Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ HESTAR ÞRIÐ JUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 41 Bikarmót Norðurlands á Króksstaðamelum Akureyringar atkvæðamiklir að venju EINS og oft áður voru það Akureyr- ingar sem sigi'uðu í bikarmóti Norð- urlands í hestaíþróttum þar sem fimm sveitir sem kepptu undir merkjum héraðssambanda mættu til leiks. Engin sveit mætti frá Þingey- ingum að þessu sinni. Sigurvegararnir, félagar í Létti, kepptu undir merkjum íþrótta- bandalags Akureyrar og 'hlutu alls 1361,65 stig, næstir urðu félagar í Þyt sem kepptu undir merkjum Ungmennasambands Vestur-Húna- vatnssýslu, með 1291,91 stig. Skag- firðingar komu næstir en það voru félagar í Stíganda, Léttfeta og Svaða undir merkjum Ungmennasambands Skagafjarðar með 1125,62. í fjórða sæti urðu svo félagar í Funa í Eyja- firði, sem kepptu undir merkjum Ungmennasambands Eyjafjarðar með 974,97 stig, og lestina ráku fé- lagai- úr Neista, Oðni og Snarfara undir merkjum Ungmennasambands Austur-Húnavatnssýslu með 780,85. Mótið fór fram á Króksstaðamel- um í Miðfirði og var í umsjá USVH og hestamannafélagsins Þyts. Keppt var í opnum flokki og unglingaflokki en mótið var samhliða stigakeppni héraðssambandanna einstak- lingskeppni og urðu úrslit sem hér segir: Opinn fiokkur - tölt 1. Baldvin A. Guðlaugsson IBA, á Tuma frá Skjaldarvík, 7,13/7,70. 2. Kolbrún S. Indriðadóttir USVH, á Sölva frá Skáney, 6,43/7,03. 3. Halldór G. Guðnason USVH, á Dreyra frá Þóreyjamúpi, 6,43/6,93. 4. Guðjón Björgvinsson UMSS, á Garpi frá Krossi, 6,17/6,92. 5. Bjarni Jónasson UMSS, á Lykli frá Flugumýri, 6,10/6,69. Fjórgangur 1. Baldvin A. Guðlaugsson ÍBA, á Tuma frá Skjaldarvík, 6,67/7,07. 2. Halldór G. Guðnason USVH, á Dreyra frá Þóreyjamúpi, 6,57/6,87. 3. Gréta B. Karlsdóttir USVH, á Dofra frá Brún, 6,20/5,63. 4. Bjarni Jónasson UMSS, á Lykli frá Flugumýri, 6,17/6,68. 5. Herdís Einarsdóttir USVH, á Krafti frá Grafarkoti, 6,10/6,33. Fimmgangur 1. Þórir ísólfsson USVH, á Toppu frá Lækjamóti, 6,27/7,06. 2. Baldvin A. Guðlaugsson ÍBA, á Ör frá Akureyri, 6,07/6,95. 3. Bjarni Jónasson UMSS, á Snældu frá Ytra-Skörðugili, 6,07/6,78. 4. Þór Jónsteinsson UMSE, á Seifi frá Skriðu, 5,97/6,76. 5. Arnai' Grant IBA, á Loga frá Brennihóli, 5,53/6,44. Gæðingaskeið 1. Baldvin A. Guðlaugsson ÍBA, á Ör frá Akureyri, 8,78. 2. Gunnlaugur Jónsson UMSS, á Kór- ónu frá Garði, 7,89. 3. Arnar Grant IBA, á Loga frá Brennihóli, 7,60. 4. Erlendur A. Öskarsson ÍBA, á Dimmalimm frá Akureyri, 7,37. 5. Tryggvi Björnsson USAH, á Samúel frá Steinnesi, 6,95. Fimi 1. Guðrún Magnúsdóttir UMSS, á Jarpskjóna frá Enni, 6,30. 2. Magnús Lárasson USVH, á Alí frá Þórukoti, 5,67. 3. Herdís Einarsdóttir USVH, á Krafti frá Grafarkoti, 5,66. 4. Edda Ömólfsdóttir UMSE, á Loga frá Hólakoti, 5,45. 5. Þorsteinn Egilsson UMSE, á Hanni- bal frá Dæli, 4,75. Hindrunarstökk 1. Matthildur Hjálmarsdóttir USVH, á Eldibrandi frá Búrfelli, 8,79. 2. Guðrún Magnúsdóttir UMSS, á Jarpskjóna frá Enni, 7,83. 3. Þorbjörn Matthíasson ÍBA, á Galsa, 7,71. 4. Valur K. Valsson USAH, á Irpu frá Ármúla, 7,46. 5. Kolbrún S. Indriðadóttir USVH, á Flipa frá Grafarkoti, 7,29. Skeið 150 m 1. Baldvin A. Guðlaugsson á ÖOsp frá Brennihóli ÍBA, 7,70/15,3 sek. 2. Tryggvi Björnsson USAH, á Samúel frá Steinnesi, 7,30/15,7 sek. 3. Halldór P. Sigurðsson USVH, á Svertu frá Höfðabakka, 7,20/15,6 sek. 4. Þór Jónsteinsson UMSE, á Sindra frá Kirkjubæ, 6,70/16,3 sek. 5. Magnús Lárasson USVH, á Rögni frá Laugarbakka, 6,60/16,4 sek. Unglingar - fjórgangur 1. Sonja L. Þórisdóttir USVH, á Öld frá Lækjamóti, 6,23/6,81. 