Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 37,
AÐSENDAR GREINAR
Hvað veldur
stefnubreytingu?
í ÞEIRRI umræðu
sem átt hefur sér stað
að undanfömu um sölu
hlutafjár í Landsbanka
íslands hf. hefur
sjaldnast verið spurt
að því hvaða skoðanir
starfsmenn bankans
hafa á málinu.
Stjórnmálamenn,
ráðherrar, ráðuneytis-
stjóri og ýmsir fjár-
málamenn atvinnulífs-
ins hafa ákveðið að
vera í sviðsljósinu í
þessu máli. Það vekur
sérstaka athygli að
þeir sem fara með
stjóm ríkisins og þar
með eigandavaldið yflr
ríkisbönkunum, telja sig ekki þurfa
að ræða stórmál á við þetta við
stjórnendur hans - hvað þá starfs-
mennina eða eigendurna - lands-
menn alla.
Eg vil minna á mat ríkisstjómar-
innar við framlagningu fmmvarps
til laga um stofnun Landsbanka Is-
lands hf. og Búnaðarbanka Islands
hf. að tryggja yrði hlutafélagabönk-
unum nokkurn tíma til að sanna að
þeir nytu sama trausts og fyrir-
rennarar þeirra. Engin rök hafa
komið fram sem gefa tilefni til að
breyta þessu mati.
Ríkisstjórnin mótaði einnig þá
stefnu að til að tryggja festu í
rekstri hlutafélagabankanna yrði
miðað við að ríkissjóður seldi ekki
hlutabréf sín í þeim fyrstu fjögur
rekstrarárin. Engin rök hafa heldur
komið fram sem mæla
með því að þessum for-
sendum sé breytt.
Einkennileg koll-
steypa
Það er því sérkenni-
leg umræða sem nú á
sér stað um sölu
Landsbanka Islands hf.
til SE-bankans í Sví-
þjóð. Meðan stjómend-
ur bankans og allir
starfsmenn era að
vinna að því að byggja
upp það sem var búið að
brjóta niður í trausti á
bankanum, era stjóm-
völd að því er virðist að
vinna að því á bak við tjöldin að selja
þennan stærsta banka þjóðarinnai-
úr landi. Hver ráðamaðurinn á fætur
öðram keppist við að lýsa því yfir að
að þetta sé hið besta mál.
Hvað veldur þessari stefnubreyt-
ingu stjórnvalda? Er öflugasti banki
þjóðarinnar - homsteinn í fjármála-
og atvinnustarfsemi landsins - ekki
meira virði en svo að nota á andvirð-
ið í tímabundna rekstrarþörf rílris-
sjóðs? Eigum við vii-kilega að trúa
því? Hvers eigum við að gjalda?
Þetta er glappaskot sem menn
hljóta að sjá að kemur þeim sjálfum
og þjóðinni allri í koll. Þetta vanda-
sama mál á ekki skilið að fá svo
óvandaða umræðu sem ráðamenn
hafa nú sett af stað.
Öll umræða um Landsbanka Is-
lands virðist því miður hafa fallið í
þennan faraeg. Ef við viljum á ann-
Tæplega 1.100 starfs-
menn Landsbanka Is-
lands eiga lífsafkomu
sína undir því komna,
segir Þórunn K.
Þorsteinsdóttir, að vel
takist til um uppbygg-
ingu hans sem hlutafé-
lagabanka.
að borð nota þessar forsendur fyrir
sölu Landsbanka íslands hf. má
selja marga þjónustu okkar úr
landi. Þessir menn gleyma því að
þar hafa 1.100 fjölskyldur fram-
færslu sína. Síðan kemur tengd og
afleidd starfsemi. Þegar ráðherra
talar um að þurfi að hagræða í
bönkunum til að spara einhverjar
hundrað milljóna ki'óna, þá skulum
við gera okkur grein fyrir því að
hann er að tala um atvinnu og af-
komu 1.100 manns.
Kröfur starfsmanna
Stjórn Félags starfsmanna
Landsbanka Islands hefur mótað
stefnu í málinu.
Stjórn FSLÍ vill að staðið verði
við yfírlýsingar bankamálaráðherra
um dreifða eignaraðild við sölu á
hlutafé í Landsbanka Islands hf. og
jafnframt að sala hlutabréfa fari
Þórunn K.
Þorsteinsdóttir
fram á opnum íslenskum markaði.
Allar áætlanir um sölu bankans til
erlendra aðila eins og nú era í um-
ræðunni ganga þvert á þær hug-
myndir og loforð sem gefin voru við
setningu laganna um hlutafélaga-
bankana. Stjóm FSLÍ telur það
ábyrgðarleysi að koma af stað um-
ræðu um að selja Landsbankann úr
landi. Það er ástæðulaust að ætla að
ekki finnist íslenskir kaupendur að
bankanum.
Hér hefur komið fram að tæplega
1.100 starfsmenn Landsbanka Is-
lands hf. eiga störf sín undir því að
vel takist til um uppbyggingu
Landsbanka íslands sem hlutafé-
lagabanka.
Stjórnin gerir þá kröfu til yfir-
valda að stjómendur og starfsmenn
bankans fái frið til að vinna að upp-
byggingu bankans eins og fym-heit
vora gefin um.
