Morgunblaðið - 18.08.1998, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 18.08.1998, Qupperneq 49
50 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir ÉG erwrinn uta& sksmmta J KEVNDU A& :LA þus 'fi EMK V1E> GLU66A- TOÖLDlNi éGl/ET _ GA&BA&l^ PAVÍ6 M-5 Tommi og Jenni BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Afbrýðisamir læknar Sigrúnu Marinósdóttir: ÉG GET ekki lengur orða bundist. Hvernig hin íslenska læknastétt, eða of margir í þeim hópi, hafa snúist gegn Kára Stefánssyni og hans frábæru framkvæmdum landi og lýð til heilla. Já; landi og lýð til heilla, segi ég. Ég hef unnið samtals 10 ár á sjúkrahúsi og 1 ár á heilsugæslu- stöð og þekki þar til. I Morgunblaðinu í dag birtist enn ein greinin um þetta málefni, sem sagt um persónuupplýsingaleynd ís- lenskra sjúklinga. Guðmundur Bjömsson og Gísli Einarsson rita hana „Kára til höfuðs“ og hans starfsemi, Islenskri erfðagreiningu. Halda þessir menn, sem svona láta, að við sem ekki höfum lagt stund á læknisfræðinám séum heilalausir hálfvitar? Þeir sem vinna á sjúkrahúsum og hafa fæðingardag og ár við- komandi sjúklings geta gengið inn á skjalasafn Landspítalans, ef þeir starfa þar, og tekið þar út hvaða ,journal“ sem hann/hana langar til að hnýsast í. Ef þú leitar í nauðum þínum til sérfræðinga innan læknastéttar- innar íslensku ertu komin á eins- konar „einstigi vonleysisins“, sem getur legið beinustu leið til algjörs heilsuleysis. Hvers vegna? Vegna þess að ef sá sérfræðingur sem þú leitar fyrst til setur á þig „sína sjúkdómsgreiningu“ þá breyta aðrir sérfræðingar henni ekki, þó að allt bendi til að sú greining hafí verið alröng. Sjúklingurinn er spurður hjá hvaða sérfræðingum hann hafi verið áður og sá sem spyr, læknir- inn, fær allar upplýsingar um hann frá þeim sem fyrst var leitað til, svo áfram frá öllum öðrum sér- fræðingum sem sjúklingurinn hef- ur reynt að fá einhverja viðunandi lækningu hjá. Læknirinn er ekki sá eini sem gögnin fara í gegnum hendurnar á, heldur læknaritarar, hjúkrun- arfræðingar og guð má vita hverj- ir fleiri. Þannig að verndun per- sónuupplýsinga sjúklinga á þessu landi, Islandi, er alls ekki til stað- ar, nema líklega hjá Kára Stef- ánssyni og Islenskri erfðagrein- ingu, sem hann stýrir svo rögg- samlega. Ég veit að Kári er skarpur og getur varið sig sjálfur betur en nokkur annar, ég þekkti fóður hans og honum kippir í kynið, svo um munar og ánægjulegt er að horfa á. Góðir landar mínir, látið ekki þessa „afbrýðisömu" andstæðinga Islenskrar erfðagreiningar rugla ykkur í ríminu. Þessi stílbrögð þeirra eru „grátbrosleg", vægast sagt. Vil ég enda mál mitt með að óska Kára Stefánssyni og hans starfsfólki alls hins besta í fram- tíðinni og ég vona að starf þeirra eigi eftir að skipta sköpum fyrir veikt fólk, ekki aðeins hér á landi heldur víða um lönd. SIGRÚN MARINÓSDÓTTIR, Hátúni lOb, Reykjavík. Hraðakstur og slysin Góður framkvæmdasljóri Góður framkvæmdastjóri veit hvernig hann á að tala hefur jafnvel áhuga á vel- við leikmennina ... ferð þeirra ... A 600D MANA6ER KN0WS HOU) TO •C0MMUNICATE U)ITH HIS PLAYER5.. A 600DMANA6ER EVEN 5H0U)5 CÖNCERN F0R THEIR WEIFARE.. how've vou) ^BEEN? y Hvernig hefurðu haft það? Ingimundi Gíslasyni: EFTIR LESTUÍt greinar Óskars Ásgeirssonar í Morgunblaðinu 12. ágúst síðastliðinn um hraðakstur og slys get ég ekki orða bundist. Höfundur er margorður í tilraun sinni að afneita þætti of mikils hraða á vegum úti í orsakakeðju slysa en minnist ekki einu orði á að- alatriði málsins sem er að afleiðing- ar slysa eru þeim mun hræðilegri sem hraðinn er meiri. Þetta orsaka- samband er tiltölulega einföld eðlis- fræði og það er þetta, meðal ann- ars, sem löggjafinn og önnur yfír- völd eru að reyna að koma í veg fyrir með umferðarlögum og fram- kvæmd þeirra. Fyrir þessa viðleitni eiga yfirvöld þakkir og stuðning skilið frá öllum almenningi. Mann- legt eðli er nú einu sinni þannig að oft tekur fólk fyrst við sér til betri vegar þegar buddan fer að kveina og þess vegna er beiting sekta nauðsynlegt verkfæri í réttarríki nútímans og aðdróttunum Óskars Ásgeirssonar um veskjaþjófnað vísa ég því aftur til föðurhúsanna. INGIMUNDUR GÍSLASON augnlæknir, Víðimel 23. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks í fasteignaleit ZM \J www.mbl.is/fasteignir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.