Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 15
VIÐSKIPTI
✓
Nærri 600 milljóna króna hagnaður af rekstri Islandsbanka fyrstu 6 mánuðina
Hagnaður bankans
aldrei verið meiri
HAGNAÐUR af rekstri íslands-
banka hf. var 596 mkr. fyrstu sex
mánuði þessa árs og er það aukn-
ing um 32% frá sama tímabili í
fyrra, en þá nam hagnaðurinn 451
mkr.
Vaxtatekjur námu 4.483 mkr.
fyrstu sex mánuðina og höfðu auk-
ist um 16% frá sama tíma í fyrra.
Vaxtagjöld jukust um 21% og
lækkaði vaxtamunur úr 3,9% í 3,5%
milli áranna.
Hreinar rekstrartekjur bankans
námu alls 3.075 mkr. fyrstu sex
mánuði ársins og er það 16% aukn-
ing frá sömu mánuðum 1997 þegar
rekstrartekjur numu 2.656 mkr.
Gengishagnaður af annarri fjár-
málastarfsemi nam 569 mkr. og
jókst um 102%. Önnur rekstrar-
gjöld námu 1.985 mkr. samanborið
við 1.811 mkr. á sama tíma í fyrra
og jukust þau því um 10% milli ára.
Eigið fé fyrirtækisins nam 6.642
mkr. og hafði aukist um 411 mkr.
frá áramótum. Arðsemi eiginfjár
var 21,9% fyrstu sex mánuði ársins
en á sama tíma í fyrra var hún
18,9%.
I fréttatilkynningu frá bankan-
um segir að sala fullnustueigna
bankans hafí gengið vel á árinu og
hefur þeim fækkað um þriðjung.
Samkvæmt fréttatilkynningunni
skiluðu öll dótturfélög bankans
hagnaði fyrstu sex mánuði ársins
32% aukning
frá sama
tíma í fyrra
og er það eitt það helsta sem ein-
kennir milliuppgjör bankans.
Sameining hefði töluverð
áhrif á afkomu næstu mánaða
Valur Valsson, bankastjóri Is-
landsbanka, segist vera sáttur við
afkomu bankans á tímabilinu.
„Hagnaður er nú meiri en nokkru
sinni fyrr og arðsemi eiginfjár
einnig. Það sem ræður þessari
góðu afkomuþróun er að ytri skil-
yrði hafa verið okkur hagstæð.
Stöðugleiki ásamt hagvexti, sem og
vaxtalækkun á markaði fyrri hluta
árs, varð til þess að töluverður
gengishagnaður varð,“ sagði Valur.
Hann sagði einnig ljóst að ný starf-
semi, sérstaklega starfsemi við-
skiptastofu, væri mikilvægt atriði í
afkomutölunum auk velgengni
dótturfélaga, en afkoma þeirra er
inni í heildarhagnaðartölu bank-
ans.
Um horfur það sem eftir lifir árs
sagði hann rekstrarskilyrði ágæt
núna en veður skipuðust skjótt í
lofti. „Við viljum vera varkár í
spám. Við getum ekki vænst þess
að markaðsvextir lækki með sama
hætti og gerðist fyrri hluta árs til
dæmis og einnig er töluverð óvissa
um skipan mála í bankakerfinu.
Það myndi hafa töluverð áhrif á
rekstur bæði Islandsbanka og
Búnaðarbanka næstu mánuðina ef
tekin yrði ákvörðun bráðlega um
kaup íslandsbanka á Búnaðar-
banka,“ sagði Valur, en Islands-
banki hefur gert formlegt kauptil-
boð í öll hlutabréf ríkissjóðs í Bún-
aðarbanka Islands hf.
Albert Jónsson hjá Fjárvangi
segir að afkoma bankans sé svipuð
og gert hafi verið ráð fyrir. „Við
spáðum bankanum 4-500 mkr.
hagnaði og þetta er ívið betra. Um-
hverfi þessara fjármálafyrirtækja
er mjög gott um þessar mundir og
það er ávísun á góða afkomu,“
sagði Albert.