2. Ragnhildur Haraldsdóttir ÍBA, á Gauta frá Akureyri, 5,70/6,43. 3. Dagný B. Gunnarsdóttir ÍBA, á Þokka frá Akureyri, 5,57/6,33. 4. Eydís Ó. Indriðadóttir USVH, á Trítli frá Fögrabrekku, 4,93/6,05. 5. Ásdís H. Sigursteinsdóttir UMSE, á Freistingu, 4,23/3,69. Tölt 1. Ragnhildur Haraldsdóttir ÍBA, á Gauta frá Akureyri, 5,83/6,74. 2. Dagný B. Gunnarsdóttfr ÍBA, á Þokka frá Akureyri, 5,70/6,46. 3. Sonja L. Þórisdóttir USVH, á Öld frá Lækjamóti, 5,60/6,0. 4. Þórunn Eggertsdóttir USVH, á Snotra frá Bjargshóli, 5,50/6,0. 5. Ásdís H. Sigursteinsd. UMSE, á Freistingu, 5,30/5,79. Valdimar Kristinsson Fimm daga mót á Gaddstaðaflötum SUÐURLANDSMÓTI og stórmóti sunnlenskra hestamanna er slengt saman í eitt mót auk þess sem árleg síðsumarssýning kynbótahrossa á Suðurlandi er með í pakkanum. Úr verður eitt stærsta mót ársins þar sem skráningar eru á fimmta hundraðið auk kynbótahrossanna og dugir ekki minna en fimm dagar fyr- ir samkomuna. Dagskráin verður á þá leið að á miðvikudag klukkan 12.30 hefjast dómar í B-flokki gæðinga, 17.30 ung- lingaflokkur og 18.45 ungmenni. Á fimmtudag hefst dagski'á á sama tíma með B-fiokki, barnaflokkur verður á dagskrá klukkan 18.30. Á föstudag verður byrjað klukkan 9 á fjórgangi í öllum flokkum. Fyrri sprettir kappreiða hefjast klukkan 13 en yfirlitssýning kynbótahrossa hefst klukkan Í6.30 en áætlað er að hún standi yfir í þrjá tíma. Á laugar- dag verður byi'jað klukkan 9 á tölti en seinni sprettir kappreiða hefjast klukkan 12.30. Verðlaunaafhending kynbótahrossa hefst klukkan 16 en á sama tíma verður keppt í gæðinga- skeiði. Úrslit í öllum greinum gæð- ingakeppninnar hefjast að því loknu og reiknað er með að dagskrá ljúki klukkan 20.30. Sunnudagurinn fer allur í úrslit sem hefjast klukkan 9 en klukkan 15.30 hefst skeiðmeist- arakeppnin vinsæla þar sem bæði verður keppt í 150 og 250 metra skeiði, þrír keppendur í 250 metrun- um en fjórir í 150 metrunum. FULLTRÚAR á þingi LÍF 1998. Örva þarf frímerkja söfnun í landinu FRÍMERKl Félagsheimili Landssambandsins ÞRÍTUGASTA LANDSÞING LÍF 6. júní 1998. í tengslum við það var haldin frfmerkjasýningin Frímerki 98. NOKKUÐ hefur dregizt að geta hins árlega atburðar í heimi ís- lenzkra frímerkjasafnara, þess er þing Landssambands íslenzkra frímerkjasafnara er haldið. Það varð einmitt þrítugt á þessu ári. Svo sem venja hefur verið um langt skeið, var frímerkjasýning haldin í tengslum við þingið, FRÍMERKI 98. Frá henni verð- ur sagt í næsta þætti. Þingið var haldið í félagsheimili Landssam- bandsins í Síðumúla 17 laugar- daginn 6. júní. Landsþingið sátu 15 fulltrúar allra aðildarfélaga LÍF nema frá Akka á Dalvík. Þaðan kom enginn að þessu sinni. Formaður LÍF, Sigurður R. Pétursson, setti þing- ið og bauð fulltrúa velkomna til þess og sérstaklega Jón Aðalstein Jónsson, sem var heiðursgestur þingsins. Fundarstjóri var kosinn Þór Þorsteins, en fundarritari Sveinn Ingi Sveinsson, formaður FF. Formaður flutti skýrslu stjórnar LÍF og kom víða við. M.a. varð honum tíðrætt um þá deyfð, sem virðist vera í röðum íslenzkra frímerkjasafnara um þessar mundir og hefur reyndar verið um allmörg ár. Ræddi hann um það, hvað gera mætti til úr- bóta, því að hér þarf að bregðast við eftir mætti. Nokkrar umræð- ur urðu um skýrslu formanns og þá einkum, hvað unnt væri að gera til þess að örva frímerkja- söfnun í landinu og þá sérstak- lega meðal unglinga. Einn fund- armanna vék að því, hvort ekki væri unnt að fá skólana til liðs í þessum efnum. Jafnframt benti hann á, að nota þyrfti nýja tækni til að kynna frímerkjasöfnun og þá ekki sízt