Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 22

Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 23 28 fórust og fjöldi særðist í mannskæðustu sprengjuárás sem um getur á N-írlandi Beindu fólki í átt að bíl- sprengjunni Stjórnvöld á Bretlandi og írlandi hafa heitið að draga til ábyrgðar þá sem stóðu að sprengjutil- ræðinu í Omagh á Norður-írlandi á laugardag, segir Davíð Logi Sigurðsson. Klofningshópur úr IRA er sterklega grunaður um verknaðinn. GÍFURLEG reiði og sorg ríkir á N- írlandi í kjölfar sprengjutilræðisins á laugardag í bænum Omagh en sprengjan varð tuttugu og átta manns að bana. Eiga flestir erfltt með að skilja þá grimmd sem að baki verknaðinum býr en sökudólganna er nú leitað logandi ljósi. Ottast menn mjög áhrif tilræðisins á fram- tíð friðaramleitana á N-írlandi. Óttast er að fleiri kunni að látast því ellefu voru í gær enn á gjör- gæsludeild. Flytja þui'fti slasaða á sjúkrahús annars staðar á N-Irlandi enda varð sjúkrahúsið j Omagh fljótt yfírfullt. Meira en hundrað manns þurftu aðhlynningar við og höfðu margir tapað útlimum í sprenging- unni eða voru á einhvern hátt varan- lega örkumlaðir. Villandi viðvörun Sprengjan sprakk í bifreið sem komið hafði verið fyrir nærri versl- unarmiðstöð Omagh á háannatíma, eða um kl. 15 að staðartíma. Tilræð- ismennirnir höfðu gefíð lögreglu við- vörun vegna sprengjunnar um fjöru- tíu mínútum áður en sagt sprengj- una vera í nágrenni dómshúss bæj- arins. Varð þessi viðvörun til þess að . lögregla beindi fólki burt frá dóms- húsinu, og þá um leið nær verslunar- miðstöðinni sem jók enn frekar á blóðbaðið. Villandi viðvörun ódæðis- mannanna er talin með algerum ein- dæmum og áttu menn vart orð til að lýsa hneykslan sinni á þeirri grimmd sem hér liggur að baki. Tilræðismenn fóru semsé ekki í manngreinarálit og bæði kaþólikkar og mótmælendur létust í árásinni. Meðal hinna látnu var sextíu og fímm ára gömul kona, þrítug dóttir hennar og átján mánaða gamalt barnabam. Var yngri konan jafn- framt komin langt á leið með tví- bura. Níu börn voru meðal hinna látnu og fjórtán konur en meðal þeiiTa var fjögurra barna móðir. Mörg barn- anna höfðu verið við innkaup fyrir komandi skólaár. Hópur Spánverja var í verslunarmiðstöðinni þegar sprengjan sprakk og fórust tveir þeirra, annar þeirra tólf ára gamall drengur. Sautján ára gömul stúlka, sem á von á barni, tapaði báðum fót- leggjunum í árásinni. Tilræðið fordæmt Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsæt- isráðherra Irlands, hittust í Belfast á sunnudag og hétu því í sameiginlegri yfíi'lýsingu að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að handsama „glæpa- mennina og geðsjúklingana“ er frömdu þennan verknað og veita þeim makleg málagjöld. Var rætt um það í gær að svo gæti farið að bresk og írsk stjórnvöld leyfðu handtökur án dóms og laga yfír mönnum grun- uðum um tilræðið, en á áttunda ára- tugnum beittu Bretar þessari neyð- arheimild ítrekað í baráttu sinni við Irska lýðveldisherinn (IRA). Hún var mjög umdeild á sínum tíma, enda auðvelt að misbeita slíku valdi. Stjórnmálaleiðtogar hvar 1 flokki sem þeir standa fordæmdu tilræðið og sagði John Hume, leiðtogi hóf- samra kaþólikka (SDLP), að tilræð- ismenn væru „hreinræktaðir fasist- ar“ og að þeir væru „óvinir almenn- ings á N-írlandi.“ Mesta athygli vek- ur hins vegar að Gerry Adams, leið- togi Sinn Féin, fordæmdi verknaðinn og fór fram á að hinir seku gengjust við tilræðinu og hættu öllum frekari aðgerðum. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem leiðtogar Sinn Féin for- dæma verk af þessu tagi, þrátt fyrir að oft hafí verið hart að þeim gengið á liðnum árum að fordæma ódæðis- verk IRA. „Hið raunverulega IRA“ grunað um verkið Þetta er mannskæðasta árás sem um getur í þrjátíu ára sorgarsögu á N-írlandi þar sem meira en 3.500 manns hafa fallið. I nóvember árið 1987 fórust ellefu óbreyttir borgarar í sprengjuárás IRA í bænum Enniskillen, sem er norður af Omagh, og hefur þess atburðar oft verið minnst þegar rifjuð eru upp helstu óhæfuverk vargaldarinnar á N-írlandi. Sennilegt er að Omagh leysi nú Enniskillen af hólmi sem vettvangur versta óhæfuverksins. Sprengjan var afar öflug og olli gífurlegri eyðileggingu. Henni hafði verið komið iyrir í bifreið, sem stolið var í bænum Carrickmacross í Monaghan-sýslu sunnan landamæra írlands í síðustu viku, en líklegt er talið að sprengjan sjálf hafi verið út- búin norðan landamæranna. Er þeir hringdu