Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 28

Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Kórnum hafði verið boðið í heimsókn til tveggja enskra drengjakóra, drengjakórs Crosfields-skólans í Reading og drengjakórs St. Mary’s Choirschool í Reigate. I Reading var tekið mjög vel á móti drengjunum og var dvalið þar í 3 daga við leiki og söng. Crosfields er einkaskóli í Reading fyrir drengi á aldrinum 4-13 ára. Þar er starfandi drengjakór undir stjórn Stephen Yates, sem mörgum íslendingum er að góðu kunnur, en hann starfaði hér á landi í nokkur ár sem tónlistarkennari. Stephen Yates kom með Crosfíelds-drengjakórinn í heimsókn til íslands í fyrra og voru þeir m.a. gestir hjá Drengjakór Laugarneskirkju og héldu hér tónleika. Þess má geta að í kjölfar þeirrar ferðar gaf drengjakór Crosfields út geisladisk sem ber nafnið The Iceland Tour, og er þar m.a. að finna nokkur íslensk lög. Meðan á dvölinni í Reading stóð fengu íslensku drengirnir að fara í kennslustundir hjá félögum sínum í Crosfields-skólanum og kóræfingar voru í sal skólans. í fyrstu frímínútum hnippti lítill skóladrengur í einn íslenskan kórpilt og spurði kurteislega: „Spilið þið fótbolta á íslandi?“ ( „Do you play football in Iceland"? )... og það var eins og við manninn mælt, út á grasflötina þustu prúðbúnir enskir skóladrengir og íslenskir kórdrengir og leikin var knattspyrna eins og hún gerist best - 40 manna lið Island/England, svo að virðulegir kennarar áttu fullt í fangi með að ná nemendum sínum inn í kennslustund. Haldnir voru tónleikar hinn 19. júní í St.Mary’s Church í Wargrave, sem er ákaflega fallegur bær rétt norður af Reading. Efnisskrá tónleikanna var sú sama og á vortónleikum kórsins í Langholtskirkju 8. júní sl. En auk þess söng drengjakór Crosfields nokkur lög og saman sungu kórarnir María meyjan skæra (ísl. tvísöngslag). Þegar Drengjakór Laugarneskirkju hafði lokið söng sínum við frábærar undirtektir kom í ljós að þeir höfðu komið íbúum Reading ánægjulega á óvart með flutningi á enska þjóðlaginu „Summer is a-coming in/The Cuckoo“ í útsetningu R. Vaughan Williams úr Kantötu „Folk Songs of the Four Seasons", en lag þetta er eitt elsta ritaða þjóðlag sem fundist hefur í Bretlandi og var það skrifað í munkaklaustri í Reading á þrettándu öld. Frá Reading hélt kórinn til Reigate með viðkomu í Legolandi. í Reigate var tekið á móti drengjunum af félögum í St. Mary’s Preparatory and Choir School. en þar hefur verið starfandi drengjakór frá því á 19. öld. Stjórnandi kórsins er Jonathan Rennert, en þess má geta að kór þessi söng í kvikmyndinni: „Four Weddings and a Funeral“. I Reigate var dvalið í góðu yfirlæti í tvo daga. Haldnar voru grillveislur og mikið veitt af froskum, halakörtuni og salamöndrum um allan bæ. Sunnudaginn 21. júní hélt svo Drengjakór Laugarneskirkju tónleika í Reigate Park Church við mjög góðar undirtektir. Morgunblaðið/ Signrborg Sigurðardóttir Drengjakór Laugarneskirkju við St. Michaels Cornhill Church í London. Daginn eftir lá leiðin til London með viðkomu í skemmtigarði þar sem menn fengu útrás í vatnsrennibrautum, rússibönum og alls kyns tækjum. Þriðjudaginn 23. júní var haldið í St. Michaels Cornhill Church í City í London, en í þessari fornu kirkju var tónskáldið Henry Purcell (1659-1695) organisti um tíma, en Drengjakórinn var með verk eftir hann á efnisskrá sinni. Þarna voru haldnir hádegistónleikar með drengjakórunum þrem, frá Reading, Reigate og Laugarneskirkju. Tónleikunum var mjög vel tekið og að þeim loknum tóku við tveir dagar þar sem slegið var á létta strengi með menningarlegu ívafi. M.a. var horft á varðmannaskiptin í Buckinghamhöll, siglt á Thames, litast um í Tower, HMS Belfast og Náttúrugripasafninu og að sjálfsögðu komið við á Wembley-leikvanginum. Drengjakór á enskri grund Drengjakór Laugarneskirkju fór í tónleikaför til Englands fyrr í sumar. Það var hópur 37 drengja á aldrinum 8-14 ára ásamt félögum í eldri deild kórsins 17-19 ára og með í för voru stjórnandi kórsins, Friðrik S. Kristinsson, undirleikari, Peter Máté og raddþjálfarinn Björk Jónsdóttir ásamt 8 foreldrum og var Sigurborg Sigurðardóttir þar á meðal. HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA KYNNIR: BR0A0WAY 13.0614. ÁfiÚSTNLZtíJO Forsala aðgöngumiða í Versluninni Jötu • Hátúni 2 Miðaverð kr. 1.500 Á báða tónleikana kr. 2.200 TONLIST Geisladiskar KJÁR Hilmar