internetið eða ver- aldarvefinn svonefnda. Annar fundarmaður sagðist skilja vel áhyggjur formanns yfir þeirri þróun, sem hefur verið að gerast í röðum íslenzkra frímerkjasafn- ara. Benti hann á, að þetta væri ekki einungis áhyggjuefni hér á ■ landi, heldur víða um heim og ekki sízt á öðrum Norðurlöndum, svo sem oft hefur komið fram í frímerkjatímaritum. Benti hann á, að tímar hefðu breytzt veru- lega frá því, er Félag frímerkja- safnara var stofnað 1957 og LIF 1968. Alls konar önnur afþreying hefði komið upp og þá ekki sízt tölvan, sem gripið hefur hugi margra og þar á meðal unglinga. Hér væri því við ramman reip að draga. ÞÁ kom það fram í um- ræðunni, að margir frammá- menn í röðum safnara, sem hafa reynslu og þekkingu til að leið- beina ungum söfnurum, sæjust því miður sjaldan eða aldrei á venjulegum félags- eða skiptifundum safnara. Slíkt væri vissulega ekki til að örva áhuga yngri manna og laða þá til frí- merkjasöfnunar. Þá kom enn fremur fram, að of margir safn- arar væru það, sem kallað er „passífir" safnarar, en ekki „aktífir", þ.e. vildu einungis þiggja alls konar þjónustu af fé- lögunum, en ekki beita sér sjálfir í þeim efnum. Ýmsir fundarmenn sögðust sjálfir þekkja þetta vel af gamalli reynslu. Bent var á, að bein leið ætti að vera að fjölmiðl- um, þar sem koma mætti á fram- færi upplýsingum frá LÍF og að- ildarfélögum þess, svo að menn vissu, hvað væri að gerast meðal frímerkjasafnara. Þá var minnzt á það, að enginn kynningarfulltrúi virtist lengur vera starfandi á vegum LIF. Fyrir bragðið vissu fáir, hvað væri að gerast innan sambands- ins eða meðal íslenzkra safnara almennt. Menn voru allir sam- mála um, að finna þyrfti hér leið- ir til úrbóta. Eitt sinn var ráðinn sérstakur kynningarfulltrúi á vegum Landssambandsins, en hann réðst fljótt til annarra starfa, og enginn komið í stað hans. Þannig féll þetta starf niður. Eins hefur verið fyrirhuguð endurlífgun blaðs LIF, Grúsksins, enn ekki orðið að veruleika þrátt fyrir nokkra tilraun. Kæmi þar margt til, ekki sízt erfiðleikar að fá menn til að skrifa í blaðið. Vonir standa samt til, að úr því máli geti rætzt innan tíðar. Má líka öllum ljóst vera, að sérstakt málgagn á vegum LIF hlýtur að vera því og frímerkjasöfnun í landinu mikil lyftistöng. Þá var rætt um að end- urvekja þann sið, sem eitt sinn tíðkaðist, að reyndir safnarar væru á laugardögum í félagsher- bergi FF til ráðuneytis um frí- merki og frímerkjasöfnun al- mennt. Töldu menn ekki ósenni- legt, að íslandspóstur hf. vildi styrkja þá viðleitni frímerkjasafn- ara, enda hagur beggja auðsær. Þetta gerði líka Póstur og sími um allmörg ár. Formaður LÍF ræddi um ung- lingastarf í skólum. Sagðist hann hafa samið ásamt Hálfdani Helgasyni bréf, sem sent var til 43 skóla, þar sem beðið var um samstarf við kynningu frímerkja- söfnunar. Einungis eitt símatal barst varðandi þetta mál. Verður því ekki sagt, að skólamenn hafi sýnt mikinn áhuga á frímerkja- söfnun og á gildi hennar fyrir unga skólanemendur. Ýmis önnur mál bar á góma á þinginu, en þau skipta einungis innri starfsemi frímerkjasafnara. Er því ástæðulaust að greina frá þeim á þessum vettvangi. Formaður Landssambandsins var endurkjörinn til eins árs Sig- urður R. Pétursson. Aðrir stjórn- armenn eru Sigtryggur R. Ey- þórsson varaformaður, Sverrir Einarsson gjaldkeri, Sveinn Ingi Sveinsson ritari og meðstjómend- ur Garðar Schiöth, Hálfdan Helgason og Jón Zalewski. Vara- menn eru Eiður Amason og Steinar Örn Friðþórsson. r - e" Jón Aðalsteinn Jónsson www.mbl.is — i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.