Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tveggja ára
barn féll
af svölum
TVEGGJA ára stúlkubarn féll
niður af svölum á þriðju hæð
húss við Þórufell í Breiðholti
síðdegis í gær og lenti á grasflöt
þar fyrir neðan.
Barnið var flutt á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur en
slapp lítið meitt, að sögn læknis
á vakt á slysadeild.
Flugvél
snúið við
FARÞEGAVÉL frá , Flugleið-
um sem var á leið til Óslóar var
snúið við skömmu eftir flugtak í
gærmorgun eftir að farþegi í
vélinni veiktist alvarlega.
Farþeginn, sem var Norð-
maður, var fluttur á Heilbrigð-
isstofnun Suðumesja, þar sem
hann lést síðar um daginn, að
sögn lögreglu á Keflavíkurflug-
velli.
Hlé á samstarfi Neytenda-
samtakanna, ASI og BSRB
SAMSTARFSVERKEFNI um verðkannanir og
verðlagsaðhald sem Neytendasamtökin, ASÍ og
BSRB hafa staðið að undanfarið ár liggur nú
niðri og er framhaldið í athugun. Að sögn Jó-
hannesar Gunnarssonar, formanns Neytenda-
samtakanna, var gerður árs samningur við stétt-
arfélögin um verkefnið og sl. júlí var komið að
lokum þessa tímabils og fara nú fram viðræður
um framhaldið.
„Neytendasamtökin gera sér vonir um að
framhald verði á verkefninu, við teljum það mik-
ilvægt vegna þess að þetta verkefni er til þess
fallið að örva samkeppni og aukin samkeppni
skilar sér í pyngju almennings," sagði Jóhannes í
samtali við Morgunblaðið.
Jóhannes segir kannanirnar sem gerðar hafa
verið undanfarið ár hafa verið af ýmsum toga.
„Við gerðum kannanir í matvöruverslunum, en
ég hef ekki miklar áhyggjur af þeim því þar ríkir
víða grimm samkeppni. En við höfum ekki síður
horft til annarrar vöru og þjónustu, kannanir
Mikilvægt að framhald
verði á segir formaður
N eytendasamtakanna
hafa náð til sérvöru og einnig til opinberrar þjón-
ustu sem er stór hluti útgjalda heimilanna."
Framhald í
athugnn stéttarfélaga
Hann segir mikilvægi þessara kannana m.a.
felast í því að þær hafi einnig verið gerðar úti á
landi. „Samkeppnisstofnun sem einnig gerir
verðkannanir hefur einkum gert kannanir á höf-
uðborgarsvæðinu en við færðum þær út á land og
reyndum að vinna fyrir landsbyggðina sem er
mikils virði fyrir almenning og launafólk í land-
inu.“
Einn starfsmaður var ráðinn til verkefnisins
og greiddu stéttarfélög laun hans og launatengd
gjöld og var miðað við félagafjölda í greiðslum
þeirra. Neytendasamtökin útveguðu starfsmanni
vinnuaðstöðu.
Að sögn Eddu Rósar Karlsdóttur, hagfræðings
ASÍ, er verið að kanna vilja aðildarfélaga ASI til
að halda áfram þátttöku í samstarfinu og býst
hún við niðurstöðu í byrjun september. „Verk-
efnið var upphaflega fjármagnað til eins árs
þannig að þetta voru eðlileg lok á verkefninu,“
sagði Edda. „Fulltrúar félaganna munu hittast
bráðlega til að fara yfir stöðuna og það hvað hef-
ur komið út úr verkefninu. En verkefnið var fjár-
magnað af einstökum félögum en ekki af ÁSI.
Því er ekki tekin ákvörðun á heildargrundvelli
heldur hjá félögunum sjálfum.“
Að sögn Eddu eru félögin aðallega að velta fyr-
irkomulagi verkefnisins fyrir sér, ekki samstarf-
inu sem slíku, stefnt sé á að kannanirnar verði
framkvæmdar þannig að þær hafi sem mest
áhrif.
Tillögur um „andlitslyftingu“ í Hafnarstræti
TEIKNING Ragnhildar Skarphéðinsdóttur landslagsarkitekts sýnir hvernig lífga má
VERKEFNISHÓPUR á vegum
Reykjavikurborgar hefur skilað
tillögum um hvemig fegra megi
umhverfi Hafnarstrætis, frá
Lækjargötu að Pósthússtræti, og
voru tillögurnar nýlega sam-
þykktar í borgarráði. Hópurinn
leggur til að gatnamálastjóra
verði falið að lagfæra göturýmið
í samræmi við tillögur Ragnhild-
ar Skarphéðinsdóttur Iandslags-
arkitekts.
I tillögum Ragnhildar er lagt
til að skipt verði um brotnar hell-
ur og kantar lagaðir. Bflastæði
verði færð til svo hægt verði að
koma fyrir gróðri og sett verði
upp blómaker á ljósastaura og í
götuna.
Hitt húsið fái afnot
af Zimsen-húsinu
Lagt er til að timburpallur
verði smíðaður yfir steypta pall-
við götumynd Hafnarstrætis.