Meira en tölur á blaði
Landsbanki Islands hf. er nefni-
lega ekki bara einhver stærð í efna-
hagsreikningi, sem á að nota til þess
að uppfylla rekstrarþörf ríkissjóð.s
þegar stjórnarherrarnir hafa eytt
um efni fram.
Landsbankinn er fyrirtæki sem
hefur þjónað einstaklingum og fyr-
irtækjum um land allt í 112 ár.
Hann á stóran hóp viðskiptavina
sem stendur ekki á sama um þessi
viðskipti og vill halda þeim áfram í
góðum viðskiptabanka.
Það er nefnilega svo einfalt að
Landsbankinn er ekkert annað en
starfsmennirnir sem þar vinna. Það
eru þeirra verk sem skapa banka-
starfsemina og viðskiptamennirnir
njóta þessarar þjónustu. ’<
Höfundur er formaður Félags
starfsmanna Landsbanka Islands hf.
Gœðavara
Gjafavara — matar- og kaffislell.
Allir verðflokkar.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Lattgavegi 52, s. 562 4244.
Góö varahlutaþjónusta.
Þ. Þ0RGRÍMSS0N & G0
StdíD
A undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Léttir
meðfæriiegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi. /
Armúla 29. sími 553 8640
FYWRLIBGJIMI: GÖLFSLlPIVÉLIR - RIPPER ÞJÖPPBR - DJELUR
STEYPUSIGIR - HRJERIVÉLIR - SI6IRBLÖB - Veilui franleiisla.
ÚKSMA
LACOSTE _ FATNAÐUR
^ 40% AFSLÁTTUR
ÍÞRÓTTASKÓR/HLAUPASKÓR
(ADIDAS, NIKE, PUMA, FILA)
^30% AFSLÁTTUR
ÍÞRÓTTAFATNAÐUR
(ADIDAS, NIKE, YORK)
^ 30-40% AFSLATTUR
SUNDBOLIR OG BIKINI
(SPEEDO, O'NEAL, SUNFLAIR)
30-70% AFSLÁTTUR
SKÓLAPOKAR
(ADIDAS, O NEAL, NIKE)
20-30% AFSLATTUR
SKÓLAÚLPUR
20% AFSLÁTTUR
] '
Og margt, margt fleira.
jr w
UTILIF
ÚTSALA - REIÐHJÓL
ALLT AÐ 50% AFSLATTUR + 5% STAÐGR AFSLATTUR
12,5" VIVI barnahjól með hjálpardekkj-
um og fótbremsu. Vönduð en létt og
sterk. Tilboð frá kr. 8.600, stgr. 8.170
14" VIVI barnahjól með hjálpardekkjum
og fótbremsu. Vönduð en létt og sterk.
Tilboð frá kr. 8.600, stgr. 8.170
DIAMOND EXPLOSIVE 26" 21 glrar
fjallahjól. Skítbretti og bögglaberi.
Shimano gírar, Grip-Shift, álgjarðir,
átaksbremsur, brúsi, standari, gírhlíf,
keðjuhlíf og glit. Tilboð kr. 19.900,
stgr. 18.905, áður kr. 23.900
DIAMOND ADVENTURE 26" 21 gíra
fjallahjól. Skítbretti og bögglaberi.
Shimano gírar, Grip-Shift, álgjarðir,
átaksbremsur, brúsi, standari, gírhlíf,
keðjuhlíf og glit. Tilboð kr. 19.900,
stgr. 18.905, áður kr. 23.900
SCOTT WINDRIVER 26" 24 gírar
Shimano XT/Grip-Shift 600, Fuli DB Cr-
Mo stell og gaffall.. Frábært hjól á
frábæru verði, 50% afsláttur. Tilboð kr.
54.500, stgr. 51.775, áður kr. 109.000
Barnastólar 20% afsláttur. Tilboð
frá kr. 3.760, stgr. 3.572, áður 4.700
Bamahjálmar frá HAMAX 33 % af-
sláttur. Tilboð kr. 1.950, stgr.
1.852, áður kr. 2.900
5% staðgreiðsluafsláttur
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stillt á fullkomnu
reiðhjólaverkstæði
Ármúla 40
Símar: 553 5320 - 568
Iferslunin
Ein stærsta sportvöruverslun landsins
BRONCO Terminator BMX Freestyle
20". CrMo stell með rótor á stýri, pinnum
og styrktum gjörðum. Tilboð kr.
21.000, stgr. 19.950, áður kr. 24.900.
BRONCO PRO TRACK 24" 21 gírar
fjallahjól. Shimano gírar, Grip-Shift,
álgjarðir, átaksbremsur, brúsi, standari,
gírtilíf, keðjuhlíf og glit. Tilboð kr.
19.900, stgr. 18.905, áður kr. 23.900
BRONCO TRACK 26" 18 gírar fjalla-
hjól. Shimano gírar, álgjarðir, átaks-
bremsur, standari, gírhlíf, keðjuhlíf og
glit. Herra og dömu. Tilboð kr. 16.800,
stgr. 15.960, áður kr. 22.900
DIAMOND ROCKY 16" fjallahjól með
fótbremsu, skítbrettum, standara,
keðjuhlíf og gliti. Tilboð kr. 9.900,
stgr. 9.405, áður kr. 11.900.