Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 3
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Herra Karl Sigurbjörnsson biskup í stólræðu á Hólahátíð Þjóðin stendur andspænis vali milli kristni og heiðni „ÍSLENSK þjóð stendur í fyrsta sinn í þúsund ár andspænis vali milli kristinna og heiðinna grund- vallarviðhorfa," sagði herra Karl Sigurbjömsson biskup meðal ann- ars í predikun sinni á Hólahátíð síð- astliðinn sunnudag. Sagði hann ís- lendinga hafa álitið sig kristna þjóð og að álfar og tröll gögnuðu ekkert þegar á reyndi þótt Spölur hefði lát- ið sér sæma að útnefna bergtröll sem verndara Hvalfjarðarganga. Biskup sagði þjóðina nú búa sig undir að minnast þess er hún hafn- aði heiðnum átrúnaði, heiðnum vættum og gekk Kristi á hönd. „Síð- an hafa Guð og góðir englar hans verið ákallaðir um vernd og hlífð og sú vemd signir landið okkai’. Gleym- um því ekki. Snúum ekki baki við því í oflæti auðs og velsældar. Það varðar mestu um hverja vegferð, sérhvem spöl, að Guð sé með í för. Þess vegna bemm við böm okkar til skírnar, signum þau fyrir svefninn, kennum þeim að biðja í Jesú nafni. Því innst inni vitum við að „mann- anna stoð og styrkur bregst“. Arfur úr viskubrunni kynslóðanna Álfar og tröll gagna ekkert þegar á reynir, slík vernd er aðeins tál, jafnvel þótt Spölur láti sér sæma að útnefna bergtröll sem verndara Hvalfjarðarganga." Stjórnarformaður Spalar Alls ekki ætlunin að vega að kirkjunni EKKI var á nokkurn hátt ætl- unin að vega að kirkjunni með því að útnefna bergtröllið Staupastein sem verndara Hval- Qarðarganga, að sögn Gísla Gislasonar, stjórnarformanns Spalar, en biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, gerði opn- unarathöfn Hvalfjarðarganga m.a. að umtalsefni í stólræðu sinni á Hólahátíð á sunnudag- inn. Gísli segir að á Akranesi hafi oft verið kvaddur til prestur til þess að blessa ný mannvirki og starfsemi þeirra og það hafi raunar lauslega komið til tals þegar opnun ganganna var undirbúin. Hins veg- ar hafi honum fróð- ari menn bent á að aldrei hafi tíðkast að prestur væri fenginn til að koma við opn- un samgöngumann- virkja, hvorki við brýr, jarðgöng né vegspotta. Þar væri algengara að maður- inn með skærin, þ.e. samgönguráðherra, mætti á vettvang. „Á þeim tíma sem verkið hefur verið í gangi vill svo til að við höfum lent í því að stíga á tæmar á ýmsum, svo sem verkfræðingum, sveitarsfjórnar- mönnum, slökkvi- liðsmönnum, dag- blaðsritsfjórum og núna síðast kirkj- unni. Það var hins vegar alls ekki meiningin að raska ró kirkjunnar,“ seg- ir Gísli og bætir við að staða kirkjunnar hljóti að vera mun sterkari en svo að hún láti „lítinn kall í merki lítils fyrirtækis raska ró sinni“. STAUPA STÉINN VERNDARI HVALFJARDAROANOA Biskup sagði sögur álfa og trölla sér kærar eins og þorra íslendinga, þær væru dýrmætur arfur úr visku- brunni genginna kynslóða og lýstu gjarnan þeirri ógn sem það væri að vera ginntur af álfum og trylltur í björg. „En Hóladómkirkja vitnar um náð og hlífð sem aldrei bregst. Hún vitnar um lifandi Guð og raun- verulega vemd í lífi og dauða, eins og kirkjurnar byggðir um lands hafa gert um aldir. En tökum eftir því og gleymum ekki að þær hafa gert það af því að þær hafa verið hluti lifaðs veruleika návistar Guðs. Ekki áminning um ævintýri og helgisagnir. Klukknahljómurinn, helgin, söngurinn, bænamálið end- urómur, bergmál þess sem iðkað var á heimilum landsmanna, í bæn og trúarlífi sem varðað hefur lífsveg manna frá vöggu til grafar. Er það liðin tíð? Víst er að nú í fyrsta sinn í þúsund ár, í fyrsta sinn í þúsund ár, stendur íslensk þjóð andspænis vali, raunverulegu vali milli kristni og heiðni, kristinna og heiðinna grund- vallarviðhorfa. Við skulum ekki vera í nokkrum vafa um það hvort við viljum sjá varða veg barna okk- ar og niðja.