inn viðvörun sína notuðu til- ræðismennirnh- leyniorð sem vitað er að samtökin „hið raunverulega IRA“ hafa notað og telja menn næsta víst að þessi samtök hafi stað- ið fyrir tilræðinu. Samtök þessi klufu sig út úr IRA í október á síðasta ári vegna óánægju þeirra með þá stefnu sem IRA, og stjórnmálaarmur þess Sinn Féin, hefur tekið, en Sinn Féin á aðild að páskasamkomulaginu umrædda. Hefur „hið raunverulega IRA“ stað- ið fyrir nokkrum sprengjutilræðum síðan þá, síðast fyrir þremur vikum í bænum Banbridge. Talið er að sam- tökin telji nú um hundrað meðlimi, og munu flestir þeirra áður hafa ver- ið í IRA. Framtíðin óljós IRA hefur á síðustu árum einbeitt sér að því að ráðast að „lögmætum" skotmörkum eins og hermönnum, lögreglumönnum, stjórnmálamönn- um eða stöðum þar sem hægt var að valda Bretlandi miklu fjárhagslegu tjóni, líkt og átti við um sprengjuna í fjármálahverfinu í London árið 1992. Þegar um óbreytta borgara var að ræða gáfu samtökin oftast nær við- varanir þannig að fjai'lægja mætti viðstadda, þótt vitaskuld hafí það ekki ávallt tekist vel. Þessar reglur þverbrutu tilræðis- mennirnir nú og geta menn sér þess til að markmið þeirra hafi verið það eitt að binda enda á friðarferlið á N- Irlandi, enda munu þeir telja Sinn Féin hafa gengið of langt í málamiðl- unai-átt. Óttast menn nú að öfgahóp- ar sambandssinna (UVF, UDA), sem verið hafa í vopnahléi síðan 1994, sjái sig tilneydda til að svara þessari árás og myndi þá væntanlega vera úti um frið þann sem sóst er eftir. Reuter JOHN Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, skoðaði um- merki sprengjunnar í Omagh á sunnudag. Að minnsta kosti 28 manns, 9 börn, 14 konur og 5 karlar, létust í mannskæðasta sprengjutilræði sl. þriggja áratuga á Norður-írlandi. Sprengjan sprakk á aðalverslunargötunni í bænum Omagh um miðjan dag á laugardag. Rúmlega 220 manns slösuðust, margir alvarlega. Fjöldi fólks var á götunni og hafði lögregla vísað því frá dómshúsi, sem stendur skammt frá, vegna hótunar um sprengju þar. Kl.14.30: Hringt i lögreglu og hún vöruð við því að sprengju hafi verið komið fyrir við dómshúslð Lögregla girðir af nágrenni dóms- hússins. Fólki er vísað þaðan. /p NORÐUR i \ Jrland k ® Omagh /pELFáST Kl. 15.10: Bílsprengja springur á horni Market Street og Dublin-vegar, þangað sem fólki hafði verið beint. ÍRSKA LÝÐVELDIÐ Á mánudag var 200 manns skipað að yfirgefa byggingar stjórnvalda í Stormont- kastala i Belfast vegna hættu á sprengingu. Grunaður höfuðpaur nafn- greindur London. The Daily Telegraph. VIÐBRÖGÐ við sprengjutil- ræðinu í Omagh á laugardag voru afar hörð í gær á Bret- landseyjum og gekk The Daily Telcgraph svo langt að birta nafn mannsins sem grunaður er um að vera leið- togi „hins raunverulega IRA“. Er þetta afar athyglisvert skref því dagblöð hafa hingað til ekki nafngreint menn fyrr en sekt þeirra er sönnuð, og umræddur aðili hefur auk þess aldrei hlotið dóm fyrir meinta glæpi sína í þágu lýð- veldissinna á N-írlandi. The Daily Telegraph hefur eftir heimildarmönnum innan bresku leyniþjónustunnar að leiðtogi „hins raunverulega IRA“ sé Michael McKevitt, 48 ára gamall atvinnurekandi sem þar til í október á síðasta ári var háttsettur foringi í Irska lýðveldishemum (IRA). Býr McKevitt í bænum Blackrock í Louth-sýslu, sunn- an landamæra Irlands, sem er einungis steinsnar frá borg- inni Dundalk. Rekur hann þar ljósritunarstofu ásamt eigin- konu sinni Bernadette Sands, en hún er systir Bobby Sands, sem svelti sig til bana í Maze- fangelsinu í útjaðri Belfast ár- ið 1981 eins og frægt er orðið. Á meðan á vem hans í IRA stóð var McKevitt ábyrgur fyrir vopnabúri hersins og er hann sagði skilið við IRA í fyrra mun hann hafa heitið því að nota ekki vopn úr vopnabúri IRA en nú virðist ljóst að hann hafí látið greip- ar sópa þar. Hitt er vitað að samkvæmt reglum IRA hefur hann, með því að bijóta fyrr- nefndan eið, framið brot sem herinn hefur hingað til refsað grimmilega fyrir. McKevitt mun hafa fengið marga fyrmm meðlimi IRA til liðs við sig og hafa þeir staðið fyrir nokkmm sprengjutilræð- um á þessu ári sem þó hafa ekki kostað nein mannslíf. Ekki er talið að meðlimir IRA hafi haft samstarf við McKevitt í þessum tilræðum og benda fordæmingar Gerry Adams, leiðtoga Sinn Féin, á Omagh-sprengjunni til að hún hafí komið sljómmálaamii IRA í opna skjöldu. Ioppskórinn v/l ngólfstora g Allir skór á 1. minna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.