Jensson, gítar, og Skúli Sverrisson, bassi. Kjár i.n.m.iv.v.vi.vii.vm. Spuni sem tekinn var upp í Reykjavík í september 1997. Upptökustjóm og úrvinnsla efnis: Skúli Sverrisson. Smekkleysa 1998. HVAÐ er framúrstefnudjass og hvað er frjáls djass? Hvar endar spuninn og hvar byrjar tónsmíðin? Ætli mörkin séu oft ekki heldur óskýr þar á milli. Ætli mörg meist- araverk Jóhanns Sebastians Bachs hafi ekki byrjað sem spuni einsog margur spuni Louis Armstrongs endaði sem heilsteypt tónsmíði. Ymsir frjálsdjassleikarar spinna og spinna og skrifa svo hluta spunans niður. Skúli Sverrisson og Hilmar Jensson spunnu og spunnu í Reykjavík í september í fyrra svo mörgum þótti nóg um, en Skúli fór með afraksturinn til New York og klippti og skeytti af sinni alkunnu snilld í þá átta Kjárþætti sem heyra má á þessum diski. (Kjár er Omur víðátt- unnar ekki að finna í orðabókum en beyg- ist kannski einsog klár?) Þó Skúli og Hilmar séu taldir til hinna fremstu í íslenskum fijáls- djassi er Kjár ekki djassskífa í þeim skilningi sem flestir leggja í það orð - hversu frjálsleg sem túlkunin er. Þær aðrar skífur íslenskar þarsem heyra má þá félaga saman, Dofinn Hilmars Jenssonar og Far Óskars Guðjónssonar, eru hefðbimdnar frjálsdjassskífur, megi taka svo til orða. Þar er leikið á hljóðfærin á næsta hefðbundinn hátt og spunnið á lagrænum og rýþmískum grunni í hefðbundnum skilningi. Ekkert slíkt er að finna á Kjár. Þar er held- ur ekki leikið á hljóðfærin á hefð- bundinn hátt, utan fáein augnablik, heldur eru þau notuð á svipaðan hátt og raftónskáld notar tæki sín og tól til sinnar sköpunar. Mínimalisminn ræður ríkjum á þessari skífu og þetta er frekar hljóðlist en tónlist. Hún er rík af frásagnargleði og náttúrustemn- ingin sterk ekki síður en í Geysi Jóns Leifs og maður sveiflast um undrageim í himinveldi háu við hlustunina. I Kjár I er einsog upp- hafið úr A Silent Way hjá Miles Davis lengist um margfalda þá mínútu sem Bill Laswell lengdi það í endurgerð sinni á margrómuðu meistaraverki Davis á Pantalassa (Columbia), og oftast eru ekki miklir viðburðir í þessari hljóðlist, en þegar styrídeikabreytingar verða, hljóðfæri nálgast hefðina eða rýþmapúlsi bregður fyrir kipp- ist maður við og hugsýnin tekur nýja stefnu þartil að í lokin er slitið á sambandið í bókstaflegri merk- ingu símans. Þessi skífa er sú fyrsta af fjórum er Hilmar Jensson gerir fyrir Smekkleysu og verður spennandi að fá fleiri tilraunadjassskífur ís- lenskar á markað og ef marka má feril Hilmars verða þær fjölbreytt- ar að gerð. Lónkot í Skagafírði Sölvi Helgason og Rökk- urkórinn HALDIN verður dagskrá um Sölva Helgason, öðru nafni Sól- on íslandus, sunnudaginn 16. ágúst kl. 14 í Tjaldi galdra- mannsins í Lónkoti í Skagafirði. Árið 1995 var Sölva reistur minnisvarði í Lónkoti og opnað veitingahúsið Sölva-Bar. Nú er komið að því að halda Sölva Helgasyni árlegan dag. Það verður gert um miðjan ágúst ár hvert, en Sölvi fæddist 16. ágúst 1820. Flutt verða erindi um Sölva, lesnir valdir kaflar úr Sóloni Islandusi eftir Davíð Stefáns- son, flutt ljóð etir Sölva og um Sölva. Einnig verður boðið upp á tónlist. Aðgangur er ókeypis. Kvöldið áður verður Rökkur- kórinn með söngskemmtun í Tjaldi galdramannsins kl. 21. Auk kórsöngs verður einsöng- ur og tvísöngur. Flutt verður innlent sem erlend efni. Stjórn- andi er Sveinn Árnason og und- irleikari Arnar Sæmundsson. Eftir skemmtun Rökkurkórs- ins verður ball kl. 23. I j Farand- sýning um Eystrasalts- svæðið FERÐATÖSKUR eða „Suitcases“ nefnist myndlistar- sýning sem stendur nú yfir í borginni Kotka í Finnlandi. Þetta er farandsýning með verkum eftir 26 listamenn sem ætlað er að efla samstarf á milli ríkja á Eystrasaltssvæðinu. Tvær íslenskar myndlistarkon- ur taka þátt í sýningunni, Anna Jóa og Sólveig Stefánsdóttir, sem búsett er í Finnlandi, og hafa verk þeirra fengið góða dóma í finnskum blöðum. Sýningin mun fara tO Eystra- saltsríkjanna þriggja, Rúss- lands, Póllands, Svíþjóðar og hugsanlega til Islands. Sýning- in í Kotka stendur til 30. ágúst. Sýningu lýkur Gallerí Sölva Helgasonar SÍÐUSTU dagar sýningar á verkum Sigurrósar Stefáns- dóttur standa nú yfir í Galleríi Sölva Helgasonar í Lónkoti, Skagafirði. Listamaðurinn kallar sýning- una abstrakt, fígúrur og dulúð. Sýningin stendur til laugar- dagsins 15. ágúst nk. Vernharður Linnet

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.