Bæta þarf
neikvæða
götuímynd
inn við Hafnarstræti 21, öðm
nafni Zimsen-húsið og það verði
lagfært. Hópurinn leggur til að
húsið verði friðað og bendir á að
hafnarmannvirki í kjallara húss-
ins hafi varðveislugildi. Lagt er
til að gerðar verði lágmarks-
framkvæmdir á húsinu svo Hitt
húsið geti nýtt það fyrir sína
starfsemi, á meðan ekki hafa ver-
ið teknar ákvarðanir um framtíð
hússins. Verið er að skoða fram-
tíðarskipulag á þessu svæði og í
því kveður nánar á um framtíð
hússins svo lagt er til að gerðar
verði ráðstafanir til að viðhalda
húsinu í góðu ástandi.
I tillögum hópsins er lagt til að
Byggingarfulltrúa/Borgarskipu-
lagi verði falið að hvetja húseig-
endur til að bæta ásýnd húsa
sinna og Heilbrigðiseftirliti verði
falið að fylgjast með því að hús-
eigendur fjarlægi msl úr húsa-
sundum og haldi þeim snyrtileg-
um. Lagt er til að Hverfisbæki-
stöð miðborgarinnar verði falið
að fylgjast með veggjakroti og
Qarlægja jafnóðum og það birt-
ist, og að lögreglan fylgist betur
með ólöglegri lagningu bifreiða í
götunni.
Aðeins er gert ráð fyrir lág-
marksframkvæmdum og fyrirvari
gerður á því að byggingamefnd
og aðrar stofnanir sem hafa um-
sögn með byggingarmálum, fallist
á lágmarkslagfæringar.
Andlát
EINAR
HEIMISSON
EINAR Heimisson,
kvikmyndagerðarmað-
ur og doktor í sagn-
fræði, varð bráðkvadd-
ur í Munchen í Þýska-
landi sl. sunnudag, 31
árs að aldri.
Einar var fæddur í
Kópavogi 2. desember
1966, sonur hjónanna
Steinunnar Einars-
dóttur og Heimis Þor-
leifssonar. Hann ólst
upp á Seltjamarnesi,
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1986
og doktorsprófí í sagnfræði og bók-
menntum frá Albert-Ludwigs-Uni-
versitat í Freiburg í Þýskalandi
sumarið 1992. Doktorsritgerð hans
fjallaði um stöðu erlendra flótta-
manna á Islandi á fjórða áratugn-
um í samanburði við önnur Norð-
urlönd.
Einar þreytti samkeppnispróf
inn í Kvikmyndaakademíuna í
Miinchen haustið 1992 og lauk
fyrrihlutaprófi í leikstjóm og hand-
ritsgerð þaðan. Hann var blaða-
maður á tímaritinu Þjóðlífi, vann í
byggingavinnu og á eyrinni og
fjallaði um sígilda tónlist í Ríkisút-
varpinu 1987-1989.
Hann gerði tíu heimildamyndir
fyrir sjónvarp og eina leikna mynd
sem allar vom sýndar í Sjónvarp-
inu við mikið áhorf: Gyðingar á Is-
landi (1989), Innflytjendur á ís-
landi (1990), Ólafur Jóhann Sig-
urðsson (1991), í fjarlægð - um Is-
lendinga í Kaupmannahöfn á
stríðsárunum (1991), Bjami - saga
um vísindamann, um Bjarna Sæ-
mundsson fiskifræðing (1991), ís-
lenska íþróttavorið (1993), Hvíti
dauðinn - saga frá Víf-
ilsstöðum (1994),
Benjamín í Berlín og
Moskvu (1995), Ég
sigra (1996) og Við
höfðum ekkert vit á
stríði (1998). Kvik-
mynd eftir handriti og
undir leikstjóm Ein-
ars, María, var frum-
sýnd í kvikmyndahús-
um í Þýskalandi og á
íslandi haustið 1997
og sýnd í íslenska
sjónvarpinu 17. júní sl.
Einar gerði fjöl-
marga útvarpsþætti
um bókmenntir, tónlist og sagn-
fræði. Vaka-Helgafell gaf út tvær
skáldsögur hans og var önnur
þeirra, Götuvísa gyðingsins, til-
nefnd til Islensku bókmenntaverð-
launanna 1990. Hún kom út á
þýsku, hjá Foram Verlag, árið
1993 undir heitinu Ins Land des
Winters og hlaut góða dóma gagn-
rýnenda þar í landi.
Einar þýddi smásögur og ljóð
ýmissa höfuðskálda Þýskalands,
svo sem Heinrichs BöE, Gunthers
Grass, Wolfgangs Borchert, Steph-
ans Hermlin og fleiri. Þýðing hans
á bókinni Hvíta rósin, sögu ungra
andspymumanna í Þriðja ríkinu,
kom út hjá Menningarsjóði árið
1988. Auk þess liggja eftir Einar
smásögur og fjöldi greina um ýmis
þjóðfélagsmál.
Síðustu mánuðina var Einar að
vinna að undirbúningi kvikmyndar
um samband Benjamíns Eiríksson-
ar og Vera Hertsch í Moskvu á
fjórða áratugnum. í tengslum við
það skrifaði hann meðal annars
tvær greinar í sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
8SÍDUR
► VERIÐ fjallar meðal annars í dag um nýja
aðferð, sem ekki hefur verið notuð áður við
harðfiskverkun, sem Guðmundur Þór Kristjánsson
i Hnffsdal hannaði.
ÚRSLIT í LITALEIK
KJÖRÍSS OG V
MYNDASAGNA MOGGANS //
ssfeuR
Vala í úrslit
í stangar-
stökki
Arnór í { Einn
eins leiks {nýliði gegn
bann : Lettum
B4
B7 : B6
Emski ajoJtJJUJ
www.mM.is