Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 43

Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 43*' + Elín Vilhjálms- dóttir fæddist í Iteykjavik 30. maí 1948. Hún lést á heimili sínu 8. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Vilhjálmur Guð- mundsson bifreiða- sljóri, f. 13.5. 1913, d. 27.1. 1998 og Ingibjörg Bjarna- dóttir húsfreyja, f. 5.6. 1922, d. 10.8. 1976. Systir Elínar: Erla Ingibjörg, f. 18.10. 1951. Eigin- maður Elínar: Halldór Sigurðs- son, verkfræðingur, f. 6.2. 1949, þau hófu sambúð 1975. Foreldr- ar Halldórs: Sigurður G. Hall- dórsson verkfræðingur, f. 13.4. 1923 og Sigrún Magnúsdóttir Minningamar margar gleðja, minningamar marga seðja, og ein sú er um þig. En Drottinn tekur allt og alla til himnarikis fógra halla og Drottinn tekur líka mig. (V. Briem.) Nú þegar ég kveð mína kæru vin- konu Elínu Vilhjálmsdóttur koma fram í hugann ótal myndir frá kynn- um okkar. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir um þrjátíu árum er við störfuðum saman hjá Flugfélagi ís- lands, þar urðu þau kynni og sú vin- átta sem hélst alla tíð. Ella var yndisleg manneskja, sem með framkomu sinni töfraði alla sem kynntust henni og öllum leið vel í návist hennar. Hún var gædd þeim eiginleikum að vera vel skipu- lögð, ákveðin og vandvirk og allt sem hún gerði var gert af alúð og ósérhlífni. Ella bjó yfir miklum hæfileikum til að kenna, hún var ávallt tilbúin til að miðla öðrum af þekkingu sinni og reynslu. Einn var sá eiginleiki sem henni var gefmn, en það var að geta samglaðst öðrum þegar þeim gekk vel, en það er kostur sem fáir eru gæddir. Þegar Ella kynntist Halldóri Sig- urðssyni, sem varð hennar lífsfóru- nautur, var strax augljóst að þar mættust tvö hjörtu sem slógu í takt og voru þau sem einn maður í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau í Bandaríkjunum, en þegar þau komu heim byggðu þau sér yndislegt heimili. Börnin fæddust, Vilhjálmur og Svava, sem nú eiga minningar um ástríka móður sem vakti yfir velferð þeirra. Á heimilinu ríkti sannur kærleikur. Ella var list- hneigð og fáguð í allri sinni listsköp- un og bar heimili þeirra það með sér. Föður sinn missti Ella í byrjun þessa árs, en móður sína fyrir rúm- um tuttugu árum. Systir Ellu, Erla, og dóttir henn- ar Betty voru henni afar kærar og var samband og vinátta þeirra systra mjög náin. Erla reyndist systur sinni og fjölskyldu ómetan- leg í þeirri baráttu sem nú er yfir- staðin. Ég dáist að því hvemig Dóri hef- ur staðið við hlið Ellu í veikinda- stríði hennar, sem var mjög erfítt. Hann reyndist henni einstakur með ljúfmennsku sinni og dugnaði. Sam- an tókust þau á við veikindi hennar af samstilltum krafti og ákveðin í að sigra. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku Dóri, Villi, Svava og Erla og fjölskylda, megi góður guð styrkja ykkur í sorginni. Minningin um mæta konu lifir. Ingibjörg Hjartardóttir. húsfreyja, f. 7.9. 1923, d. 26.12. 1995. Börn Eh'nar og Halldórs: Vilhjálm- ur Ingi, f. 17.2. 1982 og Svava, f. 19.6. 1984. Að loknu gagn- fræðaprófi starfaði Elín m.a. hjá Flug- félagi íslands og Sláturfélagi Suður- lands. Hún lauk stúdensprófi frá öldungadeild Flens- borgarskóla 1991. Árið 1996 hóf Elín störf hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Útför Elfnar fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kæra Elín, kallið er komið, en kveðjast vinir. Æðruleysi þitt og trúfesta einkenndi baráttu þína til hinstu stundar. Handlagni þína og listfengi skilur þú eftir víðs vegar. Bros þitt og hnittni geymum við sem fengum að kynnast þér. Þínir grænu fmgur umlykja lóð- ina í Háholtinu. Afklippur ti-jáa ná- grannanna mynda nú hekk og birkifræin sem þú safnaðir hafa fest rætur og munu vaxa fyrir þína til- stuðlan. Af ósérhlífni hlúðir þú að öllum þeim sem stóðu þér nærri. Feg- urstu blómin þín eru Svava og Villi, táningarnir sem nú standa við hlið föður síns. Hugprúð og einlæg takast þau nú á við sorgina, en ekki í fyrsta sinnið. Huggunar- orð þín rifjast upp og allt þitt inn- legg til að hvetja þau og koma þeim til manns hafa myndað traustar rætur. Manni þínum varstu sannur vin- ur og ferðafélagi. Æviskeiðið er stutt og missirinn er mikill en vega- nestið er dýrmætt. Margs er að minnast og margs er að þakka. Þú munt ávalt fylgja þeim 1 hugum þeirra og hjörtum. Einlæg þökk fyrir allt. Elsku Dóri, Villi og Svava, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Erla, Friðbjörn og Betty, skarð