Hann sagði marga hagræðingar-
möguleika framundan með hugsan-
legri sameiningu banka og upp-
stokkun á fjármálamarkaði. „Það
mun hugsanlega þýða rými til ein-
hverra hækkana á hlutabréfum en
er allt undir því komið hvernig
landslagið breytist á næstu vikum.
Strax og ákvarðanir liggja fyrir
fara menn að spila eftir því og áhrif
á hlutabréfamarkaði skila sér
fljótt, enda eru horfur á að samein-
að fyrirtæki myndi verða arð-
bært.“
/UANDSS^^k ^ BANK.I hf. Úr milliuppgjöri 1998
I Rekstrarreikningur samstæðunnar 1.1 - 30.6.98
Milljónir króna 1998 1997 Breyting
Vaxtatekjur 4.483 3.881 +16%
Vaxtagjöld 2.819 2.322 +21%
Hreinar vaxtatekjur 1.664 1.559 +7%
Aðrar rekstrartekjur 1.411 1.097 +29%
Hreinar rekstrartekjur 3.075 2.656 +16%
Önnur rekstrargjöld 1.985 1.811 +10%
Framlag í afskriftareikning -449 -376 +19%
Skattar -45 -18 +150%
Hagnaður ársins 596 451 +32%
I Efnahagsreikningur samst. 30. júní 1998
EIGNIR, milljónir króna 30/6 ‘98 31/12 '97 Breyting
Sjóður, ríkisvíxlar og bankainnist. 7.672 7.181 +7%
Útlán 74.079 69.555 +7%
Markaðsverðbr. og eignarhlutir 12.667 9.352 +35%
Aðrar eignir 3.383 3.370 -
EIGNIR SAMTALS 97.801 89.458 +9%
SKULDIR og EIGIÐ FÉ, m.kr. 30/6 '98 31/12 '97 Breyting
Skuldir við lánastofnanir 12.830 13.388 -4%
Innlán 45.231 43.205 +5%
Lántaka 30.245 23.686 +28%
Aðrar skuldir 1.266 1.346 -6%
Tekjuskattsskuldbinding 2 2 -
Vikjandi LÁN 1.585 1.600 -1%
Eigið fé 6.642 6.231 +7%
SKULDIR SAMTALS 97.801 89.458 +9%
Nokkrar LYKILTÖLUR
Arðsemi eigin fjár 21,9% 21,1 %
Hreinar vaxtatekjur/heildarfjármagn 3.5% 4.0%
Kostnaður/Tekjur 65% 67%
Framl. á afskriftarr./heildarfjármagn -0,9% -0,9%
Meðalstöðugildi 714 710
*EI£>
Sértilboð á
barnahjólum
TREK 800 5PORT
TREK 820, 21 gíra Shimano Alivio,
krómólí stell og V-bremsur
á kr. 28.36 T (áður kr. 37.816)
GARY FISHER PIRANHA: 21 gíra
Shimano Acera-X, krómólí stell og V-
bremsur á kr. 19.891 (áður kr. 31.573)
Beinf sfýri
Breið gróf-
mynstruðde kk
V*bremsur
HJÓLAFATNAÐUR OG
HJÓLATÖSKUR
Ýmsar gerðir með SO% afslættil
16"kr.9r&80 (áðurkr.14.676)
20r’kr. i G.9BZ (áBurkr.15.679
Sferlcar álfeli
Hjálmatilboð kr. 500
Kr. 19.849,
(áður kr. 27.191,-,
sb sa neionioiaversiunin im
eLZLÍLLÍLiL/
Helstu útsölustaðir: ÖRNINN REYKJAVÍK - Pípó Akranesi -
Olíufélag útvegsmanna ísafiröi - Hegri Sauðárkróki - Sportver
Akureyri - KÞ Húsavík - Króm & hvítt Höfn - Klakkur Vlk -
Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum - Hjólabær Selfossi - Birgir
Oddsteinsson Hveragerði - Músik og Sport Hafnarfirði -
Stapafell Keflavík - Hjólið Seltjarnarnesi.
SKEIFUNNI T T
VERSLUN SÍMI 588-9890 VERKSTÆÐI SÍMI 588-9891
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10-16
Tilboðið stendur aðeins í nokkra daga á örfáum hjólum af árgerð 7 998
ALLIR LINUSKAUTAR MEÐ 30% AFSLÆTTI!