“ Síðar í ræðunni sagði biskup: „Margir hafa áhyggjur af upplausn siðgilda í íslensku samfélagi. Og með réttu. En það vill gleymast að siðgæði kemur ekki af sjálfu sér. Það vex af rótum lotningarinnar, virðingarinnar íyrir því sem er manninum æðra, vex af því uppeldi þar sem þetta er iðkað og ástundað, virðingin, helgin. Á heimilunum, í skólastofunum, í önnum og hvíld daganna, í umgengni, orðum og at- ferli.“ Hefja á byggingu nýs hátæknidýraspítala 1 októbermánuði næstkomandi Bætt aðstaða fyrir hross RÁÐGERT er að hefja byggingu nýs hátæknidýraspítala í byrjun október næstkomandi. Það er sjálfseignarfélagið Dýraspítali Watsons sem stendur að bygging- unni en hún mun leysa af hólmi eldri spítala félagsins á Fákssvæð- inu í Víðidal. Hinn nýi spítali verð- ur á sömu slóðum og verður stærð hans um 1.000 fermetrar. Ráðgert er að byggja húsið í tveimur áföng- um og vonast aðstandendur til að sá fyrri verði tekinn í notkun í byrjun árs árið 2000. Kostar 20 til 30 milljónir Að sögn Sigfríðar Þórisdóttur mun nýi spítalinn leysa úr brýnni þörf á bættri aðstöðu fyiár dýra- lækningar en 25 ár eru síðan Is- landsvinurinn Mark Watson gaf núverandi spítala. Með nýbyggingu, sem talin er kosta um 20 til 30 milljónir króna með tækjum, verður bætt aðstaða fyrir meinatækna auk þess sem í fyrsta sinn verður boðið upp á að- stöðu til lækninga á hrossum. Þá er gert ráð fýrir að aukin sérhæfing geti átt sér stað hjá dýralæknum en aðstaða verður fyrir 6 til 8 lækna. Að sameignarfélaginu standa Reykjavíkurborg, Fákur, Dýraverndurfélag Reykjavíkur, Samband sveitarfélaga á Suður- nesjum og Samband dýraverndun- arfélaga Islands. Morgunblaðið/Jim Smart Skútur við Ing- ólfsgarð SKÚTUR liggja bundnar við bryggju við Ingólfsgarð, þar sem togarar Kveldúlfs, stærsta útgerðarfyrirtækis landsins, lönduðu fiski á milli- stríðsárunum. Forseti eistneska þingsins á Islandi TOOMAS Savi, forseti eist- neska þingsins, kom í gær í opinbera heimsókn til Islands ásamt eiginkonu sinni. Hann er hér í boði Ólafs G. Einars- sonar, forseta Alþingis, ásamt þremur öðrum þingmönnum, Ants Kaarma, varaforseta þingsins, Rein Jarlik, for- manni umhverfisnefndar, og Jurgen Ligi, varafoi-manni fjárlaganefndar. Þingmennirnir ræða á fimmtudag við forseta Alþing- is, en þeir munu einnig ræða við forseta íslands, forsætis- ráðherra og embættismenn utanríkisráðuneytisins í heim- sókninni, sem stendur til 21. ágúst. Hestamaður slasaður eft- ir ákeyrslu EKIÐ var á ríðandi mann á Skagastrandarvegi í Austur- Húnavatnssýslu aðfaranótt sunnudags. Ljóst þótti að meiðsl hins slasaða væru al- varleg og var hann fluttur með sjúkrabíl að Laugar- bakka í Miðfirði þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið því ekki reyndist unnt að lenda henni á Blönduósi. Hinn slas- aði fór í aðgerð á Borgarspít- alanum á sunnudag og liggur enn á gjörgæsludeild. Líðan hans er óbreytt, en hann hlaut höfuðáverka og beinbrot.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.