg 304 (blandað bú). 24. Núpar I—II í Ölfusi, 3 km frá Hveragerði, við veg 38 (blandað bú). HÉfMOmRK SniöHöAavarnlr Sigluíiröi Morgunblaðið/Sigríður Ingvadóttir STARFSMENN Héraðsverks sem vinna við leiðigarðana. Snjóflóðavarnir ofan við Siglufjörð Unnið dag og nótt við leiðigarða Siglufirði - Framkvæmdir við leiði- garða ofan við Siglufjörð ganga vel og er verkið á undan áætlun. Vonast er til að annar garðurinn verði til- búinn fyrir veturinn en leiðigörðun- um er ætlað að varna snjóflóðum úr Jörundarskál og Strengsgili og verja þar með syðsta hluta byggð- arinnar í bænum. Leiðigarðarnir verða tveir, annar um 750 m á lengd en hinn 220 m. Þeir verða 50-60 metra breiðir og hæðin verður 15-18 metrar mælt úr rás sunnan við garðana. Héraðsverk átti lægsta tilboðið í verkið og hljóðaði það upp á 225 millj. kr. Að sögn Sveins Jónssonar, framkvæmdastjóra Héraðsverks, mun verkið nú vera u.þ.b. hálfnað. „Þetta hefur gengið afar vel bæði vegna þess að við höfum ekki orðið fyrir teljandi áföllum og hve við höf- um góðum mannskap á að skipa en nú eru starfandi við verkið um 30 manns og er það fjölmennasti hópur sem Héraðsverk hefur haft í sínum verkum. Veðrið hefur afskaplega mikið að segja í framkvæmdum sem þessum og rysjótt tíð og kuidi hefur einkennt sumarið svo það hefur ekki verið eins og best verður á kos- ið. En veðrið hefur reyndar undan- farið verið afskaplega gott og því hefur verið unnið á vöktum allan sólarhringinn og svo verður eitt- hvað áfram.“ Sveinn sagði að haldið yrði áfram að vinna fram á haustið eins lengi og hagkvæmt þætti en þó yrði eitt- hvað dregið úr þunganum. En stefnt væri á að klára 70-80% af verkinu í ár. Samið var um að verk- inu yrði lokið í september 1999 en talið er að það muni verða búið vel fyrir þann tíma. Veiðiferð í Kringluvatn Vaðbrekku, Jökuldal - Stangveið- ar og útivist eru skemmtileg áhugamál, sérstaklega þegar vel veiðist. Veiðin bregst ekki í Kr- ingluvatni ofan Laxárdals en þangað brugðu ungir og aldnir sér um verslunarmannahelgina til að renna færi. Kringluvatnið er kjörið til að fara með unga krakka í til veiða, fiskurinn í því er að vísu mjög smár en tekur fjörlega svo krakkar hafa þar oft erindi sem erfiði. Það er miklu skemmtilegra fyrir ungdóminn að veiða þegar ekki þarf að bíða kiukkustundum saman eftir að bíti á, því að þolinmæði er ekki alltaf sterkasta hlið ungra krakka. rs?i Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson ÞAÐ voru 8 börn sem tóku fyrstu skóflustunguna að íþróttahúsinu, tvö frá hveiju íþróttafelagi í Snæfellsbæ. Skóflustunga að nýju íþróttahúsi í Snæfellsbæ FYRSTA skóflustunga að nýju iþróttahúsi í Snæfellsbæ var tek- in 8. ágúst sl. Húsinu er ætlaður staður við Engihlíð í Ólafsvík við hlið íþróttavallarins milli kirkj- unnar og skólans. Fjölmenni var viðstatt. Bæjarstjórinn í Ólafsvík, Krist- inn Jónasson, bauð gestina vel- komna og núverandi formaður byggingamefndar, Guðjón Pet- ersen, fyrrverandi bæjarstjóri, flutti ávarp. Það voru svo átta börn sem tóku fyrstu stunguna, tvö frá hveiju íþróttafélagi í Snæfellsbæ. Húsið verður 2.277 fm að stærð. Arkitektastofan Gláma- Kím annaðist teikningar. Verk- takar að fyrsta áfanga eru Bjarni Vigfússon og félagar. Aætlað er að útboð að smíði verði í nóvem- ber. Áætlaður byggingarkostnað- ur er 200 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.