er fyrir skildi en minningarnar eru alls staðar. Guð gefi ykkur öllum styrk til að horfa fram á veginn og læra að lifa með missinum. Lilja og Þóranna. Okkur langar til að minnast Elín- ar, mömmu hans Villa vinar okkar í fáum orðum. Hún var okkur alltaf svo góð og tók okkur alltaf opnum örmum þegar við komum á heimilið þeirra. Sama hvað stóð til hjá okkur vinunum, alltaf voru bæði hún og Halldór tilbúin að aðstoða. Svo ekki sé talað um handbolta- og fótbolta- leiki, alltaf voru Elín og Halldór á áhorfendapöllunum að hvetja okkur strákana. Og ef það þurfti aðstoð við heimanámið þá var Elín alltaf reiðubúin að hjálpa. Fyrir þetta og miklu meira langar okkur að þakka henni. Kæru vinir, Villi, Halldór og Svava, við og fjölskyldur okkar sendum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Far þú í Mði, Mður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú h(jóta skalt. (V. Briem.) Arnar Smári og Halldór. Það er sárt að horfa á eftir þess- ari frábæru konu sem fallin er frá, langt fyrir aldur fram, frá eigin- manni og börnum. Elínu kynnt- umst við í gegnum foreldrastarf hjá Stjörnunni og fengum þar að njóta hæfileika hennar og dugnað- ar. Elín hafði geislandi persónu- leika og létta lund, sem hreif okkur hin með sér. Elín og Halldór voru einstaklega samhent hjón og tóku virkan þátt í áhugamálum barna sinna, sem við hin nutum góðs af. Elsku Halldór, Villi og Svava megi góðar minningar sefa sorgina og Guð gefa ykkur styrk. Guð blessi ykkur öll. Ég fel í fosjá þína, Guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um Ijósið lát mig dreyma og Jjúfa engla geyma öll börnin þín svo blundi rótt (Matthías Jochumsson.) F.h. foreldra Stjörnustelpna, Anna, Anna Día, Auður, Fríða, Heiða, Ingibjörg, Jónína, Rúna, Sigriður og Snorri. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir, amma og langamma, BJÖRG SIGRÍÐUR SÆBY HELGADÓTTIR, Faxatúni 3, Garðabæ, verður jarðsungin frá Garðakirkju föstudaginn 14. ágústkl. 15.00. Helgi Sigurgeirsson, Sæbjörg Einarsdóttir, Margrét Björg Ámadóttir, Jón Gunnar Gíslason, Markús Már Árnason, Karen Haraldsdóttir, Hafsteinn Viðar Árnason, Guðmunda Valdimarsdóttir, Auður Árnadóttir, Haraldur Árnason, Oddný Ágústsdóttir, Karsten Jensen, Kristín Andrea Sæby Friðriksdóttir, Oddný Helgadóttir, Erla Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar og bróður, SIGFÚSAR ÞÓRIS STYRKÁRSSONAR, Ægisíðu 50. Guðríður Þorvaldsdóttir, Lovísa Sigfúsdóttir, Unnur Ingibjörg Sigfúsdóttir, Hjálmar Styrkársson, Guðjón Styrkársson, Klara Styrkársdóttir, Arndís Styrkársdóttir. ELÍN VILHJÁLMSDÓTTIR + Elskulegur sonur okkar og bróðir, GUÐMUNDUR TÓMAS GUÐMUNDSSON, lést mánudaginn 10. ágúst. Útförin auglýst síðar. Kristín Þórarinsdóttir, Guðmundur Ólafsson, systkini hins látna og börn þeírra og aðrir vandamenn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÁRNI ÁRNASON sfmsmiður, Skarðshlíð 15C, Akureyri, sem lést föstudaginn 7. ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 17. ágústkl. 13.30. Stella Pétursdóttir, Hjördfs Petra Jónsdóttir, Helgi Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR, áður Ljósheimum 9, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 14. ágúst kl. 13.30. Ingiríður Halldórsdóttir, Þórhildur Halldórsdóttir, Signý Halldórsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir, Oddný Dóra Halldórsdóttir, Pétur Eggertsson, Jón Árnason, Hrafn Einarsson, Birgir Þorsteinsson, Kristján Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR, Brekastíg 33, Vestmannaeyjum. Heiða Bergþóra Þórðardóttir, Ari Jóhannesson, G. Hans Þórðarson, Inga Ósk Ólafsdóttir, Hanna Þrúður Þórðardóttir, Ari Brynjar Arason, Ólafur Ingvi Hansson og aðrir ástvinir. + Innilegar þakkir til allra, sem veittu aðstoð og sýndu samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS DAVÍÐSSONAR, Þverfelli, Lundareykjardal. Sérstakar þakkir til þeirra, sem halda til fjalla og sýna okkar fagra landi virðingu með góðri umgengni. Guð blessi ykkur. Herdís Guðmundsdóttir, Kristján Björnsson, Sesselja V. Finnsdóttir, Inga Helga Björnsdóttir, Rúnar Hálfdánarson, Herdís Birna Kristjánsdóttir, Elín Kristjánsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Guðmundur Kristjánsson, Jakob Guðmundur Rúnarsson, Davíð Einar Sigþórsson. j Lokað Fyrirtæki okkar veröur lokað í dag, fimmtudaginn 13. ágúst, frá kl. 12-18, vegna jarðarfarar ELÍNAR VILHJÁLMSDÓTTUR. Hátækni ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.