Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 11
FRÉTTIR
Forseti Islands gerði miðlægan gagnagrunn að umtalsefni á Hólahátíð
Hvorki þröngsýni né hagn-
aðarvon má blinda okkur
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Islands, sagði m.a. í umfjöllun
sinni um erfðavísindi á Hólahátíð
á sunnudag að sú umræða sem
fram hefði farið í samfélagi okkar
um hin nýju fræði erfðagreining-
arinnar, væri því miður enn skorð-
uð um of við þröngan stakk við-
skiptahagsmuna einstakra fyrir-
tækja, kröfur um einkarétt á söfn-
un og flokkun erfðaefnis Islend-
inga til að styrkja vigstöðu á
verslunartorgi kauphallanna. Við
þyrftum hins vegar, bæði sem
þjóð og einstaklingar, að sjá og
skilja til hlítar samhengið í sér-
stöðu Islendinga, íslenskra rann-
sóknargagna, og tæknibyltingun-
um sem einkenndu framrás vís-
indanna.
Eiguin að ganga hægt um
þessi nýju og óþekktu hlið
„Á þessu sumri hafa örlögin
hagað því svo að ég hef í Banda-
ríkjunum átt kost á samræðum við
öndvegisfólk í framvarðasveit
læknisfræði og erfðavísinda, fólk
sem beitir bestu tækni rannsókna
og upplýsingavinnslu sem völ er á
til að færa mannkyni von um
lækningu á ýmsum helstu sjúk-
dómum sem herja á samfélag okk-
ar, ættingja og vini, foreldra, börn
og sálufélaga, heimsbyggð alla,“
sagði hann. „I ljósi þeirra sam-
ræðna er ég sannfærður um að við
Islendingar eigum að ganga hægt
um þessi nýju og óþekktu hlið,
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands
hyggja vel til allra átta, rasa ekki
um ráð fram.“
Ólafur Ragnar sagði ennfremur
í ræðu sinni að tíminn væri nægur
og að nú og á næsta áratug yrðu
aðeins tekin byrjunarskrefin á
þróunarbraut erfðavísindanna þótt
þau mundu síðar og að líkindum
langt fram eftir næstu öld verða í
hásæti þekkingarsköpunarinnar.
Síðan sagði hann: „Vegna samspils
þjóðareinkenna okkar og rann-
sóknargetu erfðavísindanna höfum
við íslendingar í aðdraganda hins
nýja árþúsunds betra tækifæri en
nokkru sinni fyrr frá landnámi og
kristnitöku tO að verða mannkyni
öllu til blessunar, leggja grundvöll
að lækningu og heilbrigði milljóna
manna um heim allan sem annars
myndu lúta í lægra haldi í
glímunni við krabbamein, hjart-
veiki eða tugi annarra sjúkdóma
sem nú læsa helgreipum um ást-
vini og ættingja.
En þá megum við hvorki láta
þröngsýni eyjarskeggjans né
hagnaðarvon fjárfesta blinda okk-
ur svo að við tökum í skyndi
ákvarðanir sem ganga þvert á
heilbrigðishagsmuni alls mann-
kyns og reyndar einnig þvert á
tækifæri íslenskrar þjóðar til vel-
sældar og virðingar á nýrri öld.“
Ólafur Ragnar sagði því næst að
honum væri til efs að við íslend-
ingar, þing og þjóð, samfélag og
máttarstofnanir, þar með kirkjan
sjálf, hefðum fengið í hendur
stærra viðfangsefni til úrlausnar,
að jafn afdrifaríkar ákvarðanir
hefðu borist á okkar borð.
Hver verður afstaða
Islendinga?
„Afstaða okkar mun ráða úrslit-
um, ekki aðeins um störf og hag-
sæld í okkar eigin landi, heldur
einnig um getu og hæfni vísinda-
samfélagsins um heim allan til að
færa mannkyni lækningu, heil-
brigði og betra líf um alla fram-
tíð,“ sagði hann.
Þá sagði Ólafur Ragnar í ræðu
sinni að það væri ekki aðeins á
umræðutorgi íslenskrar fjölmiðl-
unar sem fylgst væri með fram-
vindu þessara mála. „I fremstu
vísindastofnunum heims er spurt:
Hver verður afstaða íslendinga?
Vill íslenska þjóðin rétta sam-
starfshönd til þeirra sem fremstir
fara að þekkingu og tækni í för
mannsins um ókunn lönd erfðavís-
indanna og hljóta um leið eðlilega
umbun fyrir heimssögulegt fram-
lag sitt, eða verður haldið inn á
braut sem allh- þeir frábæru er-
lendu vísindamenn, sem ég hef
rætt við á þessum sumartíma,
telja í senn þröngt og ófært ein-
stigi,“ spurði hann.
„Sömu sérfræðingar og nú gefa
Guðrúnu Katrínu og öðrum sem
þjást af lífshættulegum sjúkdóm-
um von um bata, sérfræðingai-
sem stjómað hafa um langa hríð
mikilvægustu rannsóknarstofnun
krabbameinslækninga í heimin-
um; eru reyndar einnig í náinni
samvinnu við þorra þeirra sem
fremstir eru taldir í þessum fræð-
um, jafnframt því að þekkja betur
en aðrir samspU fjármagns og
rannsókna, fjárfestingar og mark-
aðshagsmuna lyfjafyrirtækja og
alþjóðlegrar fjármögnunar, spyrja
af einlægum áhuga um áform okk-
ar íslendinga og eru reiðubúnir að
leggja þjóðinni lið,“ sagði Ólafur
Ragnar m.a. í ræðu sinni á Hóla-
hátíð.
Menntamálaráð-
herra um umræðu
um SE-banken
Spillir
fyrir sölu
ríkis-
bankanna
BJÖRN Bjarnason mennta-
málaráðherra telur að um-
ræða um að selja einum er-
lendum
banka ráð-
andi hlut í
Lands-
banka ís-
lands hafi
almennt
mælst illa
fyrir og
spillt fyrir
sölu ríkis-
bankanna.
Þetta kem-
ur fram á heimasíðu ráðherr-
ans á veraldarvefnum.
Björn segir einnig að um-
ræður um sölu ríkisbankanna
endurspegli ný viðhorf til hlut-
verks ríkisins, sem snerti auk
bankanna ríkisfjölmiðlana,
sjúkrahús og skóla.
Viðhorf til ríkisrekstrar
breytast fljótt
Hann segir að viðhorf til
ríkisrekstrar breytist fljótt, en
nefnir þó í öðru sambandi að
„enn séu viðhorfín þau, að
ekki beri að flytja alla háskóla
og framhaldsskóla og háskóla
í hendur einkaaðila".
FRANK SINATRA, BING CROSBY, DEAN MARJIN, TONY BENNETT, NAT KING COLE, BILLIE HOLIDAY, ELLA FITZI
nti * -j&aSSfeték rl
iERALD
\ \ • | 1 ^ ** •. » * Hliómsveitin Cpsino
m vsj® ** W $\*** pstJf * seí1' og Póll Oskar
leika fyrir aansi á eftir.
LENN MILLER, COUNT BASIE, LOUIS ARMSTRONG, SAMMI DAVIS JR. O.FL. O.FL.
Kristján
Gtslason
Hulda
Gestsdóttir
Jón Jósep
Snæbjörnsson
RúnaG. «
Stefánsdómr
Birgitta
Haukdal
BROADWA\
HÓTEL ÍSLANDI
Miða-og borðapantanir í síma 533 1100. r
Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, skemmtun. 950, dansleikur.
Skoóaðu vefinn okkar, m.a.veisluþjónustuna, www.broadway.is
indi*ú"ir>9'
VeHuo'
FRUMSYNING 26
EIN BESTA SYNll
SEM SETT HEFiJQÉ
VERIÐ UPP! I
14 manna hljómsveiWundir
stjórn Þóris Baldurssonar.
Kynnir er Jón Axel Ólafsson.
Vegna fjölda áskoranna !
Aóeins þessi eina synmg
næsta laugardag,22. ágúst
Frábærir söngvarar
Sviðssetning:
Egill Eðvarðsson.
Hljómsveitarstjóri:
Gunnar Þórðarson. i
Dansstjórn: i
, Jóliann Örn. M
• Hljóðstjórn: M
l, Gunnar Smári U